Morgunblaðið - 22.06.2000, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000 71
FÓLK í FRÉTTUM '
ERLENDAR
O0OOO
Davíð Logi Sigurðsson
blaðamaður
rýnir í Faith And Courage,
nýjustu plötu Sinéad
O’Connor.
★★★
Brakandi fag-
mennska en ekki
nógu framsækið
í umsögn segir Davíð Logi að Sinéad hiki ekki
við að opna sig upp á gátt og segja eigin sögu
og sýn á samtímann í textum sínum.
SINÉAD O’Connor hefur oftar
en ekki deilt með veröldinni
vandræðum sínum og vellíðan
þannig að sumum hefur þótt nóg um.
Nú síðast mun hún hafa lýst því yfir
að hún sé tvíkynhneigð, þ.e. ekki síð-
ur gefin fyrir konur en karla og er
næsta víst að enn á ný hefur henni
tekist að ysjokkera“ íhaldssama
landa sína á Irlandi.
Sex löng ár eru liðin frá síðustu
breiðskífu Sinéad sem þýðir þó
reyndar ekki að hún hafi setið að-
gerðalaus allan þann tíma. Hún hef-
ur til dæmis sungið með fjölda lista-
manna og átt lög í myndum eins og
The Butcher Boy, Michael Collins,
You’ve got mail, The Talented Mr.
Ripley, Stigmata og The Avengers
svo fátt eitt sé nefnt. Einna best hef-
ur henni tekist upp í útgáfu sinni á
þekktu ljóði Patricks Kavanagh, On
Raglan Road, á írskri safnskífu frá
1996 og Abba-laginu Chiquitita á
safnplötu frá 1998, auk þess sem
ekki má gleyma frábærri fjögurra
laga plötu, Gospel Oak, sem kom út
1997.
Biðin eftir breiðskífu er hins vegar
loks á enda og sýnist mér við fyrstu
sýn að nýja platan, Faith and Coura-
ge, beri nokkur merki þess að Sinéad
vilji friðjiægjast við ameríska mark-
aðinn (sem má segja að hafí hafnað
henni eftir ýmsar uppákomur þar í
landi 1992). í textalagsins The
Lamb’s book of life biður hún frænd-
ur sína í Ameríkunni t.a.m. um að
gefa sér annað tækifæri: „Ég veit ég
hef gert marga hluti/ sem gefa ykkur
ástæðu til að hlusta ekki á mig/sér-
staklega þar sem ég hef verið svo full
reiði/en ef þið þekktuð mig betur
mynduð þið e.t.v. skilja mig/orð fá
því ekki lýst hversu sterk eftirsjá
mín er/ef ég særði einhvem/vona ég
aðeins að þið getið sýnt samhygð/og
unnað mér nægilega mikið til að
bara hlusta."
Sjálfum hefur mér tvisvar gefist
tækifæri til að hlýða á Sinéad á sviði
og voru báðir tónleikar virkileg upp-
lifun, þó á ólíkum forsendum. I fyrra
skiptið, sumarið 1995, hafði breska
pressan um nokkra hríð farið einkar
hörðum höndum um söngkonuna.
Var enda augljóst er hún steig fram
á sviðið í Tivoli-salnum í Dublin að
þar fór tónlistaimaður sem ekki
hafði komið fram í dágóða hríð og
var óviss um hvemig viðtökur hann
fengi. Óx henni síðan fiskur um
hrygg er hún sá að allir á staðnum
vom henni vinveittir. Á tónleikum
sem ég sá í Olympia-leikhúsinu ná-
kvæmlega tveimm- ámm síðar var
allt annað uppi á teningunum. Þar
steig fram á sviðið kona full sjálf-
strausts, kona sem vissi hvað hún
var að gera og gekk óhikað til þess.
Munurinn á sviðsframkomu hennar
var eins mikill og hugsast gat.
