Morgunblaðið - 04.05.2000, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra ræddi við starfsbróður sinn í Kína
Morgunblaðið/Áslaug Óttarsdottir Guðni smitaðist af kampylobacter í Kfna og
A fundi með landbúnaðarráðherra Kína, Chen Yaobang. Guðna á vinstri hönd er Olafur Egilsson telur líklegt að hann hafí smitast við að
sendiherra í Kína. Auk þess að ræða við ráðherrann heimsótti Guðni nokkur fyrirtæki. halda á þessum strútsunga.
Áhugi á gagnkvæmum sam-
skiptum á sviði landbúnaðar
íslenski hópurinn samankominn á Torgi hins himneska friðar í Peking.
landbúnaðarráðherra við Chen Yaob-
ang, landbúnaðarráðherra Kína, kom
fram gagnkvæmur vilji um að taka
upp samstarf á sviði landbúnaðar-
mála milli ríkjanna. Guðni var í opin-
berri heimsókn í Kína dagana 31.
mars til 8. apríl sl. í boði landbúnaðar-
ráðherra Kína.
Með Guðna í för var tíu manna hóp-
ur en þar að auki Ólafur Egilsson,
sendiherra í Kína, og fleiri starfs-
menn sendiráðsins. Túlkur í ferðinni
var Ragnar Baldursson.
Auk þess að eiga fund með Chen
Yaobang fór Guðni í heimsóknir í fyr-
irtæki og til borganna Peking, Shang-
hai og Sían. Ráðherramir fóru yfir
málefni þjóðanna í viðræðum sínum.
„Kínverjar eru afar þægilegir
menn og bera mikla vinsemd til Is-
Iands. Mér fannst ég hitta þar stolt og
lífsglatt fólk sem horfir til framtíðar
björtum augum,“ segir Guðni.
Hann segir að Kínveijar geti ekki
síst miðlað íslendingum af reynslu
sinni af fiskeldi, en Kínverjar eni
mestu framleiðendur eldisfisks í
heiminum. Guðni sagði jafnframt að
gestgjafarnir hefðu sýnt mikinn
áhuga á viðræðum um mjólkuriðnað
og úrvinnslu á mjólk sem Islendingar
hafi mikla reynslu af. „Það er afar lítil
mjólkumeysla í Kína, eða þetta frá 3
lítrum á mann upp í 25 lítra á ári.
Hver íslendingur neytir að meðaltali
360 lítra af mjólk á ári. Þeir vilja auka
mjólkurneysluna og styrkja þannig
heilsufar og hreysti þjóðar sinnar."
Með Guðna í för var m.a. Birgir
Guðmundsson, mjólkurbússtjóri á
Selfossi, og sýndu Kínverjar sérstak-
lega mikinn áhuga á íslenska skyrinu
þegar þeim var sýnt það. Kínveijar
óskuðu eftir samstarfi á sviði mjólk-
uriðnaðar og segir Guðni að hugsan-
lega geti orðið af útflutningi á þekk-
ingu á þessu sviði. Jafnframt er
hugsanlegt að kínverskir mjólkur-
fræðingar komi hingað til lands í
þessu skyni.
Gaf ráðherranum
og frú æðardiínssængur
Guðni segir merkilegt að koma í
þetta land þar sem íbúar em 1,3 millj-
arðar. Þar af teljast til bændafólks
800 milljónir manna. Hann telur mjög
mikilvægt að íslendingar haldi mikl-
um vinskap við Kína. Þetta sé stór-
veldi. „Mér varð hugsað til þess í
ferðinni að við emm með nýja at-
vinnugrein hér á landi, ferðaþjónust-
una, sem er í mikilli uppbyggingu.
Efnahagur fólks í Kína er að batna og
Kínveijar eiga eftir að ferðast mikið.
Ef 10% Kínveija tækju upp á því að
ferðast um veröldina þá er það hvorki
meira né minna en 130 milljónir
manna. Þarna er því gríðarlega stór
markaður. Okkur var sagt að Kín-
verjar vildu helst ferðast til landa
sem væm allt öðravísi en þeir eiga að
venjast, þ.e. á norðlægar og kaldar
slóðir. Þeir gætu því skilað okkur
miklu,“ segh- Guðni.
Guðni færði landbúnaðarráðherra
Kína og eiginkonu hans íslenskar æð-
ardúnssængur. Hann sagði að gjöfin
hefði glatt ráðherrann mjög sem
kvaðst þekkja hvílíkar gersemar ís-
lenskar æðardúnssængur væm.
