Morgunblaðið - 22.06.2000, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN?
*
I árs fang-
elsi vegna
brota gegn
drengjum
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt karlmann í eins árs
fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
tveimur drengjum og til að greiða
þeim 650 þúsund krónur í miska-
bætur. Ákæruvaldið krafðist 5
milljóna króna í miskabætur vegna
annars drengsins og 3 milljóna kr.
vegna hins drengsins.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa brotið gróílega gegn öðrum
drengnum á heimili sínu í Reykja-
v£k og einnig í nokkur skipti á Akur-
eyri og á Laugarvatni. Hann braut
líka gegn hinum drengnum á heimili
sínu. Brotin stóðu frá haustinu 1997
fram á árið 1999 þegar drengirnir
voru ellefu til þrettán ára.
Akærði játaði skýlaust við rann-
sókn og meðferð málsins að hafa
gerst sekur um brotin. Hann hefur
einu sinni áður gerst sekur um
refsiverða háttsemi.
í dómi Héraðsdóms segir að brot
ákærða séu alvarleg. Telja verði
ljóst að slíkir atburðir sem hér um
ræðir séu til þess fallnir að valda
þeim sem fyrir verða margvíslegum
sálrænum erfíðleikum. Af þeim sök-
um var ákærði dæmdur ti! að greiða
báðum drengjunum miskabætur.
Málið dæmdi Greta Baldursdóttir
héraðsdómari.
Samgönguráðherra í skoðunarferð við gangastæði við Héðinsfjörð
Morgunblaðið/Þorkell
Frá ferðinni í Héöinsfjörð. F.v. Jón Rögnvaldsson aðstoðarvegamálastjóri, Jakob Falur Garðarsson, aðstoðarmaður ráðherra, Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra, Hreinn Haraldsson jarðfræðingur og Jón Birgir Jónsson ráðuneytisstjóri, en fyrir aftan hann sést í Jóhann Guðmundsson skrifstofu-
sljóra samgönguráðuneytisins.
Framkvæmdir árið 2002
STURLA Böðvarsson, samgönguráðherra heim-
sótti í gær fyrirhugaða jarðgangastaði við Héðins-
fjörð. Með ráðherra í för voru m.a. Jón Rögnvalds-
son aðstoðarvegamálastjóri og Hreinn Haraldsson,
sérfræðingur Vegagerðarinnar í jarðgangagerð
auk ráðuneytisstjóra og fleiri starfsmanna Sam-
gönguráðuneytisins.
Eftir fund með bæjarstjóra og bæjarfulltrúum á
Siglufírði var litast um þar sem ætlað er að ganga-
munni Siglufjarðarmegin muni verða, en eftir það
var siglt til Héðinsfjarðar. Litaðist ráðherra um
ásamt föruneyti sínu þar sem fyrirhugað er að
gangamunnar verði sitthvorum megin fjai'ðarins,
en því næst var siglt til Ólafsfjarðar og væntanlegt
vegstæði þeim megin barið augum.
Rannsóknir á svæðinu hafnar
Að sögn Sturlu eru rannsóknir á gróðurfari og
dýralífi við Héðinsfjörð hafnar, þeim næst hefjast
jarðfræðirannsóknir og síðan hönnunarvinna
vegna ganganna. Gert er ráð fyrir að þessi vinna
verði unnin samhliða fyrir austan og norðan, þ.e.
vegna jarðganga milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðs-
fjarðar annars vegar og hins vegar vegna Héðins-
fjarðarleiðar milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar.
Gert er ráð fyrir að rannsóknarvinna muni
standa fram á næsta ár, en ætlunin er að ganga-
gerðin á báðum stöðum verði þá boðin út í einum
pakka þannig að framkvæmdir geti hafist árið 2002.
Ennþá hefur ekki verið tekin ákvörðun um á
hvorum staðnum verði byrjað, enda segir Sturla að
slík ákvörðun verði ekki tekin fyrr en í ljós kemur
hvemig framkvæmdaálag verði í landshlutunum
tveimur og eins hvernig væntanlegur verktaki
hugsi sér að haga framkvæmdum.
Náttúra Héðinsíjarðar
ekki í hættu
Fram hefur komið í máli þeirra, sem bent hafa á
svokallaða Fljótaleið sem betri kost en Héðins-
fjarðargöng til samgöngubóta fyrir Siglufjörð, að
dulúð Héðinsfjarðar og sú hreina náttúra sem þar
er að finna gæti verið stærri fórnarkostnaður en
menn geri sér almennt grein fyrir. Slíkt ósnortið
svæði gæti verið dýrmætur afþreyingarkostur fyr-
ir ferðaþjónustu framtíðarinnar á Mið-Norður-
landi.
Aðspurður um það, hvemig dulúð og náttúrufeg-
urð fjarðarins hefði komið honum fyrir sjónir svar-
aði Sturla því til að hann væri vanur að ferðast um
landið og þekkti því vel tO margra eyðifjarða sem
skörtuðu ósnortinni náttúra líkt og Héðinsfjörður.
Vissulega væri full þörf á að fara varlega um þetta
svæði, en rétt væri að bíða eftir niðurstöðum þeirr-
ar rannsóknarvinnu sem þegar er hafin áður en
endanlegar ákvarðanir um framkvæmdir verða
teknar.
