Morgunblaðið - 15.12.1999, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Nýtt starfsár Kammersveitar Reykjavíkur hefst með jólatónleikum
Islensk tónlist
á menningar-
borgarári
KAMMERSVEIT Reykjavíkur
hefur starfsárið með sínum árlegu
jólatónleikum í Askirkju nk.
sunnudag kl. 17. Síðan rekur hver
viðburðurinn annan, sveitin heldur
tvenna tónleika með íslenskum
verkum í samvinnu við Reykjavík,
menningarborg Evrópu árið 2000,
Tónskáldafélag íslands og Listahá-
tíð, auk þess sem einir tónleikar
verða helgaðir verkum eftir pólska
tónskáldið Henryk Górecki.
A síðastliðnum vetri hélt Kamm-
ersveitin upp á 25 ára starfsafmæli
sitt með fjölda tónleika og geisla-
diskaútgáfu. Einnig var haldið út
fyrir landsteinana en í október sl.
hélt Kammersveitin í tónleikaferð
til Kína og í nóvember hélt átta
manna hópur úr sveitinni tónleika í
Beethovenhaus Kammermusiksaal
í Bonn. Með þessum ferðum og út-
gáfu þriggja geisladiska fyrir jól
lýkur hátíðahöldum í tilefni
aldarfj órðungsafmælisins.
A jólatónleikunum á sunnudag-
inn verða leikin verk eftir Antonio
Vivaldi, Johann Sebastian Bach og
Archangelo Corelli. Einleikarar á
tónleikunum verða trompetleikar-
arnir Eiríkur Örn Pálsson og As-
geir H. Steingrímsson, Daði Kol-
beinsson óbóleikari og fiðluleikar-
arnir Rut Ingólfsdóttir, Júlíana
Elín Kjartansdóttir, Hildigunnur
Halldórsdóttir og Sigurlaug
Eðvaldsdóttir.
A opnunartónleikum menningar-
ársins, sem haldnir verða í Borgar-
leikhúsinu laugardaginn 29. janúar
nk., verða leikin verk eftir Helga
Pálsson, Þórarin Jónsson, Jón
Leifs, Atla Heimi Sveinsson og
Hafliða Hallgrímsson, en eftir
þann síðastnefnda verður leikinn
nýr víólukonsert, Ombra. Ein-
söngvari á tónleikunum verður
Sigrún Hjálmtýsdóttir, einleikari á
víólu Þórunn Osk Marínósdóttir og
stjórnandi Guðmundur Óli Gunn-
arsson.
A tónleikum í Langholtskirkju
20. febrúar leikur Kammersveitin
verk eftir pólska tónskáldið Hen-
ryk Górecki, en hann hefur þegið
boð sveitarinnar um að vera við-
staddur tónleikana. Verk hans
voru lítið þekkt nema í þröngum
hópi þar til 1993, þegar sinfónía
hans nr. 3, Sorgarsinfónían, skaust
upp í efstu sæti vinsældalista í
Bretlandi og seldist í hundruð þús-
unda eintaka. Einleikari á tónleik-
unum er Þóra Kristín Jóhannsdótt-
ir, einsöngvari Marta Guðrún
Halldórsdóttir og stjórnandi Bern-
harður Wilkinson.
Á tónleikum í Salnum í Kópavogi
5. júní 2000 verða leikin verk eftir
nokkur þeirra tónskálda sem hafa
unnið hvað mest með Kammer-
sveitinni. Frumflutt verða ný verk
eftir Pál P. Pálsson og Jónas Tóm-
asson, auk þess sem flutt verða
verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson,
Leif Þórarinsson og Atla Heimi
Sveinsson. Einsöngvari á tónleik-
unum verður Guðrún Edda Gunn-
arsdóttir og einleikari Anna Guðný
Guðmundsdóttir.
Jólatónleik-
ar í Landa-
kirkju
KÓR Landakirkju heldur
sína árlegu jólatónleika í
Landakirkju föstudaginn 17.
desember kl. 20.30. Einsöngv-
ari með kórnum er Sólrún
Bragadóttir og Védís Guð-
mundsdóttir leikur á þver-
flautu.
Flutt verða verk eftir inn-
lenda og erlenda höfunda.
Stjórnandi kórsins er Guð-
mundur H. Guðjónsson orgel-
leikari. Sólrún Bragadóttir
hefur komið fram í ýmsum
óperuhúsum í Evrópu og
sungið á fjölmörgum ein-
söngstónleikum.
Védís hefur í vetur stundað
nám erlendis í flautuleik. Að-
gangseyrir er kr. 1.000.
Morgunblaðið/Guðlaug Árnadóttir
Úr leikritinu Jólaflækja, Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir, Ingvar
Þórðarson og Tryggvi Valur Tryggvason í hlutverkum sínum.
Morgunblaðið. Höfn 1 Hornafírði.
