Morgunblaðið - 15.01.2000, Síða 70

Morgunblaðið - 15.01.2000, Síða 70
/7 0 LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM íslendingur þjálfar sleðahunda í Noregi / s A hundasleða undir norður- ljósum á - hj ara veraldar Mörgum fínnst sleðahundar úlfslegir og telja þá grimma en þetta eru í raun ljúfír og gæfír hundar, segir Aron Freyr Guðmunds- son meðal annars í samtali við Sunnu Ósk Logaddttur, en hann mun taka þátt í sleða- hundakeppni í Norður-Noregi í mars. s Ljósmynd: Lars H. Krempig „Maður er í miklum tengslum við náttúruna þegar maður stendur aftan á meiðum hundasleðans og kyrrðin er algjör." Ljósmynd: Lars H. Krempig „I keppninni verður ökumaður sjálfur að hirða um hundana og leita að sárum.“ Morgunblaðið/Kristinn Aron Freyr Guðmundsson þjálfar sleðahunda í Norður-Noregi. Island er hulið snjó mestan hlutaársins en þrátt fyrir þá staðreynd hafa hundasleðar sjaldan verið notaðir hérlend- is. En ungur íslendingur, Aron Freyr Guðmundsson hefur í eitt og hálft ár dvalist á sveitabæ í Langa- fjarðarbotni í Vestur-Finnmörku í Norður-Noregi þar sem sleðahund- ar af tegundinni Alaska-Husky eru ræktaðir og þjálfaðir. „Eg starfa á tveimur sveitabæjum við mjaltir og önnur hefðbundin sveitastörf en mitt aðalstarf og áhugamál er þó að þjálfa sleðahunda og allur minn frí- tími fer í það,“ segir Aron sem dvaldi hérlendis _yfir jólin í faðmi fjölskyldunnar. „Eg fer bæði í dags- ferðir og helgarferðir á sleðunum og stundum jafnvel í vikuferðir. Þá er gott að hafa með sér ísborinn, veiðistöngina, prímusinn og hreindýraskinnið og veiða í gegnum ís. Það er ekkert sem jafnast á við að vera á hundasleða á stjörnubjörtum frostkvöldum þar sem norðurljósin dansa yfir manni og snjórinn glitrar eins og milljónum demanta hafi ver- ið stráð allt í kringum mann undir mánaskininu." Aron býr í einu stærsta hundasleðasamfélagi Nor- egs. Þar getur ríkt heimskautaveður og frostið farið niður fyrir -40 °C. „Eg fékk vinnu í nágrenni Geilo en eftir nokkra mánuði var ég orð- inn leiður á starfinu og ákvað að fara heim til íslands. Þó álpaðist ég til að koma við á bókasafninu þar og kíkja í tölvu sem er beintengd inn á vinnu- markaðinn sem leiddi til þess að nú er ég kominn í hundana og búsettur lengst norður á hjara veraldar. Ég hafði ekki hugmynd um út í hvað ég var að fara og vissi lítið sem ekkert um sleðahunda.“ Aron segir það hafa verið mjög merkilega upplifun að prófa hunda- sleða í fyrsta skipti. „Það er eigin- lega ekki hægt að lýsa því og ekkert í líkingu við að aka t.d. vélsleða. Maður upplifir náttúiuna á allt ann- an hátt þegar maður stendur aftan á meiðum hundasleðans. Maður er meira í tengslum við hana, kyrrðin er algjör á ferðum yfir hálendi, sléttur og skóglendi Finnmerkur. Einnig sjást spor hinnar marg- brotnu flóru villtra dýra norðursins umhverfis mann, eins og eftir elgi, hreindýr, gaupur, refi og rjúpur.“ Aron segir það ólýsanlega spennu sem fylgi því að vera á ferðinni í þéttum skógi og verða að hafa sig allan við til að stýra sleðanum í gegn. „Eins á vorin þegar árnar hafa myndað mjóar ísbrýr sem mað- ur verður að stýra hundunum yfir og vona það besta á meðan maður horfir niður á beljandi ána sýna alla sína krafta." Hundarnir þjálfaðir mestan hluta ársins Hver sleði er yfirleitt dreginn af átta til tólf hundum en stundum eru þeir færri. Hundarnir sem Aron er að þjálfa eru af tegundinni Alaska- Husky og eru þeir miklir keppnis- hundar og eru notaðir víða í Evrópu og Norður-Ameríku. Tegundin hef- ur verið