Morgunblaðið - 22.06.2000, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Menningin
borgar sig
Það hefur varla farið framhjá neinum að
Reykjavík er ein af níu menningarborgum
Evrópu árið 2000. Boðið hefur verið upp á
fjölþætta dagskrá. En það er ekki bara hér
á landi sem menningarborgin lætur til sín
taka. Orri Páll Ormarsson kynnti sér það
sem hún leggur til hátíðarhaldanna í hinum
borgunum átta - og víðar - og hvaða þýð-
ingu framtakið kann að hafa.
Raddir Evrópu er stærsta samstarfsverkefni borganna níu. Með kórnum syngur Björk Guðmundsdóttir.
REYKJAVÍK - menningar-
borg er auðvitað fyrst og
fremst sýnileg hér heima
og menn átta sig ef til vill
ekki á því að hún stendur fyrir mesta
útflutningi á íslenskri menningu sem
um getur á einu ári. Margfeldisáhrif
þeii-ra viðburða sem við ýmist flytj-
um út eða vinnum í samstarfí við hin-
ar borgirnar átta geta verið veruleg
og skipt sköpum fyrir íslenska
menningu til lengri tíma litið,“ segir
Sigrún Valbergsdóttir, fram-
kvæmdastjóri erlendra viðburða hjá
menningarborginni.
Nefnir hún Björk Guðmundsdótt-
ur söngkonu sem dæmi. „Það hefur
margsannast á henni að ef í slending-
ur vekur athygli á einu sviði smitar
það út frá sér. Áhugi á landi og þjóð
fer vaxandi.“
Svanhildur Konráðsdóttir, kynn-
ingarstjóri menningai'borgarinnar,
tekur í svipaðan streng. Sýnt sé að
hlutir geti undið upp á sig sé vel
haldið á spöðunum. „Lítum á nær-
tækt dæmi. Hér á landi eru þessa
dagana staddir menn frá bandarísku
sjónvarpsstöðinni CNN við tökur á
þremur þáttum sem hverfast um ís-
lenska menningu og listir. Þetta er
bein afleiðing af kynningu sem
menningarborgin efndi til í Lundún-
um í mars síðastliðnum. Síðan höfum
við ekki tölu á öllum þeim frönsku
Morgunblaðið/Ásdís
Fólkið að baki Baldri: Jorma Uotinen danshöfundur, Kristin Bredal
ljósa- og búningahönnuður og Kjartan Ragnarsson dramatúrg.
blaðamönnum sem hingað eru komn-
ir vegna skonnortnanna frönsku.
Þannig geta hlutir hlaðið utan á sig.“
Evrópsku menningarborgirnar
níu árið 2000 eru auk Reykjavíkur,
Björgvin í Noregi, Helsinki í Finnl-
andi, Avignon í Frakklandi, Prag í
Tékklandi, Kraká í Póllandi, Sant-
iago de Compostela á Spáni, Brússel
í Belgíu og Bologna á Ítalíu.
Finnar til fyrirmyndar
Sigrún og Svanhildur segja sam-
starfið við borgirnar átta hafa verið
OPmOLLKVOLDTILKL. 21
JHÍMETRO
Skeifan 7 • Simi S25 0800
gott en öflugast hefur það verið milli
norrænu borganna þriggja. „Sam-
starfið milli borganna hefur verið vel
heppnað og ánægjulegt. Skipulag
hátíðanna er auðvitað mismunandi,
eins og gengur, og áherslur ólíkar.
Við höfum unnið langmest með Hels-
inki og þar er öll uppbygging til fyr-
irmyndar. Þeir hugsa svo stórt,
Finnarnir. Það sem frá þeim hefur
komið er stórfenglegt enda eru
Finnar snillingar í að ráðast í stór
verkefni án þess að drekkja þeim í
skriffinnsku. Það hefur líka verið
mjög gott að vinna með skipuleggj-
endum í Björgvin," segir Sigrún.
