Morgunblaðið - 15.02.2000, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2000
■ . r,S
Ml
mm
99(1 P UNKTA
IUWU í BiO
i KRINGLUI' ';
EINA BÍÓIÐ MES
\ THX DIGITAL i
{ÖLUIM SÖLUM
Kringlunni 4-6, simi 588 0800
Sýnd með ensku tali kl. 4.50, 6.55, 9 og 11.05. MDiGrTAL
Sýnd meö íslensku tali kl. 4.50 og 6.55. HXDlGnAL
mjNKiA mmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
FtmUöíÓ Snorrnbraut 37, siini 551 1384
f huga hvers manns
eru dyr sem aldrei
hafa verið opnaöar
www.samfllm.is
www.samfilm.is
MDL
★ ★★★ Hauavsi
Fiehr Club
www.skifan.is
SJÁIÐ
RÓMANTlKINA
BLÓMSTRA
DR'MÍ
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Sýnd kl. 5 og 7
Sýnd kl. 5 og 7
með íslensku tali.
Kl.4.45, 6.50, 9 og 11.15.
Eiga von á barni
hlutverk standi þeim til boða mæta
þær stöðugt mjög klisjukenndum
hugmyndum um kvenleikara. Til
dæmis sé horft meira til þess að þær
uppfylli vissa staðla um útlit og vöxt
sem karlmenn þurfa síður að huga
að.
Kynning fremur
en alþjóðahylli
Margir leikarar Shooting Stars-
hópsins eru eftirsóttir af fremstu
leikstjórum í heimi og án efa upp-
rennandi stjörnur. A blaðamanna-
fundinum kom
greinilega fram að
þættir eins og menn-
ing og tungumál
þjóða þeirra er mik-
ilvægur bakgrunnur
tU að byggja á fyrir
evrópskan kvik-
myndaiðnað. Evr-
ópskur kvikmynda-
iðnaður er sérstakur
fyrir þær sakir að
hann býr allt í senn
að margbreytileika
og sérstöðu, sem
bandarískar kvik-
myndir eiga erfitt með að keppa við.
Hins vegar getur tungumálið reynst
viss fötlun þegar kemur að því að
sækjast eftir hlutverki í myndum er-
lendra leikstjóra og framleiðanda.
Hilmir Snær var spurður að því
hvort það væri ekki hindrun að leika
á tungumáli sem væri aðeins á færi
tæplega þrjú hundruð þúsund
manna að skilja. Hann sagði að fengi
hann boð um gott hlutverk sem
krefðist lýtalausrar enskukunnáttu
væri ekki fyrirstaða að leggja á sig
vinnu til að læra enskuna betur.
Hann sagði það mjög gaman og mik-
inn heiður að hafa verið valinn til
þátttöku í Shooting Stars-verkefn-
inu. Einungis það að hitta og kynn-
ast ungum leikurum frá öðrum
Evrópulöndum og að heyra um
reynslu þeirra væri mikilvægt veg-
anesti fyrir framtíðina. Að hans mati
er Shooting Stars-verkefnið merki-
legt fyrir þær sakir að það sinni bæði
því hlutverki að kynna kvikmynda-
iðnað heimalanda leikaranna og að
koma leikurunum sjálfum á fram-
færi erlendis. Mikilvægt er að ís-
lenskir leikarar taki þátt í verkefn-
inu og kynnist fólki í kvikmynda-
heiminum hvort sem það eru aörir
leikarar, leikstjórar eða framleið-
endur.
