Morgunblaðið - 15.12.1999, Blaðsíða 80
Drögum næst
27. desember
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
Heimavörn
W ww'
SECURITAS
Sími: 580 7000
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
J hríðarbyl í
Borgarfirði
í MIKLUM hríðarbyl sem gekk
yfir Borgarfjörð í gær rakst
íjósmyndari Morgunblaðsins á
þennan spræka hestamann sem
lét veðrið greinilega ekki hafa
áhrif á útreiðartúrinn.
Margir hafa eflaust litið út
um gluggann sinn og hugsað
með sér að best væri að halda
sig innandyra, en það átti ekki
við í þessu tilviki.
Morgunblaðið/RAX
Stefnir í 38 milljarða við-
skiptahalla á þessu ári
HORFUR eru á að viðskiptahallinn á þessu ári verði 38 milljarðar króna, sem
er um 9 milljörðum meiri halli en gert var ráð fyrir nú í haust. Þetta kemur
fram í endurskoðaðri þjóðhagsáætlun sem kynnt var í gær. Áætlunin gerir
einnig ráð fyrir meiri verðbólgu, minni útflutningi, meiri innflutningi og held-
ur minni hagvexti.
Vestmannaeyingar fylg:jast grannt með Eyjafjallajökli
Eldgos gæti meng-
að neysluvatnið
VESTMANNAEYINGUM er það
ljóst að hugsanlegt gos úr Eyja-
fjallajökli gæti haft skaðleg áhrif á
neysluvatn þeirra, sem leitt er úr
lokuðu vatnsbóli úr sprungu sem
kemur undan jöklinum. Gjóskufall
sem fylgdi gosinu myndi hugsan-
lega menga vatnsbólið í gegnum
*sigvatn og því þyrfti að fylgjast
grannt með gangi mála ef jökullinn
færi að gjósa.
Að sögn Friðriks Friðrikssonar,
veitustjóra í Eyjum, þyrfti að setja
upp mælibúnað til að fylgjast með
snefilefnum, s.s. flúori, sem gætu
borist í vatnið með gjósku goss úr
jöklinum.
Mar karflj ótsbr ú
í hættu í stórflóði
Enn fremur þyrfti að huga að
öðrum atriðum ef flóð eða jarð-
skjálftar löskuðu hina 22 km löngu
aðveituæð sem liggur frá vatnsupp-
tökunum niður í dælustöð veitunnar
niður á Landeyjasand þaðan sem
vatninu er dælt til Eyja.
„Aðveituæðin fer yfir gömlu
Markarfljótsbrúna og hún myndi
illa þola stórt flóð,“ segir Friðrik.
„Ef klakaburður myndi t.d. brjóta
hana niður yrði að grípa til áætlun-
ar sem byggð er á því að taka vatn
úr svokölluðum Álum, en það yrði
háð því að ekki væri um gjóskufall
úr gosi að ræða með tilheyrandi flú-
ormengun.“
Að sögn Friðriks kæmi ekki ann-
að til greina en að taka upp vatns-
flutninga til Eyja með Herjólfi _cf
ekki yrði unnt að sækja vatn úr Ái-
um.
Viðskiptahallinn á síðasta ári var
33 milljarðar, en reiknað var með í
þjóðhagsáætlun, sem lögð var fram í
október, að heldur myndi draga úr
honum. Ekki eru horfur á að þetta
gangi eftir því nú stefnir í 38 millj-
arða viðskiptahalla. Þetta þýðir að
viðskiptahallinn verður 5,6% af
landsframleiðslu. Því er jafnframt
spáð að viðskiptahallinn verði um 38
milljarðar á næsta ári.
Horfur eru á að verðbólga í ár
verði 3,4% og 4,5% á næsta ári, en
hún var 1,7% í fyrra. Horfur eru á
5% hagvexti, en eldri áætlun gerði
ráð fyrir 5,8% hagvexti.
Mikill vöxtur
í einkaneyslu
Einkaneysla hefur aukist mun
meira á þessu ári en reiknað var með
í þeirri áætlun sem lögð var fram í
haust. Samtals hefur einkaneysla
aukist um 30% á síðustu fjórum ár-
um. Þessi mikla einkaneysla endur-
speglast síðan í miklum innflutningi,
en horfur eru á að hann aukist um
6% í ár, en ekki um 2% eins og reikn-
að var með í eldri áætlun. Hins veg-
ar eru horfur á að spá um 2% vöxt í
útflutningstekjum gangi ekki eftir
og tekjur af útflutningi verði
Eldri borgarar hitta fjármálaráðherra
Vilja greiða lægri
skatt af lífeyri
3«aSESBESE3QE3S
FELAG eldri borgara í Reykjavík
ætlar á fund fjármálaráðherra vegna
tekjuskattskreiðslu eldri borgara af
vaxtahluta lífeyrisgreiðslna. Félagið
telur skattgreiðsluna vera stjórnar-
skrárbrot og vill að ráðherra beiti sér
fyrir lagabreytingu þannig að félagið
þurfi ekki að leita réttar síns fyrir
dómstólum, sem það hyggst gera fái
það ekki leiðréttingu mála sinna.
óbreyttar milli ára. Skýringin er
fyrst og fremst minni framleiðsla á
sjávarafurðum en reiknað var með.
Tekjuafgangur
dregur úr þenslu
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir nýja þjóðhagsspá í meginatrið-
um eins og þá fyrri. ,Aðalfrávikið er
að viðskiptahallinn verði meiri en
þeir spáðu fyrir fáeinum vikum,“
segir Davíð. „Hitt er hins vegar já-
kvætt að menn telja að verðbólgan
verði minni á næsta ári en á þessu
ári, atvinnuleysi sé búið, hagvöxtur
verði sæmilegur og reyndar, miðað
við það sem við þekkjum í kringum
okkur, bara mjög góður.“
Hann segir að spá um aukinn við-
skiptahalla sé ákveðið áhyggjuefni
en gerir sér vonir um að mikill tekju-
afgangur á ríkissjóði dragi úr undir-
liggjandi þenslu á næstu mánuðum.
■ Endurskoðuð/41
ÞV6RD5 LEliClR
^raseBSKi
Tekjuskattur er greiddur af lífeyi-i
þegar hann kemur til útborgunar og
á það jafnt við um inngreidd iðgjöld
og uppsafnaða vexti. Það er mat fé-
lagsins að réttara sé að greiða fjár-
magnstekjuskatt af vöxtunum líkt og
lög um vexti, arð, leigu og söluhagn-
að geri ráð fyrir.
■ Telja tekjuskattsgreiðslur/13
H
mmmmm
dagar til jóla