Morgunblaðið - 22.06.2000, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Utskrift í Tækniskóla Islands
BRAUTSKRÁNING nemenda frá
Tækniskóla Islands fór fram Iaug--
ardaginn 3. júní sl. AUs út-
skrifuðust 39 nemendur og fór at-
höfnin fram í Arbæjarkirkju.
20 nemendur úr frumgreinadeild
luku raungreinadeildaprófi en það
jafngildir stúdentsprófi af raun-
greinasviði. Frumgreinadeild gef-
ur iðnaðarmönnum og öðrum þeim
sem hafa reynslu úr atvinnulífinu
tækifæri til þess að setjast aftur á
skólabekk og öðlast réttindi er
opna allmargar leiðir til frekara
náms á háskólastigi.
Tveir byggingatæknifræðingar
útskrifuðust frá byggingadeild að
þessu sinni. Það nám tekur 3 og 'k
ár og veitir B.Sc-gráðu. Þá luku
fjórir nemendur fyrsta hluta raf-
magnstæknifræðináms en þeir
þurfa að leita út fyrir landsteinana
til þess að ljúka sínu námi. Hægt
verður að ljúka námi til B.Sc.-
gráðu í rafmagnstæknifræði hér á
landi áður en langt um líður. Einn-
ig útskrifuðust tveir iðnaðar-
tæknifræðingar, báðir af þróunar-
og sjálfvirknisviði eftir 3 og 'k árs
B.Sc.-nám.
Alls útskrifuðust ellefu nemend-
ur úr rekstrardeildinni. Þar af voru
fjórir iðnrekstrarfræðingar, en það
er tveggja ára diploma-nám ýmist
með sérhæfingu á sviði markaðs
eða reksturs. Þá lauk einn nemandi
B.Sc.-gráðu í alþjóðamarkaðsfræði
en það er árs viðbótarnám eftir iðn-
rekstrarfræði. Loks útskrifuðust
sex rekstrariðnfræðingar eftir
einnar annar rekstrarnám að loknu
bygginga-, vél- eða rafiðnfræði-
námi.
Þegar deildarstjórar höfðu af-
hent nemendum prófskírteini sín
tók við brasskvintett ungs fólks úr
Grafarvoginum og skemmti gest-
um með frábærum hljóðfæraleik.
Styrkir og viðurkenningar
Styrktarsjóður sameinaðra verk-
taka við Tækniskóla íslands veitti
þremur nemendum styrki að upp-
hæð 120.000 hveijum. Sturla Böðv-
arsson, formaður stjórnar sjóðsins,
afhenti styrkina en þá hlutu Sigur-
veig Hallsdóttir og Davíð Hauksson
úr rekstrardeild fyrir sérlega góð-
an námsárangur og Hinrik Jó-
hannsson sem útskrifaðist sem
FRAMKVÆMDASTJÓRN Verka-
mannasambands Islands ræddi á
fundi sínum á þriðjudag starfsloka-
samning þann sem gerður var við
Bjöm Grétar Sveinsson, fyrrverandi
formann og framkvæmdastjóra sam-
bandsins. Harmar framkvæmda-
stjórnin þá umfjöllun sem orðið hef-
ur um starfslokin og hvetur
aðildarfélögin til þess að snúa sér að
uppbyggilegri umfjöllun um samein-
ingu landssambanda ófaglærðra að
því er fram kemur í bókun sem sam-
þykkt var á fundinum.
Hervar Gunnarsson, starfandi for-
maður VMSÍ, sagði að á fundinum
hefði verið farið yfir málið í heild og
skipst á skoðunum um það og niður-
staðan eftir umræðuna hefði orðið sú
bókun sem samþykkt hefði verið á
fundinum.
í bókuninni segir meðal annars að
í starfslokasamningnum sem væri
undirritaður af fulltrúum fram-
kvæmdastjórnar og Birni Grétari
Sveinssyni, kæmi skýrt fram að
Bjöm Grétar segði af sér sem for-
maður VMSÍ og jafnframt starfi sínu
lausu sem framkvæmdastjóri. Þá
komi einnig fram að hann dragi sig í
hlé frá þeirri umræðu sem snúi að
Verkamannasambandinu. „Fram-
kvæmdastjórn vill nota tækifærið og
þakka Birni Grétari vel unnin störf
fyrir sambandið og óska honum velf-
amaðar í þeim störfum sem hann
kann að taka að sér í framtíðinni.
