Morgunblaðið - 22.06.2000, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ríkisstjórnin fjallaði um afleiðingar skjálftanna með sérfræðingum
100 millj. varið til að mæta
ófyrirséðum útgjöldum
Morgunblaðið/Jim Smart
Davíð Oddsson ræðir við fréttamenn eftir ríkisstjórnarfundinn.
RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fundi
sínum í gær að leggja fram um 100
milljónir króna til að mæta ófyrir-
séðum útgjöldum vegna afleiðinga
jarðskjálftanna á Suðurlandi. Davíð
Oddsson forsætisráðherra sagði að
þar væri m.a. um að ræða kostnað
við að efla eftirlit jarðvísinda-
manna, viðgerðarkostnað vegna
skemmda sem orðið hefðu á vegum
og hugsanlega einnig vegna tjóns
sem fólk hefði orðið fyrir í tilvikum
þar sem menn hefðu ekki átt þess
kost að kaupa sér tryggingar, s.s.
vegna rekstrarstöðvunar af völdum
náttúruhamfara.
Fulltrúar almannavarnaráðs,
jarðeðlisfræðingar o.fl. sátu ríkis-
stjórnarfundinn þar sem farið var
yfir stöðu mála í kjölfar jarðskjálft-
anna á Suðurlandi. Davíð sagði að á
fundinum hefðu einnig fengist upp-
lýsingar og skýringar frá Viðlaga-
tryggingum um hversu hratt þær
gætu metið tjón af völdum skjálft-
anna svo fólk þyrfti ekki að bíða
lengi eftir niðurstöðum um bætur
vegna tjóns sem heyrir undir Við-
lagatryggingu.
Komið til móts við ósk
um öflugri tækjabúnað
Akveðið hefur verið að efla við-
búnað vegna jarðhræringanna á
Suðurlandi og verður m.a. aukin
vakt jarðeðlisfræðinga á Veðurstof-
unni.
Davíð sagði að jarðvísindamenn
Veðurstofunnar teldu sig þurfa öfl-
ugri mæla og annan tækjabúnað.
„Eg geri ráð fyrir því að við munum
koma til móts við það,“ sagði Davíð.
Aðspurður um afleiðingar jarð-
skjálftanna sagði Davíð að mann-
virki hefðu í megindráttum staðið
af sér skjálftana.
„Við fáum þær fréttir að í útlönd-
um sé sagt frá þessu þannig að hér
sé mikil óáran og fólk liggi grátandi
inni í hrundum húsum. Það er
væntanlega byggt á því að jarð-
skjálftar af þessari stærð, 6,6 á
Richter, myndu annars staðar hafa
valdið slíku tjóni. Hér er hins vegar
bæði dreifbýlið meira og svo eru
okkar hús almennt séð betur byggð.
Þetta gerðist því ekki,“ sagði hann.
Engin ástæða til óðagots
Davíð sagði að visindamenn
gerðu ráð fyrir að skjáftavirknin
myndi færast í vesturátt frá upp-
tökum stóru skjálftanna á laugar-
dag og í fyrrinótt þó enginn gæti
sagt fyrir hvort fleiri stórir skjálft-
ar yrðu innan nokkurra daga, vikna
eða ára. „Það er ekki ástæða til
neins óðagots eða að menn hafi yfir
sig miklar áhyggjur," sagði forsæt-
isráðherra.
Davíð sagðist aðspurður telja að
almannavarnakerfið og annar ör-
yggisviðbúnaður hefði reynst vel í
jarðskjálftanum í fyrrinótt og engir
alvarlegir brestir hefðu komið í
ljós. Fjölmiðlar hefðu einnig staðið
sig vel.
Davíð var spurður hvort huga
þyrfti að því að styrkja sérstaklega
brúna yfir Þjórsá og benti hann á
að til stæði að byggja nýja brú yfir
Þjórsá, sem ætti að verða fullgerð
eftir tvö til þrjú ár. „Það voru gerð-
ar styrkingar á brúnni með hliðsjón
af svona atburðum.
Vegamálastjóri lýsti því mjög vel
fyrir okkur í dag með hvaða hætti
þær voru gerðar og hvað þær
þoldu. Hann segir við okkur að
þarna hefði verið um mikið álag að
ræða á brúna og meira en þeir
höfðu reiknað með að hún myndi
þola en þessi gamla brú þoldi það
mjög vel. Nú munu menn fara hratt
í það verkefni að byggja nýja og
vonandi enn öruggari brú, en þessi
hefur staðið sig vel,“ sagði hann.
Forsætisráðherra var einnig
spurður hvernig hann hefði orðið
var við jarðskjálftann í fyrrinótt.
„Ég var reyndar úti á landi og
var að lesa í bók og skrifa mér til
minnis þegar skjálftinn varð. Ég
gerði það sem mér bar að gera, að
kveikja á útvarpinu, og sjö til átta
mínútum seinna átti ég samtal við
forstjóra Almannavarna," sagði
Davíð.
Nýbrú
yfír Þjórsá
á næsta
eða þar
næsta ári
FYRIRHUGAJD er að reisa nýja brú
yfir Þjórsá og er það á vegaáætlun á
næsta ári eða árið 2002. Einar Haf-
liðason, forstöðumaður brúardeildar
Vegagerðarinnar, segir að jarð-
skjálftarnir á laugardag og í fyrri-
nótt hafi ekki veikt brýr á Suður-
landsundirlendinu svo nokkru nemi,
en hann var í gær að skoða brýr á
svæðinu.
