Morgunblaðið - 29.04.2000, Page 18
18 LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Ferðakostnaður aðildarfélaga ræddur á ársþingi IBA
Kostnaður við ferðalög
tæpar 30 milljönir á ári
Veðrið
lék við
bæjarbúa
VEÐRIÐ lék við Akureyringa í
gær eftir frekar kalda en sólríka
daga. Hitinn fór í 10 stig um
miðjan dag i gær, skt. hitamæli
veðurstofunnar við lögreglustöð-
ina, en hitamælirinn á Ráðhús-
torgi sýndi enn hærri tölu. Félag-
arnir Arnar og Auðunn voru
mættir með hjólabretti sín á Ráð-
hústorginu og léku þar listir sín-
ar fyrir gesti og gangandi. Snæ-
finnur snjókarl, sem gerður var
fyrir páskana, er hins vegar orð-
inn að snjóskafli á miðju torginu.
Þess má geta að í blaðinu í gær
birtist röng mynd með þessari
frétt og leiðréttist það hér með.
UM 60 fyrirtæki og stofnanir hafa
skráð sig til þátttöku á vöru- og þjón-
ustusýningunni Daglegt líf 2000, sem
haldin verður í íþróttahöllinni á Ak-
ureyri helgina 12.-14. maí nk. Á sýn-
ingunni gefst fyrirtækjum, stofnun-
um, skólum, félagasamtökum og
öðrum sem áhuga hafa kostur á að
kynna starfsemi sína. Þeir aðilar sem
þegar hafa skráð sig til þátttöku
koma víða af landinu en eru þó flestir
frá Akureyri.
Að sýningunni standa Atvinnuþró-
unarfélag Eyjafjarðar og knatt-
spymudeild Þórs en framkvæmdin er
FERÐAKOSTNAÐUR aðildarfé-
laga íþróttabandalags Akureyrar,
ÍBA, á árinu 1997 nam tæpum 28
milljónum króna og árið eftir var
ferðakostnaðurinn rúmar 26 milljónir
króna. Ferðakostnaður íþróttafélag-
anna var til umræðu á ársfundi ÍBA í
vikunni og þar var samþykkt ályktun
þar sem bandalaginu var falið að
koma því til leiðar að íþróttasamband
Islands taki til umfjöllunar innan
sinna vébanda kostnað við ferðlög
íþróttafélaga.
Þröstur Guðjónsson, formaður
samvinnuverkefni Þórsara og Fremri
kynningarþjónustu. Þá hefur verið
gerður samningur við Morgunblaðið
og mun blaðið fjalla um Akureyri í
Daglegu lífi, fylgiblaði Morgunblaðs-
ins, fostudaginn 12. maí. Sýningar-
skrá verður dreift til allra áskrifenda
Morgunblaðsins frá Hvammstanga til
Egilsstaða, auk þess sem Morgun-
blaðinu verður dreift inn á öll heimili á
Akureyri daginn sem sýningin hefst.
Sýnendur eiga þess kost að kaupa
sýningarrými í aðalsal íþróttahallar-
innar eða á malbikuðu útisvæði. Sýn-
ingin Daglegt líf var síðast haldin í
ÍBA, sagði að bandalagið hafi gert út-
tekt á ferðakostnaði félaganna þessi
tvö umræddu ár, til að leggja inn í
umsókn varðandi samstarfssamning
við Akureyrarbæ. ,Á sama tímabili
var þjálfunarkostnaður bama og
unglinga, sem við gerðum einnig út-
tekt á, um 23 milljónir króna. Við höf-
um óskað eftir að bæjaryfirvöld taki
þessi mál og fleiri til athugunar og
viljum gera ákveðinn samstarfs-
samning við bæinn, varðandi upp-
byggingu og það íjármagn sem berst
út í hreyfinguna. Við teljum að það sé
íþróttahöllinni fyrir tveimur árum og
þótti hún takast mjög vel. Að fenginni
reynslu má áætla að 8.000-10.000
manns leggi leið sína á sýninguna.
Þar verður einnig boðið upp á ýmis
skemmtiatriði fyrir fólk á öllum aldri.
Sýningin verður opnuð kl. 17 föstu-
daginn 12. maí en Valgerður Sverris-
dóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra
setur sýninguna formlega kl. 18. Á
laugardeginum verður sýningin opin
frá kl. 11-18 og á sunnudeginum frá
kl. 11-17. En eru nokkur rými laus,
þeir sem áhuga hafa tali við Fremri
kynningarþjónustu Akureyri.
STJÓRN Samherja hf. hefur sam-
þykkt að ráða Finnboga Jónsson
sem starfandi stjómarformann fé-
lagsins frá og með 1. júní nk. Auk al-
mennra starfsskyldna stjómarfor-
manns mun Finnbogi vinna að
stefnumörkun og framtíðarskipulagi
fyrir félagið og erlend dótturfélög
þess og að nýjum tækifæmm á
þeirra vegum.
