Morgunblaðið - 08.02.2000, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Össur hf. skilaði 139 milljóna króna hagnaði árið 1999
Hagnaður ársins
j ókst um 76%
ÖSSUR hf. hagnaðist um 139 millj-
ónir króna á árinu 1999, sem er 76%
aukning frá árinu 1998 þegar hagnað-
ur félagsins nam 79 milljónum króna.
Velta fyrirtækisins nam 1.303 mil-
ljónum króna og jókst um 26% frá ár-
inu áður, en rekstrargjöld námu 1.094
milljónum króna og höfðu aukist um
24%.
„Við erum mjög ánægð með þetta
uppgjör. í meginatriðum hefur stað-
ist það sem við sögðum í útboðslýs-
ingunni sem gerð var vegna hlutafjár-
útboðsins í september síðastliðnum,"
segir Jón Sigurðsson, forstjóri Össur-
ar hf., í samtali við Morgunblaðið.
„Niðurstaðan er þó í flestum tilvik-
um heldur betri en þær tölur sem við
gáfum upp í útboðslýsingunni, og því
held ég megi segja að við séum mjög
ánægð með þessa útkomu. Starfs-
mönnum fjölgaði um 21 á árinu eða
um 21%, svo velta á hvem starfsmann
eykst h'tiilega,“ segir Jón.
Velta Össurar hf. jókst um 26%, en
hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir
skatta jókst um 67%, og skýrist það af
tveimur þáttum. Annars vegar varð
meiri aukning á veltu en rekstrar-
gjöldum, og jókst því hagnaður fyrir
fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
um 38% eða um 67 milljónir. Jafn-
framt varð 30 milljóna króna bati í
samtölu fjármunatekna og fjár-
magnsgjalda, og leiddi þetta til þess
að hagnaður af reglulegri starfsemi
jókst um 87 milljónir eða um 67%.
Aðspurður um bætta niðurstöðu-
tölu fjármunatekna og fjármagns-
gjalda segir Jón að hið nýja fjármagn
sem kom inn við hlutafjáraukninguna
síðastliðið haust hafi haft mikið að
segja. „Þó við hefðum þessa fjármuni
ekki nema í tvo og hálfan mánuð, þá
lækkaði þetta mjög vaxtabyrðina, og
eins voru vaxtatekjur af þeim. Að vísu
vorum við ákaflega óheppin að það
kom verðbólguskot tólf dögum eftir
að við vorum komin með tæpan millj-
arð inn á bækumar, og það hafði
slæm áhrif á raunávöxtun fjármagns-
ins,“ segir Jón.
Jón er spurður um horfumar fyrir
það ár sem nú er hafið og segir hann
að starfsmenn Össurar hti bjartsýnir
fram á veginn, og það sé ekkert sem
gefi annað til kynna en að þessi vöxt-
ur haldi áfram. Varðandi hugsanleg
kaup á öðram fyrirtækjum í kjölfar
hlutafjáraukningarinnar segir Jón að
áður hafi verið gefnar yfirlýsingar um
að það sé möguleiki í stöðunni. „En
það er ekki komið að þeim vatnaskil-
um að það sé ástæða tíl að segja eitt-
hvað sérstakt um það,“ segir Jón Sig-
urðsson.
Símaf undur með forstjóra og
fjármálastjóra Össurar
I fréttatilkynningu frá Össuri hf.
kemur m.a. fram að fastafjármunir
félagsins jukust um 856% á árinu, eða
úr 136 mUljónum króna í 1.288 mil-
ljónir, og skýrist það af hlutafjára-
ukningunni. Veltufjármunir jukust
hins vegar um 25% eða úr 379 mUljón-
um í 475 mUljónir króna. Langtíma-
skuldir félagsins drógust saman um
14%; fóra úr 188 mUljónum í 162 mU-
Ijónir, en skammtímaskuldir jukust
um 50% og fóra úr 143 mUljónum
króna í 214 mUljónir í lok árs.
