Morgunblaðið - 22.06.2000, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000 39
Klæðileg list
TISKA OG
LJOSMYJVDIR
Listasafnið
á Akureyri
ÚROGÍ-ÝMSIR
Sýningin er opin frá þriðjudegi
til fimmtudags kl. 14-18, föstu-
daga og laugardaga kl. 14-22
og sunnudaga kl. 14-18.
Sýningunni lýkur 25. júní.
FREKAR óvenjuleg sýning hefur
nú verið sett upp í Listasafninu á Ak-
ureyri.
Þar má sjá verk eftir hálfan þriðja
tug íslendinga og Finna, tísku- og
skartgripahönnuði, ásamt tískuljós-
myndururm. Verkin eru dreifð um
allt safnið og mynda skemmtilegt en
dálítið undarlegt umhverfi fyrir
safngesti, eins konar samruna lista-
safns og tískuverslunar, hámenning-
ar og markaðsvöru, hönnunar og
innsetningar. Sex íslenskir fata-
hönnuðir hafa valist á sýninguna,
þær Linda Björg Árnadóttir, Bára
og Hrafnhildur Hólmgeirsdætur,
Ragna Fróðadóttir, Sæunn Huld
Þórðardóttir og Þuríður Rós Sigur-
þórsdóttir.
Fimm skartgripahönnuðir sýna,
þau Guðbjörg Kr. Ingvarsdóttir,
Hulda B. Agústsdóttir, Elísabet Ás-
berg, Katrín Pétursdóttir og Micha-
el Young. Þá eiga átta Ijósmyndarar
verk á sýningunni, Sveinn Speight,
Kristinn Már Ingvarsson, Haraldur
Hannes Guðmundsson, Magnús
Unnar Jónsson, Katrín Elvarsdóttir,
Bjarni Grímssson og Baldur Braga-
son. Loks hefur fimm finnskum
hönnuðum verið boðið til þátttöku,
Anne Korkala, Heli Miikkulainen,
Jani Maunula, Mari Turklin og
Tanja Toivonen.
Verk þessa mikla hóps eru afar
mismunandi og til dæmis má sjá
þama skartgripi sem spanna allt frá
hefðbundinni silfursmíð eftir Guð-
björgu og Elísabetu að plastgripum
eftir Huldu B., Katrínu og Michael.
Framlag ljósmyndaranna er hugsan-
lega næst því sem maður á von á að
sjá á nútímalistasafni, verk Kristins
Más og Bjarna Grímssonar minna
dálítið á þær ögn subbulegu hvers-
dagsmyndir sem margir ungir ljós-
myndarar sýna nú um stundir, með-
an verk annarra eru sum frekar í ætt
við konseptlist. Raunar má segja að
öll sýningin feti einstigi milli hönn-
unar og konsepts, afstrakt framsetn-
ingar og áherslu á notagildi og stíl.
Uppsetning gripanna undirstrikar
þessa tvíræðni ogþað gerir staðsetn-
ing sýningarinnar - í virðulegu lista-
safni Norðlendinga - auðvitað líka.
Þar sem áhorfandinn gengur um
innan um kjóla, skart og ólíkar Ijós-
myndh’ raskast í huga hans mörk
tísku og listar, hugmyndalegrar
framsetningar og markaðssetning-
ar.
Þessi röskun endurspeglar auðvit-
að þann hugmyndalega samruna
sem er að eiga sér stað alls staðar í
menningunni og er greinilega eitt
megininntak sýningarinnar. Linda
Árnadóttii' áréttar þetta með því að
bjóða föt sín til sölu á sýningunni og
setja upp mátunarklefa fyrir gesti í
miðjum sýningarsalnum.
Á síðustu áratugum hefur borið æ
RSœngurgjafir
J nafnl |—---“
meira á samruna myndlistar og
fjöldaframleiddrai' tískuvöru. Hand-
hægt er auðvitað að nefna Andy
Warhol í þessu samhengi, en þessi
tilhneiging er í raun mun ríkari og
umfangsmeiri en tilraunir hans gefa
til kynna. Varan er ekki lengur bara
innhald eða tilvísanaform verkanna
eins og i myndum Warhols af súpu-
dósum og stálullarpökkum, heldur
eru mörkin á ýmsum sviðum hrein-
lega að mást út, sér í lagi í menningu
yngra fólks þar sem tískugripur get-
ur haft fullt eins mikið inntak eða
merkingu og listaverk, en listaverk
getur verið alveg jafn smart og svalt
og tískan.
Sýningin í Listasafninu á Akureyi
er frískleg og spennandi og hefur
fengið góða aðsókn. Hún nær að tala
til þeirra sem velta sér upp úr menn-
ingu og hugmyndafræðilegum
spurningum um samtímann, ekki
síður en til þeirra sem fyrst og
fremst hafa áhuga á tískunni. Loks
tekur hún líka á samfélagslegum má-
lefnum, því liður í sýningarhaldinu
er söfnun meðal Ákureyringa á
gömlum fötum sem gefin eru tO
Rauða krossins, flóttamönnum og
öðrum sem í neyð eru staddir til
hjálpar.
Jón Proppé
LjósmjmitJón Proppé
lyólar Lindu Arnadóttur á sýningunni á Akureyri.
Sameiginlegur útsölumarkaður
REYKJAVÍK
UTILIF
a
GLÆSIBÆ
Sími 545 1500 • www.utilif.is
EN&tABÖRNÍN
j|Barónsstíg 59
^551 3584
Textílkjallariim
er í fullum gangi
Frábærar vörur með miklum afslætti
Enn meiri lækkun
Útsölumarkaðurinn er í Síðumúla 32 (áður Gallerí Borg)
Markaðurinn verður til 2. júlí
og er opinn virka daga frá kl. 12-18 og laugardaga frá kl. 10-16.