Framkvæmdastjóm VMSI harm-
ar þá umfjöllun sem átt hefur sér
stað í fjölmiðlum um starfslok
Bjöms Grétars Sveinssonar og um
orkutæknifræðingur árið 1999 og
hyggur á framhaldsnám erlendis.
Páll Á. Jónsson, fv. formaður
Tæknifræðingafélags Islands,
ávarpaði útskriftarnema og afhenti
viðurkenningar Tæknifræðingafé-
Iags íslands fyrir framúrskarandi
lokaverkefni. Iðnaðartæknifræð-
ingurinn Kristinn Harðarson og
byggingatæknifræðingurinn Val-
geir Bergmann Magnússon hlutu
hvor sína viðurkenninguna.
f lok athafnarinnar flutti rektor
Tækniskóla fslands, Guðbrandur
Steinþórsson, ávarp. Þar kom m.a.
fram að hann vonast til þess að nám
nemenda við skólann hefði lagt
grunn að farsælli framtíð þeirra
hvort heldur sem þeir stefndu í enn
frekara nám eða út í atvinnulífið.
þann samning sem gerður var við
hann. Sú umfjöllun hefur því miður
verið byggð á misvísandi og jafnvel
röngum upplýsingum.
Framkvæmdastjórn VMSÍ hvetur
aðildarfélög og forsvarsmenn þeirra
til að láta af þessari umfjöllun. Þess í
stað hvetur framkvæmdastjórn að-
ildarfélögin til þess að snúa sér að
uppbyggilegri og jákvæðri umfjöllun
er snertir það sem mestu máli skiptir
þessa stundina, sameiningu lands-
sambanda ófaglærðra," segir enn-
fremur.
Ekki nein eftirmál
Hervar sagðist ekki telja að það
ættu að vera um nein eftirmál að
ræða, málinu væri lokið hvað þennan
þátt varðaði. Hann gæti ekki skilið
þetta öðru vísi en þannig að menn
væru sáttir við að ljúka málinu með
þessum hætti. Nú væri brýnasta
verkefnið að sameina almennt verka-
fólk í einu landssambandi, þ.e. Þjón-
ustusambandið, Verkamannasam-
bandið og Landssamband
iðnverkafólks. Stefnt væri að því að
niðurstaða í þeim efnum lægi fyrir í
síðari hluta septembermánaðar og ef
allt gengi að óskum ætti að vera
hægt að halda stofnfund hins nýja
sambands um miðjan októbermán-
uð.
„Það er aðalatriðið að menn séu
ákveðnir í að fara að vinna þetta
verkefni sem skiptir máli fyi-ir alla
og sérstaklega fyi-ir þá umbjóðendur
sem við erum að vinna fyiir,“ sagði
Hervar ennfremur.
Hljóðkerfi Hallgríms-
kirkju komið í lag
Hið talaða
orð heyrist
skýrt og
greinilega
KIRKJUGESTIR í Hallgríms-
kirkju geta nú heyrt hið talaða orð
í kirkjunni skýrt og greinilega.
Stefán Guðjohnsen hljóðtækni-
fræðingur hefur unnið að tilraun-
um með samþættan hljómburð
kirkjunnar í nokkra mánuði og
hefur sú vinna skilað tilætluðum
árangi’i.
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson,
prestur í Hallgrímskirkju, segir
það mjög mikilvægt að tekist hafi
að leysa þetta vandamál, en hljóm-
gæði hins talaða máls hafi verið
slæm í kirkjunni síðan hún var
vígð fyrir 15 árum. Að sögn sr.
Jóns hefur eitthvað borið á því að
fólk sæki ekki athafnir við
kirkjuna vegna þessa vandamáls
en nú standi það sem betur fer allt
til bóta og mikil ánægja ríki meðal
presta og sóknarnefndar kirkjunn-
ar með þessa nýju stöðu mála.
:
Morgunblaðið/Amaldur Halldórsson
Hljómgæði hins talaða máls I
Hallgrímskirkju hafa batnað.
---------------
Fríverslun-
arsamn-
ingur
gerður við
Makedóníu
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðhen’a undirritaði á mánudag
ásamt starfsbræðrum sínum frí-
verslunarsamning milli EFTA-ríkj-
anna og Makedóníu á ráðherrafundi
EFTA. Samningurinn sem er sá 16. í
röð fríverslunarsamninga EFTA-
ríkja við þriðju ríki felur í sér frí-
verslun með iðnaðarvörur, sjávar-
afurðir og unnar landbúnaðarafurð-
ir.
