Morgunblaðið - 15.01.2000, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2000 25
ERLENT
Vangaveltur um áform Gates og málaferlin gegn honum
Sagður íhuga að
skípta Microsoft upp
BILL Gates, stofnandi bandaríska
hugbúnaðarrisans Microsoft, hefur
ákveðið að láta næstráðanda sinn í
fyrirtækinu til margra ára, Steve
Ballmer, taka við daglegri stjórn
og verður Ballmer því aðalfram-
kvæmdastjóri. Gates mun halda
titli stjórnarformanns og verður
auk þess yfirmaður deildar hug-
búnaðarþróunar.
„Eg fer á ný þangað sem ég
byrjaði, yfir í þróun hugbúnaðar,"
sagði Gates á fimmtudag er breyt-
ingarnar voru kynntar. Nú gæti
hann einbeitt sér algerlega að því
sem hann væri hugfanginn af,
tækni framtíðarinnar.
Fréttaskýrendur eru ekki á einu
máli um ástæðurnar fyi-ir ákvörð-
un Gates sem er 44 ára gamall og
hefur verið aðalframkvæmdastjóri
í 25 ár. Heimildarmenn AFP-
fréttastofunnar benda á að skýr-
ingin geti einfaldlega verið að Gat-
es sjái fram á að Netið og þróun
þess sé að breyta aðstæðum svo
hratt að hann verði að bregðast við
og leggja áherslu á búnað sem
tengist Netinu.
Hugað að nýjum
vettvangi?
Sömu heimildarmenn segja að
Gates hyggist sjálfur hafa yfir-
stjórnina og treysta fyrirtækið í
sessi á þessum nýja vettvangi, eins
og í upphafi þegar hann byggði
Microsoft upp á níunda áratugn-
um. Þá gerði hann samninga við
framleiðendur um að þeir notuðu
DOS-stýrikerfi hans og náði þann-
ig yfirburðastöðu sem andstæðing-
ar hans hafa kallað kverkatak. Upp
úr 1990 hafði Windows-stýrikerfi
Microsoft síðan haslað sér völl og
Gates hefur grætt á tá og fingri, er
nú auðugasti maður heims og
Microsoft eitt stærsta einkafyrir-
tæki veraldar.
Ballmer, sem er 42 ára, varð for-
stjóri Microsoft 1998 og heldur
áfram þeim titli. Hann vísaði því
eindregið á bug á fréttamanna-
fundi á fimmtudag að breytingarn-
ar tengdust hugmyndum stjórn-
valda í Washington um að hamlað
yrði gegn meintum einokunartil-
burðum Microsoft með því að
skipta risanum upp í tvær eða
fleiri einingar. Hann notaði tæki-
færið til að fordæma slíkar tillögur
sem bandarískir fjölmiðlar segja að
séu nú mjög til athugunar hjá lög-
fræðingum stjórnvalda.
„Það væri ólýsanlegt glapræði,"
sagði hann og benti á að Microsoft
hefði skapað fjölda starfa með
rekstri sínum. Ennfremur væri það
kaldhæðnislegt að um leið og
fjölmiðlasamsteypan Time Warner
væri að sameinast netþjónustufyr-
irtækinu AOL til að mynda öflug-
asta fyrirtæki í heimi vildu menn
skipta Microsoft upp.
En þótt Ballmer vísi því á bug
að með stöðubreytingunum sé ver-
ið að búa sig undir að fyrirtækinu
verði skipt eru sumir fjölmiðlar
ekki sannfærðir. The Daily Tele-
graph í Bretlandi sagði til dæmis
að Gates hygðist ef til vill verða á
undan andstæðingum sínum og
skipta fyrirtækinu upp sjálfur í
tvennt, áður en hann fengi skipun
þess efnis, eins og allt benti til að
yrði niðurstaðan. Myndi hann þá
sjálfur stjórna öðrum hlutanum en
Ballmer, sem er gamall skólabróðir
hans frá Harvard, hinum.
