Morgunblaðið - 15.02.2000, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VIÐ verðum að fara að skila einhverju af góðærinu, foringi, ef flokkurinn á að lifa af.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Opnar heimasíðu á Netinu
FÉLAG íslenskra hjúkrunarfræð-
inga kynnti á föstudag upplýsinga-
vef íslenskrar hjúkrunar á Islandi
sem er heimasíða félagsins á Net-
inu. Þar verður m.a. hægt að nálg-
ast upplýsingar um kjör og réttindi
íslenskra hjúkrunarfræðinga og
birtar verða atvinnuauglýsingar
víða af landinu sem og ýmsar frétt-
ir af starfi félagsins og fagfélögum
þess svo dæmi séu nefnd.
María Finnsdóttir hjúkrunar-
fræðingur, sem nú hefur látið af
störfum, og Hallveig Broddadóttir,
nýútskrifaður hjúkrunarfræðingur,
opnuðu vefinn við formlega athöfn
en með því að láta þær opna vefinn
vildi Herdís Sveinsdóttir, formaður
Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga, minna á að þegar verið væri
að byggja upp til framtíðar þyrfti
að byggja á fortíðinni. „I Félagi ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga eru yfir
þrjú þúsund félagsmenn og innan
þess er fjöldinn allur af svæðis-
deildum og fagdeildum," segir
Herdís og bendir á að hægt sé að
nálgast heimasíður þessara deilda í
gegnum heimasíðu félagsins. Þar
er einnig hægt að nálgast heima-
síður félaga erlendra hjúkrunar-
fræðinga sem íslenskir hjúkrunar-
fræðingar hafa haft samskipti við.
Slóð heimasíðu Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga er hjukrun.is.
400 ára ártíð heimspekingsins Brunos
Fræðslu-
stefna um líf
í alheimi
ÞórJakobsson
HALDIN verður
fræðslustefna um
líf í alheimi með
átta fræðsluerindum í
Norræna húsinu nk.
fimmtudag og stendur
hún frá klukkan 13 til 17.
Erindin eru að sögn Þórs
Jakobssonar veðurfræð-
ings ætluð almenningi og
kveður hann alla vel-
komna. Fræðslustefna
þessi er á vegum svo-
nefnds Fræðslusjóðs um
líf í alheimi, en Þór á sæti
í stjórn hans.
„Þessi dagur, 17. febr-
úar, er valinn sökum þess
að þá verður fjögur
hundruð ára ártíð ítalska
heimspekingsins Giordan-
os Brunos, sem er þekkt-
ur fyrir kenningar sínar
um óendanlegan alheim og
fjölda sólkerfa, þar sem hann
varpaði fyrir róða hinni hefð-
bundnu heimsmynd sem þá ríkti
um jörðina í miðju alheims. Með
ályktun sinni um óendanlegan
alheim víkkaði hann jafnvel út
hina nýju heimsmynd Kópernik-
usar, sem þá var að ryðja sér til
rúms á dögum Brunos. í heims-
mynd Kópernikusar var sólin í
miðju alheims og stjörnurnar
fastar á himinhvolfi í takmar-
kaðri fjarlægð."
- Hvernig sprengdi Bruno
þessa heimsmynd?
„Hann var manna fyrstur til
að halda því fram að stjömur
himins væru í rauninni fjarlægar
sólir og um þessar sólir hugsaði
hann sér að hlytu að vera hnett-
ir og á þessum hnöttum hlyti að
vera líf, alveg eins og Kópemik-
us hafði sýnt á hans dögum fram
á að væri hér hjá okkur.
Skemmst er frá að segja að hin
viðburðaríka ævi Bmnos endaði
með því að rannsóknarréttur
páfans brenndi manninn á báli
fyrir skoðanir sínar. Sjálfur
Bruno verður viðfangsefni á
kvöldfundi hjá Stofnun Dante
Alighieri á íslandi þriðjudaginn
22. febrúar nk.“
- En hvað verður á dagskrá á
fræðslufundinum í Norræna
húsinu?