Finnbogi er fæddur á Akureyri 18.
janúar 1950. Hann lauk stúdents-
prófi frá MA 1970, fyrrihlutaprófi í
eðlisverkfræði frá HI1973, lokaprófi
SKÁTAKÓRARNIR í Reykjavík og
Hafnarfirði halda tónleika hjá Skáta-
félaginu Landvættum á Dalvík í dag
laugardag, kl. 14.30 og sama dag kl.
17 í Deiglunni á Akureyri.
mun hentugra að hafa þessi mál á
hendi ÍBA, sem lúta að rekstri banda-
lagsins, uppbyggingu íþróttamann-
virkja, ferðakostnaði aðildarfélaga,
þjónustu gagnvart þjálfun bama og
unglinga, afrekssjóði og fleiru.
Þröstur sagði að þessi hugmynd
um samstarfssamning hefur legið
fyrir lengi. Allar hugmyndir banda-
lagsins hafi ávallt strandað í íþrótta-
og tómstundaráði en séu nú loks
komnar til bæjarstjómar. „Við vænt-
um þess að fá svar á þessu ári.
Bílaklúbbur Aureyrar var tekinn
inn í ÍBA á ársþinginu nú. Aðildar-
félögin em því orðin 13 en að auki
starfa Skíðaráð og Fimleikaráð innan
bandalagsins.
Þröstur sagði að fjárhagsstaða fé-
laganna væri nokkuð góð nema hjá
KA og Þór. Einnig væri nokkuð á
brattann að sækja hjá Skíðaráði Ak-
ureyrar og Golfklúbbi Akureyrar.
„Auðvitað er þetta erfitt og menn em
að reka sig á það í dag að fyrirtækin
vilja fá eitthvað fyrir sinn stuðning."
Léttvægt að gefa leiki
úti á landi
í tengslum við umræðuna um
ferðakostnað á ársþingi ÍBA kom
einnig fram að nokkuð er um að félög
á höfuðborgarsvæðinu séu að gefa
leiki fyrir norðan. Egill Áskelsson
stjórnarmaður í körfuknattleiksdeild
Þórs nefndi nýjasta dæmið. Ung-
lingaflokkur KR, 21 árs og yngri, átti
að leika gegn Þór í undanúrslitum
bikarkepppninnar sl. miðvikudag en
gaf leikinn. Egill sagði að þær ástæð-
ur sem KR-ingar hafi gefið vegna
þessa, hafi verið að þeir ættu ekki í
lið, strákamir væm að byrja í próf-
um, leiguflug fram og til baka væri og
dýrt og of dýrt sé að gista. Einnig
vildu KR-ingar leyfa sínum mönnum
að skemmta sér með meistaraflokki
þá um kvöldið en meistaraflokkur fé-
lagsins varð íslandsmeistari kvöldið
áður.
„Við Þórsarar vomm skikkaðir af
Körfuknattleikssambandi íslands til
að fara með meistaraflokkinn okkar
til ísafjarðar í vetur, þótt það væri
vitað að ekki kæmust dómarar vestur
vegna veðurs í Reykjavík. Við fórum
fyluferð, eins og alltaf lá fyrir og hún
kostaði okkur 130 þúsund krónur,“
sagði Egill. Hann sagði að það virist
vera mjög léttvægt að gefa leiki í
yngri flokkum úti á landi. Egill sagð-
ist hreinlega hafa velt því fyrir sér
hvort ekki væri ráð fyrir meistara-
flokk Þórs, þ.e. ef viðurlög em ekki
mikil, að gefa leildna í Njarðvík og
Grindavík, þeir töpuðu þar alltaf
hvort sem er og nota þá ferðapening-
inn sem sparast til að kaupa sterkari
erlendan leikmann.
í eðlisverkfræði frá Tækniháskólan-
um í Lundi í Svíþjóð 1978 og loka-
prófi í rekstrarhagfræði frá Háskól-
anum í Lundi sama ár.
Finnbogi kenndi við Gagnfræða-
og Iðnskóla Vestmannaeyja 1970-
71, var deildarstjóri og sérfræðingur
í iðnaðarráðuneytinu 1979-82, fram-
kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar hf. 1982-86, forstjóri
Sfldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað
frá 1986-1999, forstjóri íslenskra
sjávarafurða hf. 1999 og aðstoðarfor-
stjóri SÍF hf. frá 1. janúar 2000.
Mishermt var í blaðinu að tónleik-
arnir hafi átt að fara fram í gær.
Stjómendur kóranna eru þau
Kristjana Ásgeirsdóttir og Öm Ám-
arson.
Gospeltón-
list hjá
Hjálpræðis-
hernum
TÓLF söngfélagar úr gospelkómum
Booth’s frá Kristiansand í Noregi
heimsækja Akureyri um helgina. I
dag, 29. aprfl kl. 20.00 verða haldnir
tónleikar í sal Hjálpræðishersins að
Hvannavöllum 10 og á morgun kl.
17.00 verður gospelsamkoma á sama
stað.
