Morgunblaðið - 29.04.2000, Blaðsíða 35
MÓáGUSíBÍ.AÐri)
hjúpnum og án þeirra væri 21 Sels-
íusstigi kaldara á jörðinni en nú er
og meðalhiti -6 stig en ekki +15
stig. Þessi náttúrulegu áhrif eru
þannig forsenda fyrir lífi á jörðinni
í núverandi mynd. Styrkur kol-
tvíoxíðs og nokkurra annarra gróð-
urhúsalofttegunda í andrúmsloft-
inu fer vaxandi af mannavöldum.
Talið er að þessi aukning hafi þeg-
ar haft áhrif á veðurfar þannig að
nú sé af þessum sökum um 0,5
stigum hlýrra að meðaltali á jörð-
inni en ella væri.
Styrkur koltvíoxíðs hefur vaxið
um 33% frá því fyrir iðnbyltingu,
úr um 278 ppmv (einingin ppmv
þýðir milljónustu hlutar rúmmáls) í
um 370 ppmv árið 2000. Aukning
annarra gróðurhúsalofttegunda
jafngildir því að styrkur koltvíoxíðs
hafi árið 2000 vaxið í um eða yfir
450 ppmv sem svarar til yfir 50%
aukningar frá því fyrir iðnbyltingu.
Margar gróðurhúsalofttegundir
sem berast út í andrúmsloftið af
manna völdum hafa þar langa við-
dvöl og hafa áhrif á veðurfar í ára-
tugi og jafnvel aldir eftir að þeim
er sleppt út í umhverfið. Afleiðing-
ar í veðurfari eru einnig lengi að
koma fram að fullu vegna þess að
andrúmsloftið og heimshöfin þurfa
tíma til þess að taka við sér. Þessu
er lýst með því að tala um svokall-
aða jafnvægishlýnun. Það er sú
hlýnun sem vænta má ef losun
gróðurhúsalofttegunda er stöðvuð
og andrúmslofti og heimshöfum
gefinn tími til að laga sig að aukn-
ingunni sem þegar er orðin. Talið
er að hlýnun af völdum vaxandi
gróðurhúsaáhrifa gangi svo seint
fram á næstu áratugum að hún
verði aðeins helmingurinn af jafn-
vægishlýnun á hverjum tíma. Það
þýðir að veruleg hlýnun mundi
halda áfram þó að losun væri
snögglega stöðvuð.
Síðan 1958 hefur styrkur kol-
tvíoxíðs í andrúmsloftinu verið
mældur á eyjunni Mauna Loa í
Kyrrahafi og er mynd af niður-
stöðunum aðgengileg á vefnum.
Myndin sýnir vel hina stöðugu
aukningu koltvíoxíðsstyrksins.
Fleiri vísanir í erlendar heimildir
um þessi mál eru á vefsíðunni.
Styrkur koltvíoxíðs í andrúmsloft-
inu hér við ísland hefur verið
mældur í Vestmannaeyjum síðan
1992 og má skoða niðurstöðurnar á
vefsíðu Tækni- og athuganasviðs
Veðurstofu Islands.
Tdmas Jóhannesson
jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Is-
lands
stjóranum, sé ekki háttsett í fyrir-
tækinu.
Ráðning
Þessir draumar söm heild benda
til þess að þú standir á tímamótum
og þau tengist núverandi hlutverki í
lífinu. Draumarnir lýsa frekar hug-
renningum þínum um vilja og getu
til framkvæmda en beinu ferli sem
verða muni. í fyrsta drauminum
ertu að fást við þann þátt í þér sem
tengist áræði og hæfileika þínum til
frumkvæðis og ákvarðanatöku, þar
kemur Ólafur inn sem punkturinn
yfir I-ið eða sem áhersla á getu þína
því nafnið merkir sá er fyrstur fer
og vísar veginn. I draumi tvö ferðu
yfir á andlega planið og kannar þar
styrk þinn og kemst að því að til að
ná árangri verði maður að fylgja
sannfæringu sinni og standa við sitt
og láta ekki ytra prjál (búðarferðin)
veikja styrk sinn (klippingin). Þriðji
draumurinn tekur svo fyrir efann
og veikleikann sem öllu getur
sundrað en þrátt fyrir átök og erf-
iða göngu skín í gegn að kraftur
þinn sé ekta og hugurinn sannur
þótt hinn faglegi metnaður sé enn
ekki full mótaður.
