Morgunblaðið - 29.04.2000, Page 6
6 LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Niðurstöður nýrrar fjölmiðlakönnunar Gallup fyrir SÍA og fiölmiðla
Rúm 60% lesa Morgun-
blaðið að jafnaði daglega
LESTUR dagblaða hefur lítillega
dregist saman skv. nýrri fjölmiðla-
könnun Gallup frá seinustu könnun í
október sl. Skv. niðurstöðum könn-
unarinnar, sem gerð var í vikunni
24.-30. mars, er Morgunblaðið lesið
af 60,6% landsmanna á aldrinum 12-
80 ára að jafnaði hvern útgáfudag,
37,6% lesa DV að jafnaði og 10,6%
Dag. 80% svarenda sögðust eitthvað
hafa lesið í Morgunblaðinu í könnun-
arvikunni, 65,7% DV og20,7% Dag.
Gallup vann að gerð fjölmiðla-
könnunarinnar fyrir samstarf Sam-
bands íslenskra auglýsingastofa
(SÍA) og helstu fjölmiðla landsins,
þar sem mældur var lestur þriggja
dagblaða, vikublaða, áhorf á fjórar
sjónvarpsstöðvar, hlustun á tólf út-
varpsstöðvar og notkun á fjórum
netmiðlum.
Skv. niðurstöðum könnunarinnar
hefur meðallestur á tölublaði af
Morgunblaðinu minnkað úr 63,7% í
október sl. í 60,6% nú. Að sögn Haf-
steins Más Einarssonar umsjónar-
manns könnunarinnar hjá Gallup er
þessi breyting á meðallestri Morg-
unblaðsins innan skekkjumarka.
Á sama tíma lækkaði meðallestur
hvers tölublaðs DV úr 43% í 37,6%.
Meðallestur Dags jókst hins vegar
úr 9,1% í októberkönnun í 10,6% nú.
80% sögðust hafa lesið eitthvað
í Morgunblaðinu í vikunni
80% svarenda sögðust hafa lesið
eitthvað í Morgunblaðinu í þeirri
viku sem könnunin náði til en þetta
hlutfall var 81,8% í síðustu könnun.
65,7% sögðust hafa lesið DV eitthvað
í vikunni samanborið við 70,3% í
október en hlutfall þeirra sem sögð-
ust hafa lesið Dag eitthvað í vikunni
Mánu- Þriðju- Miðviku- Firnmtu- Föstu- Laugar- Sunnu-
dagur dagur dagur dagur dagur dagur dagur
Meðallestur Eitthvað lesið
á tölublað . í vikunni
Meðaliestur á tölublað, skipt eftir aldri
68-80 r~—........ . . . 176,6%
50-67 I ..................166,0%
40-49
»■22^“*!
30-34
25-29
20-24 í'..ZZZJ 51,7%
12-19 |
■im
] 48,2%
Ðp^ur m
] 17,1 %
J11,0%
ZJ18,2% I 19.0%
1)13,8% I 111,0%
□ 12,3%
□ 4,6%
□ 5,8%
01,8%
41,2% □6,0%
□ 2,0%
□10,0%
09,0%
0)10,0%
0)10,0%
jókst úr 19,1% í 20,7% og 9% svar-
enda sögðust hafa lesið eitthvað í
Viðskiptablaðinu, sem er aukning úr
7,1% frá seinustu könnun í október.
Að sögn Hafsteins var við gerð
könnunarinnar lagt mat á hvaða
áhrif ókeypis dreifing blaða til les-
enda í kynningarskyni hefði á blaða-
lesturinn. Að sögn hans var hlutfall
þessara eintaka hátt hjá DV í könn-
uninni í október vegna kynningar-
átaks þá en hefur lækkað síðan um
3-3,5% og skýrir það að einhverju
leyti minnkandi lestur DV á milli
kannana, að sögn hans.
Nær sama hlutfall karla og
kvenna lesa Morgunblaðið
Sé litið á lestur á einstökum tölu-
blöðum í könnunarvikunni kemur í
ljós að flestir lesa Morgunblaðið á
föstudögum (65,8%) og sunnudögum
(65,5%). DV var mest lesið á laugar-
dögum (47,4%), föstudögum (41,7%)
og mánudögum (36%). Flestir lesa
Dag á föstudögum (12,1%) og laug-
ardögum (11,8%).
Lítill munur er á lestri kynjanna á
Morgunblaðinu. Þannig lásu 59,9%
karla Morgunblaðið að jafnaði hvem
útgáfudag og 60,8% kvenna. Meðal-
lestur DV meðal karla var 41,3% en
34,2% meðal kvenna að jafnaði.
11,3% karla lásu Dag að meðaltali og
9,9% kvenna.
