Morgunblaðið - 08.02.2000, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2000 55
ósvipaður og á prestssetrum í gamla
íslenska bændasamfélaginu; stöðug-
ur gestagangur og ættfólki og vinum
tekið með rausn og hlýju. Leitun var
að samhentari hjónum; María var
kjölfesta fjölskyldunnar og bjó
manni sínum, hinum starfsglaða og
ástsæla lækni, þægilegt og traust
heimili.
„Skjótt hefur sól brugðið sumri,“
segir Jónas Hallgrímsson í ljóði sínu
um Bjama Thorarensen. Vorið 1965
virtist María hraust og glöð eins og
hún var vön að vera. En þegar sum-
arið nálgaðist hafði hún orð á því að
hún væri ekki eins góð til heilsunnar
og hún ætti að sér. Það var reiðar-
slag, þegar í ljós kom við nána rann-
sókn að hún var heltekin banvænum
sjúkdómi. Hún lá á spítala um skeið,
en þegar sýnt þótti að batavon væri
engin var hún flutt heim á Öldugöt-
una. Guðborg dvaldist hjá manni sín-
um erlendis, en kom strax heim - og
vakað vai- nótt sem dag við sjúkra-
beð Maríu. Hún lést hinn 15. október
árið 1965 - aðeins 53 ára gömul.
Kristjáni Sveinssyni var sýndur
margvíslegur sómi um ævina eins og
hann átti skilið. Attræður var hann
kosinn heiðursfélagi Læknafélags
Reykjavíkur „fyrir einstakan mann-
kærleika og störf sem augnlæknir“,
eins og það var orðað. Og fimm árum
fyrr var hann kosinn heiðursborgari
Reykjavíkur, og var sú ákvörðun
samþykkt einróma í borgarstjórn.
Þegar ég minntist á það við Kristján,
svaraði hann: „Ég hef aldrei verið
gefinn fyrir tildur og hégóma af
neinu tagi. Þess vegna datt mér í hug
að afþakka þennan mikla heiður. En
mér var kennt í æsku að vera þakk-
látur þeim, sem vildu mér vel, svo að
ég hætti við það. Og á undan mér
hafði séra Bjarni Jónsson hlotið
sams konar viðurkenningu. Félags-
skapurinn gat því ekki verið betri.“
Eg á margar ógleymanlegar
minningar frá þeim tíma er ég ritaði
ævisögu Kristjáns. Viðtökur bókar-
innar voru einstaklega góðar, eins og
við mátti búast þegar slíkur maður
átti í hlut. Við vorum selfluttir úr
einni búðinni í aðra til að árita bókina
og hvarvetna var löng biðröð við-
skiptavina. Mér er sérstaklega
minnisstætt, hve mannglöggur
Kristján var; hann þekkti óðara
gamla sjúklinga sína með nafni, og
stundum bar hann kennsl á afkom-
endur þeirra af svipnum einum.
Hann var með afbrigðum ættfróður
- og sá eiginleiki var grundvöllur
rannsókna hans á glákunni. Að því
leyti til, á dögum gagnagrunna og
erfðagreiningar, var hann langt á
undan samtíð sinni.
Kristján Sveinsson lést föstudag-
inn 25. maí árið 1985. Hann varð
bráðkvaddur á gleðifundi í hópi vina
sinna. Lát hans bar mjög skyndilega
að í kaffiboði sem haldið var til heið-
urs fimmtíu ára stúdentsárgöngum
og eldri. Hann gegndi fullu starfi til
hinstu stundar og lauk lífi sínu eins
og hann hefði helst kosið sjálfur -
líkt og slökkt væri á kerti.
Útförin fór fram 31. maí á vegum
Reykjavíkurborgar og var svo fjöl-
menn að færri en vildu komust inn í
Dómkirkjuna. Séra Þórir Stephen-
sen jarðsöng, en kistuna úr kirkju
báru Davíð Oddsson þáverandi borg-
arstjóri, Birgir Isleifur Gunnarsson
fyrrum borgarstjóri, borgarfull-
trúarnir Sigurjón Pétursson og
Kristján Benediktsson, og læknarnir
Páll Gíslason, sem þá var forseti
borgarstjórnar, Úlfar Þórðarson, Ól-
afur Örn Amarson og Kristján
Baldvinsson.
Ég vil ljúka þessum minningar-
orðum með frásögn Kristjáns sjálfs
af ævistarfi sínu og mikilvægi þess:
„Einu sinni þurfti ég að flytja list-
málara þá sorgarfrétt að vonlaust
væri að bjarga sjón hans. Hann bug-
aðist; grét eins og barn. Ég gleymi
þessu aldrei. Örvænting gagntók
hann, og það var skiljanlegt. Myrkr-
ið vofði yfir honum. Umhverfið allt,
fegurð þess, Ijós og litir voru á hverf-
anda hveli; allar dásemdir lífsins sem
við sjáum á degi hveijum og þykir
sjálfsagt. Atvik á borð við þetta hafa
brýnt mig í baráttunni við myrkrið.
