Morgunblaðið - 04.05.2000, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
1. maí í Stykkishólmi
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
Aðilar í ferðaþjónustu í Stykkishólmi og nágrenni heimsóttu um daginn
hvern annan og kynntu starf sitt. Hór er hópurinn að koma frá því að
skoða Breiðafjarðarfcrjuna Baldur og þar sagði Guðmundur Lárusson
frá rekstri hennar.
Fólk í ferðaþjón-
ustu hittist
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnarsambandsins og Einar
Karlsson, formaður Verkalýðsfélags Stykkishóims á hátíðarfundi fé-
lagsins 1. maí. Þess var minnst að Verkalýðsfélagið er 85 ára.
Stykkishólmur - Efling Stykkis-
hólms efndi til kynnisferðar fyrir
þá félagsmenn sína sem eru í ferða-
þjónustu. Lagt var af stað í svokall-
aðan „samhristing“ miðvikudaginn
26. aprfl. Tilgangur ferðarinnar
var að aðilar í Stykkishólmi og ná-
grenni, sem með einum eða öðrum
hætti þjónuðu ferðamönnum,
kynntu sig hver fyrir öðrum og
kynntust af eigin raun þeirri þjón-
ustu sem til staðar er á svæðinu.
Með í för voru 34 manns frá 25 fyr-
irtækjum og stofnunum.
Komið var við á 8 stöðum þar
sem þátttakendum var kynnt starf-
semi og boðnar veitingar. Var m.a.
farið um borð í Baldur, Þingvellir
og Bjarnarhöfn heimsótt svo og
sundlaugin og að lokum var borðað
á Foss-hótelinu í Stykkishólmi.
Á svæðinu er margt í boði fyrir
ferðafólk og getur það átt ánægju-
lega daga og haft nóg fyrir stafni.
Var mál manna að vel hefði til tek-
ist með þessa ferð og væntu menn
þess að þessi kynni stuðluðu að já-
kvæðri og aukinni samvinnu, sem
er svo mikils virði í allri ferðaþjón-
ustu.
Stykkishólmi - Verkalýðsfélag
Stykkishólms hélt upp á 1. maí og
minntist um leið 85 ára afmælis fé-
lagsins. Hátíðarfundur var haldinn í
félagsheimilinu kl 15, þar sem bæj-
arbúum var boðið til fagnaðar. Einar
Karlsson setti fundinn og sagði frá
aðdraganda stofnunar Verkalýðsfé-
lags Stykkishólms og rakti aðstæður
í Hólminum á fyrstu árum félagsins.
Margt hefur breyst síðan þá, en mik-
ilvægt er að halda minningunum til
haga og rifja þær upp annað slagið til
að fá samanburð á kjörum fólks í dag
ogþá.
Guðmundur Gunnarsson, formað-
ur Rafíðnarsambands Islands, flutti
ræðu dagsins. Hann ræddi mjög um
mikilvægi verkalýðshreyfingarinnar
og nauðsyn þess að þar ríki sam-
staða. Þjóðfélaginu er nauðsyn á
sterkri hreyfingu og ekki síður ís-
lenskum atvinnurekendum. Að hans
mati er stærsti árangur hreyfingar-
innar á seinni árum þjóðarsáttin
1990. Þá tókst að snúa við kolrangri
efnahagsstjórnun. Guðmundur sagði
að vandi verkalýðshreyfingarinnar
sé að gera þannig samninga fyrir
fólkið sitt að kaupmáttur sannanlega
vaxi. „Hreyfingin hefur verið á réttri
leið,“ sagði Guðmundur. „Laun
margra hópa hafa verið leiðrétt og
lægstu laun hafa tvöfaldast frá árinu
1995 án þess að hækkanirnar hafi
verið hirtai' af okkur jafn harðan og
án þess að verðbólgan færi á fulla
ferð.“
Það kom fram hjá Guðmundi að
hann óttaðist að fákeppni yrði ríkj-
andi á Islandi. Hann tók sem dæmi
olíufélögin og matvöruverslunina.