í könnuninni er einnig sýnd skipt-
ing kaupa á blöðunum í áskrift sem
leiðir í Ijós að 55,1% allra svarenda
eru áskrifendur að Morgunblaðinu,
22,1% eru áskrifendur að DV, 5,1%
að Degi og 3,3% að Viðskiptablaðinu.
Könnun Gallup á lestri sérblaða
Morgunblaðsins leiðir í ljós að 42%
sögðust hafa lesið eða flett Daglegu
lífi, 31% Bíóblaðinu og sama hlutfall
Viðskiptablaðinu. íþróttir njóta
mestra vinsælda á þriðjudögum og
miðvikudögum þegar 38% lesa
íþróttablaðið, 45% lesa Ferðablaðið
en stærsti hópurinn las Lesbókina
eða 48%.
9% lesa Viðskiptablaðið
Þá var mældur sérstaklega lestur
fjögurra vikublaða í könnuninni.
Skv. niðurstöðum hennar lásu 40%
Fókus, sem fylgir DV á föstudögum,
28% Iásu blaðið 24.7, sem dreift er
með Morgunblaðinu á fimmtudög-
um, 9% lásu Viðskiptablaðið og 5%
Fiskifréttir.
Úrtaksstærð í fjölmiðlakönnun-
inni var 1.500 manns á aldrinum 12-
80 ára á landinu öllu. Alls svöruðu
849 og er nettósvarhlutfall 61% sem
er svipað svarhlutfall og í seinustu
könnun. Voru öllum, sem í úrtakinu
lentu, send gögn í pósti, kynningar-
blað og dagbók sem þátttakendur
fylltu út og sendu til baka. Skv. upp-
lýsingum forsvarsmanna Gallup
komu engin sérstök vandkvæði upp
við framkvæmd könnunarinnar.
Áhorf á Skjá 1
hefur tvöfaldast
frá október
Horft á sjónvarp í vlku í mars 2000
Hlutfall sem stillti á viðkomandi stöð, greint eftir búsetu
■1 LANDIÐ ALLT FAXAFLÓASV.
Sjónvarpið
Stöð 2
Skjár 1
Sýn
ÁHORF á sjónvarpsstöðina Skjá 1
hefur rúmlega tvöfaldast frá októ-
ber sl. samkvæmt fjölmiðlakönnun
Gallup sem gerð var í vikunni 23-
30. mars.
Samkvæmt heildaryfirliti yfir
sjónvarpsnotkun þátttakenda í
könnuninni kemur fram að upp-
safnað áhorf á Skjá 1 yfir könnun-
arvikuna á landinu öllu er nú 44%
samanborið við 21% í seinustu
könnun í október. Áhorf á Sýn hef-
ur minnkað á sama tíma úr 40% í
27% á landinu öllu.
Hlutfall áhorfenda á Skjá 1 á
Faxaflóasvæðinu mældist enn
meira eða 58% í vikunni sem könn-
unin var gerð.
Fleiri horfa á Sjónvarpið
en Stöð 2
Meðaltal sjónvarpsáhorfs á virk-
um dögum á landinu öllu er óbreytt
hjá Ríkissjónvarpinu frá seinustu
könnun eða 66%. Meðaláhorf á
Stöð 2 mælist nú 58% samanborið
við 60% meðaláhorf á Stöð 2 í októ-
berkönnun Gallup. Meðaláhorf á
virkum dögum jókst úr 6% í 17%
hjá Skjá 1 en minnkaði úr 14% í 8%
hjá Sýn. ^
Meðaláhorf Sjónvarpsins um
helgar hefur aukist úr 63% í októ-
ber í 69% skv. könnuninni nú. Með-
aláhorf á Stöð 2 um helgar hefur
einnig aukist og mælist nú 58%
samanborið við 57% í októberkönn-
un. Þá hefur meðaláhorf á Skjá 1
um helgar aukist úr 6% í október í
22% nú en minnkað hjá Sýn úr 20%
í október í 10% nú.
Uppsafnað áhorf, þegar vikan er
skoðuð í heild sinni, hefur aukist
hjá Sjónvarpinu úr 93% í október í
95% nú og hjá Stöð 2 hefur upp-
safnað áhorf yfir vikuna aukist úr
82% í 84% skv. niðurstöðum könn-
unarinnar.
Samkvæmt yfirliti yfir meðal-
talsáhorf á einstaka dagskrárliði
sjónvarpsstöðvanna í könnunarvik-
unni yfir landið allt, sem sýnir
hversu hátt hlutfall horfði eitthvað
á viðkomandi þætti, kemur í ljós að
meðaláhorf hjá Ríkissjónvarpinu
mældist mest á fréttatíma kl. 19 á
sunnudagskvöldi eða 40,1%. Meðal-
áhorf á spurningakeppni fram-
haldsskólanna, Gettu betur, var
39,6%, og meðaláhorf á þáttinn
Þetta helst, á fimmtudagskvöldum,
mældist 34,5%.
