Morgunblaðið - 22.06.2000, Page 24

Morgunblaðið - 22.06.2000, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Rekjanleikanúmer á pakkningum Hægt að rekja uppruna kjúklinga SÝKINGAR af völdum campylo- bacter eru mun færri nú en á sama tíma í fyrra samkvæmt upp- lýsingum frá sóttvamarlækni. Svokallað rekjanleikanúmer á pakkningum kjúklinga á þar hlut að máli því með því er hægt að rekja afurðir til ákveðins eldis- hógs. Á fundi Umhverfís- og heil- brigðisnefndar Reykjavíkur fyrir skömmu var samþykkt samhljóða bókun að frá og með 16. júní yrði sala kjúklinga í Reykjavík m.a. háð þeim skilyrðum að allar pakkningar ferskra kjúklinga ættu að hafa rekjanleikanúmer. „Þessi bókun var gerð í sam- ráði við framleiðendur og rekjan- leikanúmerið er nú komið á pakkningar hjá flestum þeirra,“ segir Rögnvaldur Ingólfsson, sviðsstjóri matvælasviðs Heil- brigðiseftirlits Reykjavíkur. „Nánari útfærsla á reglugerðinni er síðan væntanleg." Að sögn Halldórs Runólfssonar yfírdýra- læknis er tilbúin reglugerð sem snýr að rekjanleikanúmerum og bíður hún einfaldlega staðfesting- ar sem er væntanleg fljótlega. Mikilvægt að tryggja árangur sem náðst hefur Rögnvaldm- segir rekjanleika- númerið og heimildir um það afar mikilvægar fyrir móttöloieftirlit matvælafyrirtælga til þess að hægt sé að gera sér nánari grein fyrir því hvort kjúkiingar eigi í hlut ef upp koma matarsýkingar- tilfelli. „Ef fólk telur sig hafa sýkst af kjúklingi er hægt að leiða líkur að því að svo sé ekki ef það kemur fram að rekjanleikanúm- erið er úr hópi sem er laus við campylobacter og að sýni sem voru tekin fyrir og eftir slátrun voru neikvæð. Það er afar mikilvægt til að tryggja þann árangur sem náðst hefur að allir aðilar starfí sam- kvæmt þeim reglum sem yfir- dýralæknir og önnur heilbrigðis- yfirvöld hafa sett,“ segir Rögnvaldur. Verð á papriku hátt miðað við árstíma Uppskera takmörkuð vegna kulda og sólarleysis Verð á papriku hefur verið óvenju hátt undanfarið miðað við að nú á uppskerutími grænmetis að vera í hámarki en kílóverð er allt að 698 krónur. „Islenska paprikan er dýr en á þeirri erlendu eru svimandi háir verndartollar sem gera það að verkum að ekki er hægt að bjóða upp á ódýrari innflutta papriku" segir Guðmundur Marteinsson framkvæmdastjóri í Bónus. „Við seljum paprikuna á 499 krónur kílóið þrátt fyrir að kaupa hana á háu verði en það er vegna þess að við höfum ákveðið að bjóða neyt- endum ekki upp á papriku sem er dýrari en 500 krónur." Vemdartollar á innfluttu græn- meti eru breytilegir en þeir fara eftir framboði á íslensku grænmeti að sögn Ólafs Friðrikssonar hjá landbúnaðarráðneytinu. „Við hækkum tollana á innflutta græn- metinu þegar íslenska uppskeran kemur á markað en samkvæmt upplýsingum sem ráðuneytið hefur aflað sér er framboð á íslenskii papriku nægilegt sem stendur og þess vegna era verndartollar á inn- fluttu grænmeti núna 22,5% verð- tollur og 298 króna magntollur sem bætist við kílóverðið. Hjá Kolbeini Ágústsyni hjá Sölu- félagi garðyrkjumanna fengust þau svör að ekki væri mikið framboð á íslenskri papriku núna vegna þess hve kalt hefur verið og lítil sól. „Það er til nóg af papriku en það er ekkert offramboð og því lækkar verðið ekki. Uppskei’an er seint á ferðinni í ár, gulu, rauðu og appels- ínugulu paprikurnar era rétt að koma til en magnið er ekki það mik- ið að verðið lækki. Verð á grænni papriku hefur verið lægra undan- farið þegar mikið hefur verið til af henni. Það er jafnvægi á markaðn- um núna en paprikan á líklega eftir að lækka eitthvað í verði þegar uppskeran verður meiri en hvenær það verður er háð veðri.