MARGIR halda fast í siði og venjur
hvers konar ekki síst á jólum. Þá
berjast menn jafnvel við að halda í
siði sem fylgt hafa fjölskyldunni
mann fram af manni í marga ættliði.
Á jólum hittast fjölskyldur og eiga
nánar samverustundir umvafnar há-
tíðleikanum sem fylgir þessum dög-
um. Þetta eru þó oft mjög ólíkir ein-
staklingar sem þama eru saman
komnir sem þrífast dagsdaglega í
umhverfi sem er frábrugðið að öllu
leyti. Á jólum er ætlast til þess að
vandamál, erjur og ólíkar skoðanir
sé vandlega falið og komi ekki upp á
yfirborðið í fjölskyldusamverunni.
Oft þarf þó lítið til að velta boltanum
af stað. Það gerðist a.m.k. í jóla-
flækju Guðjóns Sigvaldasonar sem
Leikfélag Hornafjarðar frumsýndi
sl. laugardagskvöld. Þar var fjöl-
skylda að halda sín hefðbundnu jól
eða reyndi það til að byrja með.
Mamman í eldhúsinu eitthvað að fást
við mat milli þess sem hún vísaði
öðru heimilisfólki á hvar fötin þeirra
var að finna og straujaði sparifot
þeirra þess á milli. Eini einstakling-
urinn sem ætlast var til að hjálpaði
húsmóðurinnni var að sjálfsögðu
dóttirin. Faðirinn ábúðarfullur á
ferðinni í kjólfötunum milli allra jóla-
seríanna sem hann hafði haft fyrir að
hengja upp í kappi við nágrannann.
Synirirnir að munnhöggvast og að
sjálfsögðu í baði fram að kvöldmat.
Tengdadóttirin að reyna að hjálpa til
óörugg í nýju fjölskyldunni. Frænd-
inn sem heldur alltaf jólin með þeim
kominn til kvöldverðar. Á margan
hátt ýkt dæmigerð fjölskylda á jól-
um. Og svo fara grímur að falla,
grímur sem settar eru upp til að gera
fjölskylduna að einni heild en ekki
einstaklinga með ólíkan bakgrunn,
vonir og vonbrigði. Þegar einstakl-
ingamir koma í Ijós fer hið hátíðlega
yfirbragð að renna af fjölskyldum-
yndinni sem þó faðirinn rígheldur í.
Átök og uppgjör em sjálfsagt það
sem fæstir vilja upplifa á aðfanga-
dagskvöldi í faðmi fjölskyldunnar en
sjálfsagt er jólamyndin ekki jafn
slétt og felld allstaðar.
Fjölskyldan í Jólaflækju Guðjóns
átti öðmvísi aðfangadagskvöld en
margir höfðu ætlað, að minnsta kosti
fjölskyldufaðirinn. Þetta var
skemmtilegt leikrit, uppbygging
þess góð, byrjunin róleg en þó undir
niðri kitlandi, spennan í loftinu og
þráðurinn reis hratt en endirinn
svolítið flatur. Sum mál era þó þann-
ig að á þeim er enginn endir aðeins
hægt að dusta ofan af og reyna svo
að brosa framan í lífið eins og ekkert
hafi ískorist. Leikarahópurinn sem
almennt stóð sig mjög vel samanstóð
af vönum leikuram úr Leikfélagi
Homafjarðar og ungu fólki sem er
að stíga sín fyrstu skref á sviði. Guð-
jón samdi þetta leikrit fyrir leikfé-
lagið nú í byrjun aðventunnar. Verk-
ið er sett upp í Pakkhúsinu á Höfn og
hefur Guðjóni tekist að breyta því í
lítið skemmtilegt leikhús.
Flautuspil og
annað spil
TONLIST
r.e íKlaplölur
KARÓLÍNA
EIRÍKSDÓTTIR
Karóiina Eiríksdóttir: Flautuspil,
fyrir einleiksflautu. Skýin, fyrir
einleiksselló. Hvaðan kemur lognið,
fyrir einleiksgítar. Spil, fyrir tvær
flautur. Heimkynni við sjó,
sönglagaflokkur fyrir sópranrödd
og pianó. Flytjendur: Martial
Nardeau og Guðrún S. Birgisdóttir
(flauta), Gunnar Kvaran (selló),
Einar Kristján Einarsson (gítar),
' Tinna Þorsteinsdóttir (píanó),
Ingibjörg Guðjónsdóttir (sópran).
Lengd: 65’26. Útgáfa: Smekkleysa
SMK 13 AC99023.
FYRIR stuttu kom út nýr diskur
með tónlist eins af atkvæðamestu
tónskáldum íslands, Karólínu Eir-
íksdóttur. Um er að ræða nýjar upp-
tökur sem ekki hafa verið gefnar út
áður á geisladiski að undanskildu
verkinu Hvaðan kemur lognið, sem
má heyra á ársgamalli einleiksplötu
Einars Kristjáns Einarssonar.
