Morgunblaðið - 08.02.2000, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
h
UR VERINU
Morgunblaðið/Porgeir Baldursson
Sveinn Benediktsson SU með fullfermi af loðnu á fullri ferð.
Nótabátarnir enn
í biðstöðu á grunninu
GÓÐ loðnuveiði var hjá trollbátun-
um um helgina en nótabátarnir eru
enn í biðstöðu á grunninu. Hins
vegar ríkti nokkur bjartsýni á mið-
unum í gær og biðu menn spenntir
eftir nóttinni og deginum í dag.
Hafrannsóknaskipið Bjarni Sæ-
mundsson var í blíðskaparveðri
suðvestan til í Hvalbaksgrunni í
gær og segir Hjálmar Vilhjálmsson
fiskifræðingur að nokkurs konar
pattstaða ríki á grunninu. „Nóta-
veiðiskipin voru langt inni á grunn-
inu milli Hvalbaks og Reyðarfjarð-
ardjúps aðfaranótt mánudags,
einhverjir köstuðu og fengu smá-
slatta enda lá allt niðri sem þeir
voru að glíma við.“
Loðna á grunninu
Eftir bræluna á sunnudag leituðu
Hjálmar og félagar að loðnu vestur
í Breiðamerkurdjúpi og sigldu svo
austur djúpkantinn án þess að sjá
neitt. Hins vegar segir Hjálmar að
töluvert virðist vera komið af loðnu
inn á grunnið og því sé aðeins tíma-
spursmál hvenær hún þétti sig.
Viðar Karlsson, skipstjóri á nóta-
skipinu Víkingi, tók í sama streng.
„Það er einhver loðna að skríða
hérna upp undir en hún er svo
dreifð að við höfum ekki getað nýtt
okkur þetta.“
Hann sagðist hafa kastað í gær-
morgun án árangurs og var að búa
sig undir annað kast um kvöldmat-
arleytið. „Það er eitthvert spark af
loðnu hérna en hún er ekki í ástandi
til að veiða hana. En það hlýtur að
fara að styttast hjá okkur.“
Viðar segir að miðað við hrogna-
prósentu og straum hefði loðnan átt
að vera komin íyrr á grunnið. „Hún
hefði átt að koma um helgina miðað
við hrognaprósentuna sem gefin
var upp fyrir mörgum dögum en
hún er svo lunkin. Hún getur farið í
kalt vatn og stöðvað kynþroskann
með því. Það er lítið að sjá en þetta
er fyrsti dagurinn þar sem ástandið
virðist vera að lagast. Við bíðum
spenntir eftir morgundeginum og
það er urmull af bátum í biðstöðu
en það er ágætis veiði hjá trollbát-
unum úti í kanti.“
Gott á trollinu
Að sögn Halldórs Jónasson, skip-
stjóra á Sveini Benediktssyni SU,
voru um 15 trollbátar á loðnuveið-
um um 40 mílur austur af Reyðar-
firði. Hann landaði tæplega 1.230
tonnum á Akranesi á föstudag, var
mættur aftur á miðin á sunnudag,
var kominn með tæplega 1.000 tonn
í gær og var að hífa um 200 tonn um
kvöldmatarleytið. Halldór gerði ráð
fyrir að kasta einu sinni enn og svo
yrði siglt til Akraness og væntan-
lega landað þar í fyrramálið en sigl-
ingin tekur 30 til 33 tíma.
Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri Samherja
Attum fjóra kosti í
upphafi kvótakerfisins
„ÞAÐ er ekki rétt sem fullyrt er í
Morgunblaðinu síðastliðinn laugar-
dag, að Samherji hafi aðeins átt kost
á vali milli aflareynslu Guðsteins og
skipstjórakvóta Þorsteins Vilhelms-
sonar af Kaldbaki EA, þegar Akur-
eyrin hóf veiðar í kvótakerfinu 1984.
Við áttum þrjá raunhæfa kosti, afla-
reynslan kom aldrei til greina þar
sem skipið hafði ekki verið að veiðum
á 19 mánuði samfleytt, þegar það hóf
veiðar vegna rekstrarerfiðleika og
síðar vegna breytinga.
Okkur stóð til boða kostur, sem
var meðaltal stórra togara á Norður-
landi. Hann hefði fært okkur kvóta
upp á 2.493 ígildi. Skipstjórakvótinn
færði okkur hins vegar 3.121 tonn og
því var sá kostur valinn,“ segir Þor-
steinn Már Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri Samherja, í samtali
við Morgunblaðið.
Hefði getað unnið sig
upp í sóknarmarki
Þorsteinn Már bendir einnig á það
að skipið hefði getað unnið sig upp í
sóknarmarki, aðeins með hámarki í
þorski eins og margar aðrar útgerðir
völdu. „Við völdum hins vegar skip-
stjórakvótann og héldum okkur við
aflamarkið," segir Þorsteinn Már.
