Morgunblaðið - 15.01.2000, Side 8
8 LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Svavar R. Guðnason útgerðarmaður Vatneyrar
Þeir eru að biðja um einhvern til að taka á móti spottanum.
Litrík símaskrá í undirbúingi
NY símaskrá Landssímans verður
nú í fyrsta skipti öll prentuð í lit.
Boðið er upp á auglýsingar í lit á öll-
um síðum, ekki bara gulu síðunum,
en auglýsingar á þeim síðum voru
prentaðar í íyrsta skipti í lit í fyrra.
Þá býðst öllum þeim sem eru skráðir
í skránni að prenta nafn sitt og núm-
er í einhverjum öðrum lit en þeim
svarta.
Önnur nýbreytni varðandi síma-
skrána er sú að nú mun fólki gefast
kostur á að skoða skráningu sína á
Netinu áður en lokað verður fyrir
nýskráningar og breytingar. Síðasti
skráningardagur er 31. janúar nk. og
segist Olafur Stephensen, talsmaður
Landssímans, gera ráð fyrir að þessi
möguleiki verði mikið notaður.
Landssíminn mun kynna þessa
nýbreytni í næstu viku.
Prentuð í 220 þúsund eintökum
Gert er ráð fyrir að símaskráin
komi út í seinni hluta maímánaðar og
verður skráin prentuð í 220 þúsund
eintökum, líkt og í fyrra. Þá verður
skráin gefin út í tveimur bindum,
annað fyrir höfuðborgarsvæðið og
hitt fyrir landsbyggðina. Skráin
verður prentuð með sama letri og
notað var í fyrsta skipti í fyrra og
hefur að sögn Ólafs fallið mjög vel í
kramið hjá notendum skráarinnar.
Myndir á forsíður verða valdar í
samráði við Listasafn íslands.
Til þess að ná betri prentgæðum
vegna litarins verður pappírinn í
skránni nú harðari og sléttari en ver-
ið hefur. Bæði pappír og prentlitur
verða umhverfisvænir og eiga að
brotna hratt niður í náttúrunni. Tek-
ið verður á móti gömlum skrám og
þær notaðar til jarðgerðar og búin til
úr þeim molta til að græða upp land.
Deild leikskólakennara á eftirlaunum
Deildin gætir
hagsmuna eft-
irlaunaþega
Ingibjörg Kristín Jónsdóttir
Félag íslenskra leik-
skólakennara verð-
ur 50 ára 6. febrúar
n.k. Af því tilefni hefur
verið ákveðið að stofna
sérstaka deild innan fé-
lagsins fyrir leikskóla-
kennara á eftirlaunum.
Stofnfundurinn verður
haldinn í dag klukkan
14.00 í leikskólanum Lauf-
ásborg í boði Leikskóla
Reylgavíkur. Formaður
hinnar nýstofnuðu deildar
er Ingibjörg Kristín Jóns-
dóttir fyrrverandi leik-
skólastjóri í Reykjavík.
Hún var spurð hvers
vegna ástæða hefði þótt til
að stofna sérstaka deild
fyrir leikskólakennara á
eftirlaunum.
,Á.stæða þótti til að
stofna sérstaka deild til þess að
gæta hagsmuna leikaskólakenn-
ara á eftirlaunum eða eftirlifandi
maka þeirra og/eða bama. Deild-
inni ber og að fylgjast með lífeyr-
is- og kjaramálum fyrir leikskóla-
kennara á eftirlaunum og efla
félagsstarf og tengsl þeirra á
milli. Deildin mun eiga fiilltrúa á
fulltrúaráðsþingi Félags ís-
lenskra leikskólakennara, þannig
að okkur gefst tækifæri til að
fylgjast með því sem er að gerast
innan félagsins.“
- Hafa Icikskólakcnnarar á eft-
irlaunurn ekki fylgst mikið með
því sem er að gerast í málefnum
leikskólakennara fram aðþessu?
„Við fáum sent fréttabréf fé-
lagsins og getum fylgst með
þannig og einnig eru vorþing full-
trúaráðsins opin en mjög lítið er
um að leikskólakennarar á eftir-
launum hafi sótt þau vegna þess
að vantað hefur þá tengingu sem
þessi nýja deild vonandi verður."
- Hvernig eru kjaramál leik-
skólakennara á eftirlaunum?
