Morgunblaðið - 22.06.2000, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Og hvert ykkar er með svona ógeðslega græna fingur???
MACH 16 • Octaver • EEQ
Mosfet 45 • MARC X •
Setjum tækið
í bílinn þér að
kostnaðarlausu
DEH-P6100-R
• 4x45 magnari • RDS
• Stafrænt útvarp FM MW LW
• 24 stöðva minni • RDS
• BSM • Laus framhlið
• RCA útgangur
• Klukka • Þjófavörn
• Loudness þrískiptur
• 3 Banda tónjafnari
Norrænt sjúkraþjálfaraþing
Meðferð byggð
á rannsóknum
María Ragnarsdóttir
Fimmta norræna
rannsóknarþingið í
sjúkraþjálfun verð-
ur haldið í sex sölum á
Grand Hotel í Reykjavík og
hefst það klukkan 13.00 í
dag og stendur fram á laug-
ardag. Yfírskrift þingsins
er „Sjúkraþjálfun byggð á
rannsóknum. Að brúa bilið
milli rannsóknar og með-
ferðar sjúkraþjálfara.“ Ma-
ría Ragnarsdóttir sjúkra-
þjálfari er í hinni íslensku
undirbúningsnefnd þessa
þings - hvert skyldi vera
markmið slíkra þinga?
„Að kynna þær rann-
sóknir sem fram fara í
hveiju landi fyrir sig á
sameiginlegum vettvangi
þannig að fræðimenn á
Norðurlöndum geti hist og
jafnframt kynnt rannsóknir sínar
fyrir hinum almenna sjúkraþjálf-
ara sem getur þá nýtt sér þær í
starfi.“
- Hve oft er blásið til svona
þinghalds?
„Þingin eru haldin þriðja hvert
ár, nú í fyrsta skipti á Islandi. Nú
er metþátttaka, um það bil þrjú
hundruð manns eru á þinginu, frá
átján löndum. Flestir þátttakend-
umir eru frá íslandi eða 105, frá
Svíþjóð koma 57 og frá Noregi 55.
Ástæðan fyrir því að við fáum
svona gífurlega mikla þátttöku frá
löndum utan Norðurlanda er að
ráðstefnan er haldin á ensku og
menn koma alla leið frá Suður-Af-
ríku til þess að taka þátt í þinginu.“
- Hefur enskan áður verið aðal-
mál á svonaþingi?
„Nei, en Island og Finnland hafa
barist fyrir að svo væri. Eftir að
kennsla í sjúkraþjálfun hófst hér á
landi 1976 þá eru æ færri sem
treysta sér til að fylgjast að gagni
með þinghaldi á öðrum norrænum
tungum og Finnum er á sama veg
farið. Þess má geta að nær allar
námsbækur í sjúkraþjálfunarnám-
inu í H.í. eru á ensku..“
-Hvað vUtu segja um helstu
umfjöllunarefni þingsins sem í
hönd fer?
„Eins og yfirskriftin ber með sér
er mikið verið að fjalla um hvemig
hægt er að stytta tímann frá því
niðurstöður rannsókna liggja fyrir
og þar til sjúkraþjálfarar nýta þær
í meðferð sjúklingsins. I einum
þingsalnum er t.d. eingöngu fjallað
um meðferð við mjóbaksverkjum
allan föstudaginn, en opnunarfyr-
irlesturinn sem prófessor Bart W.
Koes heldur er einmitt um það
efni. Alls em tólf erindi um mjó-
baksverki. Stór þáttur í þinginu
em erindi um sjúkraþjálfun eftir
heilablóðfall, hjarta- og lungna-
sjúkdóma og sjúkraþjálfun aldr-
aðra. Alls verða haldin 120 erindi á
þinginu og kynningar á rannsókn-
um en þar af em ellefu frá Islandi,
sem mér finnst gott framlag miðað
við fámenni stéttarinnar hér.“
-Hvert er efni íslensku rann-
sóknanna?