Og ég mun halda henni áfram á með-
an mér endist líf og heilsa. Til mikils
er að vinna. Þau eru svo dýrmæt -
blessuð augun okkar.“
Gylfi Gröndal.
Safnaðarstarf
Kynning á starfi
fyrir syrgjendur
í Seltjarnar-
neskirkju
í KVÖLD kl. 20:30 verður kynning-
arkvöld í Seltjarnarneskirkju á starfi
fyrir syrgjendur. Þetta er tíunda árið
sem
slíkt starf er starfrækt og hefur
borið mikinn árangur. Starfið felst í
hópavinnu, þar sem þátttakendur
eru tíu manns auk leiðbeinenda, sem
eru prestar kirkjunnar. Hópastarfið
verður á mánudagskvöldum tíu
mánudaga í röð og hefst 14. febrúar
kl. 20:00.
A kynningarkvöldinu flytur sr.
Solveig Lára Guðmundsdóttir sókn-
arprestur á Seltjamarnesi erindi um
sorg og sorgarviðbrögð og kynnir
starfsemina. Þá verða kaffiveitingar,
fyrirspurnir og skráning í hópinn.
Allir eru velkomnir.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla al-
durshópa kl. 10-14. Léttur hádegis-
verður. Mömmu- og pabbastund í
safnaðarheimilinu kl. 14-16.
Dómkirkja. Barnastarf í safnaðar-
heimilinu kl. 14 fyrir 6-7 ára börn, kl.
15.30 fyrir 8-9 ára börn og kl. 17 fyrir
10-12 ára börn.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
Laugarneskirkja. Morgunbænir
kl. 6.45. Fullorðinsfræðsla kl. 20. Nú
hefst sjö kvölda syrpa í fullorðins-
fræðslunni með nýrri nálgun við
spurningar trúarinnar. Þriðjudagur
með Þorvaldi kl. 21. Lofgjörðarstund
á ljúfu nótunum með ritningarlestri
og bæn.
Neskirkja. Litli kórinn, kór eldri
borgara, kl. 16.30 í umsjón Ingu J.
Backman og Reynis Jónassonar. Ný-
ir félagar velkomnir.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar
í safnaðarheimilinu kl. 10-12. Herdís
Storgaard kemur í heimsókn og talar
um slysavarnir. Hittumst, kynn-
umst, fræðumst.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænarefnum má koma tO sóknar-
prests í viðtalstímum hans. Æsku-
lýðsstarf á vegum KFUM & K og
kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Starf aldraðra kl.
11.15. Leikfimi IAK, léttur málsverð-
ur, helgistund og samvera. Kl. 17
TTT, 10-12 ára starf, á vegum
KFUM og K og Digraneskirkju.
Fella- og Hólakirkja. Foreldra-
stund kl. 10-12. Kyrrðar- og bæna-
stund kl. 12.10-12.25. Organisti
kirkjunnar leikur á orgelið frá kl. 12.
Þakkar- og bænarefnum má koma til
presta og djákna kirkjunnar. Léttur
hádegisverður í safnaðarheimilinu að
lokinni bænastund. Starf fyrir 9-10
ára stúlkur kl. 15-16. Starf fyrir 11-
12 ára stúlkur kl. 16.30-17.30. Æsku-
lýðsfélagið fyrir 8. bekk kl. 20-22.
Grafarvogskirkja. Opið hús eldri
borgara kl. 13.30-16. Kyrrðarstund,
handavinna, söngur, spil og spjall.
Kaffiveitingar. Kirkjukrakkar í
Rimaskóla kl. 18-19 fyrir 7-9 ára
börn. KFUK fyrir stúlkur 9-12 ára
kl. 18-19. Æskulýðsstarf fyrir ungl-
inga 15 ára og eldra kl. 20-22.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Kópavogskirkja. Foreldramorg-
unn í safnaðarheimilinu Borgum í
dag kl. 10-12. Kyrrðar- og fyrirbæn-
astund í dag kl. 12.30. Fyrirbænar-
efnum má koma til prests eða kirkju-
varðar.
Seljakirkja. Mömmumorgnar kl.
10-12.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30. Opið hús fyrir
8-9 ára börn kl. 17-18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús
fyrir 10-12 ára börn í Vonarhöfn,
Strandbergi, kl. 17-18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
kl. 17-18.30 fyrir 7-9 ára börn.
Lágafellskirkja. Foreldramorg-
unn kl. 9.30-11.30. Umsjón Þórdís og
Þuríður.