Varðandi meginþætti sem höfðu
áhrif á afkomu félagsins segir í tU-
kynningunni að Össur hafi haldið
áfram að styrkja stöðu sína á mörk-
uðum í Norður-Ameríku og Evrópu
með áframhaldandi uppbyggingu
dreifikerfis og markaðssetningu á
nýjum vörum og vöruflokkum.
Einnig segir að eitt af yfirlýstum
markmiðum fyrirtækisins sé að auka
I Grand Hótel Reykjavík 18.febrúar
STÓRIÐJA -
ÚRVINNSLUIÐNAÐUR
Væntingar um víðtæka iðnvæðingu ítengslum við stóriðju
hafa verið miklar og notaðar m.a. sem rök fyrir virkjana-
framkvæmdum. Þessar væntingar hafa þó ekki gengið eftir.
Ýmis teikn eru nú um að slíkur iðnaður geti aukist og ýmsar
hugmyndir eru uppi þar að lútandi.
VFÍ og TFÍ efna til hálfs dags ráðstefnu þar sem gerð verður
úttekt á þeim möguleikum sem fyrir hendi eru, stöðunni
í dag og framtíðar þróun. Markmiðið er að menn fari með
skýrari mynd af þeim raunhæfu möguleikum sem fyrir hendi
eru en þeir höfðu er þeir komu. Ráðstefnan verður haldin á
Grand Hótel Reykjavík 18.feb. kl.13-17.
DAGSKRÁ
Ráðstefnan sett, Hákon Ólafsson.formaður VF(.
Áv^rþ iðnaðarráðherra, Valgerðar Sverrisdóttur.
Úrvinnsluiðnaður á Norðuriöndum - möguleikará (slandi, , :
ToralfCook,framkvæmdastjóriScanaluminium. * '
Álsteypur og yfirborjðsmeðhöndlun.
Ákveðin dæmi uíi tíentuga framleiðslu Per Möller, dósent við DTÚ.
' 14:20 Úryirmsla á (slandi, þróun og möguleikar - kynning é Málmgarði,
Eirfar Jón Ásbjörnsson, Málmgarði.
Kaffihlé. * ' •
Nújverandi úrvinnslúiðnaður, reynsla og viðhorf:
* Þorvaldur Hallgrímsson, Málmsteypan Hella.
- Einar Þór Einarsson, Alpan.
Panelumræður: Framsögumenn ásamt fulltrúum frá
álframleiðendum, Samtökum iðnaðarins, Iðnaðarnefnd Alþingis,
fjárfestum o.fl.Svara þeir spurningum úrsal og kryfja málið
til mergjar sín á milli undir stjórn dr. Þorsteins Sigfússonar,
prófessors og formanns RANNfS.
Niðurstöður og lokaorð Jóhannes Benediktsson.formaðurTFf.
13:00
13:10
13:20
13:50
14:50
15:10
15:30
16:50
TakBllraOlanlélig lilaili
4
VerkfrœÞingafélag íslands
rannsóknar- og þróunarstarf, og hafi
kostnaður þróunardeildar aukist um
82% á seinasta ári. Á seinasta ári vora
kynntir tveir nýir vöraflokkar,
ICEFLEX hnéhlífar og ICELOCK
læsinga- og tengibúnaður.
I tilkynningunni segir að talið sé að
stoðtælg'amarkaðurinn muni vaxa um
6-8% að raungildi á ári, en forráða-
menn Össurar telja að tekjur fyrir-
tækásins og hagnaður þess geti vaxið
allt að þrisvar sinnum hraðar en
markaðurinn á árinu 2000, án þess að
keypt séu önnur fyrirtæki.
Aðalfundur Össurar hf. verður
haldinn 24. mars næstkomandi á
Grand Hótel Reykjavík. Stjóm fyrir-
tækisins hefur ákveðið að leggja til
við aðalfund að hagnaður félagsins
verði fjárfestur í vexti þess og að ekki
verði greiddur arður.