Segir hún samstarfið við austur-
evrópsku borgirnar, Prag og Kraká,
af öðrum toga enda séu aðstæður
ólíkar þar og á Norðurlöndunum.
„Það hefur verið ánægjulegt að
starfa með Prag og Kraká þótt hugs-
unarháttur sé þar oft og tíðum nokk-
uð flókinn. Það fer ekkert á milli
mála að gamla kerfið þvælist svolítið
fyrir tánum á skipuleggjendum í
þessum borgum við framkvæmd há-
tíðar af þessu tagi. Fjármagnið er
kannski ekki af skornum skammti en
verðgildið er allt annað en við eigum
að venjast á Vesturlöndum. Þeir eiga
líka afar erfitt með að taka ákvarð-
anir á skömmum tíma. Kerfið er svo
þungt í vöfum.“
Athygli vekur að skipt hefur verið
um verkefnisstjóra í sjö af níu borg-
um frá því þær urðu fyrir valinu sem
menningarborgir árið 1995. Aðeins
Helsinki og Santiago hafa haft sama
stjórnanda frá upphafi. Sigrún segir
erfitt að meta hverju þetta sætir.
Sums staðar sé starfið pólitískt og
því hafi orðið mannaskipti í kjölfar
kosninga. „Síðan er menningarborg
bara svo flókið fyrirbæri."
Raddir Evrópu
stærsta verkefnið
Umfangsmesta samstarfsverkefni
menningarborganna er Raddir
Evrópu, kór skipaður ungmennum
frá borgunum níu, sem syngja mun
með Björk Guðmundsdóttur í öllum
borgunum í ágúst og september. Þá
mun kórinn koma fram á tónleikum í
Tallinn í Eistlandi.
„Eistar óskuðu sérstaklega eftir
því að fá Raddirnar í heimsókn," seg-
ir Sigrún, „og þar sem Tallinn er svo
skammt frá Helsinki, þar sem kórinn
Morgunblaðið/Ásdís
íslenska leikhúsið og Hafnar-
fjarðarleikhúsið sýna leikverkið
Július í Finnlandi.
verður 31. ágúst, gátum við orðið við
því. Tónleikarnir í Tallinn verða 1.
september."
Segir hún miðasölu á Raddir
Evrópu og Björk ganga ljómandi vel
og á sumum stöðum sé þegar orðið
uppselt. „Það er útlit fyrir að uppselt
verði á alla tónleikana."
Reykjavík er í forsvari fyrir verk-
efnið og segja Sigrún og Svanhildur
það hafa stuðlað að enn betri tengsl-
um við hinar borgirnar. „Segja má
að Raddir Evrópu sé flaggskip sam-
starfs menningarborganna árið 2000
og því er Reykjavík óhjákvæmilega í
lykilstöðu. Þá tók Evrópusambandið
verkefnið upp á sína arma, gerði það
að svokölluðu Millennium-verkefni,
sem hefur vakið enn meiri athygli á
því,“ segir Svanhildur.
Ballettinn Baldur eftir Finnann
Jorma Uotinen við tónlist Jóns Leifs
er annað viðamikið verkefni sem
Reykjavík stendur að í samvinnu við
Helsinki og Björgvin. Verður verkið
sett á svið í borgunum þremur í
ágúst og september. Binda Signán
og Svanhildur miklar vonir við Bald-
ur sem sé „vel til þess fallinn að
koma íslenskri menningu á framfæri
erlendis".
Ef við lítum okkur nær í tíma var í
vikunni vígður garður í Avignon þar
sem getur að líta tilvitnanir í skáld
frá borgunum níu grafnar í grjót. ís-
lenska skáldið er Halldór Laxness
og eru orð hans sótt í Kristnihald
undir jökli: „Sá sem ekki lifir í skáld-
skap, lifir ekki af hér á jörðinni.“
í þessari viku hafa Martin Fröst
klarínettuleikari og Þorsteinn Gauti
Sigurðsson píanóleikari verið á ferð í
Nuuk á Grænlandi og Þórshöfn í
Færeyjum. Koma þeir fram undir
merkjum hátíðarinnar Nordvest
musik en Reykjavík - menningar-
borg leggur sérstaka áherslu á
tengsl íslands, Grænlands og Fær-
eyja á árinu.
