Morgunblaðið - 08.02.2000, Page 64
64 ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLKí FRÉTTUM
MYNDBOND
Irskur nú-
tímavestri
Óskipulögð glæpastarfsemi
(I went down)
Sakamálamynd
•k-k'k
Leikstjóri: Paddy Breathnach.
Handrit: Conor McPherson. Kvik-
myndataka: Cian De Buitléair.
Tónlist: Dario Marianelli. Aðal-
• hlutverk: Brendan Gleeson, Peter
McDonald, Peter Caffrey (107 mín.)
írland 1997. Háskólabíó. Bönnuð
börnum yngri en 16 ára.
NOKKUÐ lunkin lítil glæpamynd
þessi. Svolítið villt og svolítið hrá en
umfram allt írsk. Hún skartar í aðal-
hlutverkum nokkrum af fremstu
leikurum Irlands
og þar fer fremstur
í flokki hinn mis-
fríði og magnaði
Brendan Gleeson,
sem hefur vakið
verðskuldaða at-
hygli upp á síðkast-
ið.
Þótt myndin eigi
sér stað vítt og
breitt um Irland
samtímans svífur yfír vötnum andi
vestursins villta. Ekki nóg með að
efnistök og framvinda sverji sig í ætt
við hina sönnu gömlu vestra heldur
veltir myndin og fyrir sér heimspeki
þeirra, hollustunni, sæmdinni og
trygglyndinu á skemmtilegan hátt.
Þrátt fyrir að sjálf sagan sé nokkuð
hæggeng verður myndin aldrei
langdregin. Til þess sér Gleeson,
sem er bráðfyndinn sem klaufskur
en brjóstumkennanlegur smá-
krimmi. Annað sem gefur myndinni
gildi er persónusköpunin. Leikstjór-
inn Breathnach gefur sér tíma til að
kynna aðalpersónurnar, hvers vegna
og hvernig þær álpuðust í svo ógæfu-
samlegar aðstæður og hvaða menn
þær hafa í raun að geyma. Þetta eru
vinnubrögð sem falla vel í kramið.
Skarphéðinn Guðmundsson.
Ein stór
vitleysa
ALHEIMSDÁTINN: ENDUR-
'KOMAN
(Universal Soldier: The Return)
S I* E IV IV U M Y IV I)
★
Leikstjóri: Mic Rodgers. Handrit:
John Fasano og William Malone.
Kvikmyndataka: Michael A. Benson.
Aðalhlutverk: Jean-CIaue Van
Damme, Michael Jai White og Heidi
Schanz. (93 mín.) Bandaríkin. Skífan,
janúar 2000. Bönnuð innan 16 ára.
ÞAÐ er í raun lítið hægt að segja
um þessa mynd annað en það að hún
er augljós formúluframleiðsla í
heimskulegri kant-
inum. Endurkoma
alheimsdátans er
sem sagt fram-
haldsmynd Al-
heimsdátans frá ár-
inu 1992 sem skart-
aði belgíska vöðva-
búntinu Jean--
Claude Van
Damme og sænska
vöðvatröllinu Dolph
Lundgren. Hér tekst belgíska búntið
hins vegar á við enn íturvaxnara
hörkutól, sem ógnar heimsfriði, þ.e.
Michael Jai White úr „Spawn“. Leik-
■Tlir Van Dammes í þessari kvikmynd
er reyndar ekki eins afleitur og oft
áður og gerir það myndina örlítið þol-
anlegri áhorfs. Utan þess er hún ein
stór vitleysa, sem er ágætlega útfærð
tæknilega séð. Hún hefur allt til að
bera sem hún á að hafa, þ.e. hemað-
artól, bardagaatriði og spennuatriði á
fiektarbúllu. Njóti þeir sem vilja.
Heiða Jóhannsdóttir
James Whale við tökur á Journey’s End, fyrstu mynd sinni.
JAMES WHALE
ÞAÐ gerist æ algengara að bíó-
myndir fái ekki dreifingu í kvik-
myndahúsum hérlendis. Þau urðu
t.d. örlög Gods and Monsters (’98),
einnar eftirtektarverðustu myndar
síðasta árs. Hlaut einróma Iof og
vann til fjölda verðlauna. Leikstjór-
inn/handritshöfundurinn Bill Con-
don fékk Óskar fyrir besta handrit,
byggt á áður birtu efni, auk þess
vann hún urmul verðlauna á kvik-
myndahátíðum úti um allan heim.
Þar kom mikið við sögu Ian McKell-
en, stórleikarinn breski, sem fer
með aðalhlutverk mannsins sem oft
er kallaður „faðir skrímslamynd-
anna“, leiksljórans James Whale.
Hann er til umfjöllunar í dag.