Þurfa
einnig at-
vinnuleyfi
í LÖGUM sem Alþingi samþykkti í
síðustu viku er kveðið á um að undan-
þága laga um atvinnuréttindi útlend-
inga taki ekki til nektardansmeyja
sem starfa á nætm’klúbbum. Jafn-
framt er félagsmálaráðherra veitt
lagaheimild til að setja reglur sem
skilgreina hveijir falli undir undan-
þáguna og geti talist hstamenn í skiln-
ingi laganna. Markmið breytinganna
er að gera nektardansara frá löndum
utan Ewópska efnahagssvæðisins,
sem koma hingað til lands í atvinnu-
skyni, háða reglum um atvinnuleyfi.
í lögum ft-á 1994 um atvinnurétt-
indi útlendinga em útlendingar sem
gegna tilteknum störfum undanþegn-
m kröfu um atvinnuleyfi, enda ekki
gert ráð fyrir að þeir starfi hér á landi
lengur en í fjórar vikur á hveiju tólf
mánaða tímabili. Gildh’ undanþágan
m.a. um listamenn, og hlutu nektar-
dansmeyjar undanþáguna þar sem
þær væm listamenn.
Við umræður um fmmvarp félags-
málaráðherra á Alþingi kom m.a.
fram að yfirvöld vildu spoma við
straumi nektardansmeyja til landsins
og var því gripið til þess ráðs að
leggja til að undanþáguheimildin yi’ði
skilgreind nánar. Fram kom í nefnd-
aráliti meiri hluta félagsmálanefndai’
Alþingis við þingmeðferð málsins að
undanþáguákvæðunum hefði aldrei
verið ætlað að halda uppi viðvarandi
atvinnustarfsemi útlendinga hér á
landi með þeim hætti sem orðið hefði
með nektardansmeyjar.
Á að auðvelda eftirlit
Þurfa nektardansarar framvegis
að afla sér atvinnuleyfis en til að um-
sóknir um atvinnuleyfi séu teknar til
afgreiðslu þarf Útlendingaeftirhtið að
hafa veitt útlendingi dvalarleyfi, und-
irskrifaður ráðningarsamningur til
tiltekins tíma eða verkefnis þarf að
liggja fyrir og sömuleiðis umsögn
stéttarfélags á staðnum í hlutaðeig-
andi starfsgrein.
Löggjöfin felur því í sér að unnt
verðui’ að skylda erlenda nektardans-
ara sem hingað koma frá löndum utan
Evrópska efnahagssvæðisins til að
sækja um dvalarleyfi hér á landi og
leggja fram heilbrigðisvottorð. Er
vonast til að þessar breytingar auð-
veldi yfn-völdum að hafa eftirlit með
a.m.k. hluta þeirra kvenna sem hing-
að koma í stuttan tíma árlega í þeim
tilgangi að stunda nektardans.
Héraðsdómur sýknar Sigurð G. Guðjónsson í meiðyrðamáli
Ekki talin ástæða til
að ómerkja ummælin
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur sýknað Sigurð G. Guðjónsson
hæstaréttarlögmann af dómkröfum
Kjartans Gunnarssonar, fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins,
í meiðyrðamáli sem hann höfðaði í
kjölfar blaðagreinar Sigurðar í Degi
31. ágúst 1999.
Kjartan krafðist m.a. að tvenn
ummæli Sigurðar í greininni yrðu
dæmd dauð og ómerk og hann
dæmdur til greiðslu 600 þúsund kr. í
miskabætur. Sigurður fjallaði í
grein sinni um atvik sem hefði átt að
eiga sér stað í kjölfar þess að hann
ásamt Jóni Ólafssyni og fleirum
keypti hlutabréf í íslenska útvarps-
félaginu hf. 1994. Sigurður lýsti m.a.
samskiptum félagsins við Landsb-
ankann svo:
„Þá var leitað eftir viðskiptum við
Landsbanka íslands. í stóli for-
manns bankaráðs Landsbanka ís-
lands sat þá Kjartan Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins og formaður útvarpsrétt-
anefndar, sem fer með mál frjálsu
útvarpsstöðvanna. 29. júlí 1994
barst íslenska útvarpsfélaginu hf.
bréf frá Landsbankanum, þar sem
bankinn hafnaði að eiga viðskipti við
félagið. Engar skýringar fengust,
þó var okkur sagt sem stóðum í for-
svari fyrir viðræðum við bankann að
Kjartan Gunnarsson legðist gegn
því að Landsbanki íslands ætti við-
skipti við félag sem Jón Ólafsson
ætti aðild að. Engar formlegar við-
ræður fóra fram við Búnaðarbanka
íslands, þar sem okkur var sagt í óf-
ormlegum viðræðum, að bankinn
gæti ekki tekið íslenska útvarpsfé-
lagið hf. í viðskipti, þar sem sumir
þeirra, sem höfðu orðið undir í Is-
lenska útvarpsfélaginu hf. á hlut-
hafafundinum í júlí væra viðskipta-
vinir bankans og það gæti styggt
þá, ef íslenska útvarpsfélaginu hf.
