Morgunblaðið - 04.05.2000, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 04.05.2000, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2000 61 I DAG ( BRIPS Umsjón Guðmiiudui' I’áll Arnarson SIGURVBGARAR Politik- en-mótsins, Bocchi og Dub- oin, höfðu heppnina með sér í slemmuspilinu sem við sá- um í gær þegar sagnhafi valdi vitlausa leið. En hér eru þeir ekki eins heppnir. Norður gefur; NS á hættu. Norður ♦ 10932 v R1097 ♦ AK + G102 Vestur Austur ÁK * DG84 v 6 ¥ DG8432 ♦ G10974 ♦ 3 * D9853 * 76 Suður A 765 VÁ5 ♦ D8652 + ÁK4 Norður Vestur Austur Suður Duboin Maas Bocchi Ramondt - Pass 21auf* Dobl Pass Pass 2 hjörtu Pass Pass Pass Dobl 3grönd Pass Allirpass 2grönd Opnun Bocchis á tveimur laufum er veik hindrun í ein- hverjum lit, en síðar upplýs; ist að sá htur er hjarta. I andstöðunni er hollenska parið Anton Maas og Vincent Ramondt. Sá síðar- nefndi er nýtt nafn á stjörnuhimninum, en þessi ungi Hollendingur á vafa- laust eftir að láta mikið að sér kveða í framtíðinni - a.m.k. ef marka má hand- bragð hans í þessu spili. Duboin byrjaði á tígul- gosa og Vincent tók strax annan tígulslag og sá leguna í litnum. í þriðja slag spilaði Vincent svo spaða. Duboin sá hvað verða vildi og tók báða spaðaslagina og kom sér út á tígulgosa. En það var aðeins frestun á vandan- um. Vincent drap á tígul- drottningu, lagði niður hjartaás og sendi Duboin svo aftur inn á tígul! Duboin gat tekið þar tvo siagi, en varð svo á endanum að spila laufi og gefa blindum á gos- ann. Þar kom áttundi slagur sagnhafa, en þegar Vincent tók þriðja laufslaginn þving- aðist Bocchi í hálitunum, svo spaðasjöan varð níundi slag- urinn. Sannarlega glæsilegt spil. Sæll, Guðmundur læknir. Svefnlyfin sem þú gafst mér virka mjög vel. Konan mín steinsefur. Arnað heilla r7f\ ÁRA AFMÆLI. Sjö- • v/ tugur er í dag, fimmtudaginn 4. maí, Jó- hann Ágústsson, fv. aðstoð- arbankastjóri, Fífuhvammi 7, Kópavogi. Eiginkona hans er Svala Magnúsdótt- ir. Þau verða að heiman á af- mælisdaginn. n ÁRA AFMÆLI. Sex- OU tugurverður ámorg- un, 5. maí, Björgvin Þór Jó- hannsson, skólameistari Vélskóla íslands, Vestur- vangi 40, Hafnarfírði. Eig- inkona hans er Katrín Bára Bjarnadóttir húsmóðir. Þau hjónin taka á móti gestum í Oddfellow-húsinu, Staðar- bergi 2-4, Hafnarfirði, á morgun, afmælisdaginn, milli kl. 18 og 20. ftn ÁRA AFMÆLI. öv/ Sextíu ára verður á morgun, fóstudaginn 5. maí, Valur Sigurbergsson, Beikihlíð 17, Reykjavík. Eiginkona hans er Hólm- fríður Guðjónsdóttir. Þau taka á móti gestum á afmæl- isdaginn í Félagsheimili Orkuveitu Reykjavíkur við Elliðaár frá kl. 18 til 21. rA ÁRA AFMÆLI. OU Fimmtíu ára verður á morgun föstudaginn 5. maí Áslaug Kristjánsdóttir, Snægili 6 Akureyri. í tilefni af þeim áfanga verður Ás- laug heima á morgun, en hún og fjölskylda hennar taka á móti gestum á afmæl- isdaginn. r A ARA AFMÆLI Gest- tlt/ ur Einar Jónasson útvarpsmaður og leikari Vanabyggð 8e Akureyri er fimmtugur í dag, 4. maí. Hann situr úti á sólpalli og hefur það huggulegt. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynning- ar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1,103 Reykjavík LJOOABROT ELSKAN Þú lifir í brjóstinu, logandi sál, þú lífgar upp veröldu dauða; þú ornar, þú vermir, þú blossar, sem bál, og brýzt fram í loganum rauða. Ef lifrauðu tinnuna lýstur þú á, ljósir spretta fram gneistarnir þá. Á bakkanum lækjar á vori eg var, þá vorblóma liðinn var galli. Sá margliti gróandi gladdi mig þar; mér geðjaðist hljómurinn snjalli. Eg teygaði mjöðinn hinn mjallhvíta þá móður náttúru brjóstunum á. Þá lifnaði í brjósti sú logandi sál, sem lífgaði veröldu kalda; hún glossar í hjarta, sem blossandi bál, og blikar, sem vesturhafs alda; það mann engan furði, því mjöður var sá móður náttúru brjóstunum frá. Sveinbjörn Egilsson STJÖRIVUSPA eftir Frances Drakc NAUT Þú ert öryggið uppmálað og þótt þú getir tekið forystuna að þér hentar þér betur að vera einn afhópnum. Hrútur (21. mars -19. apríl) Nú reynir heldur betur á þol- inmæði þína, þvi það hefur ekkert upp á sig að láta reið- ina ná tökum á sér. Einbeittu þér að aðalatriðunum. Naut (20. apríl - 20. maí) Þú átt ekki að vera í neinum vandræðum með að inna af hendi þau verkefni, sem þér hafa verið falin, þótt flókin séu. Lykiiorðið er forgangs- röðun. Tvíburar (21.maí-20.júní) fífl Dagurinn verður ekkert auð- veldur, en það á hann svo sem ekkert að vera. Þú hefur bara gott af því að lenda í starfi, sem veitir kröftum þínum við- nám. Krabbi (21. júní-22. júll) Þú hefur æði margt á þinni könnu og spurning, hvort þú sért ekki að færast of mikið í fang í félagsmálunum. Staldr- aðu við og hugsaðu málið. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) X* Þú þarft að hafa hemil á sjálf- um þér í samstarfí við aðra. Tillitsieysi og frekja eitra andrúmsloftið og eyðileggja bara fyrir þér. Meyja (23. ágúst - 22. sept.) Þú þarft að verja skoðanir þínar íyrir kröftugri gagn- rýni. En vertu hvergi smeyk- ur. Þú ferð létt með að kynna málin svo að allir skilji og virði. Vo& jcn (23. sept. - 22. október) A w Sinn er siðurinn í hverju landi. Forðastu glósur um annarra hagi, þegar um sak- lausar venjur er að ræða. Líttu bara í eigin barm ! Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.) Ekki draga þig inn í skelina, þótt einhverjar athugasemdir séu gerðar við vinnubrögð þín. Ef þær eru réttmætar þá breytir þú einfaldlega til. Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. des.) ffcCr Oft eru það smáatriðin, sem gera útslagið um árangurinn. Þótt sjálfsagt sé að missa ekki sjónar á takmarkinu er nauð- syn að tékka smáaletrið líka. Steingeit (22. des. -19. janúar) 4mt Það eru hlutir í næsta ná- grenni, sem þig langar að skoða en þú aldrei lætur verða af. Skrifaðu lista og taktu þér svo tíma fyrir einn hlut í einu. Vatnsberi (20. jan. -18. febr.) Whí Fjölskyldumálin virðast stefna í einhvem hnút. Oft er gott sem aldnir kveða, það má læra ýmislegt af þvi hvernig aðiir hafa leyst sín vandamál. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Ljóðið er lífheimur. Leyfðu því að umvefja þig og veita þér styrk til þess að takast á við daginn. Láttu það leiða þig fram á við til aukins þroska. Stjömuspána á að Iesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byégðar á traustum grunni vísindafegra staðreynda. Gerið góð kaup í GLÆSIBÆ! Fjöldi ólíkra verslana undir sama þaki E T R I L I Ð A N Áv:,. \ 0PIÐ alla virka daga 9:00-19-00 Lau 10:00-14:00 Opið I Lyf & heilsu, Ausfurveri allan sólarhringinn og Lyf & heilsu, Domus Medica alla virka daga 9:00-22:00 VLyf&heilsa J GLÆSIBÆ UTSLIF A 1'^iTV Glæsibæ • Sími 545 1500 • www.utiiif.is fuV'.' & Gleraiignaversfimin Til 20. maí I Glæsibæ & Hafnarfirði Sjónarhóll bvður TOKAI, léttasta plastgleijaefni í heimi. www.sjonarholl. is BRIO Glæsilegur kerruvagn með burðarrúmi Úrvalið er hjá okkur! www.oo.ls SÍMI 553 3366 Opið á laugardögum frá kl. 11.00 til 16.00. 3JIIÆSIBÆR -með úrvalið íbænum! Álfheimum 74 *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.