Morgunblaðið - 15.01.2000, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 15.01.2000, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fimm íslensk fjármálafyrirtæki og Norsk Hydro Stofnað félag til að und- irbúa álver í Reyðarfirði HYDRO Aluminium og Hæfi hf., sem er í eigu fimm íslenskra fjár- málafyrirtækja, hafa stofnsett sam- eiginlegt undirbúningsfyrirtæki, Reyðarál hf. Fyrirtækinu er ætlað að skipuleggja væntanlegar fram- kvæmdir til undirbúnings byggingar álverksmiðju í Reyðarfirði og eiga verksmiðjuna og reka ef af fram- kvæmdum verður. Fimm íslensk fjánnálafyrirtæki, Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn, Fjárfestingarbanki atvinnuh'fsins, Islandsbanki, Landsbanki Islands og Þróunarfélag Islands, ákváðu í byrj- un september síðastliðinn að stofna undirbúningsfélag með Hydro Alum- inium, dótturfélagi Norsk Hydro, sem hefði það hlutverk að fjármagna og undirbúa byggingu álvers á Reyð- arfirði. Fram kom í Morgunblaðinu á þeim tíma að þau myndu leggja 200 milljónir kr. til verkefnisins og kæmi helmingur fjárhæðarinnar frá Norsk Hydro. Jafnframt kom fram að fæst íslensku íyrirtækin væru langtíma- fjárfestar og þeirra hugmynd væri að vinna málinu framgang og draga sig síðan út úr því. Rætt yrði við íslenska fagfjárfesta um fjárfestingu í álver- inu. íslensku fjármálafyrirtækin stofnuðu fyrirtækið Hæfi hf. til að halda utan um sinn hlut og nýlega var Geir A. Gunnlaugsson ráðinn framkvæmdastjóri þess. Hlutafé í Reyðaráli hf. er í lág- marki þess sem lög leyfa, eða fjórar milljónir, en Erlendur Magnússon stjómarformaður Hæfis hf. segir að það verði aukið eftir því sem á þurfi að halda. Hæfi og Hydro Aluminium skipta hlutum í fyrirtækinu jafnt á milli sín á undirbúningstímabilinu, að því er fram kemur í fréttatilkynningu um stofnun félagsins. Aðalmarkmið fyrirtækisins er að sinna vinnu sem eigendur þess hafa tekið að sér í framkvæmdaáætlun, svokallaðri Hallormsstaðaryfirlýsingu frá því í júní 1999, þannig að unnt verði að taka endanlega ákvörðun um að ráð- ast í verkefnið fyrir 1. júní árið 2000. Erlendur Magnússon segir að undirbúningurinn felist einkum í gerð fjölda samninga um aðföng og þjónustu við álverið, meðal annars um raforkukaup og kaup á öðru hrá- efni og þjónustu sem álverið þarfn- ast. Einnig samninga um byggingu álversins og sölu afurðanna. Hann segir að álverið verði verkefnafjár- magnað og því sé mikilvægt að allir helstu samningar liggi fyrir þegar framkvæmdir verða ákveðnar. Ekki ákveðið með kæru Eignarhaldsfélagið Hraun lét gera og lagði fram skýrslu um umhverfis- mat álversins. Skipulagsstofnun krafðist frekara mats og frestur framkvæmdaaðila til að kæra þann úrskurð til umhverfisráðherra renn- ur út 19. þessa mánaðar. Erlendur Magnússon segir enn ekki ljóst hvort Reyðarál hf. muni taka við þeim verkefnum sem eignarhaldsfélagið Hraun hefur haft með höndum í um- hverfismálum álversins eða hvort úrskurður Skipulagsstofnunar verð- ur kærður til ráðherra. Segir hann að stjórn Reyðaráls hf. muni fjalla um málið á stjórnarfundi næstkomandi mánudag. í stjórn Reyðaráls eru Geir A. Gunnlaugsson, sem er stjómarfor- maður, Jón Sigurðsson frá Eignar- haldsfélaginu Alþýðubankanum hf., Jostein Flo og Hans Diderik Faa- berg. Tveir þeir síðarnefndu em full- trúar Hydro Aluminium sem og framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Bjarne Reinholdt. Nettó vill reisa stór- hýsi í Vatnsmýri FORSVARSMENN KEA/ Nettó vilja reisa 12 til 15 þús- und fermetra verslunar- og þjónustumiðstöð í Vatnsmýr- inni á lóð Umferðarmiðstöðvar- innar, en vinna við deiliskipulag svæðisins er að hefjast. Uppi era hugmyndir um að rífa Umferðarmiðstöðvarhúsið en Sigmundur Ófeigsson, fram- kvæmdastjóri Matbæjar hf., hlutafélags sem stofnað var um allar verslanir KEA, sagði að verslunar- og þjónustumiðstöð- in myndi rísa hvort sem húsið yrði rifið eða ekki. Ef húsið yrði ekki rifið yrði einfaldlega byggt við það. Að sögn Sigmundar liggur ekki fyrir hversu mikið verslunar- og þjónustumiðstöð- in mun kosta, en hann sagði að fagfjárfestar yrðu