Morgunblaðið - 08.02.2000, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Frumvörp sem fela 1 sér myndun samhæfðs gagna- og upplýsingakerfís um allar fasteignir í landinu
UMRÆÐUR um persónuvemd
settu nokkum svip á umfjöllun um
þrjú lagafrumvörp sem öll tengjast
myndun samhæfðs gagna- og upp-
lýsingakerfis um allar fasteignir í
landinu, sem mælt var fyrir á Alþingi
í gær. Lýsti Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra sig sammála því að
tryggja yrði að tekið væri tillit til
laga um persónuvemd og sagðist
jafnframt telja augljóst að aðgangur
að kerfinu, sem lagt er til að nefnist
Landskrá fasteigna, yrði skilgreind-
ur nánar en gert er í frumvörpunum
sjálfum.
Fjármálaráðherra mælti í upphafi
fyrir meginþætti þessa bandorms,
þ.e. frumvarpi til laga um breytingu
á lögum um skráningu og mat fast-
eigna. í kjölfarið mælti Sólveig Pét-
ursdóttir dómsmálaráðherra fyrir
fmmvarpi til laga um breytingu á
þinglýsingalögum og Guðni Ágústs-
son, starfandi viðskiptaráðherra,
mælti fyrir framvarpi til laga um
breytingu á lögum um branatrygg-
ingar, en bæði þessi frumvörp tengj-
ast myndun Landskrár fasteigna. 011
voru framvörpin áður lögð fram á
123. löggjafarþingi.
I máli fjármálaráðherra kom fram
að Landskrá fasteigna væri ætlað að
verða sameiginleg skrá um fasteign-
ir, þinglýsingar fasteigna, mat fast-
eigna og húsaskrá Hagstofu íslands,
þjóðskrá. Er gert ráð fyrir að hún
nýtist öllum þeim sem halda sérstak-
ar fasteignaskrár, en einnig íyrir-
tækjum og ýmsum opinberam aðil-
um. Loks yrði almenningi veittur
aðgangur að skránni á Netinu.
Geir sagði hagræðið af myndun
Landskrár fasteigna margvíslegt.
T.d. yrði hvert upplýsingaratriði að-
eins fært einu sinni í skrána og því
sparaðist sú margskráning og tví-
verknaður sem nú ætti sér stað hjá
ýmsum skráarhöldurum. Þetta
leiddi af sér meirí áreiðanleika upp-
lýsinga og yki þannig öryggi í við-
Líklegt að aðgang-
ur að kerfínu verði
skilgreindur nánar
Morgunblaðið/Ásdís
Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksformaður Framsóknarmanna, virð-
ist ánægður með gang mála á þingi, þótt umkringdur sé þingmönnum
stjórnarandstöðunnar, Jóhönnu Sigurðardóttur og Ástu R. Jóhannes-
dóttur úr Samfylkingunni og Ögmundi Jónassyni þingmanni VG.
llifliliili
ALÞINGI
skiptum. Meginmarkmiðið væri að
uppfylla þörf fyrir einhlíta og varan-
lega skrá um lönd, lóðir og fasteignir
þeim tengdar, sem koma myndi að
almennum notum fyrir þá sem
þyrftu á henni að halda, hliðstætt og
þjóðskrá Hagstofunnar.
Fram kom í máli Geirs að gert
væri ráð fyrir að myndun Landskrár
fasteigna tæki nokkurn tíma og að
kostnaður við verkefnið yrði á um
sjöunda hundrað milljóna króna.
Geir sagði ennfremur að efla þyrfti
tölvudeild Fasteignamats ríkisins til
að halda Landskrána og að ætlunin
væri að þessi starfsemi yrði á um-
dæmisskrifstofu Fasteignamats rík-
isins, sem staðsett er á Akureyri.
Það væri sérstakt ánægjuefni að
geta þannig skapað 10-12 ný störf
úti á landsbyggðinni.