Kórinn syngur létta og fjölbreytta
tónlist en flestir söngfélagaranir era
á aldrinum 25-40 ára. Þeir tilheyra
hinum ýmsu trúfélögum í heimabæ
sínum en kórinn starfar innan Hjálp-
ræðishersins og var honum gefið
nafn eftir stofnanda Hersins, Willam
Booth.
Fararstjóri í þessari ferð og einn
af söngvumnum er Anne Marie
Reinholdsten en hún veitti starfi
Hjálpræðishersins á Akureyri for-
stöðu á ámnum 1977-82. Aðgangur
að tónleikunum og gospelsamkom-
unni er ókeypis.
-----------------
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Sunnu-
dagur 30. aprfl, sunnudagur eftir
páska. Fermingarmessur kl. 10.30
og 13.30. Fundur Æskulýðsfélagsins
í kapellu kl. 17.00. Æðmleysisguðs-
þjónusta kl. 20.30, Krossbandið ann-
ast undirleik. Kaffisopi í Safnaðar-
heimili á eftir. Þriðjudagur 2. maí,
morgunsöngur í Akureyrarkirkju kl.
9.00. Miðvikudagur 3. maí, mömmu-
morgun í Safnaðarheimili kl. 10-12.
Frjálst, kaffi og spjall, allir verðandi
og núverandi foreldrar velkomnir.
GLERÁRKIRKJA: Sunnudagur
30. aprfl, fermingarmessur í
kirkjunni kl. 10.30 og 13.30. Fimmtu-
dagur 4. maí, opið hús fyrir mæður
og böm. Heitt á könnunni og svali
fyrir bömin. Æfing bamakórs Gler-
árkirkju er kl. 17.30.
HVITASUNNUKIRKJAN: Laug-
ardagur 29. aprfl, bænastund kl.
20.00. Sunnudagur 30. aprfl, sunnu-
dagaskóli fjölskyldunnar kl. 11.30.
Kennsla úr Orði Guðs fyrir alla ald-
urshópa. G. Theodór Birgisson
predikar. Almenn vakningasam-
koma kl. 16.30. Yngvi Rafn Yngva-
son predikar. Fyrirbænaþjónusta,
baraapössun. Allir velkomnir.
HJALPRÆÐISHERINN: Laug-
ardagur kl. 20, tónleikar, kór frá
Kristiansand í Noregi. Sunnudagur
kl. 11, sunnudagaskóli. Gospel sam-
koma kl. 17, fjölbreytt dagskrá.
Mánudagur kl. 15, heimilasamband,
miðvikudagur kl. 20, hjálparflokkur
fyrir konur, fimmtudagur kl. 17.30
krakkaklúbbur fyrir 6-10 ára, föstu-
dagur kl. 17.30, 11 plús, fyrir 11-12
ára. Flóamarkaður frá kl. 10-18.
HRÍSEYJARKIRKJA: Ferming-
armessa sunnudaginn 30. aprfl kl. 11.
Fermd verða Júlía Mist Almarsdótt-
ir og Páll Abrahamsen.
-----------------
Fermingar
Ferming í Ólafsfjarðarkirkju 30.
apríl kl. 11:00 Prestur sr. Sigríður
Guðmarsdúttir. Fermd verða:
Atli Þór Ægisson,
Hrannarbyggð 15.
Einar Þór Guðmundsson,
Mararbyggð 10.
Gísli Valur Þormóðsson,
Ólafsvegi 30.
Jón Gunnar Eiríksson,
Hrannarbyggð 7.
Katrín Sif Antonsdóttir,
Ólafsvegi 51.
Kristinn Ari Hinriksson,
Túngötu 19.
Kristinn Axel Sigurðarson,
Hombrekkuvegi 5.
Sigríður Þóra Hilmarsdóttir,
Ólafsvegi 44.
Sunna Eir Haraldsdóttir,
Kirkjuvegi 4.
Sylvía Dögg Hjörleifsdóttir,
Hlíðarvegi 12.
Sæunn Veigarsdóttir,
Bylgjubyggð 22.
Styrkir til
tónlistarnáms
úr Minningarsjóði Þorgerðar S. Eiríksdóttur.
Nemendur Tónlistarskólans á Akureyri,
sem lokið hafa brottfararprófi frá
skólanum og hyggja á háskólanám í
tónlist eða hafa þegar hafið það, geta
sótt um styrk úr minningarsjóði
Þorgerðar S. Eiríksdóttur.
Umsóknarfrestur er til 15. maí 2000 og þurfa
umsækjendur að greina frá námsferli og
námsáformum í umsókn sinni. Umsóknir skal senda til
skólastjóra Tónlistarskólans á Akureyri,
Hafnarstræti 81.
Morgunblaðið/Kristj án
Vöru- og þjónustusýningin Daglegt líf í fþróttahöllinni
Um 60 aðilar hafa
skráð sig til þátttöku
Finnbogi starfandi stjórn-
arformaður Samherja hf.
Tónleikar skátakóra