Þeir lesendur aem vitfn fá drnunia
si'na birta ográðna sendi þá með
fuilu nafni, fæðingardegi og ári
ásamt heimilisfangi og dulnefni til
birtingar til:
Draumstafir
Morgunblaðið
Kringlunni 1
103 Reykjavik
eða á heimasíðu Draumalandsins
http://www.dreamland.is
Pétur Pétursson rektor Skálholtsskéla færði heimsborgarann Þérð nær matargestum með ýmsum
fréðleik á milli rétta.
Sótt í smiðju
Skálholts
Skálholtsstaður á sér mikla og merka sögu og þar situr
fólk í dag ekki með hendur í skauti frekar en fyrri daginn.
í Skálholtsskóla fer fram mikið mennta- og menningar-
starf og þar er boðið upp á ýmislegt forvitnilegt fyrir
gesti og gangandi. Kristín Heiða Kristinsdóttir brá sér
austur fyrir fjall og settist eina kvöldstund á bekk í
skólanum og gæddi sér á 17. aldar hlaðborði að hætti
sælkerans Þórðar biskups Þorlákssonar.
Máiverk af Þérði biskup Þorlákssyni og konu hans Guðríði Gísladóttur.
ÞETTA var í
annað sinn
sem boðið var
upp á slíkt
hlaðborð fyrir almenn-
ing og til stendur að
framhald verði þar á, en
áður hafa nokkrum
sinnum verið kvöldverð-
ir af þessum toga í
Skálholtsskóla fyrir
hópa sem þess hafa ósk-
að eða ráðstefnugesti.
Það er sannarlega
ánægjulegt að vatnið
skuli ekki sótt yfir læk-
inn til að auðga lífið í
Skálholti, heldur
gramsað í eigin smiðju
staðarins því þar er af
nógu að taka. Máltíðin
hófst á því að borinn
var fram hákarl og
kúmensnafs, heilsubót-
ardrykkur sem menn á
17. öld yljuðu sér á eftir útivist og hrakningar,
en kúmen var einmitt ræktað í kálgarði Skál-
holts á þessum tíma ásamt öðrum kryddjurtum.
Pétur Pétursson núverandi rektor skólans,
færði heimsborgarann Þórð svolítið nær matar-
gestum með ýmsum fróðleik á milli rétta. Þórð-
ur var lífsnautnamaður og fjölhæfur á sviði vís-
inda og mennta, hann var tónlistarmenntaður,
grúskaði í stjörnufræði, læknisfræði og ýmsu
öðru. Hann var m.a frumkvöðull í fjölbreyttri
garðyrkju og lærði framandi matreiðsluaðferðir
hjá Lúðvík 14. sólkonungi. Þórður fór víða um
Evrópu og tók kunnáttuna með sér hingað heim
til íslands og bauð gestum sínum upp á sams-
konar mat og borinn var fram þetta bjarta vor-
kvöld árið 2000. Gera má ráð fyrir að Snæfríður
íslandssól og annað fyrirfólk hafi fengið að
njóta áþekkra krása en ólíklegt að vinnuhjú hafi
fengið svo gott fæði.
Bjarni bryti Birgisson sá um að allur matur
væri verkaður og matreiddur að fornum hætti
og var hangikjötið og saltkjötið t.d ekki rautt á
lit heldur brúnt, því hvorki var notaður saltpét-
ur né nítrat í tíð Þórðar. Drukkin var mysa með
matnum sem og mjöður góður, ekki ósvipaður
þeim sem munkar brugguðu forðum í klaustr-
um. Til að komast að því hvað var á borðum
þessara biskupshjóna í lok sautjándu aldar, var
grafinn upp á Þjóðminjasafninu pöntunarlisti
frá 1679, sem títtnefndur Þórður sendi til kaup-
mannsins á Eyrarbakka. Og auðvitað krafðist
það meiri fyrirhafnar að afla fanga í þá tíð, á
vetrum þurfti að sækja þessar innfluttu vörur á
sleðum sem skaflajárnuð naut drógu.
