Morgunblaðið - 22.06.2000, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
AP
Gary Graham lætur mótmæli í ljós í viðtali við Qölmiðla á dauðadeildinni í Livingston í Texas fyrr í mánuðin-
um. Hann verður tekinn af lífi í dag með banvænni sprautu hljóti náðunarbeiðni hans ekki hljómgrunn.
Sofandi lögfræðing-
ur og gleymd vitni
Réttarkerfið í Texas hefur verið gagnrýnt
harðlega undanfarið. Þar er afkastamesta
dauðadeild í Bandaríkjunum og ríkisstjór-
inn, Goerge W. Bush, segir starfsemina
eðlilega. Gagnrýnendur tína þó til
mörg dæmi sem þeir segja benda
til hins gagnstæða.
Dallas, Houston. Reuters, AP.
Á MEÐAN lögfræðingurinn svaf í
réttarsalnum var skjólstæðingur
hans fundinn sekur um morð. Ann-
ar maður var dæmdur til dauða en
verjandi hans hafði gleymt að kalla
til vitni sem hefðu getað borið að
maðurinn hefði ekki framið glæp-
inn.
Áreiðanleiki réttarfarsins í Tex-
as í Bandaríkjunum er nú í kast-
ljósinu þar vestra og ríkisstjórinn,
George W. Bush, sem einnig er
væntanlegur forsetaframbjóðandi
Repúblikanaflokksins, ber blak af
afkastamestu dauðadeild Banda-
ríkjanna.
I síðustu viku voru þrír fangar
teknir af lífí og hefur þá 221 verið
liflátinn í Texas frá því dauðarefs-
ingar voru teknar upp þar 1982,
sex árum eftir að Hæstiréttur
Bandaríkjanna afnam bann við
þeim. Þar af hafa 134 verið líflátnir
síðan Bush tók við ríkisstjóraemb-
ættinu 1995.
Hefur Bush sagst sannfærður
um að allir sem hafa verið teknir af
lífi hafi verið sekir, hafi fengið rétt-
láta málsmeðferð og notið áfrýjun-
arréttar.
Menn sem gera skoðanakannan-
ir segjast ekki telja að þetta mál
verði Bush þrándur í götu á leið
hans í Hvíta húsið. Væntanlegur
andstæðingur hans, A1 Gore, fram-
bjóðandi demókrata, er eindreginn
stuðningsmaður dauðarefsinga.
En í Texas eykst nú þrýstingur
á að endurbætur verði gerðar á
réttarkerfi sem tekur fleiri menn
af lífi en réttarkerfið í nokkru öðru
ríki í Bandaríkjunum.
„Til skammar“
Nýjustu tilfellin, er vakið hafa
spurningar um ágæti réttarfarsins,
eru mál Calvins Burdines annars
vegar og Garys Grahams hins veg-
ar. Að öllu óbreyttu verður Gra-
ham tekinn af lífi í dag.
Burdine fékk sem verjanda lög-
fræðing á kostnað hins opinbera og
var lögfræðingurinn stundum sof-
andi í réttarsalnum meðan á rétt-
arhöldunum yfir Burdine stóð.
Graham var fundinn sekur um
að hafa skotið mann til bana og var
úrskurðurinn byggður á framburði
eins vitnis þrátt fyrir að önnur
vitni hafi borið að Graham hafi
ekki verið á morðstaðnum.
Dómsmálaráðherra Texas
reyndi að fá hnekkt þeim úrskurði
alríkisdómara að Burdine skyldi
látinn laus eða réttað yrði á ný í
máli hans. Hélt ráðherrann því
fram í áfrýjunarrétti að jafnvel sof-
andi lögfræðingur geti gert gagn.
„Þetta er til skammar," segir
Rodney Ellis, öldungadeildarþing-
maður demókrata, um rök Texas
fyrir því að Burdine sé áfram á
dauðadeildinni.
Ellis er hlynntur dauðarefsing-
um en hefur lagt til víðtækar um-
bætur á réttarkerfinu þannig að
fátækir sakbomingar eigi kost á
betri lögfræðingum, leyft verði að
gera DNA-próf á sönnunargögnum
og farið verði nákvæmar í saumana
á dauðadómum.
