Morgunblaðið - 04.05.2000, Page 36
36 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2000 37
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
EFTA 40 ÁRA
EFTA, Fríverzlunarbandalag Evrópu, er 40 ára um
þessar mundir. Stofnríkin voru sjö að tölu: Austur-
ríki, Danmörk, Noregur, Portúgal, Svíþjóð, Sviss og
Stóra-Bretland. Aðeins tvö stofnríki eru enn aðilar að
bandalaginu, Noregur og Sviss. Tvö ríki gengu í EFTA á
fyrstu árunum og eru þar enn, ísland og Liechtenstein, og
eitt kom inn og hætti, Finnland. Þau ríki, sem hættu,
gengu í Evrópusambandið. Nú eru aðildarríkin fjögur,
Noregur, Sviss, ísland og Liechtenstein.
í upphafi settu stofnríki EFTA sér þrjú meginmark-
mið, að því er fram kom í grein eftir Kjartan Jóhannsson,
framkvæmdastjóra EFTA í Morgunblaðinu í gær. í fyrsta
lagi skyldi afnema tolla og magntakmarkanir í viðskiptum
með iðnaðarvörur milli ríkjanna og átti það markmið að
nást á 10 ára tímabili, en tókst eftir 7 ár. I öðru lagi var
það markmið sett að koma á sameiginlegu fríverzlunar-
svæði fyrir EFTA og ESB eða með öðrum orðum að brúa
svæðið milli þeirra. I þriðja lagi var markmiðið að auka
þjóðartekjur og velmegun í aðildarríkjunum.
Kjartan Jóhannsson sagði m.a. í grein sinni: „Það er
ærið tilefni fyrir EFTA að halda upp á fertugsafmælið.
Upphaflegu markmiðin hefur tekist allvel að uppfylla.
Viðskiptahindranir innan EFTA eru afnumdar á flestum
sviðum og EFTA-ríkin eru nú að endurskoða stofnsátt-
mála sinn, Stokkhólmssamninginn, til að styrkja enn sam-
skipti sín. Markmiðið um sameiginlegan markað Vestur-
Evrópu hefur ræst, nú seinast í EES-samningnum og
tvíhliða samningum Sviss og ESB. Um þriðja markmiðið
um hagvöxt og hagsæld þarf vart að deila.“
Innganga Islands í EFTA fyrir u.þ.b. þremur áratugum
markaði ákveðin þáttaskil í efnahags- og viðskiptasögu
okkar. Fram að þeim tíma höfðu býsna ströng höft ríkt í
viðskiptum okkar við önnur lönd frá því töluvert löngu
fyrir heimsstyrjöldina síðari. í skjóli þeirra hafta höfðu
risið upp atvinnufyrirtæki, sem höfðu ekki möguleika á að
lifa af í þeirri samkeppni, sem hófst með auknu frjálsræði
í innflutningi í kjölfar EFTA-aðildar okkar.
Raunin varð líka sú, að fjöldi íslenzkra iðnfyrirtækja
hætti starfsemi á næstu árum eftir inngöngu okkar í
EFTA. En eins og oft vill verða við slíkar aðstæður risu
önnur upp í þeirra stað.
í sögulegu samhengi má kannski segja, að innganga
okkar í EFTA hafi verið eins konar upphaf eða aðlögun að
því miklu stærra skrefi, sem stigið var með aðild okkar að
EES-samningum. I fyrra tilvikinu var byrjað að opna ís-
lenzkan markað fyrir erlendri samkeppni. Með gerð
EES-samningsins voru nánast allar dyr opnaðar upp á
gátt. Segja má, að landbúnaðurinn sé það eina sem eftir er
og tímabært að fara að huga að breytingum á þeim vett-
vangi.