„Til dæmis verða flutt erindi um
breytingar á jafnvægi aldraðra og
kvarða sem notaður er
til að meta jafnvægi
þeirra, ein íslensk rann-
sókn er um meðferð við
mjóbaksverkjum, tvö
íslensk erindi fjalla um
hjarta- og lungnasjúk-
dóma og ein rannsókn verður
kynnt sem fjallar um meðferð
barna með meðfæddan heila-
skaða.“
- Hvað ber hæst í útlendu fyrir-
lestrunum?
„Gestafyrirlesarar auk prófess-
ors Bart W. Koes em prófessor
Jules Rothstein sem ræðir um
framtíðarsýn í sjúkraþjálfun og
► María Ragnarsdóttir fæddist í
Ámesi á Ströndum 1943. Hún
lauk stúdentsprófí frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1963 og
prófi í sjúkraþjálfun í Kaup-
mannahöfn 1966. Uppeldis- og
kennslufræði til kennsluréttinda
lauk hún frá Háskóla íslands
1977 og meistaragráðu í sjúkra-
þjálfun frá háskólanum í Minnes-
ota í Bandaríkjunum 1989. Hún
starfaði sem sjúkraþjálfari við
Landsspítalann til 1977 en þá
varð hún lektor við námsbraut í
sjúkraþjálfun í HI, þar af sex ár
formaður námsbrautarstjórnar.
Síðan 1990 hefur María verið
yfirsjúkraþjálfari starfsmanna-
og rannsóknareiningar endur-
hæfingardeildar Landsspítala.
María á tvö börn, Hauk Finnsson
markaðsstjóra og Helgu Finns-
dóttur landfræðing.
stjómar auk þess umræðum í mál-
stofu. Þriðji gestafyrirlesarinn er
finnski sjúkraþjálfarinn Raija
Tyni-Lenné og ræðir hún um þró-
un meðferðar í tengslum við rann-
sóknir. Eins og sjá má á þessari
upptalningu er í nær hverjum fyr-
irlestri fjallað um tengslin á milli
rannsókna og sjúkraþjálfunarmeð-
ferðar, en mikil þörf er á að sýna
fram á með rannsóknum að sjúkra-
þjálfun geri gagn. Þetta er ekki
síst nauðsynlegt nú þegar æ meira
framboð er á óhefðbundnum með-
ferðartilboðum.“
- Hvað með helstu nýjungai•
sem kynntar verða á þinginu?
„Þar má t.d. nefna nýtt íslenskt
mælitæki, hreyfigreini, sem verð-
ur á vömsýningu í tengslum við
rannsóknarþingið. Mælitæki þetta
er hannað af íslensku hugviti og er
í þróun hjá fyrirtæki sem heitir Ki-
ne og er staðsett hjá Impm í
Keldnaholti. Tæki þetta getur
bæði mælt hreyfiferla liðamóta og
virkni í vöðvum. Annað tæki,
styttra á veg komið, verður kynnt
með erindum. Það er tæki sem
mælir öndunarhreyfingar á alveg
nýjan hátt. Þá má nefna að á vöra-
sýningunni verður sýnd hönnun
eftir íslenska sjúkraþjálfara, en
það em púðar til þess að bera böm
á herðum sér og kallast
Gíraffasæti.“
- Er þörfín á sjúkra-
þjálfun að aukast?
„Ég held að hún sé
bæði að aukast og
breytast. Nefna má að
sjúkraþjálfarar em að fai-a í vax-
andi mæli inn á ný svið eins og t.d.
forvamir. Aukin tölvunotkun og
kyrrseta kallai- á bæði fyrirbyggj-
andi aðferðir og meðferð við áhrif-
um einhæfra starfsstellinga. Af-
leiðingar bflslysa kalla á
sjúkraþjálfunarmeðferð og þeim
öldmðu fjölgar, sem einnig kallar á
aukna þjónustu sjúkraþjálfara.
Metþátttaka í
sjúkraþjálfun-
arþingi f rá 18
löndum