„Eftirlaun leikskólakennara
eru þannig tilkomin að þau eru
ákveðinn hundraðshluti af grunn-
launum og sá hundraðshluti vex
eftir starfsaldri. í hæsta skala eru
eftirlaun 70% af grunnlaunum
sem í dag eru að meðaltali um 90
þúsund krónur fyrir leikskóla-
stjóra. A síðustu árum hefur þró-
unin verið sú að æ meira er um
eingreiðslur eða fastar yfirvinnu-
greiðslur sem koma ekki leik-
skólakennurum á eftirlaunum til
góða, þar sem eftirlaun þeirra
miðast aðeins við grunnlaun.
Þetta tel ég einna brýnast fyrir
hina nýju deild að berjast fyrir að
breyta þannig að yfirvinnu-
greiðslurnar komi inn í grunn-
launataxtana.“
- Hvað eru margir leikskóla-
kennarar á eftirlaunum núna?
„Ég gæti ímyndað mér að þeir
séu innan við þrjátíu, þetta er ung
stétt en á næstu árum mun eftir-
launafólki í stétt leik-
skólakennara fjölga
mjög.“
-Þú útskrifaðist úr
Uppeldisskóla Sumar-
gjafar -hvaða skóli var
það?
„Þetta var íyrirrennari Fóst-
urskóla íslands og starfaði í
Reykjavík. Hann hóf starfsemi 1.
október 1946og ég var í öðru holl-
inu. Skólinn fékk svo nafnið
Fóstruskóli Sumargjafar
skömmu síðar en 1973 varð þetta
ríkisskóli og hét þá Fósturskóli
Islands. I hitteðfyrra var skólinn
sameinaður Kennaraháskóla ís-
► Ingibjörg Kristín Jónsdóttir
fæddist 26. janúar 1929 á Akur-
eyri. Hún lauk gagnfræðaprófi
þar og prófi frá Uppeldisskóla
Sumargjafar 1949. Hún starfaði
við kennslu í tólf ár í grunnskóla
og eftir það sem leikskólastjóri í
Reykjavík. Hún var í stjórn
Fóstrufélags íslands í tíu ár, þar
af formaður í fjögur ár. Ingi-
björg er ekkja eftir Kjartan
Steingrímsson útgerðarmann og
eignuðust þau tvö börn.
lands og námið er nú á leikskóla-
skor innan þess skóla.“
- Hvernig virðist þérmálefnum
leikskólakennara komið í dag?
„Ég held að málefni þeirra séu í
góðum farvegi, duglegt fólk er í
forystu stéttarinnar. Það var ekki
fyrr en 1988 sem stofnað var
stéttarfélag leikskólakennara, áð-
ur var Fósturfélag íslands aðeins
fagfélag og félagarnir áttu stétt-
arfélagsaðild að ýmsum stéttar-
félögum hins opinbera. Að stofna
stéttarfélag þjappaði leikskóla-
kennurum saman og nú annast
Félag íslenskra leikskólakennara
samningagerð fyrir alla sína fé-
laga.“
- En hvernig finnst þér starfið
sjálft hafa þróast?
„Það hefur orðið gífurleg þróun
í starfi innan leíkskólanna og mér
fannst stærsti vendipunkturinn
hafa orðið árið 1985 þegar
menntamálaráðuneytið gaf út
uppeldisáætlun fyrir leikskóla. Sú
áætlun er einskonar leiðbeining-
arrit fyrir leikskólakennara í
starfi. Hún hefur verið endur-
skoðuð í takt við breytta tíma og
einnig hafa komið út ýmis fylgirit
sem útlista nánar mikilvægi hvers
þáttar í starfinu. Áætlunin tekur
á flestum þeim þáttum sem unnir
eru inni á leikskólum og með
henni verður starfið miklu mark-
vissara. Húsnæði leikskólanna
hefur líka breyst mjög mikið síð-
an ég byrjaði í starfi,
áður voru leikskólar í
íbúðarhúsum sem ekki
voru sérhönnuð til þess
arna, nú er húsnæði
leikskóla sérteiknað og
fulltrúar leikskólakennara eru
teiknurunum til ráðgjafar.“
-Finnst þér börnin sjálf hafa
breyst frá þvíað þú fórst fyrst að
gæta barna?
„Útlit þeirra hvað snertir
klæðaburð hefur breyst, aðstæð-
ur þeirra hafa breyst bæði á
heimilum og innan leikskólans -
en barnssálin er alltaf sjálfri sér
lík.
Barnssálin
er alltaf
sjálfri sér lík