“ Matreiðslu RJÓMI Hann er aðeins 15%! Njóttu þess að borða góðan mat. Prófaðu fituminni rjóma en þó með ekta rjómabragði! Hann er kjörinn til notkunar hversdags við matargerð, með eftirréttum og út í kaffi en hann hentar ekki til þeytingar. Hann er aðeins 15% og hitaeiningarnar eru helmingi færri en í venjulegum rjóma! ~mt MJÓLKURSAMSALAN www.ms.is Spurt og svarað Leiðbein- ingar á lyíjum Á eyrnadropunum Cerumenex stendur að þá skuli nota sam- kvæmt leiðbeiningum en þær sem fylgja eru á þýsku. Er ekki skylda að leiðbeiningar á lytjum séu á ís- lensku? „Samkvæmt löggjöf um lyf sem tóku á gildi á Islandi þegar við gengumst undir EES eiga að vera leiðbeiningar á íslensku með öllum lyfjum sem eru á markaði á Is- landi. Þegar þessar reglur tóku gildi var ákveðið að gefa fyrirtækj- um fímm ára frest til að koma öll- um merkingum á íslensku,“ segir Guðrún S. Eyjólfsdóttir hjá Lyfja- eftirliti ríkisins. „Þetta ákveðna lyf, Cerumenex, tók framleiðandi af markaði meðal annars vegna þess að talið var að það mætti flokka sem lækningatæki, en um þau gilda aðrar reglur en um lyf. Ekki hefur verið úr því skorið hvort Ceramenex teljist til lyfja eða lækningatækja en þar sem þörf var fyrir lyfið er það fáanlegt samkvæmt sérstakri undanþágu sem Lyfjanefnd ríkisins veitir. Fyrir slík lyf gilda ekki sömu reglur um merkingar og leiðbein- ingar og gilda fyrir lyf sem hafa markaðsleyfí. Það er ástæðan fyrir því að leiðbeiningar á þessu ákveðna lyfí þurfa ekki að vera á íslensku. I apótekum sem ég hef haft sarnband við var mér sagt að starfsfólk legði sérstaka áherslu á að fræða neytandann um notkun lyfja þegar leiðbeiningar era á öðra tungumáli, eins og í þessu til- viki.“ Islenskt hreinsikrem Hvers vegna fæst ekki lengur ís- lenskt hreinsikrem sem áður var framleitt og selt f Austurbæjar- apóteki? „Kremið er framleitt ennþá en hefur ekki verið selt hjá okkur undanfarið vegna þess að umbúð- ir kremsins hafa ekki verið til hjá birgjum," segir Atli Jakobson hjá framleiðsludeild Lyfja og heilsu Háteigsvegi, áður Austurbæjar- apóteki. „Við erum búin að panta umbúðirnar og þegar þær koma getum við hafið framleiðslu á kreminu aftur. Það ætti því að verða fáanlegt fljótlega aftur.“ Nýtt Gosdrykkir í SUMAR verða Tesco-gosdrykk- ir fáanlegir í Hagkaupi. I fréttatilkynn- ingu segir að drykkirnir hafi verið framleiddir fyrir verslunar- keðjuna Tesco í Bretlandi síðustu ár. Drykkirnir eru í tveggja lítra umbúðum og fást með appelsínu-, ananas- og límón- aðibragði. ST0R HUMAR Glæný laxaflök 890 kr. kg. Vestfirskur harðfiskur Stórlúða - Skötuselur - Stórar rækjur Gæðanna v

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.