Morgunblaðið - 08.01.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Einn trúarleiðtoga
Tíbeta flýr land
Nýju Delhí, Peking. AFP, Daily Telegraph.
FJÓRTAN ára drengur, sem er
þriðji æðsti leiðtogi Búddatrúar-
manna í Tíbet, er nú kominn í fé-
lagsskap Dalais Lama í útlegð í
Indlandi, eftir að hafa flúið hina
kínversku valdsljóm í heimalandi
sínu, að því er virðist gangandi yfir
HimalajaQaligarðinn.
Talsmaður tíbezku útlagasljóm-
arinnar, sem hefur aðsetur sitt í ind-
verska fjallabænum Dharamsala,
staðfesti að Ugyen Trinley Dotje,
hinn 17. lifandi Búdda, nefndur
Karmapa, hefði komið til bæjarins á
miðvikudag. Hann gaf hins vegar
ekkert upp um flóttann eða framtíð-
aráform hins unga trúarleiðtoga.
„Við vissum ekkert um þetta fyrr
en hann birtist hér 5. janúar," sagði
talsmaður útlagastjómarinnar.
„Takið vinsamlegast til greina, að
þetta er mjög viðkvæmt mál og við
getum ekki gefið upp neinar nánari
upplýsingar að svo komnu máli,“
sagði hann.
Kínversk yfirvöld staðfestu einn-
ig að hinn ungi Karmapa hefði yfir-
gefið Tíbet án þess þó að geta þess
að hann hefði farið til Dalai Lama.
Samkvæmt frétt Xin/jua-fréttastof-
unnar fór hann frá Tsurphu-
búddaklaustrinu nærri Lhasa fyrir
skömmu, með „litinn hóp manna i
fylgd með sér“.
Hann skildi eftir bréf í klaustrinu,
þar sem hann sagðist vera á fömm
úr Iandi, „í þetta sinn til að finna
búddísku messuhljóðfærin og hina
svörtu hatta sem fyrri lifandi Búdd-
ar“ hefðu notað. „Þettaþýðir ekki
svik við ríkið, þjóðina, klaustrið eða
[hina andlegu] forystu," segir í bréf-
inu, að sögn Xinhua.
Samkvæmt því sem fram kemur á
heimasíðu (www.maui.net/
tsurphu/karmapa), sem haldið er
úti af Tsurphu-stofnuninni svoköll-
uðu, sem hefur aðsetur í Banda-
ríkjunum, dvelur hinn ungi Karm-
apa nú hjá Dalai Lama í Dharams-
ala.
„Hans heilagleiki Karmapa fór
frá Tolung Tsurphu-klaustrinu
ásamt nokkrum fylgismönnum. Það
tók þá sjö daga að flýja gangandi yf-
ir fjöllin frá Tíbet,“ segir á heima-
síðunni. Var nánari upplýsingum
heitið síðar. í Daily Telegraph segir
að leiðin sé um 1400 km og Iiggi um
snævi þakin fjallaskörð og þessi ár-
stími sé sá allra viðsjárverðasti fyrir
þá sem leggja leið sína um þessar
slóðir. Tíbetar sem vilja flýja kúg-
unina heima fyrir freista þess marg-
ir að fara þessa leið á þessum árs-
tíma, þar sem þá er minni hætta
talin á að rekast á kínverska landa-
mæraverði.
Dalai Lama fór þessa sömu leið
fótgangandi er hann flúði Tíbet eft-
ir að Kínveijar börðu niður upp-
reisn Tíbeta gegn kínverskum yfir-
ráðum árið 1959.
Hinn ungi Karmapa er andlegur
leiðtogi Kogyu-reglunnar, sem er
einn fjögurra helztu Búddatrúar-
söfnuðanna í Tíbet, og er þriðji
æðsti maðurinn í hefðbundinni virð-
ingarröð andlegra leiðtoga Tíbeta,
á eftir Dalai Lama og Panchen
Lama. Hann var vígður í „emb-
ættið“ í september 1992, þá sjö ára
að aldri, og dvaldi alla tíð upp frá
því í Tsurphu-klaustrinu norðan við
tíbezku höfuðborgina Lhasa. Fyrir-
rennari hans, 16. Karmapa, flúði
land árið 1959.
Síðasti flótti tíbezks trúarleiðtoga
var árið 1998, þegar æðsti munkur
Kumbum-klaustursins, Agya Rinp-
oche, hélt til Bandaríkjanna í mót-
mælaskyni við stefnu kínversku
kommúnistastjómarinnar í trúmál-
um í Tíbet.
AP
Orgyen Trinley Dotje, sem Tíbetar álíta að sé lifandi Búdda.
Átök í trúarsöfnuði
Seoul. AP.
VOPNAÐIR málmrörum og grjóti
lentu hundruð meðlima s-kóresks
trúarsöfnuðar í innbyrðis átökum í
gær, annan daginn í röð. Um 70
manns slösuðust.
Á fimmtudag slösuðust hundrað
manns þegar hópar, sem deildu um
leiðtoga, tókust á í höfuðstöðvum
trúarsafnaðarins Daesoon Jinrí Hó
nálægt Seoul. Átökin í gær urðu
þegar um 500 safnaðarlimir
reyndu að ryðjast gegnum tálma
sem 1.500 keppinautar þeirra, sem
voru innandyra, höfðu reist.
í söfnuðinum, sem var stofnaður
á 19. öld, er fólk af ýmsum trúar-
brögðum. Deilur hafa staðið innan
hans síðan leiðtoginn féll frá fyrir
fjórum árum. Söfnuðurinn er með
mörg hundruð þúsund meðlimi og
rekur háskóla og nokkur sjúkra-
hús.
Fjölmiðlar segja deilurnar innan
safnaðarins snúast um það hver fái
forráð yfir eignum hans, sem eru
margra milljarða króna virði og
hafa að mestu leyti fengist með
frjálsum framlögum.
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2000 25
; * -
mmam
1 - : ^ ^ 1|... ■ |
ú. * f§ Á: ‘ ‘ ■ i§§
- fsJWifÍ
: ' " • ' ' %
ÆL ftf ft Jjf Jtí f f ' Sd
slifi étli*fCkfi
4
Í*T'
. ® ;
8Sl3||Jjp::
*| I
-i í
*-.‘v í|
mmi
’ j§
iSif?
mm
P P LÝ5 I N G fl 5 IM I 50B 7 7 0 0 SKHIFSTOFUSÍMI 5GB 9 2 0 0