Morgunblaðið - 08.01.2000, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samtök verslunarinnar og YR vinna að gerð nýs kjarasamnings
Stefna að því að gera
markaðslaunasamning
STEFÁN Guðjónsson, framr
kvæmdastjóri Samtaka verslunar-
innar, segir að samtökunum lítist að
mörgu leyti vel á hugmyndir Verzl-
unarmannafélags Reykjavíkur um
markaðslaunasamninga. Hann segir
að viðræður um gerð kjarasamn-
ings, sem byggist á þessum hug-
myndum, séu hafnar.
Stefán sagði að þessar hugmyndir
um markaðslaunasamninga væru
nýmæli á íslandi. Reynt hefði verið
að halda því fram í umræðu síðustu
daga að hér væri ekki um neina nýj-
ung að ræða þar sem þessar tillögur
væru í eðli sínu svipaðar og ákvæði
um fyrirtækjasamninga. Þetta væri
mikill misskilningur því með gerð
markaðslaunasamninga væru menn
að fara inn á alveg nýjar brautir í
samningagerð.
Geta stuðlað að hagræðingu
og sveigjanleika
„Við höfum talið ástæða til að
skoða þessar hugmyndir VR vel. Við
höfum kynnt okkur hvemig mark-
aðslaunasamningar hafa virkað þar
sem þeir hafa verið reyndir erlendis.
Við höfum m.a. átt fundi með sam-
tökum vinnuveitenda erlendis.
Við höldum að þetta geti orðið
báðum aðilum til góðs. Þetta geti
orðið til að auka framleiðni í grein-
inni og skapað svigrúm til hagræð-
ingar og framleiðniaukningar. Þetta
er mjög í takt við þá stefnu sem við
höfum tekið í kjaramálum, eftir að
við tókum þau til okkar, að reyna að
stuðla að sem mestum sveigjanleika
á vinnumarkaði og ýta undir verka-
skiptingu og sérhæfingu."
Stefán sagði að Samtök verslun-
arinnar og VR hefðu haldið nokkra
samningafundi um þessi mál. Hann
treysti sér ekki til að segja til um
hvort eða hvenær menn næðu sam-
an um þessa hluti.
Samtök verslunarinnar eru sjálf-
stæður samningsaðili þar
sem þau eiga ekki aðild að
Samtökum atvinnulífsins.
BARÐUR
ÍSLEIFS-
SON
BÁRÐUR ísleifsson arkitekt lést á
Landakotsspítala 6. janúar sl., 94
ára að aldri. Bárður fæddist 21.
október 190S á Akureyri.
Foreldrar hans voru ísleifur
Oddsson trésmiður og Þórfinna
Bárðardóttir húsmóðir.
Bárður lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1927. Hann nam arkitektúr við
Kunstakademiets Arkitektskole í
Kaupmannahöfn frá 1928 til 1935.
Bárður vann alla tíð hjá Húsa-
meistara ríkisins og var yfirarki-
tekt frá 1966 til starfsloka. Ásamt
starfi sínu hjá Húsameistara starf-
aði hann sjálfstætt að ýmsum öðr-
um verkefnum. Bárður teiknaði
m.a. prófessorabústaðina við Há-
skóla Islands, Sundlaug Vesturbæj-
ar og Landsbankahúsin á Akureyri,
ísafirði og Selfossi, auk þess teikn-
aði hann fjölmargar skólabygging-
ar, prestsetur og aðrar opinberar
byggingar í starfi sínu hjá Húsa-
meistara.
Bárður var einn af stofnendum
Akademíska arkitektafélagsins árið
1936 og var formaður þess árin
1944 og 1957. Þá sat hann í sam-
keppnisnefnd um tíma og var félagi
í Verkfræðingafélagi íslands.
Bárður hlaut riddarakross Hinn-
ar íslensku fálkaorðu árið 1960 og
Skálholtsorðuna 1963.
Eftirlifandi eiginkona Bárðar er
Unnur Amórsdóttir píanókennari
og eignuðust þau fjögur börn og
eru tvö enn á lífi.
Andlát
Morgunblaðið/Kristinn
Þrettándagleði á Grund
Eins og tíðkast hefur í áratugi var haldin þrettándagleði á elli- og hjúkrun- leik Grettis Björnssonar harmonikkuleikara og félaga hans. Einnig var
arheimilinu Grund sl. fimmtudag. Dansað var í kringum jólatré við undir- einsöngur og boðið upp á heitt súkkulaði og kökur.