En maturinn var ekki einungis að fornum sið,
því ýmislegt var gert til að færa stemninguna
sem næst 17. öldinni, maddaman í Skálholti,
Guðríður Gísladóttir eiginkona Þórðar, var end-
urvakin sérstaklega fyrir matargesti, hún skar í
okkur ketið og þjónaði til borðs íklædd glæstum
búningi sem saumaður hafði verið sérstaklega
eftir málverki sem til er af frúnni. Aðrar fram-
reiðslustúlkur voru í hversdagslegri búningum
eins og siður var með vinnufólk. Skreyting hlað-
borðsins var sótt í íslenska náttúru, þar mátti
finna þurrkaðan hrossaþara, trjágreinar og
jurtir, sem og steina. Tólgarkerti voru á borðum
og dúkarnir óstrauaðir og til þess ætlast að
matargestir þurrkuðu sér í þá að sautjándu ald-
ar sið. Gregoríanskur munkasöngur hljómaði
lágt undir borðum og Margrét Bóasdóttir
stjórnaði nokkrum söngfuglum úr unglingakór
Selfosskirkju, sem sungu rammíslensk þjóðlög á
milli þess sem fólk renndi niður fjölbreyttum
réttum. Það er gott að koma í Skálholti enda
talar staðurinn sjálfur til fólks, eins og Pétur
rektor komast að orði. I skólanum er boðið upp
á góða aðstöðu og þjónustu fyrir ferðamenn,
LAUGARDAGUH '29.' APRÍL 2000 35
Guðríður Gísladéttir, eiginkona Þérðar bisk-
ups Þorlákssonar, var endurvakin sérstak-
lega fyrir matargesti. Hún skar ketið ogþjén-
aði til borðs íklædd glæstum búningi sem
saumaður hafði verið eftir málverki af
frúnni.
17. aldar kvöldverður í
Skálholti
Fordrykkur
Kúmensnafs
Forróttir
Marineraðir sveppir á túnsúru, ofnbakaður
silungur á njólablaði með skyrsósu
Hlaðborð - aðairéttir
Kálsúþa, grænmetissalat, hangikjöt, salt-
kjöt, soðið lambakjöt, harðfiskur og smjör,
hveitikökur og gi-óft brauð
Drykkjarföng
Mjöður og mysa
Hlaðborð - eftirréttir
Skyr og rjómi, sveskjur, gráfíkjur og rúsínur
með hunangssósu, ostar, hnetubrauð og
steiktir hveitipartar.
bæði einstaklinga og hópa. Gistiaðstaða er fyrir
28 manns í skólanum og að auki geta 40 manns
dvalist í Skálholtsbúðum. Sífellt fleiri sækja
þangað til að halda ráðstefnur, námskeið eða
hvers konar fundi. Nýjasta dæmið er sýning á
íkonum sem opnuð var í Skálholti 11. apríl og
fyrirlestur sem dr.Yuri Bobrov íkonafræðingur
hélt þar um. Blómlegt tónlistarlíf einkennir
staðinn og ber þar hæst hina árlegu sumartón-
leika og eins eru kyrrðardagar orðnir fastur lið-
ur í dagskrá Skálholts. Vert er að nefna hina
sérstöku tíðagjörð sem er alla virka daga í Skál-
holtskirkju kl: 9:00 og 18:00. Þar eru sungnir
Davíðssálmar og gamlir himnasöngvar að klass-
ískum sið og allir sem koma til kirkju taka þátt í
tíðagjörðinni. Nýlega gerði Skálholtsskóli
samning við Háskóla Islands um samstarf sem
felst m.a í því að HI hefur lagt tæki og annað
slíkt til skólans og á móti kemur að háskólafólk
dvelur í Skálholti við fræðastörf og annað. Eins
hafa Siðfræðistofnun og Skálholtsskóli hrundið
af stað fundaröð um siðferðileg álitamál í ís-
lensku samfélagi. Fyrsti fundurinn var haldinn í
Skálholti í lok mars og þá voru teknar fyrir
erfðarannsóknir og meðferð heilsufarsupplýs-
inga. Þarna komu saman fjölmargir fulltrúar
kirkju, heilbrigðismála, stjórnmálaflokka, sið-
fræðistofnunar og erfðagreiningafyrirtækja og
skiptust á skoðunum. Þetta er ánægjuleg viðbót
við hið fjölbreytta starf sem fram fer í Skálholti
og ljóst er að tekist hefur farsællega að efla
tengsl kirkju og þjóðlífs á þessum fornfræga
stað. Við renndum úr hlaði, þó nokkurs vísari og
Bjarni bryti sá sannarlega til þess að við sáluð-
umst ekki úr hungri þetta kvöld og óhætt er að
mæla eindregið með 17. aldar krásum þeim sem
hann og aðstoðarkonur hans töfra fram af mik-
illi list. Að lokum má geta þess að boðið verður
upp á sígildan íslenskan hádegisverð í Skál-
holtsskóla í sumar og eins stendur til að útbúa
matseðil frá miðöldum í tengslum við ráðstefnu
miðaldafræðinga í maí, og aldrei að vita nema
þess háttar máltíðir verði einnig boðnar al-
menningi síðar meir.