Frestað í Illinois
Mikil umræða hófst í Bandaríkj-
unum í febrúar þegar ríkisstjórinn
í Illinois, sem er hlynntur dauða-
refsingum, tilkynnti að engum
dauðadómum yrði fullnægt í ljósi
þess að síðan 1977 hefðu þrettán
dauðamenn verið látnir lausir í
kjölfar þess að dómnum yfir þeim
hefði verið hnekkt. Á því tímabili
höfðu tólf fangar verið teknir af
lífi.
Réttarkerfið í Texas hefur m.a.
verið gagnrýnt fyrir að þar séu fá-
tækum sakborningum ekki fengnir
hæfir lögfræðingar á kostnað hins
opinbera.
Dómstólar tilnefni lögfræðinga
sem fái lítið borgað en í flestum
öðrum ríkjum Bandaríkjanna er
starfrækt skrifstofa opinbers verj-
anda. Bush beitti neitunarvaldi
gegn lagafrumvarpi um stofnun
embættis opinbers verjanda í Tex-
as.
Enn fremur er gagnrýnt að í
Texas eru geðfatlaðir sakboming-
ar teknir af lífi og unglingar undir
átján ára aldri sem framið hafa til-
tekna glæpi.
Hafa bæði mannréttindasamtök-
in Amnesty International og Lög-
mannasamtök Bandaríkjanna lýst
því yfir að þessu skuli hætt.
Stjórnarskrárbundinn réttur
Andstæðingar dauðarefsinga
segja að mál Burdines og Grahams
dragi galla kerfisins berlega fram í
dagsljósið.
Burdine, sem kveðst vera sam-
kynhneigður, var dæmdur til
dauða 1983 fyrir að ræna og stinga
til bana sambýling sinn. Burdine
áfrýjaði dómnum á þeim forsend-
um að verjandi sinn, Joe Cannon,
hafi hvað eftir annað sofnað í rétt-
arsalnum á meðan málsmeðferð
stóð og aldrei andmælt þegar sak-
sóknari hafi beint ummælum, er
lýstu andúð á samkynhneigðum, tö
kviðdómsins.
Dómurinn var staðfestur af
áfrýjunardómstóli í Texas en í
fyrra ógilti alríkisdómari úrskurð-
inn á þeim forsendum að Burdine
hafi verið svikinn um stjómar-
skrárbundinn rétt á gagnlegri vörn
og skyldi látinn laus eða að réttað
yrði á ný í máli hans.
John Comyn, dómsmálaráð-
herra í Texas, áfrýjaði úrskurði al-
ríkisdómarans til fimmta umdæm-
isáfrýjunardómstóls Bandaríkj-
anna og hélt því fram að
lögfræðingur sem sofnaði gæti
samt veitt gagnlega vöm svo fremi
sem hann missti ekki af mikilvæg-
ustu þáttum réttarhaldanna.
„Burdine og lögfræðingar hans
hafa ekki sýnt fram á hvaða rök
verjandinn hefði getað lagt fram
en gerði ekki vegna þess að hann
svaf,“ sagði fulltrúi Cornyns,
Heather Brown. Urskurðar er
vænst frá áfrýjunardómstólnum á
næstu mánuðum.
Vilja ekki ósanngjama
dauðarefsingu
Mál Grahams er þó ef til vill
meira aðkallandi, því hann verður
tekinn af lífi í dag ef sýknu- og
sakaruppgjafarráð Texas verður
ekki við náðunarbeiðni hans. For-
veri Bush í ríkisstjóraembættinu
frestaði aftökunni á Graham og því
getur Bush ekki frestað henni aft-
ur nema sýknuráðið mæli með náð-
un.
Graham var fundinn sekur um
að hafa skotið mann til bana fyrir
utan verslun i Houston 1981 og var
dauðadómurinn yfir honum að
mestu byggður á framburði eins
vitnis sem benti á hann í röð
manna við sakbendingu á lögreglu-
stöð.
Sex önnur vitni, sem hafa vakið
efasemdir um sekt Grahams, voru
annaðhvort ekki kölluð til vitnis við
réttarhöldin eða hafa komið fram
eftir að þeim lauk að því er verj-
endur Grahams segja.
Lawrence Marshall, sem er lög-
fræðingur við Northwestern-há-
skóla í Chicago, segir að Graham
eigi yfir höfði sér aftöku á grund-
velli „veikustu sannana sem ég hef
séð í þrjátíu ár“. Marshall vinnur
við að varpa ljósi á gallaða dóms-
úrskurði og það var ekki síst á
grundvelli uppgötvana hans sem
öllum aftökum í Illinois var frest-
að.