Margrét Haraldsdóttir Blöndal og
Þorvaldur Þorsteinsson eru fúlltrúar
íslands á höggmyndasýningu í
Töölönlahti-víkinni í Helsinki út
mánuðinn og Ólafur Elíasson sýnir
verk á sambærilegri sýningu í
Björgvintil3.júlí.
íslenski dansflokkurinn verður á
ferðinni með verkið Maðurinn er
alltaf einn eftir Ólöfu Ingólfsdóttur í
Prag 28. júní á danshátíðinni Ti’ans
dans Europe, hátíð sjö danshöfunda
frá jafnmörgum menningarborgum.
Verkið hefur þegar verið sýnt í
Avignon og verður á sviði í Bologna
2. júlí. Við sama tækifæri, bæði í
Prag og Bologna, verður sýnd stutt-
myndaþrennan Örsögur úr Reykja-
vík eftir Rögnu Söru Jónsdóttur,
Margréti Söru Guðjónsdóttur og
Sveinbjörgu Þórhallsdóttur.
25. júlí leikur Trio Nordica á
Nordvest musik í Nuuk.
Margt á seyði í
ágúst og september
í ágúst og september verður
margt á seyði. 8. ágúst tekur hópur
úr Listdansskóla íslands þátt í dans-
hátíð í Avignon. Sýnt verður verk
eftir Láru Stefánsdóttur við tónlist
eftir John Speight. Nemendur í Tón-
skóla Sigursveins D. Kristinssonar
annast undirleik undir stjórn Guðna
Franzsonar.
23. ágúst opnar myndhstarsýning-
in Transplant/HEART í Vantaa,
Finnlandi, þar sem Valborg Salóme
Ingólfsdóttir verður fulltrúi íslands,
og 26. ágúst verður tískuviðburður-
inn Futurice, sem Eskimo Models
hafa veg og vanda af, í Kiasma-safn-
inu í Helsinki.
29. ágúst verður Nordvest musik
fram haldið í Nuuk. Koma þar fram
Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari og
Roland Pöntinen píanóleikari. Þau
verða svo á ferð í Þórshöfn 31. sama
mánaðar.
Raddir Evrópu og Björk gera víð-
reist. Hinn 29. ágúst verða þau í
Brússel, 31. í Helsinki, 1. september
í Tallinn, 3. í Kraká, 5. í Avignon, 7. í
Bologna, 10. í Santiago og 12. og 13.
september í Björgvin.
Baldur verður fluttur í Grieg-
hallen í Björgvin 31. ágúst og í Expo-
hallen í Helsinki 7. og 8. september.
Dagana 10.-17. september verður
haldin alþjóðleg hátíð í freskumálun
í Dozza á Ítalíu. Frá íslandi kemur
listakonan Guðrún Kristjánsdóttir.
í október verða tveir íslenskir rit-
höfundar, Steinunn Sigurðardóttir
og Einar Már Guðmundsson, á ferð í
Kanada á alþjóðlegum hátíðum.
Júlíus, barnaleiksýning á vegum
íslenska leikhússins og Hafnarfjarð-
arleikhússins, verður sýnd á ON-
leiklistarhátíðinni í Vantaa í Finn-
landi snemma í nóvember og dagana
29. nóvember til 3. desember verða
íslenskir listamenn meðal þátttak-
enda í hátíðinni Forces of Light í
Björgvin og á sömu hátíð í Helsinki
ll.til31.desember.
Fleiri viðburðir kunna að fléttast
inn í dagskrána.