Morgunblaðið - 04.05.2000, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2000 31
LISTIR
Dagskrá
Listahátíðar
á bækling
DAGSKRÁ Listahátíðar í
Reykjavík er komin út í
litprentuðum 68 síðna bækl-
ingi. I honum eru upplýsingar
um öll 32 atriði Listahátíðar,
efnisskrár, miðaverð og dag-
skrá hátíðarinnar frá degi til
dags.
Einnig eru í bæklingnum
ávörp Björns Bjarnasonar
menntamálaráðherra, Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur
borgarstjóra og Sveins Ein-
arssonar formanns fram-
kvæmdastjórnar Listahátíðar
í Reykjavík 2000.
Listahátíð verður sett í
Þjóðleikhúsinu 20. maí nk. og
stendur til 8. júní. Verndari
hátíðarinnar er forseti Is-
lands, Ólafur Ragnar Gríms-
son, og heiðursforseti Vlad-
imir Ashkenazy. Hægt er að
nálgast bæklinginn hjá miða-
sölu Listahátíðar í Banka-
stræti 2. Honum verður einnig
dreift víða á höfuðborgar-
svæðinu og úti á landi.
Slóð heimasíðu hátíðarinnar
er : www.artfest.is
Afmæliskveðja Norræna hússins til Norrænu stofnunarinnar er nýtt
dansverk í flutningi Láru Stefánsdóttur og Guðna Franzsonar.
Norræna stofnunin á
Alandseyjum 15 ára
í ÁR eru liðin 15 ár frá því að Nor-
ræna stofnunin á Álandseyjum hóf
starfsemi sína, en hlutverk hennar
er m.a. að efla menningarlíf Álands-
eyinga og styrkja sambandið við
hin Norðurlöndin og sjálfstjórnar-
svæðin. I tilefni afmælisársins
verður afmælishátíð í Mariehamn
dagana 5.-7. maí. Fjölbreytt dag-
skrá verður í boði með þátttöku
listamanna, m.a. frá Islandi, Græn-
landi, Færeyjum og Eystrasalts-
löndum.
Sem afmæliskveðja frá Norræna
húsinu í Reykjavík til Norrænu
stofnunarinar á Álandseyjum,
munu Lára Stefánsdóttir dansari
og Guðni Franzson tónlistarmaður
frumflytja nýtt dansverk, „Lady
Fish and Chips“, að þessu tilefni.
„Lady Fish and Chips“ er óður til
fjallkonunnar íslensku, sem er
„bjarteyg, brjóstafögur, beinvaxin,
sviphrein", íklædd hinum fegursta
skautbúningi og fönguleg í augum
guma heimsins. Hún á ef til vill í
svolitlum tilvistarvandræðum, vill
róa „bát á fískimiði" en jafnframt
svífa seglum þöndum á bárum út-
hafanna, í átt til suðursins sæla.
Inn í þennan nýja dans fléttast
kveðskapur tveggja genginna Þjóð-
skálda og jafnframt tveggja Jónasa,
þeirra Hallgrímssonar og Árnason-
ar. „La Belle“ og „Ég bið að heilsa"
eftir Jónas Hallgrímsson syngur
Guðni við eigin lög en einnig notast
þau við hljóðritun frá tónleikum.
Jónasar Árnasonar og Kelta, sem
haldnir voru á haustdögum árið
1995 (e.k. svanasöngur hagyrðings-
ins og þingmannsins), en þar syng-
ur hann kvæði sitt um „Lady Fish
and Chips“ við gamalt stríðsára lag,
„Kiss the Boys Goodbye", sönginn
um konuna sem seldi Bretanum
ekki einungis þjóðarrétt sinn held-
ur einnig „eitthvað annað“.
Framkvæmdastjóri Norrænu
stofnunarinnar er Mikkjal Helms-
dal frá Færeyjum
RA stefnir að
öðru uppnámi
London. Morgfunblaðið.
