Morgunblaðið - 04.05.2000, Side 51

Morgunblaðið - 04.05.2000, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2000 51 um, veitir aðgang að ábyrgum starfsmönnum á viðeigandi stigi fyr- ir úrlausn hvers máls, en gætir þess jafnframt að vernda við hæfi starfsfrið þeirra, sem ekki eru kall- aðir til átaka, eftir nánari fyrirmæl- um hverju sinni. Mest reynir á þetta gagnvart yfirstjórninni, og var Grét- ar því í hvað nánustum samskiptum við bankastjórana, við að afla þeim sambanda og stýra aðgangi að þeim, eftir því sem þeim var unnt að sinna. Hann gegndi þessu af stökum trún- aði og virðuleik, yfirvegaður og fast- ur fyrir, þegar því var að skipta, og lét engan ganga yfir sig. Var jafnvel haft á orði, að hann svaraði fyrir bankastjórnina svo sem blásið væri í hátíðarlúðra. Er sú samlíking ekki út í hött, sé haft í huga hans annað helsta hlutverk, á tónlistarsviðinu. „... samt er á mínum sálarglugga sæmilega bjart“, svo kvað skáld- bóndi austur í Lóni, sem líkt var ástatt fyrir og Grétari. Makalaust er, hversu mannsandinn getur brugðist við þrengingu skynvitundar sinnar með víkkun hins innra, andlega sjón- arsviðs. Þannig leituðu báðir alefl- ingar andans við ástundun og átök á menningarsviðinu. Grétar bai- í sér ættlægt upplag til vitsmuna og list- fengi og ástundaði hvort tveggja sér til sálarþroska, þegar að herti. Mikil og holl lesning eða hlustun, ásamt traustu minni, gæddu hann næg- tabrunni fróðleiks, sem hann gat ausið af í samtölum og spurninga- keppnum, sem hann mun ætíð eða oftast hafa unnið. Tónvísi hans og færni á hljómborð og í söngstjórn komu einkum til góða í félagsstarfi templara og blindra, sem öðrum mun betur lagið að segja frá. Við samstarfsfólkið erum honum þakk- lát fyrir allt, sem hann var okkur, hvort sem var með starfsþjónustu, mannlegum samskiptum eða for- dæmi í kjarki og æðruleysi. Við hljótum einnig að sameinast öðnim, sem vænt þykir um hann, í þökkum til hjúkrunarheimilisins Eirar fyrir frábæra umönnun og félagasamtaka hans fyrir að reynast honum sem önnur fjölskylda og loks til sjálfrar forsjónarinnar að láta hann ekki líða allt, sem efni gátu staðið til. Megi hann nú rata þangað, sem birtir á ný fyrir sjónum hans, svo hann geti lagt hvíta stafinn til hliðar og boríð í hans stað sinn hreina skjöld fram fyrir æðri máttarvöld. Blessuð sá minning Grétars Dalhoff. Bjarni Bragi Jónsson. Hann Grétar vinur minn er látinn. Kynni okkar Grétars hófust árið 1973 þegar ég vann sem félagsráð- gjafi hjá Blindrafélaginu. Með okkur tókst ævilöng vinátta, en Grétar lést á hjúkrunarheimilinu Eir aðfaranótt miðvikudagsins 26. apríl. Var hann þá 69 ára að aldri. Legsteinar í Lundi SÖLSTEENAK við Nýbylaveg, Kópavogi Sími 564 4566 Gróðrarstöðin ” mmíÐ • Hús blómanna Blómaskreytingar við öll tækifæri. Dalveg 32 Kópavogi sími: 564 2480 jmmiiiiiiiiir H H H H H H H H H H Erfisdrykkjur P E R L A N Sími 562 0200 íiiiiiiiiiiiimi^ Grétar var aðeins níu ára þegar hann missti Magnús föður sinn. Hélt hann heimili með móður sinni Jónínu þar til hún andaðist, eða um 40 ára skeið. Erfitt er að lýsa Grétari því hann var um margt afar sérstakur maður. Yfir honum hvíldi einstök reisn, hvort sem hann gekk einn um götur bæjarins með aðstoð hvíta stafsins, eða þegar hann undir lokin var orð- inn bundinn við hjólastól. Finnst mér orðið „klassíker" lýsa honum einna