Pétur H. Blöndal, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, kvaddi sér fyrstur
allra hljóðs við umræðuna í gær og
lýsti áhyggjum sínum vegna þess
aukna umfangs „stóra bróður" sem
honum virtist þetta upplýsingakerfi
hafa í för með sér. Tók Árni Steinar
Jóhannsson, þingmaður Vinstri-
hreyfingarinnar - græns framboðs, í
sama streng og velti fyrir sér hvort
markmið ríkisstjórnar væri að
byggja miðlæga gagnagranna á sem
flestum sviðum til að fylgjast með
öllum hlutum í samfélaginu.
Jóhanna Sigurðardóttir, þingmað-
ur Samfylkingar, tók fram að vissu-
lega virtist hér um framfaraspor að
ræða en sagði að ýmsu að huga.
Lagði hún áherslu á mikilvægi þess
að farið væri yfir þetta mál með full-
trúum Tölvunefndar og taldi reynd-
ar að Tölvunefnd hefði átt að koma
að málinu í undirbúningi framvarps-
ins. Hún benti á að hér fengju trygg-
ingafélög, fasteignasölur og ýmsir
aðrir aðgang að upplýsingum um
einstaklinga, upplýsingum sem í
mörgum tilfellum væra viðkvæmar,
t.d. skulda- og eignastöðu fólks og
jafnvel fjármálum þess.
Jóhanna sagði mikilvægt að fram-
varpið yrði yfirfarið með tilliti til
laga um persónuvernd og spurði síð-
an hvort aðgangur að kerfinu yrði
skilgreindur nánar með tilliti til þess
hver ætti í hlut. Loks gerði hún að
umtalsefni að skv. framvarpinu væri
gert ráð fyrir að fasteignaeigendur
stæðu undir kostnaði vegna gerðar
skrárinnar. Töldu bæði hún og Pétur
H. Blöndal eðlilegra að þeir sem not-
uðu þessa þjónustu greiddu kostnað-
inn.
Geir H. Haarde sagði í seinni ræðu
sinni að vissulega væri brýnt að gæta
trúnaðar í skráningu upplýsinga,
jafnvel mætti hugsa sér eins konar
dulkóðun gagna í þessu sambandi.
Kvaðst hann telja rétt að í umfjöllun
um frumvörpin færi þingnefnd vand-
lega yfir persónuverndarþátt máls-
ins og bætti inn þeim ákvæðum í
framvarpið sem talið væri að vantaði
upp á í því efni. Hins vegar væri rétt
að muna að aðgangur að miklu af
þeim upplýsingum, sem hér væri um
að ræða, væri þegar opinn.
Á hinn bóginn sagði Geir það aug-
ljóst mál að aðgangur að kerfinu yrði
skilgreindur nánar; þ.e. að tilteknir
aðilar fengju aðgang að tilteknum
upplýsingum en ekki endilega öðr-
um. Hann sagði þó ekki víst að allt
slíkt ætti heima í löggjöfinni heldur
kannski frekar í þeim reglum sem
kæmu á eftir á grandvelli laganna.
Loks sagði Geir vel koma til greina
að skoða þann möguleika að notend-
ur greiddu kostnað vegna gerðar
Landskrár fasteigna.
Ráðin verði bót á vanda
Lífeyrissjóðs sjómanna
Tveir
varamenn
taka sæti á
þingi
TVEIR varaþingmenn tóku
sæti á Alþingi í gær, báðir úr
Vesturlandskjördæmi en fyrir
sinn stjórnarflokkinn hvor.
Þorvaldur T. Jónsson bóndi
sest á þing fyrir Framsóknar-
flokkinn í fjarvera Ingibjargar
Pálmadóttur heilbrigðis- og
tryggingaráðherra næstu tvær
vikurnar og Helga Halldórs-
dóttir skrifstofumaður kemur
inn á þing fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn vegna fjarvera Sturlu
Böðvarssonar samgönguráð-
herra. Þorvaldur hefur áður
teldð sæti á Alþingi en Helga
sest hins vegar á þing í fyrsta
skipti og af því tilefni undirrit-
aði hún drengskaparheit að
stjórnarskrá við upphaf þing-
fundar í gær.
GUÐJÓN A. Kristjánsson, þing-
maður Frjálslynda ílokksins,
mælti á Alþingi í gær fyrir frum-
varpi til laga um breytingu á lög-
um um Lífeyrissjóð sjómanna en
frumvarpið felur í sér þá breyt-
ingu að iðgjald til sjóðsins skuli
framvegis nema 11% af heildar-
launum sjómanna í stað 10% áður
og greiði launagreiðandinn hækk-
unina, eða 7% á móti 4% launþeg-
ans.