„Þar verða haldin átta tuttugu
mínútna erindi. Þorsteinn Vil-
hjálmsson eðlisfræðingur talar
um kenningu Kópernikusar,
Gunnlaugur Björnsson stjarn-
eðlisfræðingur fjallar um
nýfundnar reikistjörnur í öðram
sólkerfum, Þorsteinn Þorsteins-
son jarðeðlisfræðingur fjallar
um kenningar um líf á Mars fyrr
og nú, Trausti Jónsson veður-
fræðingur heldur erindi um
loftslagssögu jarðar. Eftir kaffi-
hlé talar Guðmundur Eggerts-
son líffræðingur um hugmyndir
um upphaf lífsins á jörðinni,
Þorsteinn Þorsteins-
son lífefnafræðingur
ræðir um samstillingu
efnis í alheimi, Krist-
ján Jónasson stærð-
fræðingur fjallar um
loftsteina og áhrif
þeirra á lífríki jarðar og að lok-
um talar Viðar Víkingsson kvik-
myndagerðarmaður um alheim-
inn, líf og list. Fundarstjóri
verður Þór Jakobsson.“
- Hvenær var Fræðslusjóður
um líf í alheimi stofnaður?
„Hann var stofnaður 5. októ-
ber 1996 og er að stofni til gjafir
sem mér bárust frá vinum og
► Þór Jakobsson fæddist í Kan-
ada 1936. Hann lauk stúdent-
sprófí frá Menntaskólanum f
Reykjavík árið 1956 og fór þá til
Noregs þar sem hann stundaði
nám í jarðeðlisfræði og varð
cand. mag. í þeirri grein. Cand.
real. í veðurfræði varð Þór árið
1966 frá háskólunum í Ósló og
Bergen. Hann starfaði í Noregi
meðfram námi en fluttist til Kan-
ada 1968 og var þar í fram-
haldsnámi og við störf. Eftir
doktorspróf og rannsóknarstörf
við rannsóknardeild Veðurstofu
Kanada kom Þór til starfa hjá
Veðurstofu íslands 1979 þar sem
hann starfar enn. Þór er kvænt-
ur Jóhönnu Jóhannesdóttur,
tæknifræðingi á Lífeðlisfræði-
stofnun HÍ, og eiga þau tvö upp-
komin börn.
vandamönnum á sextugsafmæli
mínu og ég beindi opinberlega
til þessa sjóðs sem stofnaður var
á afmælisdegi mínum. í stjórn
sjóðsins era auk mín þeir Agúst
H. Bjarnason grasafræðingur,
Gunnlaugur Björnsson stjarn-
eðlisfræðingur og Þorsteinn
Þorsteinsson jarðeðlisfræðing-
ur.“
- Hvert er verkefni þessa
sjóðs?
„Sjóðnum er ætlað að vekja
áhuga íslendinga og einkum
ungs fólks á rannsóknum á sól-
kerfinu, geimferðum til tungls-
ins og Mars. Vaxandi áhugi er á
þessum efnum víða um lönd og
það rísa upp háskóladeildir,
einkum í Bandaríkjunum, á
þessu sviði sem einnig kallast
stjömulíffræði (astrobiologi),
þess ber að geta að mun fleiri
karlar en konur hafa áhuga á
eðlisfræði sem er undirstaða
rannsókna í þessum greinum."
-Ætlar Fræðslusjóðurinn um
líf í alheimi að standa fyrir fleiri
ráðstefnum af þessu tagi á næst-
unni?
„Næsta verkefni
sjóðsins er að skipu-
leggja verkefni fyrir
skólanemendur á
unglingsaldri um
geimferðir og rann-
sóknir á sólkerfinu. Verið er að
endurskipuleggja kennslu í nátt-
úravísindagreinum í skólunum
og tækifæri er því til að benda á
viðfangsefni; líf í alheimi, sem
heillar jafnt unga sem aldna sem
því kynnast. Einnig stendur til
að halda fleiri fræðslustefnur
eins og er á dagskrá á fimmtu-
daginn kemur í Norræna húsinu.
Heillandi við-
fangsefni fyr-
ir unga sem
aldna