THE Royal Academy í London er
nú með í undirbúningi nýlistasýn-
ingu í sumar sem á ekki að gefa
hinni umdeildu Sensation-sýningu
fyrir tveimur árum neitt eftir og á
helzt að ganga enn lengi-a en þar
var gert. The Daily Telegraph hef-
ur eftir forráðamönnum listasafns-
ins, að sýningin, sem mun heita
Apocalypse, eigi að vera veraldleg
tjáning samtímalistamanna á sög-
unni um Jóhannes skírara. Hún á
að endurspegla ríkidæmi, fegurð,
hrylling, flækjur og fjölbreytni
þess heims, sem við lifum í.
The Royal Academy hefur á síð-
ustu árum, m.a. með Sensation og
sýningu á verkum Monet í fyrra,
tekizt að snúa rekstrinum úr tapi í
hagnað og listasafnið er komið í
hóp þeirra tíu staða, sem mest eru
sóttir í London.
Umdeildur hakakross
Meðal verka, sem talin eru
munu vekja sterk viðbrögð, er
hakakross Chapman-bræðra,
myndaður af 10.000 særðum her-
mönnum, sem eiga að sýna okkur
stríðshrylling tuttugustu aldarinn-
ar. Chapman-bræður áttu tvö verk
á Sensation-sýningunni, sem vöktu
sterk viðbrögð; annað var tilvitnun
til Stríðhryllings Goya og hitt voru
barnadúkkur méð kynfæri í stað
munns og nefs. Síðarnefnda mynd-
in var í sérherbergi og var aðgang-
ur bannaður yngri en 18 ára.
Annað verk á sýningunni nú
verður höggmynd Italans Maurizio
Cattelan af Jóhannesi Páli páfa að
verða fyrir loftsteini. Verk þetta
var sýnt í Sviss á síðasta ári og
hefur listamaðurinn breytt því til
samræmis við aldur páfa.
Á Sensation-sýningunni voru
verk úr safni Charles Saatchi, en
til nýju sýningarinnar hefur Royal
Academy fengið 13 listamenn til að
búa til verk og munu þeir sýna
hver í sínum sal. Ekkert af lista-
verkunum er tilbúið til sýningar
eins og er. Af öðrum listamönnum
nefnir The Daily Telegraph
Bandaríkjamanninn Jeff Koons,
Angus Fairhurst og Japanann
Mariko Mori. Einnig Bretann
Chris Cunningham, sem hefur m.a.
unnið myndbandsmyndir fyrir
Björk, Madonnu og Þjóðverjann
Wolfgang Tillmans.
Meðan Sensation stóð yfir voru
unnin skemmdarverk á andlits-
mynd af morðingjanum Myra
Hindley, sem gerð var úr lófaför-
um barna, og rúður í listasafninu
voru brotnar. Norman Rosenthal,
sýningarstjóri RA, segir, að
Sensation hafi skapað allt það um-
tal, sem stefnt var að, og um fyrir-
ætlanirnar nú segir hann, að það
sé einhver fagurfræði í áfallinu
sem sé mjög flókin, en um leið
nijög þýðingarmikið viðfangsefni.
Litið er á þessa sýningu sem til-
raun Royal Ácademy til þess að ná
frumkvæðinu aftur úr höndum
Tate-listasfnsins, en nýlistasafn
þess verður opnað í nýjum húsa-
kynnum í næstu viku.
Valskórinn í
Friðrikskapellu
HINIR árlegu vortónleikar
Valskórsins verða haldnir í
Friðrikskapellu við Hlíðarenda í
kvöld, fimmtudagskvöld, kl.
20.30.
Á efnisskránni eru 12 lög,
m.a. eftir Sigfús Halldórsson,
Þorkel Sigurbjörnsson, Inga T.
Lárusson o.fl. Stjórnandi kórs-
ins er Guðjón Þorláksson.
KIA UMBOÐIÐ • FLATAH RAU Nl 31 • HAFNARFIRÐI • SIMI 555 6025
Alvöru ferðalangur!
KIA Sportage Wagon er alvöru jeppi með háu og lágu drifi og
LSD læsingu á afturdrifi. KIA Sportage er byggður á öflugri
grind og 2000cc 4 cyl. vélin tryggir 128 hestöfl. Nú fæst
hann á verði sem fáir leika eftir með jeppa í þessum
gæðaflokki. Fæst einnig 5 dyra Classic.
frákr.1.750.000.