Mesta meðaláhorf á fréttatíma
Stöðvar 2 yfir landið allt var á
þriðjudagskvöldi, skv. könnuninni,
þegar 28,6% horfðu á fréttir kl.
19.30 en sama kvöld horfðu 15,9% á
fréttir Stöðvar 2 kl. 19. Af dag-
skrárliðum Stöðvar 2 mældist mest
meðaláhorf á þáttinn Sex í Reykja-
vík, eða 34,3%. 30,3% horfðu á
Ungfrú ísland.is á laugardags-
kvöldi og 25% á þáttinn Fóstbræð-
ur á miðvikudagskvöldi.
Vinsælustu þættir á Skjá 1 skv.
könnuninni voru Leyndardómar
sem sýndur var á laugardagskvöldi
en meðaláhorf á þann þátt var 17%
á Faxaflóasvæðinu. 15,9% þátttak-
enda á sama svæði horfðu á þáttinn
World’s most amazing videos og
meðaláhorf á þáttinn Innlit/Útlit
mældist 9,8%.
Mesta meðaláhorf á einstaka
dagskrárþætti Sýnar reyndist vera
á þáttinn Með hausverk um helgar
eða 4,9% og 3,2% meðaláhorf var á
enska boltann á sunnudegi.
Jafn margir
heimsóttu mbl.is
o g visir.is
Netmiðlar skoðaðir í vikunni í mars
Fólk með netaðgang
Hlutfall þeirra sem heimsækja viðkomandi
netmiðla, og greint eftir aðgangi að netinu
ALLIR sem svöruðu
mbl.is i 46,3 %
visir.is?')46,3%
strik.is | j 23.1%
ruv.is 'W&M 20,0%
68,6%
68,9%
JAFN margir heimsækja netmiðl-
ana mbl.is og vísir.is eða 46,3%
landsmanna samkvæmt fjölmiðla-
könnun Gallups, sem gerð var í vik-
unni 23.-30. mars.
Könnunin leiddi í Ijós að aðgangur
að Netinu og notkun þess hefur auk-
ist mikið frá seinustu könnun í októ-
ber sl. Alls eru nú tæplega 70% með
aðgang að Netinu en 30,4% sögðust
ekki vera með netaðgang.
47,8% þátttakenda í könnuninni
höfðu aðgang að Netinu á heimili
sínu í október sl., en 54,1% í könnun-
inni nú. Á sama tíma jókst netað-
gangur á vinnustað úr 45,7% í 49,8%.
68,6% þátttakenda í könnuninni
sem hafa netaðgang sögðust hafa
heimsótt mbl.is og lítið eitt hærra
hlutfall eða 68,9% vísir.is skv. könn-
uninni. Strik.is heimsóttu 35,6%
sama hóps og 31% vef RÚV, ruv.is.
Vegna tæknilegra mistaka birti Gall-
up ekki niðurstöður yfir hversu oft
viðkomandi heimsóttu netmiðlana í
könnunarvikunni en kanna á það
sérstaklega með símaviðtalskönnun,
skv. upplýsingum Gallup.
Af körlum sem eru með netaðgang
sögðust 50,1% hafa heimsótt vísir.is
skv. könnuninni en 49,7% mbl.is.
Þessu er öfugt farið hjá konum með
netaðgang því 63,6% þeirra heim-
sóttu visir.is en 64,1% mbl.is.
Hlutfallslega fleiri sækja vísir.is
heim í aldurshópunum 12-19 ára og
20-24 ára en fleiri nota mbl.is í ald-
urshópunum 25-29 ára, 30-34 ára og
40-49 ára. Munurinn er þó sjaldnast
mikill nema í yngsta hópnum þar
sem 56,5% fólks með netaðgang
sækja mbl.is heim en 67,3% vísir.is.
Mbl.is fær hæstu
einkunn hjá notendum
Notendur voru einnig beðnir að!
gefa netmiðlunum fjórum einkunn á!
kvarðanum 1-5 fyrir hversu vel við-
komandi netmiðlar höfða til fólks.
Hæsta einkunn fær mbl.is hjá not-
endum eða 4,0 af 5,0 að meðaltali-
Visir.is og Strik.is fá 3,9 og ruv.is 3,2.
Karlar gefa mbl.is 4,1 í einkunn, vis-
ir.is og Strik.is 3,9 og ruv.is 3,1. Kon-
ur gefa mbl.is 3,9 í einkunn, visir.is
og Strik.is 3,8 og ruv.is 3,3.
Mbl.is fékk sömuleiðis hærri eink-
unn en hinir miðlamir í öllum aldurs-
hópum nema í flokki 12-19 ára, þar
fær vísir.is 4,0 en mbl.is 3,9.