„íslendingar búa við mesta okur í
matvöru í heimi. Matvaran hér er
óheyrilega dýr sem stafar fyrst og
fremst af fákeppni. Á þessu verður
að vera breyting. Kröfur okkar í dag
til handa félagsmönnum eru lækkun
matvöru og lækkun vaxta og fyrir
því skulum við berjast," sagði Guð-
mundur að lokum.
Á samkomunni lék skólahljóm-
sveit Stykkishólms undir stjóm
Daða Þórs Einarssonar. Sönghópur-
inn Adam og Júlía flutti dægurlög
undir stjórn Sigrúnar Jónsdóttur.
Harmonikkuhljómsveit Tónlistar-
skóla Stykkishólms spilaði undir
stjórn Hafsteins Sigurðssonar og fé-
lagar í Verkalýðsfélagi Stykkis-
hólms lásu úr bréfum frá fyrstu ár-
um félagsins. Að lokum var öllum
gestum boðið uppá veitingar.
Hátíðarsamkoman í Stykkishólmi
var mjög vel sótt og er talið að þar
hafi verið um 250 manns. Formaður
Verkalýðsfélags Stykkishólms er
Einar Karlsson
Vélgæslu-
menn út-
skrifast
Borgarnesi - Fimmtán Borg-
nesingar luku nýverið vélgæslu-
námskeiði á vegum Símenntun-
armiðstöðvar Vesturlands, sem
gefur réttindi til vélgæslu allt
að 300 hestafla mótora.
Flestir voru áður búnir að
taka svokallað pungapróf og eru
þessir Borgnesingar því orðnir
færir í flestan sjó. Utskriftin fór
fram á Matstofunni í Borgar-
nesi sem gengur oftast undir
nafninu Dússabar. Þar sungu
vélaverðimir fram eftir kvöldi
við undirleik gleðigjafans Ingi-
mars harmonikkuleikara frá
Hvanneyri.
Rannsóknarmiðstöð HI í jarð-
skjálftaverkfræði opnuð á Selfossi
Selfossi - Samstarfssamningur milli
Háskóla íslands, sveitarfélagsins
Árborgar og Almannavarna ríkisins
um stofnun og rekstur Rannsókna-
miðstöðvar í jarðskjálftaverkfræði
með stuðningi ráðuneyta mennta-
mála, dómsmála og bæjarstjórnar
Árborgar var undirritaður í gær,
þriðjudaginn 2. maí, í húsnæði hinn-
ar nýju rannsóknarmiðstöðvar á
Austurvegi 2a í miðbæ Selfoss.
Heildarkostnaður við frágang húss
og lóðar nemur 165 milljónum
króna. Hin nýja rannsóknarmiðstöð
verður opin almenningi til sýnis
föstudaginn 5. maí klukkan 14-18.
S'
I
1
I
1
1
1
1
1
1
I
0
Arkitektar
Hönnuðir
Valerio De Cao frá Ítalíu verður með
kynningu á hinu heimsþekkta Bisazza
mosaic í dag milli kl. 17 og 18.
Valerio verður í versluninni
frá kl. 10-12 og 14-17.
Allir velkomnir.
0
jgHlgjgiBIBjgMgMgMMMMMMMMMMMfllHl
MOSAIC/KYNNING
■
I
STÓRHÖFDA 21, SÍMI 545 5500, E-MAIL: FLIS@FLIS.IS
0
I
i
i
i
s
I
s
0
Rannsóknarmiðstöðin er sett á
stofn í samræmi við ákvæði sam-
starfssamnings frá 1997 milli bæjar-
stjómar Árborgar og Háskóla Is-
lands um varnir og viðbúnað gegn
jarðskjálftum og öðrum náttúru-
hamförum. Stofnun miðstöðvarinnar
er liður í stefnu Háskóla íslands að
efla starfsemi á landsbyggðinni. Við
stofnun rannsóknarmiðstöðvarinnar
flyst starfsemi Aflfræðistofu Verk-
fræðistofnunar Háskóla Islands til
Selfoss en Verkfræðistofnun er
rannsóknarvettvangur fastráðinna
kennara við verkfræðideild Háskóla
íslands. Við miðstöðina vinna nú sjö
starfsmenn og er gert ráð fyrir
fjölgun þeirra í náinni framtíð.