„Fólk stendur annars vegar
frammi fyrir raunverulegri dauð-
arefsingu og hins vegar óhlutbund-
inni dauðarefsingu,“ segir Stephen
Bright, framkvæmdastjóri Mann-
réttindamiðstöðvar Suðurríkjanna
í Atlanta, sem veitir efnalitlum
dauðamönnum lögfræðiaðstoð.
„Bandaríkjamenn eru fylgjandi
dauðarefsingu," segir hann, „en
þeir vilja ekki ósanngjarna dauða-
refsingu.“
„Martröð með morðingja“
Fjögur fórnarlömb Grahams
hafa lýst þeirri skelfingu sem árás
hans á þau hafði í för með sér og
vilja með því stemma stigu við
þeirri athygli sem þeir hafa hlotið
er vilja hnekkja dauðadómnum yfir
honum.
„Það sem ég mátti þola er mar-
tröð með morðingja," segir David
Spiers um það þegar Graham
skaut hann í ránsferð. Spiers var
af þeim völdum rúmfastur í þrjá
mánuði og gat ekki gengið í tvö ár.
„Ef dómstólar okkar, réttarkerf-
ið okkar og allir þessir mótmæl-
endur láta náunga eins og Gary
Graham lausan úr fangelsi mætti
allt eins opna flóðgáttimar og
sleppa öllum,“ sagði Spiers.
Hann og þrjú önnur fórnarlömb
Grahams héldu fund með frétta-
mönnum í Houston í byrjun vik-
unnar. Graham var 17 ára í maí
1981 er hann fór í vikulangan
glæpaleiðangur sem hófst með
morðinu á Bobby Lampert. Alls er
Graham sakaður um að hafa fram-
ið 22 glæpi á þessari einu viku og
hefur hann játað á sig tíu árásir en
neitar því að hafa skotið Lampert.
Bianca Jagger, framkvæmda-
stjóri Amnesty International í
Bandaríkjunum, er andvíg öllum
dauðarefsingum. Hún segir að
rétta ætti í máli Grahams á ný.
„Það væru alvarleg réttarglöp ef
ríkið tekur Gary Graham af lífi.
Hann er saklaus."
Meðal þeirra sem hafa veitt Gra-
ham stuðning eru leikaramir
Danny Glover og Ed Ashner. Sol
Wisenberg, lögfræðingur og verj-
andi í Washington, er aftur á móti
á öðru máli. „Graham er ákaflega
sekur og hann er mikið illmenni,“
sagði hann í viðtali við CNN. „All-
ar þessar svokölluðu vísbendingar
sem sagt er að hafi verið stungið
undir stól stangast á við það sem
vitni upphaflega báru eða sögðu
við lögregluna.“
Wisenberg segir enn fremur að
það sé rangt að vitnið sem bar
kennsl á Graham hafi ekki séð
hann vel. Vitnið hafi horfst í augu
við Graham í um það bil eina og
hálfa mínútu á vel upplýstu bíla-
stæði.
alla fjölskylduna!
Kl. 16,00
Kaffitímatónlist
með Tilraunabandinu.
Kl. 17.00
Barnahornið
Kl. 18.00
Grill og
góð stemmning
i. 21.00 Tónleikar
Perluvinir (Kvartett úr Gnúpverjahreppi)
Ingvar Valgeirsson trúbador
Gulli Og Maggi (frá Ólafsfirði)
Blátt áfram
Jón á Kirkjulæk
Ólafur Þórarinsson
Bubbi "eftirherma"
Tilraunabandið o fl.
Kl. 00.30 Dansleikur
Hljómsveitin Mávarnir
Alþýðutónlistarhátíð fyrir
Kl. 18.00 Kl. 00.30 Dansleikur
Hátíðin sett og hljóðfærum pakkað upp. Hljómsveitin
Mótrarnir
Tilraunabandið hefur æfingar.
Kl. 19.00
Grill og góð stemmning
Kl. 21.00 Tónleikar
Gulli Og Maggi (frá Ólafsfirði
Tamóra
Ólafur Þórarinsson (Labbi f
KK og Magnús Eiríksi