VÍKINGASÝNINGIN OG
LEIFUR EIRÍKSSON
VÍKINGASÝNINGIN í Smithsonian-safninu í Wash-
ington, er opnuð var um síðustu helgi, hefur vakið mikla
athygli í Bandaríkjunum. Þegar hafa tugir þúsunda séð sýn-
inguna og umfjöllun um hana í bandarískum fjölmiðlum hef-
ur verið mikil. Má nefna að hin virtu tímarit Time og Nation-
al Geographic fjalla bæði um sýninguna í nýjustu tölublöðum
sínum og bæði tímaritin helga forsíðu sína þessu efni auk
þess sem mörg dagblöð Bandaríkjanna hafa fjallað um hana,
oft myndarlega.
Björn Bjarnason menntamálaráðherra segir í samtali við
Morgunblaðið í gær að það hafi verið skynsamlegt af Norð-
urlöndunum að styrkja þessa sýningu og að þeim peningum
hafí verið vel varið. Það er vafalítið rétt mat hjá menntamála-
ráðherra. Árum og áratugum saman hafa Norðurlandaþjóð-
irnar reynt að halda merki Leifs Eiríkssonar og annarra nor-
rænna landkönnuða á lofti vestanhafs. Þrátt fyrir það hefur
vitneskja um þennan mikilvæga þátt Norðurlandanna í sögu
Norður-Ameríku verið vægast sagt takmörkuð meðal al-
mennings í Bandaríkjunum.
Með hinni glæsilegu víkingasýningu í Smithsonian er verið
að „endurskrá fyrsta kaflann í amerískri sögu,“ líkt og Jón
Baldvin Hannibalsson, sendiherra í Washington, orðar það í
Morgunblaðinu í gær.
Það hversu virkan þátt Hvíta húsið hefur tekið í að minn-
ast landafundanna undirstrikar enn frekar þau kaflaskil er
orðið hafa með þessari sýningu.
EFTIR að hlutabréfa-
mörkuðum var lokað sl.
föstudag kynntu banda-
rísk stjórnvöld þá kröfu
sína að Microsoft yrði
með dómi skipt í tvö fyrirtæki.
Stjórnvöld, sem eru bandaríska
dómsmálaráðuneytið og 17 af þeim
19 ríkjum sem stóðu í málaferlum
gegn Microsoft, gera að kröfu sinni
að annað fyrirtækið hafí með stýri-
kerfíð Windows að gera, en hitt hafi
hugbúnað á sinni könnu, þar á meðal
Office-hugbúnaðinn, en til hans telj-
ast m.a. Word og Excel. í kröfu
stjórnvalda felst jafnframt, að við
skiptingu fyrirtækisins í tvennt eign-
ist núverandi hluthafar bréf í báðum
nýju fyrirtækjunum, að æðstu yfir-
mönnum Microsoft undanskildum.
Þeim verði aðeins gert kleift að eiga
hlut í öðru þeirra, til að koma í veg
fyrir að þeir geti áfram stjórnað báð-
um fyrirtækjunum.
Eftir rannsókn, málarekstur og
samningaumleitanir er nú svo komið,
að stjórnvöld hafa lagt fram ítrustu
kröfur og er sumum hörðustu and-
stæðingum Microsoft brugðið. í her-
búðum Microsoft láta menn auðvitað
öllum illum látum og eiga vart til orð
að lýsa vandlætingu sinni, en eiga þó
mikla sök á því sjálfir hvernig komið
er. Microsoft hefði verið í lófa lagið
að ganga frá samkomulagi um ýmis
atriði, sem hefðu mildað gagnrýni á
einokunartilburði hugbúnaðarrisans
og þar með dregið vígtennurnar úr
stjórnvöldum. Árið 1998 hefði málið
getað verið úr sögunni ef Microsoft
hefði ekki á síðustu stundu ákveðið
að hafa Explorer-vafrann innifalinn í
Windows-stýrikerfinu. Stjórnvöld
misstu þolínmæðina og höfðuðu mál,
þar sem hugbúnaðarfyrirtækið var
sakað um að misnota yfirburðastöðu
sína á hugbúnaðarmarkaði. Aftur
bauðst Microsoft að klára málið með
því að hætta að þvinga menn til að
taka Explorer-vafrann eða með því
að bjóða einnig upp á vafra keppi-
nautarins, Netscape. Það tækifæri
gripu forsvarmenn fyrirtækisins
ekki. Þegar dómari í málinu kvað
upp þann úrskurð að Microsoft hefði
misnotað aðstöðu sína og skaðað
neytendur með því að koma í veg
fyrir samkeppni gat Microsoft enn
náð að semja, í þetta sinn um hvaða
reglur um starfsemi fyrirtækisins og
eftirlit með henni ættu að gilda. Enn
á ný þrjóskuðust þeir Bill Gates og
Steve Ballmer forstjóri við.
