Morgunblaðið - 15.02.2000, Blaðsíða 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2000
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
MR sigrar í
keppni fram-
haldsskóla
SKAK
Taf I f é I ag
Keykja víkur
ÍSLANDSMÓT FRAM-
HALDSSKÓLASVEITA
12. - 13. febrúar 2000
MENNTASKÓLINN í
Reykjavík sigraði í hinni árlegu
skákkeppni framhaldsskóla sem
fram fór um helgina. Sigur MR
þarf ekki að koma á óvart, en
hins vegar voru yfirburðimir
meiri en reiknað var með fyrir
mótið. MR hlaut 18 vinninga af 20
mögulegum og sigraði alla and-
stæðinga sína með fjórum vinn-
ingum gegn engum, nema hvað
viðureigninni við Fjölbrautaskól-
ann í Armúla lauk með jafntefli,
tveimur vinningum gegn tveimur.
Sveit Menntaskólans við Hamra-
hlíð varð í öðru sæti með 13 vinn-
inga. Úrslit urðu annars þessi:
1. Menntaskólinn í Reykjavík 18 v.
2. Menntaskólinn við Hamrahlíð 13 v.
3. Fjölbrautaskólinn við Ármúla 11 v. (6
st.)
4. Menntaskólinn í Reykjavík - B sv. 11
v. (5 st.)
5. Fjölbrautaskóli Suðurlands 4 v.
6. Menntaskólinn við Sund 3 v.
MR sigraði einnig á mótinu
1998 og varð þá jafnframt Norð-
urlandameistari framhaldsskóla.
Breiddin í MR er mun meiri en í
öðrum skólum eins og sést á því
að þetta er eini skólinn sem send-
ir tvær sveitir til keppni og auk
þess var B-sveitin mjög nærri því
að ná þriðja sætinu á mótinu. Á
hinn bóginn eru sigurvegararnir
frá því í fyrra, Fjölbrautaskólinn
við Armúla, mun verr settir hvað
þetta varðar þrátt fyrir afar
sterka menn á efstu borðum.
Árangur einstakra skákmanna
efstu sveitanna varð sem hér seg-
ir:
MR-A
1. Bragi Þorfinnsson 5 v. af 5
2. Bergsteinn Einarsson 4 v. af 5
3. Sigurður P. Steindórss. 4 v. af 5
4. Ólafur í. Hannesson 5 v. af 5
lvm. Jóhannes Benediktsson
MH
1. Stefán Kristjánsson 4 v. af 5
2. Hjalti Rúnar Ómarsson 3 v. af 4
3. Óttar Norðfjörð 2 v. af 2
4. Andri H. Kristinsson 1 v. af 1
lvm. Aldís Rún Lárusd. 3 v. af 4
2vm. Friðrik J. Karisson 0 v. af 1
3vm. Hrafn Harðarson 0 v. af 1
Fjölbrautaskólinn við Ármúla
1. Jón Viktor Gunnarsson 3 v. af 5
2. Davíð Kjartansson 5 v. af 5
3. Sveinn Þ. Wilhelmsson 3 v. af 5
4. Finnbogi Jónsson 0 v. af 5
Meistaramót Hellis
- Bikarkeppnin
Bikarkeppnin í skák hófst
gærkvöldi með meistaramóti
Taflfélagsins Hellis. Enn er þó
hægt að skrá sig, en frestaðar
skákir frá fyrstu umferð verða
tefldar í kvöld. Þeir sem vilja
bætast í hópinn þurfa að hafa
samband við Gunnar Björnsson í
dag í síma 861-9416. Heildarverð-
laun í bikarkeppninni eru kr.
150.000.
Umhugsunartíminn á meist-
aramóti Hellis verður 1V4 klst. á
36 leiki og 30 mínútur til að ijúka
skákinni. Tefldar verða sjö um-
ferðir. Umferðir hefjast alltaf
klukkan 19:30. Hliðrað verður
sérstaklega til fyrir keppendum á
Norðurlandamótinu í skólaskák
sem haldið verður í Finnlandi
24.-27. febrúar til að gefa þeim
tækifæri til að taka þátt.
Heildarverðlaun á mótinu eru
40.000 kr.
Skákmót á næstunni
15.2. Eldri borgarar. Meistaramót
18.2. Hjá Helli. Skemmtikvöld.
Daði Örn Jónsson
Sigursveit MR: Davíð Ingimarsson, liðsstjóri, Jóhannes Benedikts-
son, Sigurður Páll Steindórsson, Ólafur í. Hannesson, Bergsteinn
Einarsson og Bragi Þorfinnsson
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
Oðuntv
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
mbl.is
Nú er nóg
komið!
NÚ get ég ekki lengur orða
bundist vegna fréttar í
Morgunblaðinu 11. febrúar
síðastliðinn um að börn séu
lögð í einelti vegna foreldra
sem reykja.