Sérstaða þessa nýja safns er að öll
verkin era leikin af tónlistarmönn-
unum sem framfluttu þau og þau era
samin fyrir. Þetta gerir safnið á disk-
inum í sjálfu sér að merkilegri heim-
ild sem hlýtur að vekja áhuga þeirra
sem vilja fylgjast með íslenskri tón-
list.
Verkin á plötunni krefjast mikils,
bæði af flyjendum og hlustendum.
Flautueinleikur Martials Nardeau
vekur strax athygli manns í upphafs-
verkinu Flautuspil frá 1998. Hann
leikur sér að flúraðu tónmáli Karó-
línu í þessu impróviserandi sýning-
arstykki eins og ekkert væri auð-
veldara en að þeytast upp og niður
tónstigana á ofurhraða. Samt er hver
einasti tónn skýrt mótaður og falleg-
ur. Martial Nardeau er virtúós á
hljóðfæri sitt. í seinna flautuverkinu,
Spil, leikur hann með Guðrúnu S.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Björn Bjarnason menntamálaráðherra tekur við bók um Alvar Aalto úr hendi Riitu Hcinamaa, forstjóra Nor-
ræna hússins. Með þeim á myndinni eru Signý Pálsdóttir, Sif Friðleifsdóttir og Andrea Jóhannsdóttir.
Bók um Alvar Aalto
ÚT er komin bók um finnska
arkitektinn Alvar Aalto, Norræna
húsið og Island. Höfundar greina
eru dr. Gylfi Þ. Gíslason, Hjörtur
Pálsson rithöfundur, Ilona Leht-
inen arkitekt, dr. Ásdís Ólafs-
dóttir, Pétur H. Ármannsson arki-
tekt og Jóhanna Tryggvadóttir
framkvæmdastjóri.
Norræna húsið stendur að út-
gáfu bókarinnar og kemur bókin
út í tveimur útgáfum; á íslensku
ogdönsku, finnsku og ensku.
I ritstjórn voru arkitektarnir
Haraldur Helgason, Málfríður
Kristjánsdóttir og Pétur H.
Ármannsson auk Riittu Heinam-
aa, forstjóra Norræna hússins.
Birgisdóttur. Samleik-
ur þeirra er afar sann-
færandi og tæknilega,
að því er best verður
heyrt, hafinn yfir alla
gagnrýni. Þessi flautu-
dúett er ögn mýkri
undir tönn en fyrra
verkið og þar bregður
jafnvel fyrir „léttum“
dansandi hugmyndum
eins og í hugmyndaríku
niðurlagi lokakaflans.
Skýin er verk fyrir sel-
lóeinleik. Lokakafli
verksins er aðgengileg-
asti hluti þess og er
leikur Gunnars Kvaran
bæði kraftmikill og
ákafur. Hvaðan kemur iognið hefur
vanist vel frá því að undirritaður
heyrði það íyrst á sólóplötu Einars
Kristjáns Einarssonar. Tónn Einars
er alltaf fallegur og leikur hans
þróttmikill hér sem endranær. Plöt-
unni lýkur á sönglagaflokknum
Heimkynni við sjó sem saminn er við
texta eftir sveitunga Karólínu á
Álftanesi, Hannes Pétursson. Ljóðin
og lögin fjalla öll um manneskjuna
og náttúralegt umhverfi hennar og
leitast tónskáldið við að sníða söng-
lögin að formum náttúrannar og frá-
sögn ljóðanna. Píanóröddin er hug-
vitsamlega útfærð og ágætlega
leikin af Tinnu Þorsteinsdóttur, vel
má t.d. ímynda sér tipl
„fuglsins í fjöranni" í
fyrsta laginu Tjaldur-
inn og í laginu Blár þrí-
hyrningur form eld-
fjallsins Keilis. Lagferli
söngraddarinnar er
hins vegar ekki alltaf
eins augljóst, þótt sjá
megi fyrir sér flögrandi
fiðrildin í samnefndu
lagi. Söngur Ingibjarg-
ar Guðjónsdóttur í
þessum oft á tíðum
strembnu sönglögum
er glæsilegur.
Textaheftið með
plötunni er vel unnið og
þar gerir Hjálmar H.
Ragnarsson sitt besta til að útskýra
það sem fyrir eyran ber þótt það sem
lesa má höfði ef til vill frekar til
„hinna innvígðu" en hins almenna
hlustanda.
Hljóðritunin er prýðileg þótt að
vísu megi heyra mun á hljóðmynd-
inni milli verka. Það kemur reyndar
varla að sök þar sem ólíklegt er að
menn hlusti á disk af þessu tagi frá
upphafi til enda. Hér er hreint ekki
um neitt léttmeti að ræða. Tónlistin
reynir veralega á hlustandann og
ætti helst að höfða til þeirra sem
kunna að meta nútímalegt og abstr-
akt tónmál.
Valdemar Pálsson
Karólína
Eiríksdóttir
Jólaflækja á Höfn