Microsoft hefur visað til þess að í
málinu sé tekist á um grundvallar-
reglur. Þrátt fyrir að stjórnvöld vilji
nú kljúfa fyrirtækið fer því fjarri að
þær aðgerðir séu að skella á, jafnvel
þótt dómarinn fallist á allar kröfur
stjórnvalda. Gates hefur heitið því að
berjast og fara með málið alla leið
fyrir Hæstarétt Bandaríkjanna, ef
nauðsyn krefur. Það þýðir að málið
verður í höndum dómstóla næstu ár-
in og í síbreytilegum tölvuheiminum
er ómögulegt að segja til um hver
staðan verður, þá loks að endanleg
niðurstaða fæst.
Hagnast
neytendur?
Þrátt fyrir að bíða þurfi endan-
legrar niðurstöðu velta menn því
mjög fyrir sér hvaða áhrif skipting
Microsoft myndi hafa í för með sér.
Sumir spá því að nýju fyrirtækin tvö
myndu ekki ná sér á strik, á meðan
aðrir segja að skiptingin muni gefa
þeim færi á að verða jafn öflug eða
jafnvel öflugri samanlagt en Micro-
soft er núna.
I grein í dagblaðinu Los Angeles
Times á mánudag kemur fram að
menn greinir m.a. á hvort skipting
fyrirtækisins muni koma neytendum
til góða, en það er sá hópur sem fyr-
irtækið er sakað um að
hafa svikið með háttsemi
sinni. Blaðið hefur eftir
sérfræðingi Deutsche
Bank í New York að eftir
sem áður muni t.d. Office-
hugbúnaður Microsoft falla best að
Windows-stýrikerfinu og það breyt-
ist ekki þótt tvö fyrirtæki bjóði þessa
vöru í framtíðinni, í stað eins nú.
Talsmaður neytendasamtaka Banda-
ríkjanna í Washington sagði hins
vegar í samtali við blaðið, að skipting
fyrirtækisins myndi tryggja neyt-
endum val, sem þeir hefðu ekki haft
áður. Núna væri umtalsvert framboð
af vélbúnaði, en á sviði hugbúnaðar
væri samkeppnin nánast engin.
Los Angeles Tirnes segir óvíst
ótti gæti jafnvel komið í veg fyrir
nýsköpun.
Milljarðarnir, sem hafa tapast, fel-
ast í mikilli lækkun á skráðu gengi
Microsoft. Það fór hæst í tæplega
120 dollara í lok síðasta árs, en hefur
fallið á þessu ári og eftir að spurðist
út hverjar kröfur stjórnvalda yrðu
fór gengið lægst í 65 dollara. Það
hefur síðan hnikast upp í um 73 doll-
ara. Þar var að vísu ekki málaferlun-
um einum um að kenna, því Micro-
soft tilkynnti að hagnaður fyrirtæk-
isins myndi dragast saman á þessu
ári. Þá er vert að hafa í huga, að
hingað til hefur Microsoft gjarnan
lagfært niðursveiflur á genginu með
því að kaupa sjálft hlutabréf, en það
getur fyrirtækið ekki gert núna.