yrði veitt fyrirgreiðsla eða það tekið
í viðskipti við Búnaðarbanka ís-
lands. Sem betur fer voru á þessum
tíma líka til í landinu sparisjóðir,
þar sem litið var á viðskipti við Is-
lenska útvarpsfélagið hf. sem góðan
kost og ábatasaman fyrir sparisjóð-
ina. Þar var ákvörðun um viðskipti
við íslenska útvarpsfélagið hf. tekin
á gmndvelli viðskiptalegra hags-
muna sparisjóðanna, en ekki á þeim
forsendum hvað væri Sjálfstæðis-
flokknum fyrir bestu og forkólfum
fjármálaráðs flokksins þénanlegt."
Afgreiddi ekki lánsviðskipti
í niðurstöðu dómsins kemur m.a.
fram að í starfi Kjartans sem
bankaráðsformanns fólst ekki af-
greiðsla erinda um lánsviðskipti og
þess væm ekki merki að hann hafi
tekið þátt í þeirri afgreiðslu bank-
ans að neita Islenska útvarpsfélag-
inu um lánsviðskiptin. Með um-
stefndum ummælum Sigurðar væri
hins vegar gefið í skyn, með því að
bera fyrir sig óljósar sögusagnir, að
afstaða stefnanda til Jóns Ólafsson-
ar, eins af eigendum félagsins, hafi
ráðið afgreiðslu bankastjórnarinnar
á erindi félagsins. Dómurinn taldi
að þótt fyrrgreind ummæli væm
sett fram af vissu smekkleysi og
fælu í sér aðdróttun um málsatvik,
sem ekki höfðu verið staðreynd,
þættu þau þó ekki þess eðlis að óm-
erkja bæri þau í því samhengi sem
þau voru sett fram. Jakob R. Möller
hrl. var lögmaður stefnandaog
Gestur Jónsson hrl. lögmaður
stefnda. Dómari var Hervör Þor-
valdsdóttir.
Evropufundur
Interpol hérlend-
is í fyrsta sinn
AÐALFRAMKVÆMDASTJÓRI
alþjóðalögreglunnar Interpol,
Raymond Kendall, verður staddur
hér á landi ásamt fleiri háttsettum
embættismönnum innan Interpol
um miðjan mánuðinn vegna 29.
Evrópufundar Interpol sem hald-
inn verður í fyrsta sinn á íslandi á
Grand Hóteli dagana 17. til 19.
maí.
Daginn áður en fundurinn hefst
mun Kendall heimsækja forseta
íslands, Ólaf Ragnar Grímsson,
Sólveigu Pétursdóttur dómsmála-
ráðherra og Harald Johannessen
ríkislögreglustjóra.
Þátttakendur frá 46
Evrópuríkjum
Þátttakendur eru frá 46 Evróp-
uríkjum og e.t.v. tveimur betur og
þegar hafa 120 tilkynnt um komu
sína að ótöldum áheyrnarfulltrúum
ýmissa samtaka og alþjóðastofn-
ana. Meðal þeirra verður næs-
tæðsti maður stríðsglæpadóm-
stólsins í Haag.
Alþjóðadeild ríkislögreglustjóra
skipuleggur ytri umgjörð fundar-
ins í samvinnu við ráðstefnudeild
Ferðaskrifstofu íslands og íslensk-
ir lögreglumenn munu annast ör-
yggi fundarmanna með stöðugri
gæslu á fundarstað á meðan fund-
urinn stendur yfir.
DNA-rannsóknir og geymsla
fíngrafara meðal efnis
A fundinum munu vinnuhópar
lögreglumanna Interpol skila af
sér niðurstöðum margvíslegra
verkefna sem fjalla m.a. um sam-
ræmingu á töku og geymslu
fingrafara, notkun lögregluhunda,
nýtingu DNA-rannsókna, löggæslu
í Bosníu-Herzegóvínu, vopna- og
sprengiefnaleit og margt fleira.
Til fundarins koma vararíkis-
lögreglustjórar margra ríkja auk
þýska ríkislögreglustjórans, for-
seta Bundeskriminalamt, og vara-
forseta Interpol fyrir Evrópu, sem
jafnframt er fundarstjóri.
Gert er ráð fyrir að Raymond
Kendall, aðalframkvæmdastjóri
Interpol, Haraldur Johannessen
ríkislögreglustjóri og Sólveig Pét-
ursdóttir dómsmálaráðherra sitji
fyrir svörum blaðamanna að lok-
inni opnunaratöfn fundarins.