„í raun voru kostirnir fjórir fyrir
þá, sem höfðu litla aflareynslu af
ýmsum ástæðum. Það var hægt að
velja sóknardaga, sem voru mjög
Kom aldrei til
greina að miða
við aflareynslu
Guðsteins
margir, með tiltölulega háu
þorskaflahámarki, en frjálsa sókn í
allar aðrar tegundir. Það voru mörg
skip, sem völdu þessa leið með góð-
um árangri. Þá var hægt að velja
aflareynslu síðustu ára, eða meðal-
talskvóta skipa í sama flokki á sama
landsvæði og loks aflareynslu skip-
stjóra og áhafnar.
í flokki stórra togara
Guðsteinn hafði ekki verið í
rekstri í nærri tvö ár á viðmiðunar-
tímabilinu. Við gátum því valið um
skipstjórakvóta, sóknarmark og
meðaltal skipa í sama útgerðar-
flokki. Hvað okkur varðaði var þetta
flokkur stórra togara á norðursvæði.
Þá voru fimm togarar í þessum
flokki, Sléttbakur, með 2.629 þor-
skígildistonn, Svalbakur, 2.727,
Harðbakur, 2.773, og Kaldbakur
með 3.121 ígildi og Akureyrin 1.212.
Meðaltal þeirra var 2.493 þorskígild-
istonn, en meðaltal minni togara,
undir 500 tonnum að stærð, á svæð-
inuvar 2.160.
Á þessum tíma voru ný skip að
koma inn í veiðamar, skip að skipta
um eigendur og skip, sem höfðu ver-
ið frá veiðum af ýmsum ástæðum.
Þeim stóðu til boða þessar fjórar
leiðir. Það voru útgerðir margra
aflaskipa, sem völdu sóknarmarkið
vegna þess hve sóknardagarnir voru
margir á ári.
Margir á sóknarmark 1985
Þegar kvótakerfið er sett á er Örv-
ar búinn að vera á veiðum í eitt og
hálft ár, en reynsla hans var reiknuð
upp miðað við þijú ár. Hann fékk því
2.471 þorskígildi í aflareynslu þrátt
fyrir að hafa aðeins verið að veiðum í
18 mánuði á viðmiðunartimanum.
Megnið af flotanum valdi aflamark
fyrsta árið, sem var 1984, en árið eft-
ir fóru mjög mörg skip á sóknar-
mark, en þá var búið að rýmka mjög
mikið um það. Örvar var eitt þeirra
skipa sem fór í sóknarmarkrið 1985
og 1986 og vann sig þar verulega
upp. Þegar aflamarki var úthlutað
1987 fékk hann úthlutað 3.428 ígild-
um, en Akureyrin, sem hafði verið á
aflamarki fékk 3.397 þorskígildis-
tonn. Övar byrjaði með svipaða út-
hlutun á fyrsta ári eins og meðaltalið
fyrir norðan, en er kominn upp fyrir
Akureyrina við úthlutun 1987. Við
hefðum einnig getað unnið okkur
upp í sóknarmarki eins og aðrir sem
voru með góð skip og góða áhöfn,“
segir Þorsteinn Már Baldvinsson.
Hillary Clinton lýsir formlega
yfír framboði í New York
Búist við
hörðum slag
Purchase. AP, AFP.
HILLARY Rodham Clinton lýsti í
fyrradag formlega yfír þátttöku
sinni í öldungadeildarkosningunum í
New York á hausti komanda. Er
þetta í fyrsta sinn sem eiginkona
Bandaríkjaforseta sækist eftir opin-
beru embætti en búist er við að and-
stæðingur hennar verði Rudolph
Giuliani, borgarstjóri í New York-
borg.
Um 2.000 stuðningsmenn Hillary
fógnuðu henni vel er hún tilkynnti
framboðið að viðstöddum eigin-
manni sínum, Bill Clinton, móður
sinni, Dorothy, og dótturinni Chels-
ea.
Hillary gerði grein fyrir helstu
stefnumálum sínum í hálftímalangri
ræðu og sagði að tilgangur stjóm-
málanna væri að gera það ómögu-
lega mögulegt. Lagði hún einkum
áherslu á ýmis samfélags- og vel-
ferðarmál.
Hillary sækist eftir sæti hins
fijálslynda demókrata Daniels Patr-
icks Moynihans, sem hefur ákveðið
að draga sig í hlé, og búist er við að
slagurinn á milli hennar og Giulianis
verði mjög harður.