Ástæðan er sú, að í janúar keypti
Microsoft hugbúnaðarfyrirtækið
Visio fyrir 1,5 milljarða dollara og
gi’eiddi fyrir með hlutabréfum. Bók-
haldslög banna hins vegar fyrirtækj-
um að kaupa bréf í sjálfum sér strax
eftir að slíkir samningar eru gerðir,
enda telst það óeðlileg afskipti af
verðmyndun. Af þessum ástæðum
eru hendur Microsoft bundnar fram í
júní.
Frá því að kröfur stjórnvalda voru
opinberaðar hafa verið birtar ýmsar
spár kauphallarspekinga um hvert
hugsanlegt verðmæti klofins Micro-
soft yrði. Sumir telja að hlutabréf-í
fyrirtækjunum myndu samanlagt að-
eins seljast á 50 dollara, aðrir segja
að verðgildið yrði samtals líklega um
135 dollarar. Þarna er himinn og haf
á milli. Flestir spá því að fyrirtækið
sem stofnað yrði um Windows-stýri-
kerfið yrði miklu minna virði en hug-
búnaðarfyrirtækið, enda myndi hug-
vitið allt fylgja hugbúnaðarfyrir-
tækinu og aðeins þar væru verulegir
möguleikar á nýsköpun.
Microsoft á að svara kröfum
stjórnvalda fyrir 10. maí, en hefur
farið fram á lengri frest, enda mikið í
húfi. Sumir segja að fyrirtækið ætli
meðal annars að draga málið á lang-
inn í þeirri von að með nýjum forseta
muni blása nýir vindar. George W.
Bush hefur til dæmis þótt hallur
undir sjónarmið Microsoft og nái
hann kjöri sem næsti forseti Banda-
ríkjanna gæti runnið upp betri tíð
fyrir hugbúnaðarrisann. Það er þó
vandséð hvernig forsetinn gæti með
góðu móti beitt sér í þessu máli. Ef
hann vildi falla frá málarekstri þá
væri hann um leið að hunsa ríkin 17,
sem standa að kröfunni með dóms-
málaráðuneytinu. Það telst varla góð
byrjun á kjörtímabili.
Almenningur fylgir
Microsoft
Á meðan þess var beðið í síðasta
mánuði að stjórnvöld legðu fram
kröfur sínar birti Microsoft sjón-
varpsauglýsingu, þar sem lögð var
áhersla ó að fyrirtækið hefði tekið
þátt í að móta nýjan heim og enn
ætti það mikið verk óunnið. Auglýs-
ingin var einföld og virtist mjög
ódýr, Bill Gates horfði beint í
myndavélina og talaði tiþsjónvarps-
áhorfenda heima í stofu. Á sunnudag
birtist önnur auglýsing, jafn einföld
að gerð, þar sem forstjórinn Steve
Ballmer hélt svipaða tölu. Microsoft
birti einnig heilsíðuauglýsingar í
dagblöðum á mánudag, þar sem Gat-
es og Ballmer vöruðu við að skipting
Microsoft myndi senda þau skilaboð
til fyrirtækja að ef þau yrðu of stór
yrði þeim refsað grimmilega. Þetta
væru jafnframt skilaboðin til er-
lendra keppinauta, sem vildu gjarn-
an taka við leiðtogahlutverki Banda-
ríkjanna í heimi tækninnar.
Hvort sem það er þessum og öðr-
um auglýsingum að þakka er ljóst að
almenningsálitið í Bandaríkjunum er
Microsoft hliðhollt. I skoðanakönn-
un, sem gerð var sl. föstu-
dag og laugardag og birt í
Wail Street Journal á
mánudag, sögðust 59%
aðspurðra styðja Micro-
soft í dómsmálinu. 48%
sögðust andvíg skiptingu fyrirtækis-
ins, 24% voru hlutlaus og 28% fylgj-
andi slíkum aðgerðum. Sumir virðast
ekki kippa sér upp við meinta einok-
unartilburði hugbúnaðarrisans, því
þegar spurt var hvort Microsoft væri
einokunarfyrirtæki sögðu 42% já,
22% höfðu enga skoðun þar á og 36%
svöruðu neitandi.