best. Það var eitthvað hámenningarlegt við hann. Hann var tónlistarmaður mikill, spilaði á orgel og píanó og hafði mikla ánægju af og þekkingu á tónlist, einkum sígildri. Þó leyndi hann á sér í þessum efnum því hann gat vel hugsað sér að hlusta á „Bítlana" og áttum við það sameig- inlegt. Vel var hann að sér í bók- menntum, jafnt erlendum sem inn- lendum. Eftir að hann missti sjónina fékk hann sendar bækur á snældum frá Blindrabókasafninu. Það var honum ómetanleg uppspretta ánægju og fróðleiks. Var gaman að ræða við hann um menn og málefni líðandi stundar og gat hann verið meinfyndinn. Svo fjölfróður var hann að hægt var að „fletta upp í honum“, eins og sagt er. Hann var sjálfstæður í skoðunum og þeim breytti enginn nema hann sjálfur. Grétar var fluggáfaður maður, hlédrægur og hæverskur. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1952 og dúx úr mála- deild. Stundaði hann síðan nám við Háskóla Islands og lauk þaðan BA- prófi í þýsku og ensku. Grétar hafði allt frá barnæsku haft mjög lélega sjón á hægra auga, verið afar nærsýnn og gengið með sterk gleraugu. En 34 ára að aldri vai’ð hann fyrir þvi áfalli að missa sjónina á betra auganu vegna net- himnuloss. Hann varð því snögglega svo gott sem blindur, þótt hann sæi mun dags og nætur. Hafði hann þá um árabil gegnt starfi við gjaldeyris- eftirlit Landsbankans, sem seinna varð ein af deildum Seðlabankans. Gat hann nú ekki sinnt því starfi lengur. Ekki var margra starfa völ fyrir 36 árum fyrir blindan mann þótt gáfaður væri. Bankastörfin hafði hann ekki hugsað til fi'ambúð- ar, því hugur hans hafði staðið til kennslu og tónlistar. Hann var einn af upphaflegum starfsmönnum Seðlabankans og var honum nú boð- ið starf við símavörslu þar. Því starfi tók hann og gegndi af einstakri trúmennsku í 32 ár. Eitt var það öðru fremur sem Grétar kenndi mér með veru sinni hér og það var æðruleysi. Hann tók því sem lífið færði honum af einstöku æðruleysi. Fyrir honum var þetta allt svo einfalt. Hann lifði einföldu lífi eins og fuglar himinsins. Eiginlega er sátt rétta orðið yfir það. Sátt við skapara sinn og menn. Hann heyrð- ist ekki hallmæla neinum, ekki kvarta eða biðja um hjálp. Þetta skilja bara þeir sem þekktu hann vel. Hann Grétar var þannig að um hann er hægt að segja allt og ekki neitt. Grétar naut lífsins og var virkur þátttakandi í félagsstörfum allt þar til hann veiktist. Hann gekk í Blindrafélagið 1974 og gerðist þar strax aðalfélagi. Eftir það lá leið hans reglulega í Blindrafélagið tvisv- ar til þrisvar í viku og vissi fólk að Grétar var kominn, þegar tónar org- elsins hljómuðu um húsið. Árið 1957 gekk hann til liðs við Góðtemplara- regluna og var upp frá því virkur þátttakandi í starfsemi reglunnar og aðalorganistinn í Reykjavík á seinni árum. I báðum þessum félögum eignaðist Grétar góða og trygga vini. Ekki ræddum við Grétar lífið eftir dauðann. Þetta líf var okkur báðum nægilegt verkefni. Ég veit að hann tekur því sem að höndum ber af æðruleysi eins og honum var tamt. Gamlir siðir deyja ekki svo glatt þótt flutt sé um set. Hann var sáttur við dauðann. Síðasti andardráttur þessa lífs verður fyrsti andardráttur þess næsta. Lífið heldur áfram í sinni ódauðlegu mynd og Grétar lifir áfram í minningu þeirra sem þekktu hann. Hann skilur eftir undarlegan söknuð sem orð fá ekki lýst. Grétar vinur minn, vertu kært kvaddur. Hvíl í Guðs friði. Elínborg Lárusdóttir, Katrín, Þorlákur og Andri Krishna. + Ástkær móðir okkar, JÓRUNN JÓHANNSDÓTTIR frá Neðra-Nesi, andaðist þriðjudaginn 2. maí. Þorbjörn Sigurðsson, Þórir Sigurðsson. + LILJA VILHJÁLMSDÓTTIR, Garðbraut 15, Garði, sem lést sunnudaginn 30. apríl, verður jarðsungin frá Útskálakirkju laugardaginn 6. maí kl. 14.