Lítill fylgismunur
Giuliani nýtur mikilla vinsælda
sem borgarstjóri í New York-borg
og í skoðanakönnunum hefur hann
lengst af haft allmiklu meira fylgi en
Hillary. Að undanfömu hefur þó
Clinton-hjdnin voru hin kátustu
er Hillary tilkynnti formlega um
framboð sitt.
dregið saman með þeim og í nýjustu
könnuninni fær hann 45% en hún
42%. Fyrir ári studdu miklu fleiri
konur Giuliani en Hillary, en nú hafa
þau jafn mikinn stuðning kvenna.
Helmingur kjósenda býst þó enn við
að Giuliani muni sigra.
Giuliani reyndi nú um helgina að
draga nokkuð athyglina frá Hillary
og yfirlýsingu hennar með því að
koma fram í fimm umræðuþáttum í
sjónvarpi þar sem hann hélt því fram
að hún væri reynslulítil og of
„vinstrisinnuð". Búist er við að Giuli-
ani lýsi formlega yfir framboði sínu á
næstunni.
Egypt Air-flugmaður í Bretlandi
Segir forstjór-
ann bera ábyrgð
á hrapinu
London, Kairó. AFP, AP.
FLUGMAÐUR hjá egypska ríkis-
flugfélaginu EgyptAir hefur beðið
um hæli í Bretlandi. Segist hann
hafa upplýsingar um hvað olli hrapi
EgyptAir-þotunnar undan Massa-
chusetts í október sl., en talsmenn
flugfélagsins segja hann enga vitn-
eskju hafa um það.
Hamdi Hanafi Taha flaug Airbus-
þotu í eigu EgyptAir til London sl.
föstudag og baðst að því búnu hælis
í Bretlandi. Meðan á flugferðinni
stóð tilkynnti hann flugumferðar-
stjórninni í London að hann vildi
hitta fulltrúa FBI, bandarísku al-
ríkislögreglunnar, og bandaríska
loftferðaeftirlitsins til að „stöðva
allar lygamar um slysið". Rannsókn
á því er ekki lokið en grunur leikur
á að aðstoðarflugmaður hafi viljandi
steypt flugvélinni í sjóinn með 217
manns innanborðs.
„Djöflar“ í
æðstu stjórn
í skeyti, sem Taha sendi til flug-
málayfirvalda og „allra heiðarlegra
flugmanna" og birt hefur verið í
egypskum fjölmiðlum, segir hann að
„djöflar" í æðstu stjórn EgyptAir
beri ábyrgð á slysinu. „Morðinginn
er Mohammed Fahim Rayyan, for-
stjóri félagsins, og djöflarnir hans,“
segir Taha en alls ber hann sakir á
sjö yfirmenn flugfélagsins. Sagt er
að auk þessa hafi hann skilað 16
síðna skýrslu til breskra yfirvalda
um ýmislegt sem miður hafi farið
hjá EgyptAir og eigi þátt i slysinu í
október að hans áliti.
Talsmenn flugfélagsins hafa vísað
ásökunum Tahas á bug sem hreinni
firru og samtök egypskra flug-
manna boðuðu til skyndifundar á
sunnudag þar sem lýst var yfir að
Taha hefði orðið starfsbræðrum sín-
um til skammar. Er það haft eftir
félögum hans að hann hafi lengi átt í
útistöðum við yfirmenn sína og einn
af yfirmönnum hans segir að komið
hafi til innri rannsóknar á málefnum
Tahas „oftar en einu sinni“ vegna
brota hans á reglum félagsins.
Hjá EgyptAir varðar það upp-
sögn komi starfsmaður ekki til
vinnu í hálfan mánuð og verða
greiðslur til Tahas og fjölskyldu
hans stöðvaðar er sá tími er úti.
Mjög trúaður
Nágrannar Tahas segja að hann
sé mjög trúaður á íslamska vísu og
lögfræðingur Jamaa Islamiya,
helstu öfgasamtaka múslíma í
Egyptalandi, segir að Taha hafi bar-
ist fyrir því á níunda áratugnum að
áfengi yrði bannað um borð í flug-
vélum EgyptAir. Þá er haft eftir
ónefndum starfsmanni EgyptAir að
Taha hafi einu sinni lent i vandræð-
um fyrir að krefjast þess að múslím-
ar bæðust fyrir á réttum tímum þótt
þeir væru á ferð í háloftunum. Hann
er þó ekki grunaður um aðild að
neinum öfgasamtökum.
Eins og fyrr segir er rannsókn á
EgyptAir-slysinu ekki lokið en þótt
allt bendi til að aðstoðarflugmaður-
inn Gamil al-Batoti hafi grandað
henni, þá vilja Egyptar alls ekki
fallast á það. Kenna þeir um ein-
hverri bilun í stélbúnaði.