Morgunblaðið - 15.12.1999, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999
MORGUNBLADIÐ
________FRETTIR_____________
Persónuvernd tekur við
verkefnum Tölvunefndar
*
Utvarpsráð
Rúnar
hlaut flest
atkvæði
KOSIÐ var í útvarpsráði í gær um
veitingu stöðu dagskrárstjóra inn-
lendrar dagskrár.
Rúnar Gunnarsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Sjónvarpsins,
fékk fjögur atkvæði og Lárus Ýmir
Oskarsson kvikmyndagerðarmaður
þrjú. Útvarpsráð er umsagnaraðili
um stöðuna, en endanleg ráðning
er í höndum Markúsar Arnar
Antonssonar útvarpsstjóra.
Sigurður Valgeirsson hefur
gegnt stöðunni.
NÝ SJÁLFSTÆÐ stofnun, Pers-
ónuvernd, tekur við störfum Tölvu-
nefndar samkvæmt stjórnarfrum-
varpi til laga um persónuvernd og
meðferð persónuupplýsinga sem
lagt hefur verið fram á Alþingi. Með
því á að auka sjálfstæði eftirlits-
aðilans.
Frumvarpið er byggt á starfi
nefndar sem dómsmálaráðheiTa fól
að endurskoða lögin um skráningu
og meðferð persónuupplýsinga
vegna gildistöku nýrrar tilskipunar
Evrópusambandsins. Að áliti nefnd-
arinnar leiðir tilskipunin til þess að
gera þarf miklar breytingar á ís-
lenskum rétti um meðferð persónu-
upplýsinga og þykir hagkvæmara að
semja frá grunni frumvarp til nýrra
laga en að leggja til breytingar á
einstökum ákvæðum gildandi laga.
í frumvarpinu er lagt til að dregið
verði úr fyrirbyggjandi ráðstöfun-
um, það er að segja leyfisveitingum,
en þess í stað mælt fyrir um skyldu
til að tilkynna ákveðnar tegundir
vinnslu persónuupplýsinga. Einnig
er mælt fyrir um að þeir sem vinna
með persónuupplýsingar skuli
tryggja öryggi við vinnsluna og
gæði upplýsinga og Persónuvernd
er veitt heimild til að stöðva ólög-
mæta vinnslu og beita öðrum úr-
ræðum.
Fram kemur i greinargerð með
frumvarpinu að réttindi hins skráða
eru stórlega aukin. Er það gert með
því að þeim sem skráninguna annast
er að eigin fi-umkvæði gert skylt að
veita hinum skráða ýmiskonar
fræðslu, hinum skráða eru veitt
aukin réttindi sem hann verður
sjálfur að hafa frumkvæði að því að
nýta sér og með því að Persónu-
vernd er gert skylt að halda skrá
yfir vinnslu sem henni er tilkynnt
um og hafa hana aðgengilega íyrir
almenning.
Morgunblaðið/Sigríður Dögg
Harður árekstur við Þrengslaveg
HARÐUR árekstur þriggja bif-
reiða varð á mótum Þrengslaveg-
ar og Suðurlandsvegar á þriðja
tímanum í gær. Tildrög slyssins
voru þau að bifreið var ekið frá
Þrengslavegi út á Suðurlandsveg
og í veg fyrir tvær bifreiðar sem
báðar voru á leið til Reykjavíkur,
samkvæmt, upplýsingum frá lög-
reglunni á Selfossi.
Ökumenn tveggja bifreiða voru
fluttir á slysadeild, en hvorugur
þeirra slasaðist alvarlega og höfðu
báðir verið útskrifaðir í gær-
kvöldi, að sögn læknis á slysadeild.
INTER kænr vegna
ókeypis netþjónustu
FÉLAG endursöluaðila á internet-
þjónustu, INTER, hefur kært
Islandsbanka, Islandssíma, Lands-
símann, Búnaðarbanka og Lands-
banka til samkeppnisyfirvalda fyrir
að bjóða ókeypis netþjónustu.
Það er mat INTER að símafélög-
in og bankarnir hafi brotið gegn
markmiðum og ákvæðum sam-
keppnislaga með boðum um ókeyp-
is netþjónustu.
Guðmundur Kr. Unnsteinsson,
formaður INTER, segir takmark-
aðan skilning ríkja á nettilboðum
bankanna. „Það virðist enginn gera
sér grein fyrir að lénin sem bjóða
fría þjónustu eru öll í eigu bank-
anna. En með því eru bankar að
brjóta lög um rekstur og starfsemi
sína, því þeim er ekki heimilt að
veita aðra þjónustu en tilgreind er í
lögum um starfsemi banka og
sparisjóða," segir Guðmundur.
Athygli fjármálaeftirlitsins
vakin
INTER mun senda fjármálaeftir-
litinu erindi þar sem vakin verður
athygli á að bankarnir brjóti gegn
lögum. „Ég tel bankana vera
komna út á hálan ís hér og það er
mitt mat að þeir séu ekki að fara
eftir þeim lögum sem gilda um
rekstur þeirra.“
Þjónusta símafyrirtækjanna er
að því er Guðmundur segir bundin
við tvo þætti, upphringiþjónustu og
aðgang að vefpósti. En upphringi-
þjónustuna segir hann vera rekstr-
arlega undirstöðu netþjónustunnar
og sá þáttur sem skili hvað mestum
tekjum, þó það sé um leið bara hluti
þeirrar þjónustu sem internetþjón-
ustuaðilar bjóði upp á.