Sjálfsagt er ekki hægt að fullyrða
út frá tvennum tónleikum sem
haldnir vom með tveggja ára milli-
bili að Sinéad sé örgeðja kona. Á
hinn bóginn dylst ekki á plötum Sin-
éad að hún hefur tekið út talsverðan
þroska frá því að The Lion and the
Cobra kom út 1987. Á þessari fyrstu
breiðskífu var söngkonan reið, ung
kona. Á næstu plötu þar á eftir, I do
not want what I haven’t got, sem
gerði söngkonuna að stórstjömu
þegar hún kom út 1990, er Sinéad að
vísu enn reið en örlítið þroskaðri og
agaðri. Þegar Universal Mother kom
út 1994 var hún síðan orðin móðir,
sáttari við tilvemna en vildi þó sem
fyrr koma á framfæri pólitískum
skilaboðum (ég ræði ekkert um plöt-
una Am I not your girl? frá 1992 sem
er dálítið furðuverk).
Af nýju plötunni, Faith and
Courage, er ekki annað að sjá en Sin-
éad sé orðin fullorðin, í sátt við sinn
Guð og tilveruna sem slíka - sannar-
lega kemur Guð (í kvenkyni) víða
fyrir í textunum. í besta lagi plöt-
unnar, Daddy I’m fine, segir Sinéad
sögu sína frá því hún braust undan
oki væntinga föður síns, yfirgaf
Dublin og hélt til London til að slá í
gegn - gleymdi sér síðan við björt
ljós stórborgarinnar um stund en
biður föður sinn um að hafa samt
ekki áhyggjur því hún hafi það gott,
eigi tvö falleg börn og sé reynslunni
ríkari.
Þessi texti er einmitt dæmigerður
fyrir Sinéad, hún hikar ekki við að
opna sig upp á gátt og segja eigin
sögu og sýn á samtímann í textum
sínum. Um leið er tónlistin afar pers-
ónuleg og að mörgu leyti meira gef-
andi. Hins vegar veltir maður því
óhjákvæmilega fyrir sér hvort hún
hafi í raun og veru náð sálarró fyrst
hún þarf að fullvissa sjálfa sig um
það í hveijum einasta texta sem hún
skrifar að allt sé í lagi, að hún sé
sjálfstæð, sátt kona. Kannski eru
þessir textar liður í sálarhjálp henn-
ar en ekki ætla ég svo
sem að kvarta yfir því.
Það vekur athygli að
í fyrsta sinn kemur
Sinéad ekkert nálæg|j.r!
upptökustjórn en iieí- "
ur í staðinn fengið í lið
með sér vel þekkta fag-
menn, þá Dave
Stewart (Eurythmics),
Brian Eno og Wyclef
Jean (Fugees). Öll
platan geislar enda af
fagmennsku, svo mjög
reyndar að mér finnst
það eiginlega hálfgerð-
ur galli; það er eins og
búið sé að pússa burt
alla eggina af sverði
Sinéad en það er ein->
mitt það sverð - sá
kraftur sem einkennt
hefur söng hennar, lög
og texta - sem hefur
gert hana áhugaverðan
tónlistarmann.
Platan byrjar að vísu
vel og fyrstu fimm lögin eru afbragð.
Þegar er getið Daddy I’m fine, fyrsta
smáskífan No man’s woman er jafn-
framt ágæt og ballaðan Jealous er
sennilega það lag á plötunni sem er
líklegast til að gera það gott á vin-
sældarlistum, nýtur rödd söngkon-
unnar sín þar til fullnustu. Eftir
fyrstu fimm lögin koma hins vegar
tvö lög, ’Til I whisper U something
og Hold back the night, sem mér
finnst veikja plötuna og það setif'
verra er, þó að mörg ágæt lög fylgi á
eftir kemst platan aldrei almenni-
lega á flug aftur. Tempóið í lögunum
er of einhæft og þó mörg laganna
eigi sér málsbætur, t.d. vel heppnaða
blöndu írskra og karabískra áhrifa,
fjarar öll spenna út.
Þetta þýðir ekki að platan sé
slæm, því fer fjarri. Þetta er brak-
andi fagmennska, fínt popp. Bara
ekki eins framsækið og maður hefði
viljað. Þrjár stjömur.
Kr.2.495
Skráðu þig 0
/ vefklúbbinn
www.husa.is
Sjónvarp 10
12/220v sv/liv
Þráðlaus sími með
mimerabirti og minni
^495l.
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
verð