Hins vegar sagði Sturla, að í þessari stuttu ferð
hefði hann ekki séð neitt sem benti tO þess að vega-
gerð í Héðinsfirði hefði neinar hættur í för með sér,
heldur væri verið að opna mjög faOegt svæði með
því að veita umferðinni þar í gegn. Aðalatriðið væri
að vinna þetta verk vel, vinna rannsóknir ítarlega
og taka tillit til náttúrannar, en mikOvægt væri að
átta sig einnig á því að þegar allt kemur til alls þurf-
um við að búa í landinu.
Kippur
í laxveiðarnar
STÆRSTI lax sumarsins til þessa
veiddist í Fiyóská í vikubyrjun, 22
punda og í Laxá í Kjós dró um Þor-
bergur Karlsson 19 punda hæng á
inaðk í Kvíslafossi. Þá má segja að
fyrsta alvöru skot sumarsins hafi
komið er 17 laxar veiddust í gær-
morgun í Norðurá. Það var fiskur
af blandaðri stærð, þ.e.a.s. bæði var
um smálax og stórlax að ræða. Holl-
ið var þar með komið með 34 laxa
eftir tvo daga af þremur og er það
langbesta veiðin til þessa.
Dauft á Snæfellsnesi
Helstu laxveiðiár Snæfellsness
hafa byrjað á rólegu nótunum.
Veiði hófst í Haffjarðará, Straum-
fjarðará og Hítará á mánudaginn
og veiddist fyrsti laxinn á þriðju-
dagsmorgun. Var það 17 punda
grálúsugur fiskur sem veiddist í
Kvörninni í Ilaffjarðará í gærmorg-
un. Að sögn Einars Sigfússonar eru
menn alls ekki óhressir með byijun-
ina þvf víða sást lax en hann tók illa
vegna kulda. Settu menn í þó
nokkra, en allir utan sá 17 punda
láku af.
Ástþór Jóhannsson, einn leigu-
taka Straumfjarðarár sagði fyrsta
fiskinn enn i ánni, menn hefðu litið
séð og veiði hefði engin verið.
„Okkur var aðeins brugðið, en
kannski var ekki við öðru að
búast, áin afar vatnslítil og glær í
sólinni.
Stefán kokkur í Lundi við Hítará
sagði menn hafa sett í tvo laxa í
opnuninni, en misst báða. Ein
bleikja tíndi lífi.
Veiði hófst í Stóru Laxá í Hrepp-
um í gærmorgun og á hádegi voru
komnir þrír laxar á iand á efsta
svæðinu, en fréttir fengust ekki af
neðri svæðum. Að sögn Bergs
Steingrímssonar hjá SVFR voru
laxarnir 10 til 15 pund, en talsvert
af laxi sást á nokkrum stöðum, helst
og mest á Hólmabreiðu.
Sá fyrsti var 12 pund
Rangárnar Ytri og Eystri voru
báðar opnaðar í gærmorgun og
fréttist aðeins af tveimur löxum á
fyrstu vaktinni, 12 punda hrygnu
sem leigutakinn Þröstur EUiðason
veiddi á Rangárflúðum og öðrum
boltafiski sem Óðinn H.Jónsson
veiddi á Klöppinni í Ytri Rangá.
Eitthvað hafa rnenn séð af laxi í
ánni síðustu daga. Nokkrir vænir
silungar slæddust upp á þurrt í gær.
Geimfari
meðal
gesta á vík-
ingahátíð
ALÞJÓÐLEG víkingahátíð
verður haldin í þriðja sinn á
Víðistaðatúni í Hafnarfirði 22,-
25. júní. Fyrri hátíðir voru 1995
og 1997. Að hátíðinni stendur
Landnám ehf., sem er að mestu
í eigu Hafnarfjarðarbæjar, auk
annarra. Fyrirlestrar verða
fluttir undir samheitinu „Land-
könnuðir nútímans" kl. 21 í
kvöld í Hafnarborg, Listamið-
stöðinni við Strandgötu. Erindi
flytja: Bjami Tryggvason,
geimfari frá NASA, sem segir
frá landkönnun í geimnum,
Durita Holm, nútímavíkingur
frá Færeyjum, sem segir frá
ferð sinni umhverfis jörðina í
opnum seglbáti, og Haraldur
Örn Ólafsson pólfari, sem segir
frá heimskautaferðum.
Miðað er við aðsókn um 10-
15 þúsund gesta, sbr. fyrri há-
tíðir. Islenskir og erlendir vík-
ingar setja upp víkingaþorp
með tjaldbúðum, handverks-
gerð, sölu, bardögum, o.fl. Allir
þeir sem taka þátt í hátíðinni
leitast við að nota upprunaleg
efni í handverk, fatnað og mat-
argerð. Það má segja að með
víkingahátíðinni sé verið að
setja á svið lifandi safn, þar
sem gestum gefst kostur á að
kynnast lifnaðarháttum víking-
anna og menningu þeirra, segir
í fréttatilkynningu
Markmiðið með hátiðinni er
ekki einungis að kynna menn-
ingu víkinga með aðgengileg-
um og líflegum hætti, heldur
einnig að styrkja Hafnarfjörð
sem ferðaþjónustubæ. Upplýs-
ingar um hátíðina gefur skrif-
stofa Landnáms, Vesturgötu 8,
Hafnarfirði.
Setning alþjóðlegu víkinga-
hátíðarinnar verður á Víðist-
aðatúni í dag, fimmtudaginn
22. júní, kl. 16. Viðstaddir
verða boðsgestir - fulltráar
sendiráða og ræðismenn þjóð-
landa þátttakenda. Opið er frá
kl. 13-21 fram á sunnudag.