Morgunblaðið - 08.01.2000, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
VIKU
m
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2000 33
Syörnugyðja draums og veruleika tvö
þúsund stjarna.
hljóp utar í eldhúsið og varðist þar
úr horni einu því að heimamenn Þor-
steins sóttu eftir honum. Síðan báru
þeir föt á vopn hans.
Þá kastaði hann saxinu og mælti:
,Að lokum er nú komið ævi minnar.“
Þá mælti Yngvildur: „Hver réð
þér þetta hið illa verk að gera?“
Hann svarar: „Einkis manns ráð
eru þetta annars en mín.“
Þá var sett á kvið Gilla glóandi
mundlaug.
Þá mælti Gilli: „Kveljið mig ekki
lengur ella mun eg mæla það orð
Yngvildur er uppi mun vera alla ævi
í knérunni yðrum og mun á hrína.“
Þá spymti Yngvildur á mundlaug-
ina en kviðurinn Gilla sprakk af
bruna. Síðan var hann færður niður
um garð og sökkt í fen eitt og sér
þess enn merki. Gilli þessi var sonur
Jaðguðs Gillasonar, Bjaðakssonar,
Kjarvalssonar konungs af Irlandi
hins gamla er þar ríkti lengi.
Og lýsi ég nú eftir draumum
manna á þessu fyrsta ári 21. aldar
um framhaldið.
Draumur „Vöku“
Ég var komin til Kanada með
tveimur systrum mínum Kristínu og
Málfríði fannst mér fyrst (en svo
fannst mér þetta vera bara
tvær systur mínar og lítið
bam u.þ.b. tveggja ára). Við
ætluðum að ferðast um Kan-
ada og ég var ákveðin í að fara
gangandi um landið til þess að
upplifa það sem best og þær
vom alveg bit á mér að leggja
það á mig og þora að fara ein.
Ég lagði ein af stað og það var
yndislegt veður og allt svo
grænt (þetta var úti í sveit) og
ég var svo spennt að skoða
bóndabæina. Mér leið rosa-
lega vel og fann ekki fyrir óör-
yggi eða ótta. Allt í einu sá ég
skítuga borg framundan en
mér fannst hún ekkert ógn-
vænleg samt. Þá vora systur
mínar og bamið allt í einu
komnar og þær vora dauð-
hræddar að fara inn í borgina
en ég sagði þeim að þetta væri
ekkert mál og innra með mér var ég
eins og klettur, ég var svo róleg.
Eitthvað sóttum við svo í einhver
geymsluhólf á eins og lestarstöð og
héldum svo áfram saman en allt í
einu fannst mér við hafa gleymt ein-
hverju í geymsluhólfinu og ég ákvað
að snúa við og sækja það og taka
barnið með mér. Þær vora nánast
„hysterískar" að ég ætlaði að fara
ein því það var komið kvöld og það
yrði öragglega ráðist á mig. Ég var
alveg ákveðin og óhrædd og þær létu
mig fá talnalykil sem ég þurfti að
nota til að komast í hólfið. Ég er
bara nýlögð af stað þegar ég mæti
hóp af „gangsterum“ sem fara að
abbast upp á mig og einn af þeim ríf-
ur barnið af mér. Ég varð eins og
ljónynja að verja unga sinn með
kjafti og klóm og réðist á hann af
þvílíkri heift og tókst að ná barninu
aftur af honum og hann varð hrædd-
ur við mig og lúskraðist í burtu. En
ég hélt ótrauð ferð minni áfram og
hélt á barninu. Þegar ég kom að
geymsluhólfunum þá fannst mér
talnalykillinn orðinn mjög flókinn en
ég byrjaði bara á að finna út úr hon-
um án þess að fara í nokkra „panik“
(það var svo mikil ákveðni í mér) og
eftir smástund gekk hann upp og ég
gat opnað hólfið en ég man ekki
hvort ég náði í eitthvað eða hvort
málið var bara að opna með lyklin-
um. Svo var ég bara komin inn í
borgina í eitthvert gistihús og fannst
ég allt í einu vera ein úr ferðamanna-
hópi og við voram að falast eftir gist-
ingu en það virtist allt vera fullt á
gistihúsinu en konan fann svo pláss
fyrir okkur öll eftir að ég hafði sann-
fært hana um að það væri alveg nóg
pláss. Svo var ég að versla á mark-
aðstorgi og sá sem afgreiddi mig var
einhver strákur sem ég talaði fyrst
við á ensku og fannst svo allt í einu
að hann væri íslenskur og fór að tala
íslensku við hann en þá kom upp úr
dúrnum að hann var danskur og ég
talaði reiprennandi dönsku við hann.
Svo vaknaði ég og var alveg endur-
nærð.
Ráðning
Þessi líkinga- og tákndraumur
tengist jólum og Kristi þótt annað
geti virst. Kanada vísar til Kanan-
lands eða fyrirheitna landsins.
Kristín merkir heiður og Málfríður
þann sem talar fallega. Barnið ert
þú. Ferð þín í draumnum er einskon-
ar boðunarferð eða ferð til skilnings
á gildi jarðlífsins og mikilvægi þess
að vera maður sjálfur, trúr og sann-
ur í sínu. Það virðist sem draumur-
inn spegli göngu þína um lífið en
jafnframt að í honum sé þér stýrt af
ósýnilegri hönd um ákveðna þætti
lífsins til aukins skilnings til að auka
styrk þinn. Þá getur þú sjálf miðlað
öðram af reynslu þinni og opnað
augu manna. Talnalykilinn og hólfið
er þrautin sem þú glímir við en þeg-
ar þú hefur leyst þá þraut og veist
hvað var í hólfinu (hjarta þér?) era
þér allir vegir færir að boða orð
sannleikans.