í fréttatilkynningu INTER er
bent á að internetþjónustuaðilar
þurfa að kaupa bandvídd eða teng-
ingar við internetgáttir af Lands-
símanum, Islandssíma eða Intís.
Þetta sé stærsti útgjaldaliður fyrir-
tækjanna og því ljóst að internet-
þjónustuaðilar geti ekki boðið
ókeypis netþjónustu meðan þeir
greiði símafyrirtækjum fyrir þessa
þjónustu.
INTER hefur óskað eftir skjót-
um viðbrögðum Samkeppnisstofn-
unar við kæru sinni. „Við óskuðum
eftir bráðabirgðaúrskurði strax og
eigi síðar en 23. desember og ég
vona það svo sannarlega að málið
verði afgreitt innan þess tíma,“ seg-
ir Guðmundur.
Siðanefnd lækna úrskurðar um kæru
á hendur Högna Óskarssyni lækni
Ekki talinn
hafa brotið siða-
reglur lækna
Alitaefni hvort læknir
eigi að vinna slíkt verk
SIÐANEFND Læknafélags íslands
telur að Högni Oskarsson læknir
hafi ekki gerst brotlegur við siða-
reglur lækna þegar hann lagði mat á
skýrslu sálfræðings, sem lögð hafði
verið fram í dómsmáli Hæstaréttar,
um hvort kærandi í dómsmálinu
væri haldinn áfallastreitu.
Kærandi í dómsmálinu taldi
Högna Oskarsson hafa gerst brot-
legan við siðareglur lækna með
skýrslu sinni þar sem hann hafði haft
ákærða í dómsmálinu til meðferðar.
Jón Steinar Gunnlaugsson, hæsta-
réttarlögmaður og verjandi ákærða í
dómsmálinu, hafði óskað eftir fyrr-
nefndu áliti Högna á sálfræðiálitinu.
Sif Konráðsdóttir, héraðsdóms-
lögmaður og lögmaður kæranda,
óskaði eftir úrskurði siðanefndar
fyrir hönd skjólstæðings síns þann
17. nóvember sl. vegna skýrslu
Högna, þar sem skýrsla hans í þessu
tilviki hefði brotið gegn siðareglum
lækna.
Ekki brotlegur
í úrskurðarorðum siðanefndar
segir að Högni Óskarsson læknir
hafi ekki gerst brotlegur við siða-
reglur lækna í tengslum við gerð of-
angreindrar skýrslu. I úrskurðinum
segir: „í þessu tilviki er það álitaefni
hvort það hafí verið brot á siðaregl-
um lækna að vinna verk þetta þar
sem ákærði hafði verið sjúklingur
læknisins. Nefndin telur að þau
tengsl sem voru með lækninum og
ákærða í málinu vegna þess að
ákærði hafði verið sjúklingur læknis-
ins útiloki ekki að læknirinn hafi
mátt veita verjanda hans þá aðstoð á
sérfræðisviði sínu sem um var beðið.
Telur nefndin að gagnstæð niður-
staða þrengi kosti ákærðs manns við
vörn sína í sakamáli og feli í sér of
þrönga takmörkun á heimild læknis
til að tjá sig í faglegum efnum. Þess
ber þó að gæta hér að slík tengsl
kunna að sjálfsögðu að hafa áhrif á
mat á því hversu hlutlæg slík skýrsla
er.“
I úrskurðinum segir jafnframt að
það sé álitaefni hvort læknir eigi að
vinna verk af þessu tagi vegna þess
að tengsl hans við sjúkling gefi til-
efni til að draga hlutlægni hans í efa
og rýra þannig gildi slíkrar skýrslu.
Það sé álit nefndarinnar hvað þetta
snertir að það sé mat sjúklings og
læknis hversu með skuli fara en ekki
brot á siðareglum lækna að gera
slíka skýrslu.
Úrskurðurinn
kom ekki á óvart
Högni Óskarsson læknir segh’ að
úrskurðurinn sé í samræmi við það
semhann hafði gert sér vonir um:
„Úrskurður siðanefndar kemur
mér alls ekki á óvart. Ég hafði kynnt
mér kæruatriði mjög vel og þar var
ekkert sem mér fannst ástæða til að
hafa áhyggjur af, enda hafði ég siða-
reglur lækna alltaf í huga þegar ég
vann að álitsgerðinni sem var ástæða
kærunnar," segir Högni Óskarsson.
Ekki náðist í Sif Konráðsdóttur
héraðsdómslögmann vegna málsins í
gær.
I siðanefnd lækna áttu sæti að
þessu sinni Allan V. Magnússon, for-
maður, Ásgeir B. Ellertsson og Run-
ólfur Pálsson.
Sérblöð í dag
m wmm
4
► í Verinu í dag er greint frá veiðarfæratilraunum í
Hirtshals, niikilli útflutningsaukningu í Kanada og spjall-
að við trillukarla og fiskverkendur. Afhending hafrann-
sóknaskipsins tefst enn og síld er farin að veiðast í nót.
m
Helgi Sigurðsson er
hákarlinn /C1
Eiður Smári skoraði
glæsimark C/3
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
D www.mbl.is