Keflavíkurkirkja. Fjölskyldu-
stund í Kirkjulundi kl. 10.30-11.30.
Helgistund, fræðsla og samfélag fyr-
ir aðstandendur barna undir grunn-
skólaaldri. Umsjón Brynja Eiríks-
dóttir. Fermingarundirbúningur kl.
13.40-15 íKirkjulundi.
Landakirkja Vestmannaeyjum.
Kl. 16.30 kirkjuprakkarar, 7-9 ára
krakkar, í spunaleikritum og föndri.
Enn er hægt að bæta við börnum.
Örfá sæti laus.
Grindavíkurkirkja. Foreldra-
morgunn kl. 10-12.
Borgameskirkja. TTT, tíu-tólf
ára starf, alla þriðjudaga kl. 17-18.
Helgistund í kirkjunni sömu daga kl.
18.15-19.
Krossinn. Almenn samkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Hvammstangakirlga. Æskulýðs-
fundur í kvöld kl. 20.30 á prestssetr-
inu.
Hólaneskirkja Skagaströnd. Kl.
10 mömmumorgunn í félagsheimil-
inu Fellaborg. Kl. 16 KFUM og
KFUK fyrir börn 9-12 ára.
Þorlákskirkja. Mömmumorgnar
þriðjudaga kl. 10-12.
Frelsið, kristileg miðstöð. Biblíu-
skóli í kvöld kl. 20.
+
Ástkær eiginkona, móðir, dóttir og tengda-
dóttir,
ANNA MARGRÉT PÉTURSDÓTTIR,
Einihlíð 12,
Hafnarfirði,
sem lést þriðjudaginn 1. febrúar, verður
jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju miðviku-
daginn 9. febrúar kl. 13.30.
Páll Kristjánsson,
Kristján Pálsson,
Pétur Valdimarsson, Fjóla Gunnarsdóttir,
Ása Helgadóttir.
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR
frá Sjónarhóli,
Sandgerði,
sem lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, fimmtu-
daginn 3. febrúar, verður jarðsungin frá
Safnaðarheimilinu, Sandgerði, laugardaginn
12. febrúar kl. 11.00.
Anna M. Jónsdóttir, Haukur Guðmundsson,
Ásdís Jónsdóttir, Jón B. Sigurðsson,
Sigrún J. Jónsdóttir, Hafsteinn Ársælsson,
Svanhildur Jónsdóttir,
Ragnheiður E. Jónsdóttir, Ingimundur Ingimundarson
og fjölskyldur.
+
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRDÍS S. GUÐMUNDSDÓTTIR,
Droplaugarstöðum,
áður Rauðarárstíg 40,
verður jarðsungin frá kirkju Óháða safnaðarins í
dag, þriðjudaginn 8. febrúar, kl. 15.00.
Sæmundur Gunnarsson, Þórunn Jónsdóttir,
Sigrún Sæmundsdóttir,
Jón Sæmundsson, L. Ýr Sigurðardóttir,
Margrét Sæmundsdóttir
og barnabarnabörn.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
TORFI SIGURÐSSON
frá Bæjum,
Grensásvegi 52,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 10. febrúar kl. 13.30.
Ragnheiður Torfadóttir, Sigurður Kr. Finnsson,
Ingibjörg Sara Torfadóttir, Guðmundur Pálmason,
Rún Torfadóttir Smith, Murray Smith.
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÁGÚST VIGFÚSSON
fyrrverandi kennari,
dvalarheimilinu Skjóli,
verður jarðsunginn frá Áskirkju miðvikudaginn
9. febrúar kl. 13.30.
Dóra Ágústsdóttir, Magnús Magnússon,
Sveinn Ágústsson, Ursula Ágústsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar .
GUÐBORGAR EINARSDÓTTUR, í|pl .. ' yí
lengst af til heimilis
á Rauðarárstíg 30.
Fyrir hönd systkinabarna,
Þorsteinn Júlíusson.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við and-
lát og útför elskulegs föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
BERGSTEINS SNÆBJÖRNSSONAR,
Stekkum 8,
Patreksfirði.
Sigurður Bergsteinsson, Esther Kristinsdóttir,
Lilja Bergsteinsdóttir, Guðni Kolbeinsson,
Guðmundur Bergsteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Við þökkum innilega öllum, sem auðsýndu
okkur samúð og vináttu við fráfall og útför
móður minnar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
UNNARJÖNSSONAR,
Meðalholti 15,
Reykjavík.
Starfsfólki elli- og hjúkrunarheimilisins
Grundar deildar A II færum við sérstakar þakkir fyrir umhyggju og alúð í
hennar garð.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd aðstandenda,
Inge Lydía Jensen.