Alþjóðalegar rannsóknir og
miðlun upplýsinga
Hlutverk hinnar nýju rannsókn-
armiðstöðvar á Selfossi er að efla al-
þjóðlegar rannsóknir á háskólastigi í
jarðskjálftaverkfræði og skyldum
greinum, miðla upplýsingum um
rannsóknir, halda ráðstefnur og
veita fræðimönum og háskólastúd-
entum aðstöðu til rannsókna. Veiga-
mikil þáttur í starfsemi miðstöðvar-
innar er rekstur mælakerfis til þess
að afla upplýsinga um jarðskjálfta
og þau áhrif sem þeir hafa á mann-
virki. Fyrstu mælar þessa kerfis
voru settir upp á Selfossi árið 1982
og hafa verið samfellt í rekstri síðan.
Kerfið hefur verið aukið og endur-
bætt og nær nú um allt land.
Með tilkomu miðstöðvarinnar
opnast nýir og athyglisverðir mögu-
leikar varðandi miðlun upplýsinga
til almennings og fræðslu í skólum
um jarðskjálfta og áhrif þeirra, ekki
síst félagsleg og efnahagsleg ásamt
því að fylgjast með hvort miðlun og
fræðsla hefur tilætluð áhrif og leiðir
til minni áhættu.
Aukið samstarf, menntun
og öryggi
Páll Skúlason háskólarektor ílutti
ávarp við athöfnina og sagði m.a. að
hann vonaðist til að opnun rann-
sóknarmiðstöðvarinnar yrði upphaf-
ið að samstarfi heimamanna við
fleiri háskólastofnanir. Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
lagði áherslu á að með þessu sam-
starfi væru efldir möguleikar til
Morgunblaðið/Sigurður Jðnsson
Frá undirritun samnings um Rannsóknarstofnun í jarðskjálftafræðum.
Björn Bjarnason menntamálaráðherra, Ingunn Guðmundsdóttir, for-
maður bæjarráðs Árborgar og Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra.
í aftari röð eru Páll Skúlason háskólarektor, Karl Björnsson bæjarstjóri
og Sólveig Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Starfsmenn Rannsóknarstofnunar HÍ í jarðskjálftafræðum fyrir framan
inngang stofnunarinnar að Austurvegi 2a á Selfossi.
menntunar og upplýsingagjafar sem
kæmi sér vel fyrir skólastofnanir á
Suðurlandi s.s. Fjölbrautaskóla Suð-
urlands. Sólveig Pétursdóttir dóms-
málaráðherra sagði í sínu ávarpi að
möguleikarnir ykjust á því að efla
forvarnir enn frekar svo treysta
mætti betur öryggi borgaranna
vegna jarðskjálfta. I því efni væri
mikilvægt að hafa aðgang að góðri
þekkingu á áhrifum jarðskjálfta.
Karl Björnsson bæjarstjóri rakti
verkefnaferilinn frá því fyrst kom til
tals að Aflfræðistofa HÍ flytti til Sel-
foss. Hann sagði þýðingarmesta
þáttinn í flutningi stofunnar hversu
mikill velvilji hefði ríkt og að frum-
kvæði hefði komið frá starfsmönn-
um sjálfum. Ingunn Guðmundsdótt-
ir, formaður bæjarráðs Árborgar,
sagðist vona að starfsmenn fyndu
sig velkomna í sveitarfélaginu Ar-
borg. Tilfærsla stofnana efldi
byggðarkjarna og svo væri nú í Ár-
borg með flutningi rannsóknarstofn-
unarinnar til Selfoss. Við lok at-
hafnarinnar flutti sr. Þórir Jökull
Þorsteinsson blessunarorð.