Aðgerðir gegn hringamyndun
og einokun
Lög gegn einokun og hringa-
myndun eru um aldargömul í
Bandaríkjunum og þekktasta
dæmið um beitingu þeirra á síðari
tímum er þegar stærstu símafyrir-
tækjunum var á áttunda áratugn-
um skipað að deila sér upp í
smærri einingar.
Microsoft hefur um hríð átt í
harðri baráttu við þá sem saka
Gates og fyrirtækið um að beita
bolabrögðum til að tryggja sér ein-
okunarstöðu í atvinnugreininni.
Hafa þeir meðal annars fullyrt að
fyrirtækið komi vísvitandi fyrir
hindrunum í stýrikerfum sínum er
geri ókleift að nota í viðkomandi
tölvu ýmiss konar hugbúnað sem
keppinautar risans framleiða.
Neytendur freistist því til að kaupa
allt sem þeir þurfa á að halda hjá
Microsoft til að lenda í ekki í
Reuters
Bill Gates (t.h.) ræðir við nýjan aðalframkvæmdastjóra Microsoft, Steve
Ballmer. Gates hyggst einbeita sér að hugbúnaðargerð.
vanda vegna skorts á samhæfingu ton og 19 sambandsríkja hafa tekið
forrita við Windows-kerfið. undir gagnrýnina og eru sammála
Netþjónustufyrirtækið Net- um að fyrirtækið sé of stórt. Þeir
scape, sem nú er hluti af AOL, var höfðuðu mál gegn Microsoft 1998
eitt margra sem kvartaði undan vegna gruns um brot á lögum um
því að Microsoft beitti vafasömum heiðarlega samkeppni. Dómarinn
meðulum í samkeppninni. Thomas Jackson lýsti yfir því í
Eitt er víst, yfirleitt sætir haust að Microsoft notaði aðstöðu
Microsoft harðri gagnrýni hjá þeim sína til að „grafa undan keppinaut-
mörgu tölvumönnum sem vilja að um og gera út af við þá“. Þetta
frelsið eitt ríki á Netinu. Þeir segja framferði valdi neytendum tjóni.
að valdagræðgi Gates muni alltaf Jackson mun kalla dóminn saman
valda því að hann gangi of langt í á ný í febrúar og leggja þá lög-
samkeppninni og öllum ráðum fræðingar beggja aðila fram loka-
verði að beita til að stöðva hann í málflutning sinn.
að leggja Netið undir sig með því Heimildarmenn segja að til
t.d. að ná yfirburðum á sviði leitar- greina komi ýmsar aðferðir við að
þjónustu. Aðrir benda á að meiri skipta fyrirtækinu. Hugsanlegt sé
líkur séu á að í framtíðinni geti að skipta því í þrennt, í fyrsta lagi
menn gengið að hugbúnaði á eins deild stýrikerfa, í öðru lagi deild
konar hlaðborði á Netinu án þess notendahugbúnaðar og í þriðja lagi
að greiða fyrir hann. Bent er á deild neytenda- og markaðsvinnu.
stýrikerfið Linux sem tákn þess Einnig væri mögulegt að skipta
sem koma skal, Netið verði ekki Microsoft „lárétt" það er að segja
gróðalind eins og einkatölvan varð skipta deildunum hverri fyrir sig
Gates á sínum tíma. til að draga úr veldi þeirra og
Fulltrúar stjórnvalda í Washing- meintu ofríki.
Útsalan stendur sem hæst Hln KORUIÍMMHI.
30-60% afsláttur NANOQ+
Kringlunni 4-12 ■ www.nanoq.is
GRÍMSVÖTN
Gufu- og bskusprengingar i Grims-
vötnum. Gos hófst fyrír norðan
Grimsvötn þann 30. september
1996 og hafði í för með sér hlaup
í Skeiðará.
piai
NANOQ