Whale er með goðsagnakenndari
leikstjórum Hollywood. Ferill hans
var skammur, stóð í blóma á Qórða
áratugnum. Breskur að ætt og upp-
runa og valdi sér gjaman efni og
samverkafólk frá heimalandinu.
Fágaður stflisti með næmt auga
fyrir sjónræna þættinum og furðu-
legt skopskyn, að áliti sam-
timamanna, a.m.k. Whale tókst oft-
ast að gera mikið úr litlu, bæði hvað
snerti efni og ekki síður peninga.
Bestu verkin hans, sem sum hver
eru með þeim athyglisverðustu sem
komið hafa frá kvikmyndaborginni,
voru gerð fyrir mjög knappt fjár-
magn.
Whale (1896-1957), fæddist í fá-
tæka fjölskyldu námumanna í Dudl-
ey, samkvæmt hefðinni var hann
kominn niður í kolanámurnar fljót-
lega eftir fermingu. Það má segja
að fyrri heimsstyijöldin hafí komið
þessum fínlega og fágaða lista-
manni til hjálpar. Whale var
snemma kallaður í herinn og hafði
ekki verið lengi á vígstöðvunum í
Frakklandi þegar hann var fangað-
ur af Þjóðveijum. Sat lengi í fanga-
búðum, þar sem hann kynntist
leiklistinni, áður hafði hann vakið
athygli fyrir ótvíræða hæfileika
sem teiknari og málari.
Laus úr prísundinni lá leiðin
beint á sviðið, fyrst úti á Iands-
byggðinni, síðan í London. Nú bætt-
ist sviðsmynda- og búningahönnun
við leikstörfín, ásamt leikstjórn.
Sem slíkur vann hann sinn fyrsta
sigur, fyrir sviðsetningu Journey’s
End, 1920. Verkið hlaut brautar-
gengi og var sett upp á Broadway.
Þegar kom að því að kvikmynda
það í Hollywood, kom enginn annar
til greina en Whale. Áður hafði
hann náð sér í örlitla reynslu sem
aðstoðarleikstjóri The Love
Doctor, (’29), og ennfrekar í sama
starfi hjá Howards Hughes við gerð
Hell’s Angels, (’30).
Journey’s End, (’30), er nánast
kvikmyndað leikrit en fékk góða
dóma og Universal-kvikmyndaver-
ið bauð Whale til Hollywood, hjá
þeim gerði hann verkin sem halda
nafni hans á lofti. Fyrst lauk hann
reyndar við Waterloo Bridge, (’31),
Elsa Lancaster og Boris Karloff sem Frankenstein og brúður hans
samnefndri mynd.
Gloria Stuart (sem tæpum mannsaldri síðar lék
eftirminnilega vel í Titanic), ásamt Ernest Thesig-
er, í The Old Dark House, sem hrollvekjufræðing-
ar setja á hán stall.
annað, kvikmyndað sviðsverk, nú
tókst mun betur til. Alltént það vel
að Whale komst í náðina hjá Carl
Laemmle, eiganda kvikmyndavers-
ins, sem bauð honum að ráðast næst
í Frankenstein. Whale réð þegar
vin sinn Colin Clive til að leika titil-
hlutverkið og Boris Karloff, bresk-
an sviðsleikara til í hlutverk
skrímslisins. Vann náið með Danny
Hall, hönnuði myndarinnar, og
förðunarmeistaranum Jack Pierce.
í sameiningu skópu þeir eina fræg-
ustu persónu kvikmyndasögunnar.
Myndin kostaði sáralítið, en hlaut
afburða aðsókn og dóma. Universal
græddi á tá og fíngri, Whale var
skyndilega orðinn annar tveggja
áhrifamestu leikstjóra kvikmynda-
versins. (Hinn var John Stahl).
Fleiri hrollvekjur fylgdu í kjöl-
farið. The Old Dark House, (’32),
The Invisible Mna, (33), og The
Bride Of Frankenstein, (’35). Að
þeim loknum átti Whale aðeins
tveim myndum ólokið fyrir Univer-
sal; Remember Last Night? (’35),
sem sögð er kolsvört gamanmynd,
og Show Boat, (’36), íburðarmikil
dans- og söngvamynd, í ljósáraQar-
lægð frá hrollvekj-
ununi sem hann var
orðinn frægur fyr-
ir. Whale yfírgaf
kvikmyndaverið
eftir að The Road
Back, (’37), var tek-
in úr hans höndum,
klippt og skorin og
endinum breytt,
svo útkoman var
býsna slæm. Síðar
gerði hann tvær
búningamyndar;
The Great Garrick,
(Warner ’37) og
The Man With the
Iron Mask, (UA
’39). Með henni
lauk stuttum, mis-
hæðóttum leik-
stjóraferli, við
tóku hartnær tveir áratugir lítilla
umsvifa utan þess sem hann festi
gjarnan unga og íturvaxna sveina á
léreftið og setti upp verk í leikhús-
um. Þunglyndi og ýmis önnur veik-
indi leiddu til þess að Whale stytti
sér aldur árið 1956. Sjálfsagt hefur
samkynhneigðin átt sinn þátt í
hörmulegum endalokum þessa
hæfíleikamanns, sem alla tíð synti
gegn straumnum í kvikmyndaborg-
inni og fór hvergi dult með af-
brigðilegar hvatir slnar. Whale var
einn af fyrstu, nafntoguðu pers-
ónum kvikmyndaborgarinnar til að
„koma úr skápnum", einsog það var
kallað, mörgum árum síðar. Reynd-
ist þar mun óttalausari og hrein-
skilnari en sjálfsagt fjölmargir
samtíðarmenn hans, þ.á m. stórleik-
stjórinn George Cukor.