Og heil 60% töldu Bill Gates já-
kvæða fyrirmynd, 24% kváðust hlut-
laus og aðeins 16% svöruðu þeirri
spurningu neitandi.
Reuters.
Bill Gates, stofnandi og aðaleigandi Microsoft, ræðir málin í gegnum netsíma.
V erður risinn
klofínn í
herðar niður?
í kjölfar þeirrar kröfu bandarískra stjórn-
valda, að fyrirtækinu Microsoft verði skipt í
tvennt keppast menn við að spá um framtíð
hugbúnaðarrisans. I grein Ragnhildar Sverr-
isdóttur kemur fram, að sumir telja að tvö
minni fyrirtæki myndu standa höllum fæti í
hörðum heimi samkeppninnar á meðan aðrir
halda að þau yrðu jafn öfiug og Microsoft er
✓
núna. Ur þessu fæst þó tæplega skorið á
næstunni, þar sem hugbúnaðarrisinn ætlar
að berjast með kjafti og klóm gegn því að
verða klofínn í herðar niður.
Tekist á um
grundvallar-
reglur
hvort skipting Microsoft muni hvetja
önnur fyrirtæki til framleiðslu stýri-
kerfa eða létta hugbúnaðarfyrir-
tækjum samkeppnina við Offíce-hug-
búnaðinn. Nú sé staðan sú, að
Macintosh stýrikerfi Apple hafi um
10% markaðshlutdeild og það hlut-
fall gildi eingöngu um einmennings-
tölvur til heimanota. Stýrikerfið Lin-
ux, sem notendur geta nálgast sér að
kostnaðarlausu, hafi enn ekki náð
neinni markaðshlutdeild meðal al-
mennings. Andstæðingar
Microsoft benda hins
vegar á, að Linux hafi
ekki náð að festa sig í
sessi þar sem skort hafi
hugbúnað til að nota með
stýrikerfinu. Með skiptingu Micro-
soft þurfi sá hluti fyrirtækisins, sem
hafi hugbúnað á sinni könnu, ekki að
miða hugbúnaðargerð sína við Wind-
ows-stýrikerfið, heldur geti aukið
markaðshlutdeild sína með því að
framleiða jafnframt hugbúnað fyrir
Linux.
Dagblaðið segir að ýmis samtök
neytenda telji að verð á hugbúnaði
muni lækka verulega þegar Micro-
soft hafi ekki lengur töglin og hagld-
irnar í framleiðslu stýrikerfis og
hugbúnaðar. Fyrirtækið hafi selt
stýrikerfið sitt á um 100 dollara [um
7.300 krónur], en eðlilegra verð í
heimi samkeppni sé líklega nær 10
dollurum [um 730 krónur]. Lang-
tímaáhrifín af skiptingu fyrirtækis-
ins verði ábyggilega þau, að ný fyrir-
tæki nái að komast á legg án
afskipta Mierosoft, sem hefur beitt
yfirburðastöðu sinni til að kæfa sam-
keppni í fæðingu.
I leiðara Washington Post sl. laug-
ardag var bent á, að yfirburðastaða
Microsoft hafi ekki verið alslæm, því
hún hafi tryggt samræmi í hugbún-
aði, sem hafi óneitanlega auðveldað
neytendum lífið.
Hrun á efnahagsmarkaði eða
engar breytingar
Innan tölvuheimsins eru skoðanir
einnig skiptar á því hvað skipting
Microsoft hefði í för með sér. Sumir
telja að hún myndi engu breyta,
enda miðist þessi úrræði við stöðuna
eins og hún var í hugbúnaðarheimin-
um fyrir nokkrum árum. Framtíðin
verði önnur, t.d. séu stýrikerfi ekki
lengur bundin við heimatölvurnar,
heldur séu þau komin í farsíma, í bíla
og jafnvel í armbandsúr. Þráðlausar
Keuters.