í dag, þriðjudag, klukkan 11:00
gefst fjárfestum og öðram kostur á að
taka þátt í opnum símafundi, þar sem
Jón Sigurðsson, forstjóri, og Árni A1-
var Arason fjármálastjóri Össurar,
fara yfir niðurstöðu ársreiknings og
sitja fyrir svöram um uppgjör sein-
asta árs og framtíðarhorfur. Til að
taka þátt í símafundinum þarf að
hringja í eitt eftirtalinna símanúm-
era, 171-515-1234, 171-516-1234 eða
PjiÖssur hf.
Úr ársreikningi 1999
Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna 1.303 1.034 +26%
Rekstrargjöld 1.094 882 +24%
Fjármunatekiur (fiármaqnsqiöld) 7 -23
Hagn. af reglul. starfsemi f. skatta 216 129 +67%
Aðrar tekjur og gjöld -1 -9
Tekju- og eignarskattur -76 -41 +85%
Hagnaður ársins 139 79 +76%
Efnahagsreikningur 31.12.99 31.12.98 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 1.793 515 +242%
Eigið fé 1.387 184 +654%
Skuldir 376 331 +14%
Skuldir og eigið fé samtais 1.763 515 +241%
Kennitölur og sjóðstreymi 1999 1998 Breyting
Arðsemi eigin fjár 44,7% 77,3%
Eiginfjárhlutfall 78,6% 35,7%
Veltufjárhlutfall 2,2 2,7
Handbært fé frá rekstri M. króna 235 83 +183%
fylgjast með fundinum á Netinu á
slóðunum www.ossur.is eða
www.simnet.is/live.va þótt ekki sé
hægt að setja fram fyrirspurnir á
Netinu.
Markaðsaðilar bíða fregna af
fyrirtækjakaupum
Frosti Reyr Rúnarsson, verðbréfa-
miðlari hjá Fjárvangi hf., segir að af-
koma Össurar hafi verið undir þeim
væntingum sem aðilar á verðbréfa-
markaði höfðu gert ráð fyrir. „Samt
sem áður er töluverð hagnaðaraukn-
ing. Aukning rekstrarhagnaðar fyrir
skatta er 38%, sem er um 17% um-
fram þær áætlanir sem fyrirtækið
hafði sjálft sett fram í útboðslýsingu
vegna hlutafjárútboðs," segir Frosti.
V/H hlutfall Össurar hf. er nú um
115 og segir Frosti Reyr það vera í
hærri kantinum, en þó sé ekki fyrir
hendi neitt sambærilegt félag til að
miða við hér á landi. „En aðilar á
markaði eru að bíða eftir einhveijum
fréttum af kaupum á fyrirtækjum er-
lendis, í tengslum við hlutafjárútboð-
ið,“ segir Frosti Reyr að lokum.
Pfízer kaupir Warner-Lambert fyrir 6.627 milljarða króna
Annað stærsta lyfjafyr-
irtæki heims verður til
BANDARÍSKA lyfjafyrirtækið
Pfizer Inc. tilkynnti í gær að það
hefði samþykkt að greiða jafnvirði
6.627 milljarða króna f hlutabréf-
um fyrir Warner-Lambert Co.
lyfjafyrirtækið bandaríska. Hið
nýja fyrirtæki mun bera nafnið
Pfizer. Þar með er lokið þriggja
mánaða tilraunum Pfizer til að
komast yfir þennan samkeppnis-
aðila sinn, sem vaxið hefur hratt á
seinustu árum, og verður með því
til annað stærsta lyfjafyrirtæki
heims.
Hið sameinaða fyrirtæki mun
meðal annars framleiða stinningar-
lyfið Viagra, geðdeyfðarlyfið Zo-
loft, munnskolið Listerine og kó-
lesteról-lyfið Lipitor sem selst
hefur mjög vel en það er framleitt
af Warner-Lambert. Sala á því
einu nam um 270 milljörðum króna
árið 1999.
