Morgunblaðið - 08.02.2000, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
ÍDAG
BRIDS
Umsjón Guðmundur
I'áll Arnarson
GOÐ þátttaka var í Islands-
mótinu í parasveitakeppni,
sem fram fór í Bridshöllinni í
Þönglabakka fyrir rúmri
viku. 29 sveitir mættu til
leiks og spiluðu 7 umferðir af
16 spila leikum eftir Monrad-
röðun. Sveit frá Bridsfélagi
Akureyi-ar fór með sigur af
hólmi, en hún var skipuð Unu
Sveinsdóttur, Pétii Guðjóns-
syni, Ragnheiði Haraldsdótt-
ur og Hróðmari Sigurbjörns-
syni. Annar keppandi frá
Akureyri, Soffía Guðmunds-
dóttir, stóð sig vel í þessu
spih úr síðustu umferð:
Vestur gefur; alttr á hættu.
Norður
♦ 108752
v~
♦ ÁG96
+G1098
Vestur Austur
*G6 aD
VD8754 VKG1096
♦ D743 vl085
*K6 *ÁD73
Su^ur
♦ AK973
v A32
♦ K2
♦ 542
Soffía hélt á spilum vesturs
og félagi hennar í austur var
Eiríkur Hjaltason. í NS voru
Halldóra Magnúsdóttir og
Hólfur Hjaltason. Sagnir
gengu:
Vestur Norður Austur Suður
Soffia Halldóra Eiríkur Hrólfur
Pass Pass lhjarta lspaði
4hjörtu 4spaðar Allirpass
Soffía bjóst ekki við mikilli
uppskeru í hjai-talitnum, þar
sem makker átti a.m.k.
fimmlit, svo hún ákvað að
reyna fyrir sér annars staðar
og valdi laufkónginn. Það var
vel heppnað. Vörnin tók
fyrstu þrjá slagina á lauf og
síðan spilaði Eiríkur laufi i
fjórða sinn og uppfærði
þannig fj órða slag varnarinn-
ar á tromp.
Falleg vörn og ríkuleg
uppskera, þvi aðeins eitt
annað par fékk töluna í AV-
áttina.
Ég er orðin grænmetis-
æta. Láttu mig liafa
eina bióðappelsínu.
SKAk
Umsjón Ilelgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Þessi staða kom upp á
milli þýska stórmeistarans
Klaus Bischoff, hvítt, og
hinnar búlgörsku skákmeyj-
ar Antoaneta Stefanova á
stórmeistaramótinu í Pul-
vermuehle í Þýskalandi fyrir
skömmu. 38...Re2+!
39.Hxe2 Aðrir möguleikar
voru ekki miklu gæfulegri.
Dh2+ 40.Kfl Bg3! Hvítur
gafst upp því að eftir 41.He6
Rf4 er hann óverjandi mát.
Med morgunkaffinu
Cosper
A A ÁRA afmæli. í dag,
41/ þriðjudaginn 8. febr-
úar, verður fertugur Jón
B.G. Jónsson, yfirlæknir
Heilbrigðisstofnunarinnar
á Patreksfirði, til heimilis á
Mýrum 17, Patreksfirði.
Eiginkona hans er Ingi-
björg Guðmundsdóttir,
skrifstofumaður. Hann tek-
ur á móti gestum í félags-
heimili Patreksfjarðar milli
kl. 20 og 23 föstudaginn 11.
febrúar nk.
Brúðkaup. Gefin voru sam-
an 4. september sl. í
Háteigskirkju af sr. Helgu
Soffíu Konráðsdóttur þau
Guðrún Zoega og Almar
Guðmundsson. Heimili
þeirra er í Garðabæ.
Ljósm: Pétur Ingi Bjömsson.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Sauðárkrókskirkju
4. sept. sl. af sr. Jóni Þor-
steinssyni, sóknarpresti í
Mosfellsprestakalli, Matt-
hildur Ingólfsdóttir og Jón
Þór Jósepsson. Heimili
þeirra er á Hólmagrund 8,
Sauðárkróki.
A ÁRA afmæli. í dag,
t) U þriðjudaginn 8. febr-
úar, verður fimmtug Guð-
rún Þóranna Jónsdóttir,
kennari, Engjavegi 65, Sel-
fossi. Eiginmaður hennar er
Guðmundur Guðmundsson,
fræðslufulltrúi. Þau eiga
silfurbrúðkaup 6. júní nk.
Hyggjast þau hjónin bjóða
til sameiginlegrar afmælis-
hátíðar vegna þessara tíma-
móta í sumar.
ÞJÓÐVÍSA
Ég hélt ég væri smámey og hugðist vera til
eins og hitt fólkið um bæinn.
Og vorið kom og glóði um glugga mína og þil
allan guðslangan daginn.
Og sextán ára varð ég á vegi hins unga manns.
Þá lá vorið yfir sænum.
Og sumarnætur margar ég svaf í örmum hans.
Ég var sælust allra í bænum.
En vindar hafa borið margt visnað skógarblað
um veginn, sem við gengum,
því meðan hjörtun sofa, býst sorgin heiman að,
og sorgin gleymir engum.
