Morgunblaðið - 08.01.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2000 27
Sjóher Indónesíu setur hafnbann á Kryddeyjar vegna átaka
Múslímar boða „heilagt
stríð“ gegn kristnum
Jakarta. AP, AFP, Reuters.
MÓTMÆLI gegn meintum fjölda-
morðum kristinna á múslímskum
íbúum Kryddeyja, sem eru í austur-
hluta Indónesíu, héldu áfram í höf-
uðborginni Jakarta í gær, annan
daginn í röð. Talið er að á bilinu
300.000 tilSOO.OOO manns hafi tekið
þátt í mótmælunum sem fóru að
mestu fram friðsamlega. Félagar í
samtökum múslíma flykktust inn á
Sjálfstæðistorgið í miðborginni,
hrópuðu vígorð og hvöttu til „heil-
ags stríðs" gegn kristnum íbúum
eyjanna. Margir mótmælenda, sem
flestir voru ungir karlmenn, voru
klæddir í hvíta kyrtla og báru borða
með áletrunum. Á einum slíkum
risavöxnum borða var letrað stór-
um stöfum: „Umburðarlyndi er
della, slátrum kristnum." Einnig
hrópuðu þátttakendur vígorð gegn
varaforseta landsins, Megawati
Sukarnoputri, og kröfðust afsagnar
hennar. Abdurrahman Wahid, for-
seti Indónesíu, fól henni nýlega það
erfiða verkefni að stilla til friðar á
þeim svæðum í ríkinu þar sem átök
hafa blossað upp, þ.á m. á Krydd-
eyjum og í Aceh-héraði.
Nokkrir af andlegum leiðtogum
múslíma í Indónesíu tóku til máls
og ávörpuðu mannfjöldann. Rithöf-
undurinn, A1 Chaidar, hvatti til
byltingar og stofnunar íslamsks
ríkis í Indónesíu.
Reuters
Múslímskar konur hrópa „heilagt stríð!“ í miðborg Jakarta, höfuðborgar Indónesíu, í gær. Átökin á
Kryddeyjum hafa kostað á annað þúsund manns lífið á einu ári.
Sjálfboðaliðar á Ieið
til eyjanna
Annar ræðumaður gagnrýndi að
nefnd sem stofnuð var til að ranns-
aka voðaverk framin á kristnum
íbúum Austur-Tímor síðastliðið
haust skuli ekki hafa rannsakað
mannvigin á Kryddeyjum.
Talið er að átök kristinna og
múslíma á eyjunum hafi kostað allt
að 1.700 manns lífið síðan þau hóf-
ust í janúar á síðasta ári. Kristnir
íbúar eyjunnar Halmahera, sem er í
norðurhluta eyjaklasans, eru sagðir
hafa murkað lífið úr mörg hundruð
múslímum síðustu daga.
Sjóher Indónesíu hefur sett
hafnbann á hafnir á Kryddeyjum til
að koma í veg fyrir að deiluaðilum á
eyjunum berist liðstyrkur sjóleið-
ina. I fréttatilkynningu frá sjóhern-
um segir að níu herskip séu nú við
eyjarnar og að fimm eftirlitsflug-
vélar sveimi yfir þeim. Hafnbann-
inu er meðal annars ætlað að koma
í veg fyrir að vopnum sé smyglað til
eyjanna. Tekið er fram í tilkynning-
unni að hafnbannið gildi ekki um
skip með hjálpargögn og nauðsyn-
legar vistir.
Samkvæmt upplýsingum frá yfir-
mönnum indónesíska sjóhersins
hafa skip á vegum hersins flutt um
17.500 flóttamenn frá eyjunni
Halmahera frá því um síðustu ára-
mót.
Helmingurinn kristinn
Her Indónesíu hefur aukið lið-
styrk sinn á eyjunum síðustu daga
og hert eftirlit með íbúum. Wahid
forseti sagði í gær að hann hefði
fyrirskipað hermönnum að hand-
taka alla þá sem reyndu að komast
til sjóleiðina til eyjanna. Hann sagði
að sér hefði borist til eyrna að
nokkur hundruð sjálfboðaliða væru
á leið til Kryddeyja frá Jakarta og
að þeir yrðu umsvifalaust hand-
teknir þegar til þeirra næðist.
Um helmingur íbúa Kryddeyja
játar kristni en hinn helmingurinn
er múslímar, sem eru um 90% af
öllum íbúum ríkisins. Undir stjórn
Suhartos, sem var forseti Indónesíu
í 32 ár, hélt herinn niðri átökum
milli trúarhópanna en þau brutust
að nýju út eftir að Suharto hrökkl-
aðist frá völdum árið 1998. Kristnir
íbúar hafa viljað kenna auknum
fjölda múslímskra innflytjenda til
eyjanna um að viðkvæmt jafnvægi
milli hópanna hafi raskast og leitt
til þess að skálmöldin hófst.
Kambódía
Deilt
um fyrir-
komulag
réttar-
halda
Phnom Pehn, New York. AP, AFP.
STJÓRNVÖLD í Kambódíu
og Sameinuðu þjóðirnar deila
nú um fyrirkomulag réttar-
halda sem áætlað er muni
hefjast innan skamms yfir
fyrrverandi leiðtogum Rauðu
khmeranna, sem voru við völd
í Kambódíu á árunum 1975 til
1979. Sameinuðu þjóðirnar
hafa gert athugasemdir við
áætlun ríkisstjórnar landsins
um hvernig staðið skuli að
réttarhöldunum og segja ekki
tryggt að þau verði óvilhöll.