Ég spyr: Hvar læra
börnin umtal um aðra og
almenna siðfræði ef ekki af
foreldrum sínum? Og þess-
ir sömu foreldrar sem út-
húða reykingafólki flengj-
ast um á bílum sínum jafnt
í borg sem um okkar fal-
legu sveitir - að nauðsynja-
lausu - spúandi eitruðum
efnum, sem eru verulega
spillandi fyrir bæði fólk og
land, frá bílum sínum yfir
alit og alla. Þetta ofstækis-
fulla fólk ætti að líta sér
nær og fara til dæmis hjól-
andi í sumarfríin og heim-
sóknir með sína heilbrigðu
fjölskyldu, til að draga úr
mengun.
Oft get ég ekki annað en
brosað þegar ég horfi á
skokkara hlaupa sér til
„heilsubótar" meðfram
eitruðustu götum borgar-
innar og ætla svo vitlausir
að verða yfir því að sitja
nálægt tóbaksreyk.
En þó svo það væri auð-
vitað öllum fyrir bestu að
enginn reykti er það engin
afsökun fyrir því að leggja
fólk í einelti þó það reyki
og enn síður börnin sem
eiga enga sök á málum.
Soffía Jónsdóttir.
Er samtimasaga ís-
lendinga lygasaga?
DAVÍÐ Oddsson segist
ekki þekkja annan íslend-
ing sem hafi auglýst landið
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
meira en Björk. Hann virð-
ist ekki hafa heyrt um
Freystein Þorbergsson
sem með dugnaði, vitsmun-
um, þekkingu og reynslu
sinni kom heimsmeistara-
einvíginu í skák 1972 til
landsins og dró það á eftir
sér tvo leiðtogafundi. Það
þykir ekki merkilegt á Is-
iandi. En að syngja sig inn í
hjörtu heimsins og verða
fræg fyrst og fremst fyrir
sjálfa sig - þó Island komi
til tals í leiðinni - er meira
metið. Mín vegna má Björk
vera frægust og best allra
Islendinga og ekki er ég að
metast á um hver sé fræg-
astur.
En það er einskis metið
að vinna íslandi allt og
vera bláfátækur eins og
Freysteinn var, en hann
lést 1974.
Það er ekkert merkiiegt
við að sitja Alþjóðaþing
FIDE sagði Þráinn Guð-
mundsson, hann hefði setið
þar sjálfur. Auðvitað er það
ekkert merkilegt. Það er
heldur ekkert merkilegt að
sitja á Alþingi Islendinga.
Það er hins vegar merki-
legt þegar fram kemur
maður sem hefur kjark,
kraft og þor, vitsmuni og
vilja til að gera meira en
skyldan býður, hefur hug-
myndaauðgi og dug til að
framfylgja stórum málum
og brýtur blað í sögu þjóð-
arinnar. Fyrsta heims-
meistarakeppni sem haldin
er á íslandi hlýtur að
brjóta slíkt blað.
Enginn leiðtogafundur
hefur komið til landsins út
á Björk þó hún hafi margt
mjög vel gert fyrir land og
þjóð. En leiðtogar þjóðar-
innar þurfa líka að kunna
að greina kjarnann frá
hisminu.
Það undarlega er að
fjölmiðlar virðast eigna
öðrum verk Freysteins
Þorbergssonar. Það nýj-
asta er frá 30. desember sl.
í sjónvarpsþætti þar sem
bóndakonu sem verið hafði
í kvennaskóla er eignað að
hafa þýtt verkfræðiritið
Lobben, en það var Frey-
steinn sem þýddi erfiðustu
kaflana og gerði útreikn-
ingana á því verki. Áður
hefur Guðmundi G. Þórar-
inssyni verið hampað fyrir
einvígið, en engum hefur
verið þakkað fyrir að skapa
þá aðstöðu að koma leið-
togafundum hingað til
lands.
Ef sannleikurinn er ekki
í heiðri hafður og endalaust
verið að eigna öðrum verk
annarra manna, eða drepa
þau með þögninni, verður
Islandssagan vart annað
en lygasaga, en það er
kanski það sem íslending-
arvilja.
Edda Júlía Þráinsdóttir.
Jesús elskar þig
ÞAÐ var einn kaldan vetr-
ardag að morgni til í des-
ember sl. að ég keyrði
Bústaðaveginn á leið til
verkefna dagsins. Ég hef
keyrt þarna alla virka daga
frá því í haust og ég verð að
segja eins og er að það var
fátt sem gladdi mig þennan
dag, ískuldi, bíllinn að
reyna að þiðna og hleypa
hlýju lofti inn, brjáluð um-
ferð að venju á þessum
tíma dags, allir með sama
þungbúna svipinn og ég og
varúð; - ekki hleypa nein-
um á milli, nei, nei, enginn
að gefa öðrum sjens. En
það var eitthvað nýtt sem
vakti mig svo hressilega
þennan morgun. Jú, í
strætóskýlinu stóð stórum
stöfum „Jesús elskar þig!“
Vá, það var þetta sem ég
þurfti. Það var yndisiegt að
keyra Bústaðaveginn út ár-
ið, fyrst kom maður að jóla-
húsi þar sem fjölskyldan
bætti við ljósum jólanna á
hverjum degi og svo
strætóskýli „Jesús elskar
þig“. Ég fór svo að rekast á
fleiri slík skýli í borginni og
einnig heyrði ég fólkið í
vinnunni tala um þetta,
dömurnar í heita pottinum
töluðu um þetta, stelpurn-
ar í saumó fóru líka að taka
eftir þessu. Já, það var svo
gott að vita af þessu „Jesús
elskar þig“, svona á ísköld-
um dimmum vetrarmorgn-
um.