Þeim sem vilja kynna sér nánar
verk þessa einstaka en ógæfusama
frumheija vil ég benda á að neðan-
greindar myndir er að fínna í þeim
örfáu leigum sem halda uppi heiðri
kvikmyndalistarinnar, og hina stór-
kostlegu, sjálfsævisögulegu Gods
and Monsters, sem þið fáið úti á
horni.
Stórleikarinn Ian McKelIen fer
óaðfinnanlega með ldutverk
James Whale í Guðir og
skrímsli, „Gods and Monsters".
Sígild myndbönd
BRÚÐUR FRANKEN STEIN -
THE BRIDE OF FRANKEN-
STEIN, 1935
★★★★
Heilsteyptara, betur gert og leikið
(einkum aðalkvenhlutverkið), fram-
hald Frankenstein. Læknirinn góði
(Colin Clive), hyggst nú giftast elsk-
unni sinni (Valerie Hobson), enda á
skrímslið (Boris Karloff) að vera
askan ein í brunarústum myllunnar.
Ekki svo vel, það lifír, og áður en
langt um líður farið að taka upp fyrri
iðju, að skelfa og drepa íbúana - uns
það hittir fiðlarann. Annar óður vís-
indamaður (Ernest Thesiger), fær
Frankenstein til að snúa sér aftur að
tilraunastrafseminni og aðstoða sig
við að skapa brúði skrímslisins (Elsa
Lancaster). Ekki hrollvekjandi í dag,
frekar en fyrri myndin, en gneistar
af háðsku, stundum snargeggjuðu
skopskyni Whales. Ekki síst í at-
riðinu með skrímslinu og blinda fið-
laranum, sem snertir strengi í
brjósti skrímslisins sem einnig lærir
að tala, reykja og fá sér í glas. Und-
arleg en mögnuð blanda gamans og
alvöru, drama, hryllings, ástarævin-
týris og spaugs. Omissandi klassík,
líkt og hinar myndh-nar tvær.
FRANKENSTEIN, 1931
★ ★★V2
Dr. Henry Frankenstein (Colin
Clive), geggjaður visindamaður,
leggst á náinn í sjúkrahúsum og sker
niður lík óbótamanna niður úr gálg-
anum. Úr þessu geðslega hráefni
skapar hann skrímsli (Boris Kar-
loff), með aðstoð þeirra tíma hátækni
og eldinga himinhvolfsins. Til allrar
ólukku fær það fyrir mistök, heilabú
úr geðsjúkling svo skrattinn er laus
er skrímslið sleppur út í frelsið.
Frægasta Frankenstein-mynd allra
tíma, með furðu góðum brellum og
framvindu, en líður nokkuð fyrir af-
leitan leik Mae Clark í hlutverki
konuefnis vísindamannsins. Annars
er frásagnarmáti myndarinnar, sem
er gerð við upphaf talmynda, í slíkri
ljósárafjarlægð frá nútímanum að
samanburður er óréttlætanlegur.
Karloff stelur senunni í sinni fyrstu
mynd og frægasta hlutverki. Whale
gefur óvættinni tilfinningalega dýpt
og dregur upp nýja fleti í sköpun
mynda af þessu sauðahúsi.
ÓSÝNILEGIMAÐURINN -
THEINVISIBLE MAN, 1933
★★★ Vfe
Miðað við aldurinn nánast kvik-
myndalegt afrek. Brellurnar voru
ekki fjölskrúðugar ’33. Engu að síð-
ur tekst leikstjóranum að skapa trú-
verðuga titilpersónu sem sakh’ mis-
lukkaðra tilrauna verður ósýnilegur.
í ofanálag fyllist hann mikil-
mennskubrjálæði og hyggst leggja
undir sig heiminn. Skopskynið er
jafnan fyrir hendi og spilar í raun
stórt hlutverk, líkt og í öðrum mynd-
um Whales. Sýnir hér hvað best
hvers hann er megnugur. Þó ekki
hafi verið mulið undir hann frekar en
endranær.