Morgunblaðið - 22.06.2000, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 22. JIJNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Hótel Brattholt
Morgunblaðið/Sig. Sigm.
Glæsilegt hótel í Brattholti
Hrunamannahreppi. Morgunblaðið.
Nýtt og glæsilegt hótel var tekið
formlega í notkun í Brattholti í
Biskupstungum hinn 10. júní. Það
eru tvenn hjón, bændur í Bratt-
holti, sem eru eigendur að þessu
nýja hóteli, þau Guðrún Lára
Ágústsdóttir, Njörður Jónsson, ír-
is Inga Svavarsdóttir og Jón Harrý
Njarðarson. Húsið er 530 fermetr-
ar að flatarmáli, í því eru 16 vistleg
tveggja manna herbergi með baði,
matsalur fyrir um 70 manns ásamt
eldhúsi og tilheyrandi geymslum.
Hreggviður Smári Hreggviðsson,
byggingatæknifræðingur á Sel-
fossi, er arkitekt að þessu veglega
húsi. Helstu byggingarverktakar
við uppbyggingu hússins voru JÁ-
verktakar hf. á Selfossi og Bisk-
verk ehf. í Biskupstungum, en
Birgir og Helgi önnuðust múrverk
og flísalagnir.
í Brattholti hefur verið rekin
bændagisting og hestaleiga frá ár-
inu 1987 og hafa umsvifin farið
vaxandi, þar er einnig myndarleg-
ur búskapur.
Eins og mörgum mun kunnugt
er Brattholt við Hvítá, um 3,5 km
Eigendur hótelsins í Brattholti, Jón Harrý Njarðarson, Iris Inga
Svavarsdóttir, Guðrún Lára Ágústsdóttir og Njörður Jónsson.
neðan við Gullfoss. Það er sá bær
sem lengst er inni í landi á Suður-
landi, um 7 km austur af Geysis-
svæðinu í Haukadal. Þar er afar
fagurt umhverfi og setur hið stór-
brotna Hvítárgljúfur þar mestan
svip á landið.
Með tilkomu þessa nýja hótels í
hálendisbrún Suðurlands við Kjal-
veg opnast margvíslegir möguleik-
ar á sumar- sem vetrarferðum frá
hótelinu, auk þess sem hægt er að
fá allar venjulegar veitingar frá
morgni til kvölds.
Oafslátturáöllum
titan
solgler med pinum
st/rk í kaupbæti
gildir til sunnudagsins 2. júlí
Gönguferðir
*
um Isafjörð
MORRINN er atvinnuleikhús ungs
fólks í ísafjarðarbæ og eitt af
stærstu verkefnum þess í sumar
eru gönguferðir í bænum þar sem
ferðamönnum gefst kostur á að
ganga um sögufræga staði og fylgj-
ast með leikþáttum tengdum sög-
unni.
„Saga Isafjarðar er merkileg og
í bænum er fjöldi gamalla húsa
sem gaman er að skoða,“ segir
Greipur Gíslason, talsmaður Morr-
ans. „Þetta er eitt af stærstu verk-
efnum Morrans í sumar en við er-
um í samstarfi við Vesturferðir.
I Isafjarðarbæ má meðal annars
finna eina best varðveittu húsa-
þyrpingu á landinu frá 18. öld.“
I gönguferðunum verður rakin
saga staðarins og staldrað við á
merkum stöðum þar sem Morrinn
verður með leikþætti tengda sög-
unni ásamt því að fjallað verður um
líf og störf Isfirðinga á síðustu ár-
um. „Við munum stoppa á um tíu
stöðum samtals og meðal annars
verður boðið upp á lummur á Silf-
urtorgi og smakkað á sushi við
höfnina en í bænum er að finna
sushi-verksmiðju.“
Hver gönguferð tekur tæpa tvo
tíma og að sögn Greips er þetta
sýning bæði fyrir augað og eyrað
en leikhópurinn mun t.d. syngja
lög eftir ísfirsk tónskáld.
Gönguferðirnar verða farnar á
þriðjudögum og fimmtudögum frá
6. júní til 6. ágúst og allar nánari
upplýsingar er að finna á heima-
síðu Vesturferða, www.vesturferd-
ir.is.