Samkvæmt áætluninni munu
innlendir dómarar dæma í
málum fyirverandi leiðtoga
Rauðu khmeranna, sem marg-
ir hverjir skipa opinber emb-
ætti og valdastöður í samfélag-
inu. Óttast er að margir hinna
ákærðu muni sleppa við refs-
ingu vegna áhrifa sinna.
Forsætisráðherra landsins,
Hun Sen, hafnaði í gær boði
Sameinuðu þjóðanna um að
senda nefnd til beinna við-
ræðna við fulltrúa þeirra í
New York en sagðist reiðu-
búinn að hitta fulltrúa SÞ að
máli í Phnom Penh, höfðuborg
Kambódíu. Sameinuðu þjóð-
irnar hafi farið fram á að skip-
aður verði alþjóðlegur dóm-
stóll til að annast réttarhöldin.
Að minnsta kosti 1,7 milljón-
ir manna létu lífið á valdatíma
Rauðu khmeranna í Kambódíu
vegna hungurs, þrælkunar og
skipulagðra fjöldamorða.
Markmið Rauðu khmeranna,
sem voru undir sterkum áhrif-
um kenninga Mao Zedongs,
fyrrverandi Kínaleiðtoga, var
að koma á fyrirmyndarsamfél-
agi frumstæðs bændakomm-
únisma í landinu.
Nestlé Build-Up er bragðgóður drykkur
sem inniheldur 1/3 af ráðlögðum
dagskammti (RDS) af 12 vítamínum
og 6 steinefnum auk prótíns og orku
Nestle
Néstlé
chocolate
ðlíS**8®1®!'
w áata-uti
«W«A
'fWKats
s ú k k u I a ð i
tlpplýsingar
um næringarinnihald:
Build-Up fyrir alla
Góð aðferð til þess að auka neyslu vítamína og
steinefna þegar þú þarft á aukakrafti að halda.
Hentar börnum (eldri en 3ja ára) sem eldra fólki
og öllum þará milli.
Build-Up á meögöngu og
meö barn á brjósti
Tryggir að nægilegt magn næringarefna sé til
staðar á þessum mikilvæga tíma
Build-Up eftir veikindi
Sér til þess að þú færð öll réttu næringarefnin til
þess að ná skjótum bata
Build-Up - fljótlegur drykkur
Eitt bréf út í kalda eða heita mjólk eða
ávaxtasafa gefur þér fljótlegan og bragðgóöan
drykk stútfullan af næringarefnum
jarðaberja
v a n i
í 38 gr. bréfi blönduðu í 284 ml. af mjólk
% af RDS
Orka kj 1395
kcal 330
Prótín 9 18,0
Kolvetni 9 37,1
þar af sykur g 36,5
Fita g 12,4
þar af mettuð g 7,5
Trefjar g 0,6
Natríum g 0,4
Kalíum mg 810
Vítamín
A-vítam(n pg 300,0 38%
B1 -vítamín mg 0,6 43%
B2-vítamín mg 1,0 63%
B6-vftamín mg 0,9 45%
B12-v(tamín gg 1,7 170%
C-v(tamín mg 23,0 38%
D-vítamín gg 1,8 36%
E-v(tamfn mg 3,3 33%
Bíótín mg 0,06 40%
Fólín pg 84,0 42%
Níasin mg 6,2 34%
Pantótenat mg 3,0 50%
Stelnefni
Kalk mg 607,0 76%
Joð Mg 94,0 63%
Jám mg 5,5 39%
Magnesíum mg 132,0 44%
Fosfór mg 534,0 67%
Zink mg 6,3 44%
i u • b a n a n a
Dæmi um hv.tð
vitamm og stomofni
qt'rfyrir þiq
A-y/ftamm
•Natiðsyrjjecj?: íii vé>yíarc4j vióftalds.
véíja, vi'ðhe-idtir rfjýtei ccj hdiidrigði
h'örtiíj'ds. Vdr z’límhúZ í rtiurifúi f&Ti,
íiáiSi oój itirigtirr.-. Eyte-jr vidnárn
sýkjriíjtfr/j ccj bæTir sjóriina. Hjáipar vió
rniy/vdltiiri bair;a.
D 2=-y/i'tArn m (Kibófjayirj), .
Hjíípír víð ai nýia orkuná i
'n'iéípz.' S/iii rnynduri mótsr/iá og rsiuiirn
'aíciiKcrris. NJauósynie-g'; 'iii að yiðhalda
hörijricii', riccjSum, hSri og góöri sjóft.
NL3.CíLLT (N.iasjfi-viíai'fiifi 33)
bíóð/ásifta og iækf'.ár kiiesi/ól i
bióói. V.ör.eid.j.' taúgaxorfiiw, J&Kkar
íséeft bJóðþrýstiftg, 'ftjáJp ar vi4 rr,=?fiinga
ócj s’ítii'iar aö hsijiirigði húiar.
llLtk
kSjðg rriikiívsigí iyrir óft»miskvr»ið,
ÍJýíir 'jynr ið sár grói og ar mikiJvsig!
fjftt siðóugleika Oióðsiris. Viðrieici-jr
íBkafjfta jaífwaegi JJkamafts.
bragðlaus