Á ráðherrafundinum sem haldinn
var í Ziirich var m.a. rætt um innri
málefni EFTA, endurskoðun
EFTA-samningsins, framkvæmd
EES-samningsins og samskipti
EFTA við Evrópusambandið.
RáðheiTarnir væntu þess enn-
fremur að unnt yrði að ljúka gerð
fríverslunarsamninga við Jórdaníu
sem fyrst og Egyptaland og Túnis í
kjölfarið. Einnig ákváðu ráðherrarn-
ir að halda áfram könnun á gerð frí-
verslunarsamnings við Suður-Afr-
íku. Ráðherrarnir ræddu ennfremur
um að kanna grundvöll fyrir viðræð-
um um fríverslunartengsl við Singa-
púr, Suður-Kóreu og Japan.
Allsherjarþing ásatrúarmanna
verður á Þingvöilum um helgina
Ætla ekki að
nota aðstöðu
kristnihátíðar
ÁSATRÚARMENN
halda allsherjarþing sitt
á Þingvöllum um næstu
helgi. Jörmundur Ingi
Hansen allsherjargoði
segist búast við að 200-
300 manns, þar af um 100
útlendingar, muni sækja
hátíðina sem er haldin í
tilefni þúsaldarmótanna.
Jörmundur Ingi segir
að ásatrúarmenn muni
ekki nýta sér þá aðstöðu sem búið
er að reisa á Þingvöllum vegna
kristnihátíðar enda hafi sífelldar
tæknilegar hindranir ítrekað gert
skipuleggjendum hátíðarhaldanna
erfitt fyrir. Allsherjarþingið verð-
ur sett í dag, fimmtudaginn 22.
júní, sem ásatrúarmenn nefna
reyndar Þórsdag. Rútuferðir
verða frá Umferðarmiðstöðinni
klukkan 19 í kvöld.
í fréttatilkynningu frá Ása-
trúarfélaginu segir að dagskrá
þingsins verði með fomum blæ.
Þingið verði sett kl. 21 með sömu
athöfn og á landnámsöld, blásið
verður í lúðra og leikin íslensk
þjóðlög.
Um helgina verður bníðkaup að
ásatrúarsið og siðfesta sem er
sambærileg athöfn og ferming hjá
kristnum mönnum. Einnig verður
tendraður níundi landnámseldur-
inn og þar með lýkur endurhelgun
landsins sem hófst fyrir um l'/z ári
en ásatrúarmenn hafa tendrað
átta slíka elda víða um
land.
Tæknilegar hindranir
Dagskrá allsherjar-
þingsins raskast reyndar
nokkuð vegna þess að
sviðið sem ásatrúarmenn
höfðu áður talið að þeir
gætu notað við hátíðar-
höldin er ekki tilbúið, en
á laugardaginn verður
hafist handa við að setja upp hljóð-
kerfi fyrir kristnihátíðina sem
hefst á Þingvöllum 1. júlí. Af þeim
sökum verður ekkert af tónlistar-
dagskrá sem Hilmar Örn Hilmars-
son tónlistarmaður hafði skipu-
lagt. Hilmar Öm taldi þau
vinnubrögð sem hann hefði kynnst
í þessu máli í meira lagi undarleg.
„Það getur verið að verklag hafi
breyst á íslandi þau sex ár sem ég
hef verið búsettur í Danmörku en
hér áður fyrr tóku menn sér ekki
viku í að setja upp hljóðkerfi," seg-
ir Hilmar.
Þrátt fyrir þetta ætla ásatrúar-
menn að halda sínu striki og halda
allsherjarþing sitt án þeirrar að-
stöðu sem kristnihátíðamefnd hef-
ur látið koma upp á Þingvöllum.
Jörmundur Ingi segir að allir
séu velkomnir, þingið sé ekki ein-
göngu hátíð heiðinna manna held-
ur sé verið að fagna þeim sáttum
sem náðust á Alþingi fyrir 1000 ár-
um.
Jörmundur
Ingi Hansen
Framkvæmdastjórn VMSÍ
Harmar umfjöll
un um starfs-
lokasamning