Steve Ballmer, aðalstjórnandi
Microsoft.
smótölvur, á borð við lófatölvuna frá
Palm, séu að festa sig í sessi og þar
sé Microsoft ekki við stjórnvölinn.
Heimatölvur verði ekki lengur alls-
ráðandi, heldur muni hver og einn
hafa beinan og einfaldan netaðgang,
svo tölva þeirri verði í raun „sýndar-
tölva“, vistuð hjá netfyrirtækjum.
Þessi þróun, og hvernig fyrirtækið
bregst við, ráði miklu meiru um
framtíð Microsoft en hvort fyrirtæk-
ið verður í einu lagi eða tvennu.
Svo eru þeir sem telja ___________________
útiitið veruiega svart. Yfirburðastaða
Dagblaðið Washington Microsoft
Post hafði eftir áhættu-
fjárfesti í Kísildal að
skipting Microsoft gæti
ekki slæm
kippt fótunum undan efnahagskerfi
Bandaríkjanna. Hann vísaði til þess,
að frá því að dómarinn kvað upp
þann dóm sinn að Microsoft væri
sekt um ólöglega misnotkun á yfir-
burðastöðu sinni hefðu milljarðar
dollara tapast á hlutabréfamarkaðn-
um. Stjórnvöld ættu ekki að geta
hrært í efnahagsmálum með þessum
hætti.
Margir eru þessu sammála og ótt-
ast að svo harkalegar aðgerðir gætu
vakið ótta meðal fyrirtækja og sá
Söluskálinn Ferstikla lifnar á nýjan leik
Morgunblaðið/Jim Smart
Hópur hollenskra ferðamanna framan við Ferstikluskála en Hvalfjörður er vaxandi ferðamannastaður.
Hvalfjörður að verða
ferðamannasvæði
Þegar Hvalfjarðargöngin
voru opnuð dró mjög úr
allri umferð um Hval-
fjörðinn. Þar með var
kippt rekstrargrundvelli
undan áningarstöðum
ferðamanna. Nú á hins
vegar að blása nýju lífi í
slíka þjónustu.
NYIR rekstraraðilar söluskálans Fer-
stiklu í Hvalfirði hafa blásið nýju lífi í
starfsemina eftir að viðskiptin höfðu
hrunið gersamlega í kjölfar þess að
Hvalfjarðargöngin voru tekin í notkun
fyrir tæpum tveimur árum. Umferð
ferðamanna um Hvalfjörðinn virðist
vera að aukast og telja þau Hugrún
Vilhjálmsdóttir og Eyþór Arnórsson,
sem tóku við rekstri Ferstiklu í októ-
ber sl., að verulegir möguleikar felist í
markaðssetningu Hvalfjarðar sem
ferðamannastaðar og að tilvalið sé íyr-
ir íbúa höfuðborgarsvæðisins að fara í
sunnudagsbíltúr fyrir Hvalfjörð og
fara göngin heim á ný.
Söluskálinn er í eigu Olís og þar á
bæ höfðu menn tekið ákvörðun um að
loka staðnum síðasta haust, en ákváðu
að endurskoða þá ákvörðun með nýjar
hugmyndir að leiðarljósi.
Morgunblaðið/Jim Smart
Thomas Möller, Hugrún Vilhjálmsdóttir, Gunnar Sigurðsson og Eyþór
Arnórsson fyrir framan Ferstikluskála í Hvalfirði.
