Morgunblaðið - 15.12.1999, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 15.12.1999, Blaðsíða 62
62 MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRARINN BRANDUR HELGASON PJÉTURSS, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 16. desember kl. 15.00. Fyrir hönd vandamanna, Helgi Þórarinsson, Þórarinn Brandur Þórarinsson, Stefán Þórarinsson, Kristrún Þórðardóttir, Pétur Haukur, Helena, Helga Björk og Gunnar Þór Helgabörn, Sæunn og Svava Lóa Stefánsdætur. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNAR SKAPTASON tannlæknir, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánu- daginn 20. desember kl. 10.30. Gunilla Skaptason, Kristján Kristjánsson, Hallgunnur Skaptason, Andrés B. Sigurðsson, Gunnar O. Skaptason, Gerður Hannesdóttir, Björn Skaptason, Hildur Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur sonur minn, barnabarn, bróðir okk- ar, mágur og frændi, GUÐMUNDUR HALLSSON, Háholti 11, Keflavík, sem lést fimmtudaginn 9. desember, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 16. desember kl. 14.00. Karlotta Sigurbjömsdóttir, Sigurbjörn Metúsalemsson, Margrét Hallsdóttir, Carsten Bluhme, Sigurbjörn J. Hallsson, Stefanía Hákonardóttir, Hallur M. Hallsson, Svanbjörg K. Magnúsdóttir, Ragnar K. Hallsson, Inga Lóa Steinarsdóttir og frændsystkini. + Faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, SVAVAR ÁRNASON vélstjóri, Hofsvallagötu 16, Reykjavík, er lést fimmtudaginn 9. desember á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, verður jarðsunginn frá Neskirkju fimmtudaginn 16. desember kl. 13.30. Svala Svavarsdóttir, Sigurður Vilhjálmsson, Ingvi Svavarsson, Hulda Gunnþórsdóttir, Þuríður Árnadóttir, Margrét Lilja Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, Furugrund 68, Kópavogi, verður jarðsungin frá Digraneskirkju á morgun, fimmtudaginn 16. desember, kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Árni Árnason, Örn Vilmundarson, Björk Sigurjónsdóttir, Kristin Guðbjörg Arnardóttir, Kristófer Jóhannesson, Sigurjón Geirsson Arnarson, Árný Ösp Arnardóttir og barnabarnabörn. + Guðmundur Ingi Ingason fæddist í Reykjavík 1. maí 1939. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur hinn 7. desem- ber siðastliðinn. For- eldrar hans voru Ingi Guðmundsson, verkamaður í Reykjavík, f. 1. októ- ber 1916, d. 30. mars 1971, og Gyða Guð- mundsdóttir, hús- móðir og gangavörð- ur, f. 21. september 1918, d. 14. janúar 1999. Guðmundur var annað barn foreldra sinna en systkini hans eru: Birna, f. 4. desember 1937, Gunnar, f. 24. júní 1940, drukkn- aði 1. febrúar 1973, Skúli, f. 24. nóvember 1941, drukknaði 5. apr- íl 1961, Guðmundina, f. 15. janúar 1943, Júlíus, f. 15. ágúst 1944, Bettý, f. 9. desember 1945, Ástríð- ur, f. 30. nóvember 1948, Hulda Fríða, f. 29. júní 1950, og Sigurð- ur, f. 4. desember 1957. Á stundu sem þessari fer margt í gegnum hugann og minningarnar eru margar. Mörg eru „efín“ og hugsunin hröð. En þegar slíkar hugsanir koma er gott að vita til þess að það sé af einlægri ósk okkar um að vilja hafa hlutina öðruvísi. Það var Guðmundur kvæntist 7. október 1967 Sigrúnu Stein- þóru Pálsdóttur. Þau eignuðust tvær dætur. Gyða er fædd 7. maí 1968. Sambýl- ismaður bennar er Þórður M. Sigurðs- son. Bryndís, f. 24. júní 1975. Unnusti hennar er Kevin Lee Sevilla. Fyrir átti Sigrún soninn Pál Rúnar Valdimars- son, f. 21. mars 1963, og gekk Guðmundur honum í föðurstað. Eiginkona Páls er Herdís Danivalsdóttir. Þau eiga þijú börn, Jóhannes, Gunnar Pál og Söru Rut. _ Lengst af starfaði Guðmundur í Áburðarverksmiðju ríkisins en einnig vann hann ýmis önnur störf til sjós og lands. Síðustu árin starfaði hann í Múlakaffí. Utför Guðmundar Inga fer fram frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. margt sem þú vildir gera fyrir okkur sem þú stundum réðst kannski ekki við en þú gafst okkur annað í staðinn, dýrmætar minningar. Þú varst sterkur persónuleiki. Þér þótti vænt um fólk og á þinn hátt með glettnum orðum, brosi og hjálpsemi sýndir þú hversu umhyggjusamur þú varst. Andlát þitt bar snöggt að, þú varst alltaf bráðlátur og vildir að hlutirnir gengju hratt fyrir sig, en sárt er að sitja eftir. Það verður skrítið að hafa þig ekki nálægt enda finnst okkur eins og þú sért bara í vinnunni og komir heim bráðum. „Hér sé friður," var einn af þínum skemmtilegum frösum sem þú áttir til segja við ýmsar aðstæður. Þar sem þú varst var mikið að gerast því þú varst allt- af svo hress og atorkusamur, það gustaði af þér krafturinn. Nú ertu búinn að eignast þann frið sem við öll eigum eftir að öðlast. Faðir, þó mér fjarlæg hylji friðargeisla augna þinna, ertu samt um aliar stundir engill kærleiksdrauma minna. (Hulda) Elsku pabbi, við eigum eftir að sakna þín mikið en við huggum okk- ur við þá trú að þú verðir engill kær- leiksdrauma okkar. Hvíl þú í friði. Þínar dætur Gyða og Bryndís. Elsku tengdapabbi. Það er viss tómleiki að koma heim og þú ert ekki hér. Eg var farin að hlakka svo til að sjá ykkur öll. Mikið hefði ég viljað að þú hefðir getað haldið jólin með okkur. Minningar og söknuður fylla hjarta mitt. Eg á eftir að sakna þess að koma inn í Stóragerði og hafa þig ekki til staðar og þann hressileika sem fylgdi því þegar þú komst heim. Þó skrítið sé sakna ég líka óþolin- mæði þinnar, þú vildir ekki þurfa að bíða eftir neinu. Öll þau ár sem ég hef verið hluti af fjölskyldunni hefur þú verið mér mjög góður. Oft hringdir þú og við spjölluðum lengi saman. Eg hefði óskað að þú hefðir fengið að lifa leng- ur og eiga hamingjurík ár. Minning þín mun ætíð búa innra með mér. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkertbresta A grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðirmigaðvötnum þar sem ég má næðis njóta. Hannhressirsálmína og leiðir mig um rétta vegu sakirnafnssíns. Jafnvel þó ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, þvíþúerthjámér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér allaævidagamína, og í húsi Drottins bý ég langaævi. (23. Davíðssálmur.) Herdís. Okkur systkinin langar að minn- ast bróður okkar, Guðmundar Inga, í fáum orðum. Deddi, eins og hann var yfirleitt kallaður, var elstur af fimm bræðrum og næstelstur af tíu systk- Skilafrestur minningar- greina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. + Þökkum auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, PÉTURS B. GEORGSSONAR, Búlandi 2. Guðrún S. Gunnarsdóttir, Júiíus Pétursson, Torill Masdalen, Gunnar Örn Pétursson, Karen Níelsdóttir, Birgir Pétursson, Anna Lísa Guðmundsdóttir, Steinunn Pétursdóttir, Sveinn Skúlason, Guðrún Pétursdóttir, afabörn og langafabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför HÖNNU SESSELJU HÁLFDANARDÓTTUR og virðingu sýnda við minningu hennar. Ármann Markússon, Ingibjörg Markúsdóttir, Hálfdan Þórir Markússon, Sóley Indriðadóttir, Hanna Sesselja, Bára Fanney, Árný Þóra, Margrét Rósa og Sylvía Rún Hálfdanardætur, Þórdís Hansdóttir, Gísli Elíasson, Kristrún Bjarney Hálfdanardóttir, Jón Magnús Magnússon. + Þökkum sýndan vinarhug og samúð við andlát og útför GUÐMUNDAR MAGNÚSSONAR frá Kjörvogi, Miklubraut 16, Reykjavík. Kristín Guðmundsdóttir, Magnús Rúnar Guðmundsson, Hrönn Harðardóttir, Níels P. Guðmundsson, Elsa Margrét Níelsdóttir, Jacob A. de Ridder, Guðmundur Elías Níelsson, Karólína Guðmundsdóttir, Þórdís Garðarsdóttir, Lúðvík Bjömsson og barnabörn. GUÐMUNDURINGI INGASON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.