En systur mínar! Gangið þið stillt um húsið hans,
sem hjarta mitt saknar!
Ég er dularfulla blómið í draumi hins unga manns,
og ég dey, ef hann vaknar.
Tóm as Guðmundsson.
4W3
Mammá, varstu búin að gleyma því að pabbi er
farinn að vinna á næturvöktum?
Árnað heilla
UOÐABROT
STJÖRNUSPA
eftir Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbarn dagsinsÞú
færð mjög oft rétta tilfmn-
ingu fyrir hiutunum ogþví
er óhætt að treysaá þigí
þeim efnum
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Það er ekki rétt að breyta til
einungis breytinganna vegna.
Það þurfa aðliggja mjög
veigamiklar ástæður að baki
svo vel megi fara.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það getur reynzt þér skeinu-
hætt að byrgja allar tilfinn-
ingar inni. Veittu þeim útrás
og reyndu að finna félaga,
sem þú getur talað við um
hlutina.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) nfl
Nú reynir aldeilis á þig í
starfi og eins gott að þú sért
með þitt á hi-einu.Láttu ekki
aðra hræra í þér, þú þekkir
þetta allt saman og vel það.
Krabbi
(21. júní-22. júlí)
nginn á bara að þiggja. Til
þess að vera þess verður,
þarftu líka að getagefið af þér
til annarra. Að öðrum kosti
nýtist þér ekki hjálpin.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) m
arastu allar skjótar ákvarð-
anir í fjármálum. Landið ligg-
ur þannig, að þúgetur vel gef-
ið þér góðan tíma til að kanna
það sem í boði er.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) WSsL
Lifðu þínu lífi og leyfðu öðr-
um að stjórna sínu. Reyndu
að sitja átilhneigingu þinni til
þess að ráðskast með aðra.
Hún á engan rétt á sér.
Vog rn
(23. sept. - 22. október)
Vertu viðbúinn þvi að eitt og
annað komi upp á í dag oh
trufli áætlanirþínar. Reyndu
að láta þetta ekki fara í taug-
arnar á þér. Sumir dagar eru
bara svona.
Sporðdreki
(23. okt. -21.nóv.)
Hefurðu sagt þínum nánustu,
hvaða tilfinningar þú þerð til
þeirra? Það ersvö notalegt,
þegar einhver segist eiska
mann. Það er eins og sólskin.
Bogmaður zN
(22. nóv. - 21. des.) &0
Þú verður að temja þér þau
vinnubrögð að ljúka við eitt
verkefni áður en þúbýrjar á
ö|rfi. Annars' drukknar þ(i
bara í óleystum verkefnum.-
Steingeit ^
(22. des. -19. janúar)- 4V
Leyfðu sköpunarþránni að
leika lausum hala, eins og
henni bezt hentar. Það skiptir
engu máli, þótt þú gerir þetta
bara fyrir sjálfan þig.
Vatnsberi
(20. jan. -18. febr.) Uk-
Ekki er gott að eyða meiru en
maður aflar. Seztu nú niður
og farðu vandlegaí gegn um
fjármálin. Þér líður betur
þegar þau eru komin á hreint.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þær stundir koma, að þú
verður að hugsa um sjálfan
þig. Það er engin ástæða til
þess að fá samvizkubit vegna
þess, því þetta bjargar þér.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísinSdegra staðreynda.
ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRUAR 2000
ívf'!
Profe
ION ALS
/\1jÉá4r-y
Andlitskrem og
förðunarlína
Barnamyndatökur á
kr. 5000,00
Vegna mikillar aðsóknar
er tilboðið framlengt
Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207.
Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020.
Hársnyrtistofan
Hár Class Skeifunni 7
VILLI ÞÓR
HÁRSNYRTIR
TÍMAPANTANIR í SÍMA 553 8222
Næstii námskeid hefjást 9. oj» 15. Ichrúar
SJALFSDALEIÐSLA
MEIRA S.TALFSORYGGI
EINKATÍMAR/NÁMSKEIÐ sími 6 94 54 94
Með dáleiðslu getur þú sigrast á kvíða og
ójafnvægi og aukið getu þína og jákvæða
uppbyggingu á öllum sviðum.
Hringdu núna
Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur.
Er heima
Flest slys gera boð á undan sér
Hafðu augun opin, finndu slysagildrurnar heima
hjá þér og komdu þeim fyrir kattarnef!
□ Lausar mottur
□ Hál gólj
□ Snúrur, dreglar og þröskuldar
□ Lyf og hreinsiefni
□ Þungir hlutir sem standa tæpt
□ Eggjárn á glámbekk
□ llla stillt eða biluð
blöndunartæki
□ Léleg eða röng lýsing
□ Rafhlöðulaus reyksynjari
Flest slys verða innan veggja heimilisins. Þar getur þú fækkað
slysunum. Gríptu í taumana áður en það verður of seint.
Landlæknisembættið
Nánari upplýsingar á www.landlaeknir.is
Fræðsluauglýsing jrá Landlæknisembættinu www.landlaeknir.is
T