Núna er komið nýtt ár
og aftur er ég farin að
keyra sömu leiðina og ég
verð að segja það að
auglýsingar; keyptu hitt
eða þetta eða net-eitthvað
eða 10% afsláttur - gleður
hvorki auga né lundina (á
Visagreiðslu-mánaðamót-
unum). Ég vil fá fleiri
svona jákvæð skilti. Hver
sem átti þessa hugmynd af
skiitinu „Jesús elskar þig“
eða stóð á bakvið þetta á
mínar bestu þakkir fyrir og
ég tala fyrir munn margra.
Við viljum meira!
Björk.
Dýrahald
Skriðdýr óskast
VIÐ óskum eftir lifandi
froskum, eðlum eða öðrum
skriðdýrum, helst gefins.
Upplýsingar í síma 551-
7689. Hrafnkell.
TlÍlPl§Nj§
MiÍíilÉI...
Ljósmynd/Jónas Erlendsson Fagradal
Víkverji skrifar...
ÍKVERJI gleðst yfir því að
loðnan er farin að veiðast í
auknum mæli. Það skiptir alla, sem
að veiðum og vinnslu koma, miklu
máli að vel takizt til. Loðnusjó-
menn á nótaskipunum og reyndar
þeim sem eru með flottroll einnig,
hafa ekki verið öfundsverðir af
hlutskipti sínu frá því um mitt síð-
asta sumars. Lítið hefur veiðzt og
verð á loðnu upp úr sjó með lægsta
móti. Mikil óvissa ríkir um sölu á
frystri loðnu til Japans, en betri
horfur eru taldar á sölu loðnu-
hrogna þangað. Það er því ekki
sopið kálið þó í ausuna sé komið.
Vonandi rætist vel úr þessum mál-
um, loðnan gefur sig og vel tekst
til með frystingu og sölu afurð-
anna. Verð á mjöli og lýsi er mjög
lágt og dregur það úr tekjumögu-
leikum sjómanna, sem vissulega
eiga það skilið að bera góðan hlut
frá borði fyrir sína erfiðu og oft
hættulegu vinnu við að draga björg
í þjóðarbúið.
Loðnan skiptir líka máli á annan
hátt. Þorskurinn fylgir henni eftir
er hún gengur vestur með landinu
á hrygningargöngu sinni. Á síðasta
vetri gekk loðnan ekki lengra en
rétt vestur fyrir Vestmannaeyjar
og fyrir vikið veiddist lítið af
þorski við Reykjanes og fyrir Vest-
urlandi. Venjulega gengur loðnan
alveg vestur á Breiðafjörð og von-
andi verður svo einnig nú.
xxx
MIKIÐ er rætt um breikkun
Reykjanesbrautarinnar og
virðast flestir vera því sammála að
það sé mikið öryggisatriði og geti
orðið til að fækka slysum verulega.
Lýsing brautarinnar hefur þegar
sannað sig og er hún til mikilla
bóta. Umferðin á þessum fjölfarn-
asta þjóðvegi landsins hefur því
miður tekið stóran toll og því ætti
það að vera forgangsverkefni að
breikka brautina. Víkverji ekur
Reykjanesbrautina oft og veit því
af eigin raun hve umferðin getur
verið erfið og hættuleg. Það getur
verið nóg að einn ökumaður keyri
á of litlum hraða til þess að aðrir
ökumenn freistist til þess að fara
fram úr við vafasamar aðstæður.
Tvöföldun vegarins myndi draga
stórlega úr slíkri hættu. Á hinn
bóginn hefur Víkverji oft orðið var
við afar glannalegan akstur og
framúrakstur við slæmar aðstæð-
ur. Það er oft sem maður sér ein-
staka ökumenn sikksakka eftir
veginum á mikilli ferð eins og þeim
liggi lífið á. Og ávinningurinn af
verður varla nema örfáar mínútur
og oftast nær maður ökuþórunum
á fyrstu ljósunum í Hafnarfirði þó
maður fari sér eitthvað hægar.
xxx
VIÐ búum vissulega í miklu ná-
býli við náttúruna og náttúr-
uöflin geta verið anzi óblíð eins og
við höfum svo sannarlega fundið
fyrir um nýliðna helgi. Vissulegar
hefur veðurofsinn valdið nokkru
eignatjóni og verulegri röskun á
daglegu lífi okkar. Víkverja finnst
engu síður óþarfi að vera að gera
mikið veður úr þessum gusum sem
brostið hafa á okkur. Fólk á ein-
faldlega að hafa vit á því að vera
ekki á ferðinni í slæmu veðri og
allra sízt að vera að þvælast í
ófærðinni á illa búnum bílum. Það
þarf ekki nema einn slíkan kauða
til að koma öllu í hnút.