þróuð með blöndun ólíkra tegunda til að ná fram meiri hraða. Aron telur aðalkosti hundsins vera þá að hann er sterkur, úthaldsmikill og fer hratt yfir. Flestir vita að best er að sýna varðhundum lítil blíðuhót, ef maður vill ekki hljóta verra af, en hvernig er það með sleðahundana? „Mörgum finnst sleðahundar úlfs- legir og dregin hefur verið upp sú mynd af þeim að þeir séu grimmir," segir Aron. „En þetta eru ranghug- myndir. Alaska-Huskýinn er þekkt- ur fyrir að vera mjög gæfur en auð- vitað fer það eftir því hvernig eigendur umgangast hunda sína. Þeir eru engir sófahundar sem þú tekur með þér inn í stofu heldur hundar sem eru utandyra allt sitt líf.“ Þjálfun hundanna felst aðallega í því að láta þá draga sleða langar vegalengdir með því að fara í langar dagsferðir. Hundarnir vinna í tvo daga og hvílast í einn dag á milli. Mikil vinna liggur í að þjálfa for- ystuhunda en þeir stýra sleðanum samkvæmt skipunum frá ökumanni. „Það er mikilvægt að samvinnan milli forystuhundanna og ökumanns séu góð. Það eru heldur ekki allir hundar gæddir þeim eiginleika að verða forystuhundar." Hundarnir hafa frí á sumrin því þá er of heitt fyrir þá að erfiða en í lok ágúst, þegar farið er að kólna, er fjórhjólið tekið fram og hundarnir spenntir fyrir. „Haustþjálfunin er mikilvæg fyrir veturinn. Til að byrja með eru hundarnir látnir draga fjór- hjólið stuttar vegalengdir, síðan er hún aukin um leið og við finnum að hundarnir eru tilbúnir.“ Þegar snjórinn kemur taka Aron og félagar fram sleðana og auka við vegalengdina sem hund- arnir draga jafnt og þétt þar til hún er komin upp í um 50 km á dag. „Þá erum við kannski úti í um sex klukkustundir í einu.“ Lengsta hundasleðakeppni í Evrópu í mars mun Aron Freyr taka þátt í hundasleðakeppni sem kallast Finnmerkurhlaupið og er hann fýrsti íslendingurinn sem tekur þátt í því. Finnmerkurhlaupið er lengsta hundasleðahlaup í Evrópu og er 1000 km langt. Það er keppt í tveim- ur flokkum, bæði í 500 km og í 1000 km og kemur Aron til með að taka þátt í styttri vegalengdinni. Keppendur koma frá mörgum löndum og munu karlar jafnt sem konur keppast um að komast í mark á sem stystum tíma. Hlaupið er ræst í Alta og nær leiðin yfir Finnmerkurheiði og tekur það nokkra daga. „Kuldi, vindur og óveður er það sem bíður mín en með góðum fatnaði frá íslenska merkinu Cintamani er ég tilbúinn að mæta Kára,“ segir Aron. „Ökumað- ur og hundar verða að hafa sig alla við til að klára hlaupið. Ég mun reyna að ná þriggja tíma svefni yfir sólahringinn, en oft verður hann víst minni.“ I keppninni verður ökumaður sjálfur að hirða um hundana; sjá um að þeir verði fyrir sem minnstu orkutapi á meðan hann hvílist, fóðra þá og leita eftir sárum. „Það er sig- ur útaf fyrir sig að klára hlaupið,“ segir Aron. Búist er við mestri þátttöku í 500 km hlaupinu svo það verða margir sem bítast um efstu sætin. „Það felst mjög mikil vinna í að þjálfa hundana og annar maður sér um þjálfun þeirra á meðan ég er heima í jólafríi því þeir verða að vera í toppformi fyrir hlaupið." Heimasíða Finnmerkurhlaupsins er www.iinnmarkslopet.no og þar geta áhugamenn um hundasleða fylgst með undirbúningi keppninnar frá fyrstu hendi. Ljósmynd: Lars H. Krempig „Þetta eru engir sófahundar sem þú tekur með þér inn í stofu, heldur hundar sem eru utandyra allt sitt líf.“ ennþá í fitUunt gangi ! Morkinni 4 • 10Í5 Rnykjavik Símis 533 3500 • J'a.v: 533 3510 ■ vvu vv.marco.is Við Btyðjum við bakið á þér!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.