• Þeir lesendur sem vilja fá drauma
sína birta og ráðna sendi þá með
fullu nafni, fæðingardegi og ári
ásamt heimilisfangi og dulnefni til
birtingar til:
Draunstafír
Morgunblaðið
Kringlunni 1
103 Reykjavík
Verkbókhald
KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 • Síini 568 8055
www.islandia.is/ketfisthroun
Morgunblaðið/Golfi
Sæmundur Kristjánsson hrær-
ir í pottunum Á næstu grösum.
breyta þannig að þær verði fitu- og
sykurminni. Það er alltlöglegt.“
Sjálfur segist Sæmundur ekki
vera 100% grænmetisæta og hann
geti t.d. ekki hugsað sér að sleppa
villibráðinni og fiskinum. íslenska
villibráðin sé nokkuð sem gerist
ekld betra. Kúnnahópinn segir hann
ekki síður vera blandaðan. Auðvitað
sé þar að finna margar grænmetis-
ætur en einnig sé mikið um fólk sem
komi einu sinni til tvisvar í viku og
geri mat af þessu tagi þannig að
hluta síns mataræðis auk þess að
borða kjöt og fisk. „Þetta eykur fjöl-
breytnina, sem er líka af hinu góða.
Fólk er orðið miklu opnara fyrir
þessu og ánægt með hversu vel mat-
ur af þessu tagi fer í það.
Við reynum að blanda saman
grænmeti og baunum og hafa í rétt-
um hlutföllum auk þess að tvinna
saman eldaðan mat og hráan. Það
skemmtilegasta við þetta finnst mér
vera sú áskorun að takast á við þetta
og fínna út úr því hvemig maður eigi
að gera hlutina miðað við hvemig
maður vann áður. Öll kryddnotkun
og eldun er til dæmis frábragðin og í
venjulegri matreiðslu.“
Margir leita á náðir grænmetis-
fæðisins ef ætlunin er að draga úr
líkamsþyngdinni. Fyrir þá sem eru í
slíkum hugleiðingum segir Sæ-
mundur að þegar kemm’ að orku og
hitaeiningum þá sé aðalspuminginn
hvað menn noti mikla olíu við eldun.
„Olían, sama hvort um er að ræða
ólívuolíu eða annað, er fljót að segja
til sín enda um 900 kaloríur í hveij-
um desilítra. Oft er fólk að blekkja
sig þegar það telur ólívuolíu algóða
þótt hún sé auðvitað ekkert annað
en fljótandi fita.“
Sæmundur segist því reyna að
nota sem minnsta olíu þegai’ hann
gerir salatdressing og nota þess í
stað grænmet og ávexti í grunninn
og hreinan safa. „Þegar ég fór að
hugsa þetta öðm vísi opnaðist alveg
nýr heimur. Maður var of fastur í ol-
íunni og vinaigrette-dressingum
sem vora kannsld 80% olía. Ég held
að ég sé búinn að skera olíuna niður í
kannski 10%. Annað í þessu fæði er
mjög létt og ekki fitandi, þótt það
hafí auðvitað sína orku. “
En hvemig er það með grænmet-
iskokka. Hvaðan koma straumar og
stefnur? „Þegai- ég byi-jaði fór ég of-
an í allt og grúskaði í öllu. Það er til
aragrúi af bókum um þessi mál og
veitingastaðir um allan heim sem
hafa fylgt þessari stefnu um árabil.
Flóran er gífurleg og ekki minni en
á öðmm sviðum matargerðar. Þama
eru líka til menn sem gera „fansí“
hluti ekki síður en í hinni hefð-
bundnu matargerð. Þótt ég sé ekjd á
þeirri línu sem stendur er aldrei að
vita hvað gerist við breytingamar."
En saknar Sæmundur aldrei
,fyrra lífs“ og hefðbundinnar mat-
reiðslu. „Auðvitað kemur það stund-
um fyrir að maður saknar þess en
það er þó ekki svo að maður sé neitt
grátandi yfir því.“
LAGERSALA
Við vörutalningu fannst ýmislegt á lagemum
Mattarósin kökudiskur 5.990, nú 4.790 -20%
Mattarósin miniturar, nú 525 -65%
Mattarósin kertastjaki 3.995, nú 2.995 -25%
Renesanse miniturar nú 525 -70%
Wedgwood spilakassar m. spilum 6.490, nú 3.000 -55%
Rósita-líkjörglas 1.720, nú 860 -50%
Carmen-skál 5.550, nú 1.950 -65%
Hvíta stellið fat 32 cm 3.805, nú 2.280 -40%
Laukurinn forréttadiskur 21 cm 1.880, nú 1.000 -45%
Jólavara -50%
Margt margt fieira af stökum hlutum.
Komið og gerið góð kaup
Opið laugardag kl. 10-18
Sunnudag kl. 13-18
10
id
Csuðurlandsbraut 52/Bláu húsin
við Faxafen sími 553 6622
Stendur til 13. janúar