Einar sagði að enn væri verið að
fjalla um hvar veglína nýrrar brúar
ætti að liggja. Tveir valkostir komi
til helst til greina, annars vegar
skammt neðan við núverandi brú og
hins vegar ofan við holtið sem bær-
inn Þjórsártún standi á. Enn sé þetta
á umræðustigi og ekki búið að taka
út alla kosti og galla þessara mögu-
leika.
Töluvert lengri
Einar sagði að nýja brúin yrði trú-
lega töluvert lengri en núverandi
brú, en það réðist að nokkru leyti af
hæð veglínunnar þarna, sem yrði
trúlega verulega hæm en núverandi
brú.
Einar sagði að brúin væri inni á
vegaáætlun árin 2001 og 2002. Óráð-
ið væri hvenær hafist yrði handa, en
það tæki ekki nema árið að byggja
brúna. Hún ætti í síðasta lagi að
verða komin í gagnið haustið 2002.
Einar sagði að jarðskjálftarnir
hefðu ekki veikt brýr á svæðinu svo
nokkru næmi og það væri lítilsháttar
sem sæi á Þjórsárbrú, en brúin var
tekin í notkun árið 1950. Síðan hefði
hún verið styrkt með tilliti til hugs-
anlegs jarðskjálfta.
Nýr flug-
turn reis án
truflunar
á umferð
SETTUR var nýr turn á flugstöð-
ina í Vestmannaeyjum í gær og
var beitt afar óvenjulegri aðferð
við verkið. Gamli turninn var fjar-
lægður án þess að hlé væri gert á
störfum flugumferðarstjóra og sá
nýi settur á og varð engin töf á
flugumferð.
Emii Ágústsson, sem hafði um-
sjón með verkinu fyrir hönd Flug-
málastjórnar, segir að gamli turn-
inn á steypta hluta
flugstöðvarinnar hafi verið smíð-
aður úr stáigrind sem var orðin
gegnumtærð af ryði og hélt turn-
inn ekki vatni. Til þess að trufla
ekki flugumferð um völlinn, sem
er með þriðju mestu flugumferð á
landinu, var ákveðið að smiða
nýja turninn á verkstæði, full-
glerja hann og ganga frá að öllu
leyti á jörðu niðri.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Gamli flugtuminn hífður af flugstöðvarbyggingunni og sá nýi
bíður þess að leysa hann af hólmi.
Turninn er töluvert stærri en sá
gamli. Gamli turninn var síðan
hífður af snemma í gærmorgun
og sá nýi settur á og gekk allt eft-
ir áætlun. Emil segir að ekki sé
vitað til þess að svona hafi verið
staðið að málum áður hérlendis.
Verkið tók tvær klukkustundir.
Emil sagði að þetta hefði verið
skemmtilegt og ögrandi verkefni
frá sjónarhóli verkfræðinnar.
Ytra gler í turninum er 10 mm
þykkt og er með sólvörn. Þetta er
þykkasta gler í mannvirki hér á
landi. Innra glerið er samsett úr
tveimur 8 mm samlímdum örygg-
isglerjum en mikið vindálag er á
þeim stað sem flugturninn er.
Tilboð í framkvæmdir hækka um 10-20%
Hætt við nokk-
ur verkefni
AUKIN umsvif í byggingariðnaði á
höfuðborgarsvæðinu gera það að
verkum að tilboð í verk á vegum op-
inberra aðila hafa hækkað talsvert á
undanförnum mánuðum. Dæmi eru
um að hætt hafi verið við verkefni
vegna þess að tilboðin sem bárust
hafi verið of há en einnig hefur komið
fyrir að alls engin tilboð hafi borist.
Jóhanna Hansen hjá Fram-
kvæmdasýslu ríkisins segir algengt
að tilboð séu 10-20% hærri en í
kostnaðaráætlun en tilboðin hafa
farið hækkandi frá áramótum.
Tefur fyrir framkvæmdum
Nokkrum verkefnum hefur verið
frestað vegna þess að tilboðin voru
allt að 30% yfir kostnaðaráætlun.
Bygging sambýlis fatlaðra í Kópa-
vogi og fræðslumiðstöðvar á Þing-
völlum mun t.a.m. bíða fram á næsta
ár. Einnig eru dæmi um að hætt hafi
verið við verk vegna þess að engin
tilboð bárust, þannig verður t.d. ekk-
ert af fyrirhuguðum viðgerðum á
Iðnskólanum í Reykjavík.
Guðmundur Pálmi Kristinsson,
forstöðumaður byggingardeildar
Innkaupastofnunar Reykjavíkur,
segir að tilboð í verk á vegum borg-
arinnar hafi farið heldur hækkandi.
Algengt sé að tilboð séu um 10-20%
hærri en sem nemur áætlun.
Guðmundur segir að það komi til
greina að hætta við verkefni ef engin
viðunandi tilboð berast. Nú stendur
til að bjóða út byggingu Víkurskóla
en kostnaður við byggingu skóla-
hússins er um 200-300 milljónir.
Nýlega tók Borgarráð Reykjavík-
ur tilboðum í framkvæmdir við tvo
grunnskóla í Reykjavík sem bæði
vora yfir kostnaðaráætlun.
Sérblöð í dag
ía Ssm:
Morgunblaðsins
Sérblab ttm vidskipti/tíivinmtlíf
Morgunblaðinu í
dagfylgir
tímaritið 24-7.
Útgefandi: Allt-
af ehf.
Ábyrgðarmaður;
Snorri Jónsson.
* SSH
Magnaður endasprettur tryggði
Spánverjum sigur /C3 ^
Þýsk knattspyrna getur
ekki sokkið dýpra /C4
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is