Morgunblaðið - 22.06.2000, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000 15
HÖFUÐBORGARSWEÐIÐ
Garðabær hefur samið við skrúðgarðyrkjumeistara um gerð minjagarðs við Hofsstaði
Fornleifar frá land-
námi varðveittar og
gerðar aðgengilegar
Gardabær
GARÐABÆR hefur tekið til-
boði í framkvæmdir við
minjagarð, þar sem verða
sýndar minjar um byggð frá
landsnámsöld sem fundist
hafa við fornleifauppgröft í
landi Hofsstaða.
Ragnheiður Traustadóttir,
fornleifafræðingur á Pjóð-
minjasafninu, hefur stundað
fornleifauppgröft í landi
Hofsstaða frá árinu 1994.
Hún sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að rannsóknir
sínar hefðu leitt í ljós mann-
vistarleifar, hinar elstu frá
landnámsöld og hinar yngstu
frá 12. öld. Við uppgröftinn
sást móta fyrir skála og tún-
garði og markmiðið með gerð
minjagarðsins er að varðveita
þær minjar og gera aðgengi-
legar almenningi. Þarna hef-
ur því staðið fyrsti bærinn á
Hofsstaðajörðinni en búið var
á henni fram á sjöunda ára-
tug þessarar aldar.
Ragnhildur Skarphéðins-
dóttir landslagsarkitekt hef-
ur hannað minjagarðinn sem
bæjarráð hefur nú ákveðið að
semja við Þorkel Einarsson
skrúðgarðyrkjumeistara um
að gera úr garði.
Minjarnar sýnilegar
og aðgengilegar
Að sögn Eiríks Bjarnason-
ar bæjarverkfræðings verður
20 m.kr. varið til verksins í
fyrsta áfanga.
„Við erum að hugsa um að
gera þetta sýnilegra og að-
gengilegra en hingað til hefur
verið gert,“ sagði Rgnhildur
Skarphéðinsdóttir í samtali
við Morgunblaðið. Hún sagði
að útlínur landnámsbæjarins
og gripahúsa yrðu hlaðnar úr
torfl í um það bil 60-70 sm
hæð og síðan yrðu hærri
veggir hlaðnir utan um minj-
arnar. „Minjagarðurinn verð-
ur hluti af stærri heild sem
tengist miðbæ Garðabæjar
og Tónlistarskólanum," sagði
Ragnhildur. Hún sagði stefnt
að því að setja sums staðar
gler yfir sjálfar minjarnar og
merkja þær á gagnlegan hátt
auk þess sem almenningur
mun eiga greiðan aðgang að
göngustígum sem gerðir
verða. I samtali við Eirík
Bjarnason kom fram að garð-
urinn yrði lýstur upp og
Ragnheiður Traustadóttir
sagði að ætlunin væri að
koma þar fyrir teikningum og
myndum af gripum sem fund-
ust við uppgröftinn og upp-
lýsingaskiltum um minjarnar.
Ragnhildur sagði að minja-
garðurinn yrði hinn fyrsti
sinnar tegundar hér á landi
en rætt væri um að reisa síð-
Teikning/Ragnhildur Skarphéðinsdóttir
Uppdráttur af hönnun minjagarðsins við Hofsstaði í Garðabæ.
ar lítið safn tengt honum.
Hafist verður handa við
fyrsta áfanga framkvæmda
fyrir mánaðamót. Er stefnt
að því að reyna að koma upp
torfveggjum í júlí og segir
Ragnhildur stefnt að því að
færustu torfhleðslumenn
landsins annist það verkefni.
Veggir verða hlaðnir í vetur
og á verkinu að verða lokið í
mars á næsta ári en að því
loknu verður farið að vinna
við að lýsa svæðið upp og
merkja minjarnar þannig að
minjagarðurinn verði tilbúinn
næsta sumar.
Minjagarðurinn mun
tengjast lóð Tónlistarskóla
Garðabæjar og verður hægt
að ganga af skólalóðinni inn í
garðinn. Minjagarðurinn
verður hluti af bæjargarði
sem stefnt er að þvi að lokið
verði við á næstu árum með
því að útbúa opið svæði milli
Tónlistarskólans og byggðar-
innar við Hofslund. I þeim
áfanga er gert ráð fyrir göng-
ustígum, tjörnum og gróðri.
Sumar-
blíðunnar
notið
Reykjavík
SUMARSÓLSTÖÐUR eru
21.-22. júní og er það sá tími
árs þegar sólargangur er
lengstur. Dag hættir því
senn að lengja og hann tekur
aftur að styttast. Fyrr en
varir heilsar vetur konungur
að nýju.
Því er brýnt að nýta hverja
sólskinsstund sem gefst til að
njóta blíðunnar líkt og þess-
ar ungu konur gerðu í miðbæ
Reykjavíkur.
Mælt með
Guðnýju
Gerði
Reykjavík
Menningarmálanefnd
Reykjavíkurborgar hef-
ur mælt með Guðnýju
Gerði Gunnarsdóttur,
safnstjóra hjá Þjóð-
minjasafninu, í starf
borgarminj avar ðar.
Atkvæði fóru þannig
að Guðný Gerður fékk
þijú atkvæði meirihluta
nefndarinnar og Nikulás
Úlfar Másson, deildar-
stjóri húsadeildar Ár-
bæjarsafns og staðgeng-
ill borgarminjavarðar,
fékk tvö atkvæði.
