Morgunblaðið - 22.06.2000, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000 61
FRÉTTIR
Ný bryggja
fyrir olíu-
skip við
Eyjargarð
NYJA olíubryggja Reykjavíkur-
hafnar við Eyjargarð var opnuð
þann 30. maí síðastliðinn með því
að Árni Þór Sigurðsson, formaður
hafnarstjórnar, klippti á borða og
lýsti mannvirkið formlega tekið í
notkun. Bygging Eyjargarðs hefur
staðið frá því 1996 og kostaði
mannvirkið 550 milljónir króna og
kostnaður olíufélagana vegna lönd-
unarbúnaðar var um 100 milljónir.
Skip allt að 45.000 tonn með 12,5
metra djúpristu geta nú lagst að
þesari nýju bryggju. Losun olíu-
skipanna tekur nú mun skemmri
tíma en áður þegar skipin lágu í
legufærum norðan Örfíriseyjar og
losuðu olíu- og bensínfarma um
neðansjávarlagnir. Bygging
bryggju fyrir stór olíuskip við Eyj-
argarð er fyrst og fremst gerð
með öryggis- og umhverfíssjónar-
mið í huga.
Tæknideild Reykjavíkurhafnar
hafði yfirumsjón með hönnun og
Árni Þór Sigurðsson formaður hafnarsljómar Reykjavíkurhafnar
klippir á borða við formlega opnun olíubryggju við Eyjargarð. Til
vinstri Jón Þorvaldsson forstöðumaður Tæknideildar Reykjavíkurhafn-
ar og Helgi Laxdal forstöðumaður rekstrarsviðs Reylq'avíkurhafnar.
byggingu Eyjargarðs, Almenna
verkfræðistofan sá um hönnun,
Sæþór ehf sá um gröft efnisskipta-
skurðar, dýpkun viðlegu og fýll-
ingu, Suðurverk hf sá um grjótn-
ám og byggingu skjólgarðs og
Lárus Einarsson sf sá um bygg-
ingu bryggju.
Heim eft-
ir hjálpar-
störf í
Indónesíu
ÞORSTEINN Þorkelsson,
skólastjóri Björgunarskóla
Slysavarnafélagsins, kom til
landsins 18. júní sl. að lokinni
tólf daga sendiferð á vegum
Sameinuðu þjóðanna til jarð-
skjálftasvæða í Indónesíu.
Þorsteinn starfaði við sam-
ræmingu björgunarstarfs og
mat á áhrifum jarðskjálfta af
stærðinni 7,9 stig á Richters-
kvarða sem reið yfir eyjuna
Súmötru 4. júní síðastliðinn.
Var hann þar sem hluti af
UNDAC-liði (United Nations
Disaster Assessment and
Coordination) Sameinuðu
þjóðanna. Hlutverk UNDAC
er að samræma og skipuleggja
hjálparstarf á hamfarasvæð-
um um allan heim. Þess má
geta að Sameinuðu þjóðimar
buðust til að senda UNÐAC-
lið til íslands síðastliðinn laug-
ardag, ef þörf hefði verið á er-
lendri aðstoð í kjölfar jarð-
skjálfta er varð á Suðurlandi.
í jarðskjálftanum á Súm-
ötru fórust 90 manns og 2.577
slösuðust, auk þess sem mikið
tjón varð á eignum og sam-
göngutækjum.
Ársfundur Lífeyrissjóðs
starfsmanna Búnaðarbanka íslands hf.
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna
Búnaðarbankans verður haldinn kl: 19:00 þann
29.6.2000 í höfuðstöðvum Búnaðarbanka íslands
hf. Austurstræti 5 Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar vegna liðins starfsárs
2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár
3. Tryggingafræðileg athugun á stöðu sjóðsins
4. Fjárfestingastefna sjóðsins
5. Kosning stjórnar og varamanna
6. Samþykktir sjóðsins - eins og þær eru eftir að
stjórn breytti þeim skv. heimild í 5. mgr. 22. gr.
7. Önnur mál, löglega upp borin.
Stjórn Lífeyrissjóðs
Búnaðarbanka íslands hf.
www.leppin.is
Sportdiykkiirfyrir böm og unglinga 375g:
Hollur og bragðgóður drykkur fyrir böm og
unglinga. Drykkurinn inniheldur öll vítamín og
bætiefni sem böm og unglingar þurfa.
Bragðtegundin Sítrónu/ananas TVIST
Leppin sport brúsan
Ómissandi fyrir drykkinn á
æfingu, í skólann, í
vinnuna, gönguna o.fl.
Squeezy powder, 500g
Kolvetnaduft sem blandast f vatn.
Gefur orku og kemur í veg fyrir að kol-
vetnabirgðir líkamans tæmist. Drykkur í
átökum s.s. æfingu, keppni og erfiðisvinnu.
Hollur og góður svaladrykkur.
Leppin Squeezy duftið fæst í 3 bragð-
tegundum: Sítrónu/ananas Tvist,
appelsínu Rumba og sítrónu Samba.
Léttur, 500g:
Næringardrykkur. Gæða prótein, flókin
kolvetni og trefjar auk allra bætiefna sem
líkaminn þarf. Léttur er blanda af flóknum
kolvetnum, mysupróteini og góðum trefjum
ásamt vítamínum og bætiefnum sem
líkaminn þarf daglega. Léttur inniheldur
F0S gerla, sem aðstoða við að viðhalda
góðri meltingu og vinna gegn óvinveittum
bakteríum í þörmum.
Léttur fæst í 3 frábærum bragðtegundum:
Jarðberja/kiwi Tango. sftrónu/ananas Tvist
og súkkulaði/banana Mambo.
ekkert koffein, enginn hvítur sykur, engin aukaefni
Gefðu gjafakort
og vertu viss um
að gjöfin hitti í mark.
Gjafakort fást á
þjónustuborði Kringlunnará l.hæð.
UPPIÝIIHGAIÍMI 58« 7788 IKRIFITOFUIÍMI 568 9200