Morgunblaðið - 15.01.2000, Page 76
Netþjónar
og tölvur
^COMPAa
Er búiö að leysa
máliö? Er lausnin
föst í kerfinu?
Þad er dýrt aö láta starfsfólkíð biða!
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉFB691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 15. JANUAR 2000
VERÐILAUSASOLU150 KR. MEÐ VSK.
Gengi á hlutabréfum í FBA hefur hækkað um 46,4% síðan í nóvember
FBA kanpir enska einka-
bankann R. Raphael & Sons
GENGI hlutabréfa í Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins hf. hefur hækk-
að um 46,4% síðan í útboði á 51% hlut
ríkisins í bankanum í nóvember sl. í
gær var tilkynnt um kaup FBA á
enska einkabankanum R. Raphael &
Sons fyrir u.þ.b. einn milljarð króna.
I hlutafjárútboðinu í nóvember var
gengið 2,8 en lokagengi bréfa FBA á
Verðbréfaþingi í gær var 4,1 eða
46,4% hærra. Hópurinn sem keypti
f%> hlut ríkisins, keypti bréf að nafn-
ði 3.468 miHjónir króna á samtals
9,7 milljarða króna. Síðan hefur
markaðsvirði þessa 51% hluta hækk-
að um 4,5 milljarða króna, í 14,2 millj-
arða króna.
Viðskipti með hlutabréf FBA á
VÞI í gær námu 27,3 milljónum og
hækkaði gengið um 2,5% frá deginum
áður. I fyrradag námu viðskiptin 55,2
milljónum og hækkaði gengi bréf-
anna þá um 6,1% eins og fram hefur
komið. Að sögn Svanbjöms Thorodd-
sen, framkvæmdastjóra einkabanka-
þjónustu FBA, var þar ekki um að
ræða viðskipti á vegum bankans eða
innheija bankans. Lokað var fyrir
viðskipti með bréf FB A í gærmorgun
en opnað eftir að tilkynning barst um
kaupin á enska bankanum.
Kaup FBA á bankanum eru liður í
aukinni þjónustu FBA við einstakl-
inga en nýju sviði hefur verið bætt við
skipurit FBA, svokallaðri einka-
bankaþjónustu, sem ætluð er fyrir
fjársterka einstaklinga.
Bjarni Armannsson, forstjóri
FBA, kynnti nýtt hlutverk FBA á
fundi með fréttamönnum í gær.
„FBA er nú alþjóðlegt þekkingarfyr-
irtæki á sviði fjármála. Hlutverk
Gengisþróun
Fjárfestingarbanka
atvinnulífsins ehf.
1. nóv. 1999 -14. jan. 2000
bankans er ekki lengur einskorðað
við að þjóna íslensku atvinnulífi.
Þetta er fyrsta skrefið í að færa út
kvíarnar á alþjóðavettvangi."
R. Raphael & Sons er næstelsti
starfandi banki Englands, stofnaður
árið 1787. Bankinn sérhæfir sig í
þjónustu við fjársterka einstaklinga
og mun áfram verða starfræktur sem
sjálfstæður banki í Englandi, sem er
miðstöð einkabankaþjónustu í heim-
inum, eins og segir í fréttatilkynn-
ingu frá FBA. Raphael-bankinn var í
einkaeigu Raphael-ættarinnar allt til
ársins 1983 þegar James Frost og
fjölskylda keyptu bankann. Frost er
núverandi stjómarformaður bankans
en hann er kunnur frumkvöðull í
bresku atvinnulífi.
■ Einkabankaþjónusta/22
A
MITSUBISHI
- demantar í umferö
MITSUBISHI
E1
HEKLA
J| -íforystu á nýrri öldt
Búið að girða
Klettsvíkina af
KEIKÓ fær á næstunni mun stærra
athafnasvæði en hann hefur haft til
þessa, en nú er búið að girða Kletts-
víkina af með um 300 metra langri
girðingu. Gera þjálfarar Keikós ráð
fyrir að hann geti synt inn og út um
hlið á kvfnni og haft alla Klettsvík-
ina fyrir sig.