fengnir til að fjármagna bygginguna. ■ Vilja reisa/16 • • Okumenn áminntir ÖKUMENN á höfuðborgarsvæð- inu, sem ekki hafa fært bifreiðir sínar til reglubundinnar skoðunar, geta átt von á því að fá hvítan að- vörunarmiða á bifreiðir sínar og þar með vikufrest til að kippa málinu í liðinn. Geri þeir það ekki eiga þeir á hættu að númeraplötur verði klipptar af bifreiðunum. Að sögn lögreglunnar í Kópavogi eru alltaf einhverjir sem trassa að færa bíla sína til skoðunar og því miður komi í ljós að í mörgum til- fellum séu tryggingar og sitthvað annað einnig í ólestri hjá viðkom- andi. Verður átakinu fylgt eftir á næstu dögum og þá kannað hverjir hafi sinnt áminningu yfirvalda og hverjir ekki. Ránstilraun í Breiðholti STARFSMENN Bónusversl- unar við Tindasel í Breiðholti tilkynntu í gærkvöld að tveir grímuklæddir menn, að minnsta kosti annar þeirra með rörbút í höndum, hefðu farið niður tröppur að kjall- aradyram verslunarinnar. Nokkrir lögreglubílar voru sendir á vettvang og leituðu lögreglumenn í grennd við verslunina án árangurs. Að sögn varðstjóra lögreglunnar virðist sem mennirnir hafi orðið óttaslegnir og þeir náð að forða sér áður en lögregla kom á vettvang. Komust þeir ekki inn í verslunina og voru ófundnir í gærkvöld. Morgunblaðið/Ásdís Talsvert um beinbrot í hálkunni HONUM varð hált á svellinu þessum unga manni fyrir framan Mennta- skólann í Reykjavík í gær, enda hef- ur hlákan að undanförnu haft tals- verða hálku í for með sér. Vatn liggur yfir fsnum víða og fyrir vikið er flughált. Ólafur R. Ingimarsson, læknir á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, sagði í gær að þar á bæ þyrftu menn ekki að líta út um gluggann og gá til veðurs; aukning beinbrota hefði verið slík strax í gær að ekki færi á milli mála að um mikla hálku væri að ræða. „Við finnum strax fyrir þessu og því miður verður eldra fólkið fremur fyrir barðinu á hálk- unni. Það gætir sín ekki nógu vel, er ekki nægilega vel skóað eða á mannbroddum á svellinu,“ sagði hann. Búist er við hlýindum áfram næstu daga og sagði Ólafur að fyllsta ástæða væri til að hvetja borgarana til að gæta sín í hálkunni. Felag leikskólakennara utan bandalaga frá áramótum Rætt um aðild að Kennarasambandi UM ÁRAMÓTIN gekk Félag ís- lenskra leikskólakennara úr BSRB og stendur nú utan bandalaga. Björg Bjarnadóttir, formaður Fé- lags leikskólakennara, segist telja skaðlaust fyrir félagið að standa utan bandalaga tímabundið. „Félagið hefur sjálfstæðan samningsrétt, er orðið mjög fjöl- mennt og á eigið húsnæði, þannig að það getur alveg staðið utan bandalaga í einhvern tíma. En ég tel ekki að það sé æskilegur kostur til framtíðar," segir Björg. I september síðastliðnum var samþykkt nær einróma í allsherj- aratkvæðagreiðslu innan félagsins að það segði sig úr BSRB og sækti um aðild að Kennarasambandi Is- lands. Kennarasambandið hafnaði umsókn félagsins á stofnfundi sín- um í nóvember, en ákvað að setja á laggirnar nefnd til að vinna að hugsanlegri sameiningu, sem yrði samt í fyrsta lagi á seinni hluta ársins 2001. Skipað var í nefndina nýverið en í henni sitja Elna Kat- rín Jónsdóttir, Guðrún Ebba Ólafs- dóttir og Sigurður Líndal fyrir hönd Kennarasambandsins og Björg Bjarnadóttir, Þröstur Brynj- arsson og Ólöf Helga Pálmadóttir fyrir hönd Félags leikskólakenn- ara. „Við hefðum gjarnan viljað vera með í hinu nýja Kennarasambandi frá upphafi en við sættum okkur við þessa niðurstöðu og göngum til viðræðnanna með jákvæðum huga,“ segir Björg. Hún segir ástæðu þess, að félagsmenn hafi verið þetta einhuga um að ganga úr BSBR og sækja um aðild að nýju Kennarasambandi, þá að fé- lagsmenn telji sig eiga meiri fag- lega samleið með hinum kennara- félögunum. Þar að auki hafi félagið starfað mikið með þeim og í raun- inni sé eðlileg þróun að sameinast sambandi þeirra. Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is Arnór besti miðjumaður aldarinnar hjá Lokeren/B2 Stoke dregur á toppliðin í ensku 2. deildinni/B1 >ð í dag ÁLAUGARDÖGUM T |7Q|>Tk UjoIjO MORGUNBLAÐSINS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.