Aðspurður hvort erlendar um-
boðsskrifstofur hefðu boðið honum
hlutverk sagði Hilmir að svo hefði
verið en enn væri um mjög lausmót-
aðar hugmyndir að ræða og framtíð-
in ein gæti skorið úr um hvort úr
yrði. Hilmir kvaðst að lokum mjög
bjartsýnn um fram-
tíð íslensks kvik-
myndaiðnaðar og
tók undir orð grein-
arhöfundar um að
eftir margra ára
deyfð mætti jafnvel
búast við blóma-
skeiði kvikmynda á
Islandi. Auk þess að
hafa farið með stór
hlutverk í Myrkra-
höfðingjanum og
Englum alheimsins
leikur Hilmir Snær
á móti Victoriu Abril
í myndinni 101 Reykjavík, sem gerð
er eftir samnefndri sögu Hallgríms
Helgasonar og er væntanleg í kvik-
myndahús.
Þorfinnur Ómarsson, fram-
kvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs ís-
lands, sagði megintilgang verkefnis-
ins vera að brjóta upp gamlar hefðir
í evrópskum kvikmyndaheimi því
leggja þyrfti miklu meiri áherslu á
hlutverk leikaranna í að kynna og
markaðssetja myndirnar. Frami
leikaranna gæti síðan aukið á hylli
evrópska kvikmynda á alþjóða vett-
vangi.
Að mati Þorfinns hafði þátttaka
Hilmis Snæs að þessu sinni haft mik-
il áhrif á gengi og aðsókn á Myrkra-
höfðingjann á Berlinale. Margir sáu
myndina til að berja Shooting Star
íslands augum á hvíta tjaldinu. Mik-
ilvægt væri einnig að fylgja leikur-
unum sem taka þátt í verkefninu eft-
ir með því að vera með mynd á
hátíðinni þar sem þeir færu með stór
hlutverk.
BRESKI rokkkdngurinn David
Bowie og eiginkona hans, fyrrver-
andi fyrirsætan Iman, sögðu frá því
í London á sunnudag að þau ættu
von á barni og væru algjörlega í
skýjunuin. „Við höfum beðið þolin-
móð í langan tíma eftir að eignast
barn, en bæði Iman og ég vildum að
aðstæður væru sem best verður á
kosið og vildum ekki vera á kafi í
Sko þig.
Þú varst að finna nálina
í heystakknum.
Þetta er ein af þessum litlu
auglýsingum um námsstyrki frá
Landsbankanum. Þær eru næstum
allar svona litlar og ekki á allra færi
aö finna þær. En þar sem þú fannst
eina þeirra veistu aö Landsbankinn
er aö leita aö fólki til aö fara út
og sigra heiminn.
Ef þú ert í Námunni skaltu senda inn
umsókn um Námustyrk fyrir 15. mars
nk. Allar nánari upplýsingar
á www.naman.is.
vinnu fyrstu tvö æviár barnsins,"
sagði Bowie en hann og Iman
gengu í hjónaband árið 1992.
Bowie á þegar einn son sem er
orðinn 27 ára gamall og var skírður
Zowie en vill láta kalla sig Joe eða
Duncan. Iman á sömuleiðis bam úr
fyrra sambandi, dóttur sem er 23
ára gömul svo foreldrahlutverkið
er ekki alveg nýtt fyrir þeim.
E-vítamín
er öflug vörn fyrír
frumur líkamans
Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi
SÍÐASTA
HRADLESTRARNÁMSKEIÐIÐ..!
ut^ Viltu nuiryfuldo lusbarhraðann Vocj auka aíköst i starli?
Viltu manjfuldii loslrarluaö.aun ocj auka alkósl i namiV
I I svurið or jákvælt iikaltu skni þig strax a sióasta
hraölostiinnámskmc) volraiins som Imlsl t>. mars.
Skráning er í síma 565 9500
I IKAI >1 ,I S I KAKSKC >1 ,INN
htlp://l)ratlltístrarskoliiin.if;nu!rmt.is/
Evrópskur kvik-
myndaiðnaður er
sérstakur fyrir þær
sakir að hann býr í
senn að margbreyti-
leika og sérstöðu,
sem bandarískar
kvikmyndir eiga erf-
itt með að keppa
við.
Éh
náttúrulefea!
GÍIsuhúsið