Greiningaraðilar á fjármála-
markaði á Wall Street höfðu búist
við þessum fregnum um langa hríð
eftir að Warner-Lambert, sem
hafði undirritað samning um 5.300
milljarða króna „samruna jafn-
ingja“ við lyfjafyrirtækið American
Home Products Corp., samþykkti
dræmlega að taka til skoðunar
kauptilboð Pfizer.
Eftir að hafa komið að viðræðum
og slitið þeim á víxl samþykkti
Pfizer loks að hækka kauptilboð
sitt, sem var upprunalega metið á
rúma 6.000 milljarða, í rúma 6.600
milljarða. Ámerican Home
Products samþykkti einnig að falla
frá samningnum um samruna við
Warner-Lambert í skiptum fyrir
tu/eýr\sfóti/ej/ia/* t O/xe/Hutni
a/fa^ rniéoi/tuííc^ti j/v/rHÍar'
//art. (ty>a/ac/i ^i/é/.
Satatá fjfíe// /Ój/v/.
í/}<mru>eiy ŒrHttjat/áUá' 28^/ef.
á&aait Ác/vv/i i'c/uá/fiianá/er/ta/Hi
Þessir frábœru einsöngvarar taka allir þátt í
sýningu Islensku óperunnar: Lúkretia svívirt,
sem hlotið hefur frábœrar viðtökur.
Tónleikamir hefjast klukkan 12:15 alla dagana.
Miðaverð aðeins 500 krónur.
1(3
ÍSLENSKA ÓPEBAN
greiðslu sem nemur rúmum 132
milljörðum króna eða 1,8 milljörð-
um dala, segir á fréttavef CNNfn.
Hluthafar Warner-Lambert fá
2,75 hlutabréf í Pfizer á móti einu
hlutabréfi í Warner-Lambert.
Hlutabréf í Warner-Lambert
lækkuðu lítillega en hlutabréf
Pfizer hækkuðu í verði við fregn-
irnar í gær.
Hlutabréf í American Home
Products hækkuðu einnig í verði.
Greiningaraðilar á markaði telja að
American Home Products kunni að
verða keypt upp af öðrum lyfjafyr-
irtækjum, eftir að sameiningará-
formin við Warner-Lambert runnu
út í sandinn. Hins vegar hjálpar
greiðslan upp á 132 milljarða króna
til við að greiða margra milljarða
dollara bætur sem fyrirtækið þarf
að reiða af hendi til fyrrum not-
enda „fen-phen“, megrunarlyfs
sem framleitt var af Ameriean
Home Products.
Við samruna Pfizer og Warner-
Lambert verður til annað stærsta
lyfjafyrfytæki heims, á eftir því
' fyrirtæki sem gert er ráð fyrir að
verði Itil við samruna SmithKline
Beecham og Glaxo Wellcome.
Pfizer er nú annað stærsta íyfja-
, fyrirtæki Bandaríkjanna, en Warn-
er-Lambert var hið sjöunda í röð-
; ipni. Merck & Co. £r riú ^tærsta
. lyfjafyrirtækið í Bandaríkjunum,
en hið sameinaða fyrirtæki mun
• verða stærst þar í landi þegar.sam-
einingin er um garð gengin.
Velta hins sameinaða fyrirtækis
Pfizer verður rúmir 2.060 milljarð-
ar króna, og markaðsvirði þess
rúmir 16.900 milljarðar króna.
Stjórnarformaður og aðalfram-
kvæmdastjóri Pfizer, William
Steere, mun halda sínum titli en
stjórnarformaður Warner-Lam-
bert ákvað sjálfur að vera ekki
áfram hjá fyrirtækinu. Forstjóri og
aðalrekstrarstjóri Warner-Lam-
bert mun hins vegar starfa áfram
og halda sínum titli.