Hallur Hallsson, talsmaður Free
Willy Keikó-samtakanna, segir að
með því að hleypa Keikó út úr
kvínni sé komið að næsta skrefi í
aðlögun hans að náttúrulegum
heimkynnum. Ekki hafi þó enn ver-
ið ákveðið hvenær unnt verði að
sleppa honum alveg lausum. Hallur
segir þjálfara fylgjast áfram með
Keikó og annast frekari þjálfun í
þessari aðlögun. Netagerðin Ingólf-
ur í Vestmannaeyjum sá um fram-
leiðslu á netinu og segir Hallur það
fest niður með keðjum í ankeri.
Viðskipti yfirmanna
fyrirtækja í
verðbréfaþjónustu
Spákaup-
mennska
bönnuð í
Danmörku
í DÖNSKUM lögum um verðbréfa-
viðskipti er skýrt kveðið á um að yf-
irmönnum fyrirtækja á fjármagns-
markaði sé óheimilt að stunda
spákaupmennsku með verðbréf fyrir
eigin reikning. Jafnframt er í lögun-
um sú skylda lögð á stjómendur fyr-
irtækjanna að þeir setji reglur um
hvaða öðrum starfsmönnum innan
fyrirtækisins sé óheimilt að stunda
slíka spákaupmennsku. Engin slík
ákvæði er hins vegar að finna í ís-
lensku verðbréfaviðskiptalögunum
frá 1996.
Verklagsreglur eru í gildi innan
flestra íslenskra fyrirtækja í verð-
bréfaþjónustu í dag. Fjármálaeftir-
litið þarf áður en reglurnar taka gildi
að hafa samþykkt þær, í samræmi
við ákvæði verðbréfaviðskiptalaga.
Mjög mismunandi virðist þó vera
hvemig reglumar eru túlkaðar inn-
an fyrirtækjanna.
Full ástæða til að skoða
reglurnar betur
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, segir nauðsyn-
legt að farið verði ofan í saumana á
því hvort fyrirtækin fari eftir reglun-
um og hvort gera þurfi þær skýrari
en þær em. Full þörf sé á þessu þar
sem viðskiptaumhverfið hafi þróast
mikið frá þvi að reglurnar vom fyrst
settar.
Um þessar mundir vinnur hópur á
vegum fyrirtækja á fjármagnsmark-
aðinum að tillögugerð að nýjum
verklags- og siðareglum á markaði.
Er búist við því að þeirri vinnu ljúki
á næstu vikum.
■ Ákvæðum/38
Rangárvallahreppur
45 hross
felld vegna
vanrækslu
YFIRVÖLD létu fella,45 úti-
gangshross á bænum Armóti í
Rangárvallahreppi í gær vegna
langvarandi hirðuleysis og van-
fóðmnar.
Að sögn Önnu Birnu Þráins-
dóttur, fulltrúa sýslumanns
Rangæinga, var það mat dýra-
lækna að skepnurnar væra
ekki í ástandi til að bjarga sér.
„Þetta vom brýnar aðgerðir,
dýrin vora vanhaldin af lang-
varandi hirðuleysi og vanfóðr-
un,“ sagði Anna Birna. Að sögn
hennar var aðgerðin hluti af
stóru dýraverndarmáli sem er
rannsakað að hætti sakamála
hjá embættinu. Enn er allstórt
hrossastóð við bæinn.
Anna Birna sagði að hræ
hrossanna hefðu verið urðuð á
löggiltum urðunarstað við
Strönd í V-Landeyjum. Að-
gerðin fór fram á ábyrgð Rang-
árvallahrepps en samkvæmt
búfjárlögum ber sveitarfélög-
um skylda til að sjá til þess að
sé hirt um skepnur innan sinna
vébanda og ábyrgjast kostnað
af aðgerðum í því skyni.