Ferstikla alltaf mikilvægur
staður
Thomas Möller, framkvæmdastjóri
markaðssviðs þjónustustöðva Ólís,
segir að Ferstikla hafi ætíð verið mik-
ilvægur staður hjá Olís, en með til-
komu Hvalfjarðarganganna 11. júlí
1998 hafi viðskiptin hrunið. í kjölfarið
var ákveðið að gefa starfseminni tæki-
færi í eitt ár fram á sumarið 1999. Að
þeim tíma loknum var ekki annað fyr-
irsjáanlegt en að loka þyrfti staðnum
endanlega. íbúar sveitarinnar lögðust
gegn því að staðnum yrði lokað og fór
fram undirskriftasöfnun þar sem
nærri allir íbúamir skrifuðu undir og
óskuðu eftir því að þjónusta yrði
áfram í Ferstiklu.
„En síðan erum við núna að sjá ljós í
enda ganganna, því staðurinn er bara
að taka við sér aftur með alveg ein-
stökum hætti. Það er komin hér sjálfs-
afgreiðsla á bensíni með lægra verði
og nýtt dugmikið fólk sem er að keyra
þetta upp. Það sem er að gerast hérna
er að staðurinn er greinilega að taka
við sér. Bæði það að Sveitungar hjálpa
til ásamt sumarbústaðaeigendum og
síðan er Hvalfjörðurinn að verða að
ferðamannasvæði og verða nýi sunnu-
dagsrúnturinn.“
Að sögn Thomasar ætlar Olís að
hefja starf í sumar við að kynna Hval-
fjörðinn sem tilvalinn stað fyiir
sunnudagsbíltúr, sem geti t.d. endað í
kaffi og kökum á Ferstiklu. Hvalljörð-
urinn bjóði upp á ýmsa möguleika,
bæði varðandi náttúrufegurð og
merkilega sögu sem hvarvetna megi
sjá á leiðinni fyrir fjörðinn. Hvalstöðin
hefur verið skoðuð mikið af ferðafólki
og einnig hefur Saurbæjarkirkja vakið
athygli, en kirkjan er jafnan opin.
Myndir sem settar hafa verið upp í
söluskálanum af herskipum og teknar
voru í Hvalfirði í seinni heimsstyrjöld-
inni, hafa jafnframt vakið talsverða at-
hygli ferðalanga.
Finnum að umferð er að
aukast aftur
Þau Hugrún Vilhjálmsdóttir og Ey-
þór Arnórsson segjast hafa mikla trú
á því að hægt sé að reka staðinn og því
hafi þau ákveðið að ganga á fund
Gunnars Sigurðssonar, svæðisstjóra
Olís á Vesturlandi, og lýsa fyrir hon-
um þeim hugmyndum sem þau höfðu
um framtíð staðarins. Hann greip
þessar hugmyndir á lofti og ákvað Olís
að leggja nokkurt fé í endurbætur á
húsnæðinu með þá trú að staðurinn
ætti sér framtíð.
Hugrún segist hafa mikla trú á því
að hægt verði að kynna Hvalfjörðinn
vel sem ferðamannastað og að sumar-
bústaðaeigendur í nágrenninu séu
mjög ánægðir með að Ferstikla verði
opin áfram. Eyþór segir að viðskipta-
vinirnir komi nú á allt öðrum forsend-
um heldur en áður og að umferðin sé
allt öðruvísi. „Möguleikarnir hérna
finnst mér vera miklir og við finnum
að umferð er að aukast hér aftur.“
Komu með nýjar hugmyndir
Gunnar Sigurðsson segii- að ákvörð-
un Olís um að láta staðinn lifa áfram sé
vegna þeirra Hugrúnar og Eyþórs.
„Þau hrifu okkur með sér og komu
með nýjar hugmyndir og því hefur 01-
ís lagt nokkurt fé í þetta, ásamt því að
undirskriftalistinn frá íbúunum hérna
vakti fólk til umhugsunar. Ég held að
þessi staður eigi eftir að lifa, sérstak-
lega þegar fólk veit orðið af því að hér
verður opið.“