Guðjón rakti í framsöguræðu
sinni þann vanda sem að steðjar
Lífeyrissjóði sjómanna og sagði
hann að um alllangt skeið hefði
eignir sjóðsins ekki staðið undir
framtíðarskuldbindingum sjóðsins
skv. tryggingafræðilegu mati.
Stjórn sjóðsins hefði leitað leiða til
að minnka muninn milli eigna hans
og skuldbindinga og m.a. hefðu í
nokkur skipti verið gerðar laga-
breytingar sem allar hafi haft í för
með sér mikla skerðingu á lífeyris-
skuldbindingum félaga í sjóðnum.
Þrátt fyrir það vantaði enn u.þ.b.
5% upp á að eignir sjóðsins stæðu
undir skuldbindingum hans.
Guðjón sagði þennan vanda m.a.
eiga rætur að rekja til ársins 1981
þegar ríki og launaþegar gerðu
félagsmálapakka í tengslum við
kjarasamninga sem fól m.a. í sér
að sjóðfélagar gætu framvegis tek-
ið lífeyri frá 60 ára aldri, hefðu
þeir greitt nægilega lengi í sjóð-
inn. Þessum pakka hefði hins veg-
ar aldrei fylgt nein fjármögnun, að
sögn Guðjóns, og aukinn kostnað-
ur féll einfaldlega á sjóðfélagana
sjálfa.
Guðjón sagðist jafnframt leggja
til að sett yrði bráðabirgðaákvæði
í lögin sem fæli í sér að þrátt fyrir
að framlag í sjóðinn ykist um 1%
leiddi hækkunin ekki til aukins
rétts til lífeyris fram til 31. des-
ember 2009.
Þess í stað ættu auknar greiðsl-
ur í sjóðinn að verða til að auka
eignir svo þær gætu frekar staðið
undir framtíðarskuldbindingum og
bætt hag sjóðfélaga. Lýsti Guðjón
þeirri skoðun sinni að það væri
réttlætismál að launagreiðendur
legðu fram sinn skerf og tækju
þátt í því að koma sjóðnum á rétt-
an kjöl.
Undir sjónarmið Guðjóns tóku
þau Jóhanna Sigurðardóttir, Sam-
fylkingu, Guðmundur Hallvarðs-
son, Sjálfstæðisflokki, og Ögmund-
ur Jónasson, Vinstri grænum, sem
öll kvöddu sér hljóðs við umræð-
una í gær. Kom fram í máli þeirra
að þau teldu tíma til kominn að
ráðin væri bót á vanda Lífeyris-
sjóðs sjómanna.
Alþingi
FUNDUR hefst í Alþingi í dag
kl. 13.30:
1. Aukatekjur ríkissjóðs,
frh. 1. umræðu (atkvgr.)
2. Skráning og mat fast-
eigna, frh. 1. umræðu (atkvgr.)
3. Þinglýsingalög, frh. 1.
umræðu (atkvgr.)
4. Brunatryggingar, frh. 1.
umræðu (atkvgr.)
5. Lífeyrissjóður sjómanna,
frh. 1. umræðu (atkvgr.)
6. Fjáröflun til vegagerðar,
frh. 1. umræðu. (atkvgr.)
7. Bann við þróun, fram-
leiðslu, söfnun og notkun efna-
vopna, 1. umræða.
8. Persónuvernd og meðferð
persónupplýsinga, 1. umræða.
9. Bætt réttarstaða barna,
fyrri umræða.
10. Bætt staða þolenda kyn-
ferðisafbrota, fyrri umræða.
11. Almenn hegningarlög
(barnaklám), 1. umræða.
12. Tekjustofnar í stað söfn-
unarkassa, fyrri umræða.
13. Hjúskaparlög.
ALLRA SIÐUSTU DAGAR
Verslunin hættir
SP0RTV0RUVERSLUNIN
SPARTA
afsláttur
Laugavegi 49 -101 Reykjavík - simi SS1 2024