Forystumenn í íslenskri skákhreyfíngu taka upp mál heimsmeistarans fyrrverandi
Ræddu um Fischer
við sendiherra
ÁSKELL Kárason, forseti
Skáksambandsins, Guðmundur G.
Þórarinsson, fyrrverandi forseti
Skáksambandsins, og Helgi Ólafs-
son stórmeistari gengu á fund Barb-
öru J. Griffiths, sendiherra Banda-
ríkjanna á íslandi, í gær þar sem
þeir óskuðu eftir að bandarísk
stjómvöld aðstoðuðu við að greiða
götu Bobbys Fischers, fyrrverandi
heimsmeistara í skák, en bandarísk
stjómvöld hafa gefið út handtöku-
skipun á hann vegna þess að hann
tefldi í Júgóslavíu meðan landið var í
viðskiptabanni.
Eftir að Fischer fór til Júgóslavíu
og tefldi einvígi við Boris Spassky,
fyrrverandi heimsmeistara, gáfu
bandarísk stjórnvöld út handtökusk-
ipun á hendur honum þar sem þau
töldu að hann hefði brotið viðskipta-
bann sem sett hafði verið á landið
vegna átakanna í Bosníu. Áskell Öm
sagði að Fischer hefði eftir því sem
best væri vitað dvalist í Búdapest
síðustu ár og ekki viljað fara til
Bandaríkjanna þar sem hann teldi
sigeiga á hættu refsingu þar í landi.
Áskell Öm sagði að móðir Fisch-
ers og systir hefðu látist nýlega, en
þær hefðu verið einu nánu ættingj-
amir sem hann átti. Fischer hefði
ekki komist til að vera viðstaddur út-
farir þeirra. Þar að auki hefðu eignir
hans í Bandaríkjunum verið gerðar
upptækar, en þær hefðu reyndar
ekki verið mjög miklar.
Líta ber, til fyrri
afreka Fischers
„Okkur finnst að Bandaríkin hafi
komið fram við Fischer af mjög mik-
illi hörku. Brotið er að okkar dómi
frekar léttvægt. Það er ekki sjálfsagt
mál að skilgreina þessa taflmennsku
hans í Júgóslavíu sem viðskiptaer-
indi. í öðra lagi teljum við að það
verði að skoða þetta í ljósi fyrri af-
reka Fischers. í þriðja lagi teljum
við að það verði að horfa til aðstæðna
Fischers. Hann gengur ekki alveg
heill til skógar."
Áskell Om sagði að fundurinn
með sendiherranum hefði ekki gefið
neinar sérstakar vonir um að hægt
væri að leysa úr erfiðleikum Fisch-
ers með skjótum hætti. Sendiherr-
ann hefði tekið erindinu vel, en hefði
vísað til þess að Fischer þyrfti að
fara sjálfur formlegar leiðir gagn-
vart bandaríska dómsmálaráðuneyt-
inu. Hann þyrfti t.d. að kanna hvort
handtökuskipunin væri formlega
ennþá í gildi, en það væri óljóst.
Áskell Örn sagði að það hefði kom-
ið fram í viðtölum fjölmiðla við
Fischer að hann væri mjög reiður út
í bandarísk stjómvöld fyrir hvemig
þau hafa meðhöndlað mál hans. Svo
virtist sem hann liti svo á að hans
heimaland hefði snúið við honum
baki. Staðreyndin væri sú að það
væri ekki hægt að gera þá kröfu til
Fischers að hann leysti þetta mál
einn og óstuddur. Það þyrfti að
ganga í að leysa það eftir óhefð-
bundnum leiðum. I því sambandi
væri ekki óeðlilegt að líta á framlag
hans til skáklistarinnar. Áskell Öm
sagði að ekki hefði verið tekið undir
þetta sjónarmið á fundinum. Hann
kvaðst hins vegar öðram þræði líta á
þetta mál sem mannréttindamál.
Áskell Örn tók fram að þeir þre-
menningar hefðu ekki haft mjög
skýrar hugmyndir um hvemig best
væri að halda á þessu máli. Þetta
hefði verið hugsað sem fyrsta skref,
en þeir hefðu fullan hug á að fylgja
málinu eftir.
Bobby Fischer vann glæsilega sigra við skákborðið á árum áður.