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, dætur hinnar látnu. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma SIGRÍÐUR INGIBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR, Smárahlíð 16c, Akureyri, lést á FSA fimmtudaginn 27. apríl. Útför hennar fer fram frá Svalbarðskirkju laug- ardaginn 6. maí kl. 14.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem bent á FSA. vilja minnast hennar, er Gunnar Pálmarsson, Stefán Gunnarsson, Guðfinna Steingrímsdóttir, Jóhann Gunnarsson, Valgerður Rögnvaldsdóttir, Jón Bragi Gunnarsson, Magnús Gunnarsson, Hjördís Valtýsdóttir og barnabörn. + Ástkær sambýliskona mín, dóttir okkar, móðir, systir og amma, ELÍNBORG HALLDÓRSDÓTTIR hárgreiðslumeistari, Vallargötu 23, Sandgerði, sem lést á heimili sínu laugardaginn 29. apríl, verður jarðsungin frá Flafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 9. maí kl. 13.30. Baldur Matthíasson, Rósa Eðvaldsdóttir, Halldór B. Jónsson, Anna Rósa Ingólfsdóttir, Guðni Yngvason, Jón Óskar Ingólfsson, Katrín Sif Oddgeirsdóttir, Kolbrún Ýr Oddgeirsdóttir, Lára S. Halldórsdóttir, Einar P. Guðmundsson, Halldór B. Halldórsson, Rósa Bóel Halldórsdóttir og barnabörn. + Elskulegur sonur, stjúpsonur, faðir okkar, bróðir og afi, HRAFN HAUKSSON, hárskeri, Reynimel 51, Reykjavík, sem lést miðvikudaginn 26. apríl, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. maí kl. 10.30 Haukur Óskar Ársælsson, Unnur Jónsdóttir, Davíð Hrafnsson, Anna Gréta Hrafnsdóttir, Gunnar Haukur Hrafnsson, Albína Halla Hauksdóttir, Heiða Hauksdóttir, Gunnhildur Harpa Hauksdóttir, Friðjón Unnar Halldórsson, Hugi Freyr Álfgeirsson. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HEIÐVEIG ÁRNADÓTTIR, Víghólastíg 10, Kópavogi, andaðist á Landspítalanum v/Fossvog þriðju- daginn 2. maí sl. Jarðarförin auglýst síðar. Erla Hrólfsdóttir, Helgi Jóhannesson, Sigurjón Hrólfsson, Kristjana Jónsdóttir, Arnar Skúlason, Lilja Sölvadóttir, Birkir Skúlason, Cecilía N. Skúlason, Auður Skúladóttir, Steinn Eyjólfsson, Anna Lísa Jóhannesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir min, SIGURVEIG ÁSDÍS JÓNASDÓTTIR, frá Vorhúsum á Eyrarbakka, andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi miðvikudaginn 19. apríl. Útförin hefur farið fram I kyrrþey, að ósk hinnar látnu. Fanney Ármannsdóttir. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VALGERÐUR GUÐRÚN HALLDÓRSDÓTTIR, Otrateigi 34, Reykjavík, lést á liknardeild Landspitalans þriðjudaginn 25. april. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 5. maí kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Styrktarfélag Sjúkrahúss Suðurnesja og líknardeild Landspítalans. Hildur Krístjánsdóttir, Ingibjörn Hafsteinsson, Halldór Kristjánsson, Jenný Ágústsdóttir, Sigurður Kristjánsson, Anna Daníelsdóttir, Hjalti Kristjánsson, Vera Björk Einarsdóttir, Guðrún Þura Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. M.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.