Um tuttugu leikarar
Atvinnuleikhúsið var stofnað fyr-
ir tilstilli nokkurra krakka, meðal
annars talsmanns leikhópsins. „Við
sóttum um styrk til bæjarins til að
starfa við leiklist sumarlangt 1998
og fengum hann í formi launa hjá
Mynd úr safni Morrans
Lcikhópurinn mun t.d. syngja
lög eftir ísfirsk tónskáld.
vinnuskólanum. í fyrrasumar
ákvað bærinn síðan að stofna at-
vinnuleikhús ungs fólks.“
Hjá leikhúsinu starfa um tuttugu
leikarar á aldrinum 13 til 16 ára
ásamt leikstjóra, Elfari Loga
Hannessyni leikara, og Greipi
Gíslasyni, talsmanni hópsins.
Af öðrum verkum Morrans í
sumar má nefna að stærsta verk-
efni leikhússins verður að taka á
móti gestum allra skemmtiferða-
skipa sem sækja Isafjörð heim og
skemmta þeim með dansi og söng.
Þá mun leikhúsið heimsækja þá
sex leikskóla sem eru starfræktir í
Isafjarðarbæ og sýna þar frum-
samið stykki sem er verið að semja
um þessar mundir.
Siglingar í eyoifirði
á glæsisnekkiu
Egilsstödum. Morgunblaðið.
FJARÐAFERÐIR á Norðfirði hafa
nýverið endurnýjað bát sinn og
státa nú af lítilli glæsisnekkju, Eld-
ingu, með klefum, sturtum, eldhúsi,
borðkrók og salernum svo eitthvað
sé neftit. Fjarðaferðir bjóða sigling-
ar um Norðfjarðarflóa. Farið er í
eyðifirðina Viðijörð og Hellisfjörð
en í þeim síðarnefnda eru skoðaðar
rústir af gamalli hvalstöð. Byggð
hefúr verið grillaðstaða þar og er
tilvalið að halda þar veislur. Siglt er
undir Rauðubjörg sem eru litskrúð-
ug líparítbjörg. Þar er farið undir
fuglabjarg þar sem fólk getur jafn-
vel klappað fuglunum þar sem þeir
liggja á hreiðrum. Litið er á afla-
brögð hjá smábátum sem eru á veið-
um í kring og svo siglt undir Nípu,
sem er hæsta standbjarg úr sjó í
Evrópu. Á siglingunni eru rifjaðar
upp drauga- og þjóðsögur. Einnig
er hægt að panta bátinn í sérferðir,
nánast hvert sem er, t.d. til Seyðis-
fjarðar, Loðmundaríjarðar,
Mjóafjarðar og suður í Skrúð. Þegar
siglt er þangað gefst fólki kostur á
að sjá austasta odda landsins, Gerpi.
Göng’u-
sumar í
Borgarfírði
í SUMAR stendur ungmenna-
samband Borgarfjarðar fyrir
gönguferðum um sveitir Borgar-
fjarðar- og Mýrasýslu. Lagt er af
stað klukkan 20 annan hvern
fimmtudag. Heimamenn sjá um
leiðsögn og er ýmis fróðleikur sem
fylgir staðhátta- og landslagslýs-
ingum að sögn Ásdísar Helgu
Bjarnadóttur sambandsstjóra
UMSB. „Þetta eru tveggja tíma
göngur við allra hæfi og þátttak-
endur hafa verið allt frá fjögurra
ára aldri upp í áttatíu og fimm
ára.“ Næsta ganga verður í kvöld,
22. júní, en þá verður gengið um
Reykholtsdal og upp Rauðsgil frá
Rauðsgilsbrú.
Göngurnar eru kynntar á Vest-
urlandsvefnum (www.vestur-
land.is) undir dálknum „Á döfinni“.
Morgunblaðið/Arnaldur
Snorralaug í Reykholti.
Vesturland
2000
ÚT er komið upplýsinga- og fræðslu-
rit um ferðaþjónustu á Vesturlandi,
Vesturland 2000. í fréttatilkynningu
frá íslenskri upplýsingatækni segir
að í ritinu sé m.a. að finna ítarlega
þjónustuskrá og upplýsingar um
áhugaverða staði og afþreyingar-
möguleika á Vesturlandi. Ritið er
ókeypis og mun liggja frammi á upp-
lýsingamiðstöðvum víða um land.