Morgunblaðið - 04.05.2000, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 04.05.2000, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÍHKfé ILM. .t 5lUOAdyiÍMMi,'I fe? FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2000 35 LISTIR Skemmtilegur spraðibassi LEIKLIST L e i k f é I a g Reykjavíkur KYSSTU MIG, KATA Höfundar leiktexta: Bella og Sam Spewack, byggt á Snegla tamin eftir William Shakespeare. Þýð- andi leiktexta: Gísli Rúnar Jóns- son. Höfundur tónlistar og söng- texta: Cole Porter. Leikstjóri: Þórhildur Þorleifsdóttir. Tónlist- arstjóri: Óskar Einarsson. Dans- höfundur: Michéle Hardy. Búning- ar: David Blight. Leikmynd: Stígur Steinþórsson. Lýsing: Lár- us Bjömsson. Hljóð: Baldur Már Amgrímsson. Nýir leikarar og söngvarar: Bergþór Pálsson, Ragnhildur Gísladóttir og Rósa Guðný Þórsdóttir. Sunnudaginn 30. aprfl. VEGNA mannabreytinga í hópi leikara og söngvara í sýningu Leikfélags Reykjavíkur á Kysstu mig, Kata þykir ástæða til að gagnrýna frammistöðu nýliðanna í hópnum. Stærsta breytingin er sú að Bergþór Pálsson tekur við af Agli Ólafssyni í hlutverki Freds Gra- hams (Petrúsíós í brotum úr Snegla tamin). Hlutverkið er eins og sniðið á Bergþór, sem skapar hér skemmtilegan spraðibassa sem leikur sér að hvoru tveggja, að tæla Lilli Vanessi aftur til sín og að temja Kötu Shakespeares- dóttur. Undir niðri sést samt glitta í kvikuna, ást hans á henni, sem er ástæðan fyrir því að hann leggur allt í sölurnar til að fá hana aftur, þrátt fyrir hliðarhopp. Tvö einföld orð lýsa best þætti Bergþórs í sýningunni, kraftur og leikni. Sýningin rennur nú hratt og öruggt sína braut og þeir annmarkar sem komu í veg fyrir að hún gengi hnökralaust hafa slípast af henni. I þeim fjölmörgu atriðum þar sem Bergþór og Jó- hanna Vigdís Aj-nardóttir kljást í aðalhlutverkunum eru þau jafn- ingjar og hallar á hvorugt þeirra í leik, söng og glensi. Þau svara hvort öðru vel í leiknum þannig að kímnin í tilsvörunum kemur betur í ljós og sjálfur gi'undvöllur sýningarinnar, samband aðal- persónanna og forsendurnar fyrir því að þær nái aftur saman, er nú auðskiljanlegur. Þó kemur fyrir að Bergþór sé á hálum ís í grín- aktugheitunum en túlkunin slepp- ur alltaf fyrir horn. í atriðunum sem tekin eru úr Snegla tamin var framsögn hans einstök. Hann kom þessum margslungna, fyndna og fjölskrúðuga texta full- komlega til skila. Söngstíll Bergþórs litast auð- vitað af þjálfun hans sem óperu- söngvara og það fer eftir smekk hvers og eins hvort slík raddbeit- ing er talin hæfa lögum Porters, en Bergþór fór hér að öllu með gát og sigldi milli skers og báru. Og auðvitað er gaman að heyra þessi lög sungin af slíku öryggi og með þvílíkum léttleika án þess svo mikið sem að blása úr nös. Þegar sýningum á Kysstu mig, Kata og Stjörnum á morgunhimni lýstur saman fer Rósa Guðný Þórsdóttir með hlutverk Hattíar og fleiri smáhlutverk sem Sigrún Edda Björnsdóttir fer allajafna með, og Ragnhildur Gísladóttir tekur við af Eddu Björgu Eyj- ólfsdóttur sem Lúís Lane (Bjanka í Snegla tamin). Rósa Guðný bregður upp svip- mynd á lágum nótum af tauga- veiklaðri konu sem er umfram allt mannleg. Ragnhildi skortir ekki gjörvileikann í persónu glæfrakvendisins en hlutverkið krefst ýktari leikstfls og umfram allt miklu meiri krafts en hún sýnir hér. Söngurinn olli von- brigðum nema hvað Ragnhildi tókst vel að gera lagið „Því ertu svo þver“ að sínu. Atriðin sem byggjast á samskiptum hennar og Björns Inga Hilmarssonar urðu full litlaus fyrir vikið og í saman- burði við samband Lilliar og Freds urðu þau of lítilvæg til að skapa eftirminnilegar andstæður. Sveinn Haraldsson Verkúr Dalaleir í Búðardal LEIRLISTADEILD Listaháskóla Islands hefur í vetur unnið að verk- efninu Menning - náttúrulega sem er samstarfsverkefni skólans, Dala- byggðar og Reykjavíkur Menning- arborgar Evrópu árið 2000. í tengsl- um við verkefnið verður opnuð sýningin Er ég unni mest á morgun, föstudag kl. 17, í Stjórnsýsluhúsinu í Búðardal. Þar verður sýnd afrakst- ur rakubrennslu, en hinn 1. maí sl. var vígður viðarbrennsluofn við Listaháskóla Islands í Laugarnesi. Sýningin í Dalabyggð er afrakstur vinnu nemenda skólans og listafólks í Dalabyggð, þar sem tekinn var dalaleir til vinnslu í haust og farið um söguslóðir Laxdælu, sem er við- fagnsefnið í veggmyndum á sýning- unni. Jörgen Hansen gestakennari frá Danmörku hefur unnið að byggingu ofnanna undanfarið ásamt nemend- um, kennurum og listafólki við skól- ann. Verð frá kr. 2.340.000 ÖRYGGi KRAFTUR Grjóthálsi 1 • Sími söludeildar 575 1210 www.bl.is ÞÆGINDI ABS • Tveir loftpúðar • Þriggja punkta belti í öllum sætum 5 höfuðpúðar • Styrktarbitar í hliöum • 4X4 sídrif 120 hestafla 4 strokka vél / 97 hestafla 2000 cc dísilvél Vökva- og veltistýri • Fjarstýrð samlæsing og afturrúða Topplúga • HDC (hallaviöhald) • Þjófavörn • Sjálfstæð fjöðrun FREELANDER
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.