Borgarráð tekur
ákvörðun um ráðningu
nýs borgarminjavarðar
nk. þriðjudag.
Aðrir umsækjendur
um starfið voru: Aðal-
björg Ólafsdóttir, kenn-
ari, Bjarni F. Einarsson,
fornleifafræðingur,
Gerður Róbertsdóttir,
deildarstjóri fræðslu-
deildai’ Arbæjarsafns,
Helgi M. Sigurðsson,
deildarstjóri munasafns
Arbæjarsafns, Margrét
Hermanns-Auðardóttir,
fornleifafræðingur, og
Steinunn Kristjánsdótt-
ir, fomleifafræðingur.
Ungmenni
fegra
Kópa-
vogsbæ
Kópavogur
Ekki lítur út fyrir annað en
að ungmennin í Vinnuskóla
Kópavogs skemmti sér kon-
unglega við störf. Léttklædd-
ar meyjar gróðursetja hér
glaðar í bragði blóm í sumar-
blíðunni.
Fyrir tilstilli þeirra og
annarra starfsmanna Vinnu-
skólans er bærinn fagur sem
aldrei fyrr.
Borgin hefur
tekið Fram-
heimilið á leigu
Háaleiti
BORGIN hefur tekið félags-
heimili Fram á leigu og mun
félagsmiðstöðin Tónabær
hefja þar starfsemi í októ-
ber.
Sveinn Andri Sveinsson,
formaður Fram, segir sam-
starf borgarinnar og félags-
ins geta orðið náið. Áfoi-m
eru um að Fram geri þjón-
ustusamning við borgina sem
feli meðal annars í sér starf-
rækslu íþróttaskóla. Gert er
ráð fyrir að borgin hafi afnot
af svæðinu í kringum Fram-
heimilið eftir nánara sam-
komulagi og að félagið hafi
aðgang að húsinu. Mestu
munar um að missa búninga-
aðstöðu félagsheimilisins, að
sögn Sveins. Fram mun al-
farið nota búningaaðstöðuna
sem er í íþróttahúsinu eftir
að Tónabær hefur starfsem-
ina, en hana þarf þó að bæta.
Sveinn segir að eftir til-
komu íþróttahússins hafi í
raun verið of rúmt um
Framara, en þá flutti hand-
boltadeildin alla starfsemi
sína þangað. Því telur hann
þetta mjög góða lausn.
Soffía Pálsdóttir, æsku-
lýðsfulltrúi íþrótta og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur,
segir félagsheimili Fram
heppilegt húsnæði fyrir
starfsemi Tónabæjar, en eins
og fram kom í Morgunblað-
inu á dögunum hefur Eign-
arhaldsfélag Kringlunnar
keypt Tónabæ fyrir 67,6
m.kr. og fær húsið afhent 1.
október nk.
Soffía segir félagsheimili
Fram rúmgott og fjölda lít-
illa herbergja telur hún nýt-
ast vel til klúbbastarfs.
Fyrirkomulagi félagsmið-
stöðvarinnar verður einnig
breytt lítfilega, að sögn Soff-
íu. Lögð verður meiri
áhersla á að félagsmiðstöðin
sé nokkurs konar miðlæg
stöð sem teygi anga sína í
auknum mæli út í skólana.
Slíkt fyrirkomulag hefur gef-
ist vel í Breiðholti og Grafar-
vogi þar sem reynsla er
komin á það. Starfsfólk fé-
lagsmiðstöðvarinnar fer í
skólana og starfar þar með
börnum og unglingum. Soffía
segir að starfsfólkið muni
þannig nýtast fleiri krökk-
um.
Morgunblaðið/Ómar
Byggja fyrir námsmenn
Gardabær
GARÐABÆR hyggst reisa
fjölbýlishús með 12 náms-
mannaíbúðum við Arnarás.
Að sögn Eiríks Bjarna-
sonar, bæjai’verkfræðings,
stendur hönnunarvinna nú
yfir en stefnt er að því að
láta bjóða verkið út í næsta
mánuði og að húsið rísi á um
það bil ári frá því fram-
kvæmdir hefjast. Eiríkur
sagði að Félagsstofnun stúd-
enta væri bænum til ráðun-
eytis við undirbúninginn en
gert sé ráð fyrir að náms-
mönnum verði leigðar íbúðir
í húsinu, líkt og í öðrum
stúdentagörðum. Um það
hvort námsmenn með lög-
heimili í Garðabæ verði látn-
ir ganga fyrir um íbúðir
sagði Eiríkur að ákvarðanir
hefðu ekki verið teknar.
Um ástæður þess að farið
er út í að reisa námsmanna-
íbúðir sagði Eiríkur, að bær-
inn hefði skynjað þörf fyrir
húsnæði af þessu tagi, sem
væri m.a. fjármagnað með
hliðstæðum lánum og veitt
eru vegna félagslegs leigu-
húsnæðis. Um kostnað við
framkvæmdirnar sagði hann
að áætlun lægi ekki fyrir.
Byggingarnefnd bæjarins
hefur samþykkt fram-
kvæmdirnar og að reist
verði 867 fermetra fjölbýlis-
hús í þessu skyni á Árnarási
9-11.