Morgunblaðið - 22.06.2000, Page 30

Morgunblaðið - 22.06.2000, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Nissan íhugar að flyija smíði Micrunnar frá Englandi Sterku pundi kennt um London. Daily Telegraph, Reuters. STERK staða sterlingspundsins gagnvart evrunni hefur dregið verulega úr líkum á því að nýja Micran frá Nissan verði smíðuð í Englandi. Verði smíðin flutt yfir á meginlandið munu allt að 12.000 störf tapast. Michael Portillo, fjár- málaráðherra í skuggaráðuneyti íhaldsflokksins, ítrekaði í gær að baráttan gegn evrunni yrði eitt af helstu málum flokksins í næstu kosningum. John Cushnaghan, framkvæmda- stjóri Nissan í Bretlandi, sagði á fundi með breskri þingnefnd í fyrradag að gengismálin myndu vega þungt þegar ákveðið yrði hvar Micran yrði framleidd. Líkur á afturför? Sagði hann að hátt gengi punds- ins og óvissan um aðild Breta að myntbandalaginu væru farin að skaða breska hagsmuni og taldi að vegna þess væru „miklar líkur á afturför í breskum iðnaði“. Nissan-verksmiðjurnar í Sund- erland framleiða 350.000 bfla á ári og þar af er helmingurinn Micra. Nú er hins vegar verið að kanna hvort rétt sé að smíða nýju gerðina í verksmiðjum Renault í Frakk- landi eða á Spáni en Nissan og Renault hafa með sér samstarf. Hvatt til umræðu Portillo sagði að baráttan gegn evrunni yrði eitt af helstu málum íhaldsflokksins í næstu kosningum og ríkisstjórnin gæti ekki lengur þaggað niður almenna umræðu um þessi mál. Sagði hann að bresku fjármálalífi hefði vegnað vel án evr- unnar auk þess sem unnt væri að lækka vexti ef Bretland stæði utan myntbandalagsins. Þá sagði hann, að kostnaður við gjaldeyrisyfir- færslur væri lítill og færi lækkandi. Heilsugæsla talinbest í Frakklandi og á Italíu London. Reuters, AP. HEILSUGÆSLA er almennt best í Frakklandi, Ítalíu, San Marínó og Andorra og er þá miðað við ævilíkur og skilvirkni, jafnan aðgang þegn- anna að kerfinu og hvemig það bregst við félagslegum og fjárhags- legum aðstæðum þeirra. Kemur þetta fram í nýrri skýrslu frá Al- þjóðaheilbrigðisstofnuninni, WHO, og þar segir, að þau keríí, sem fjár- mögnuð eru með sköttum og trygg- ingum, séu betri en þau, sem byggj- ast á því, að fólk greiði hjálpina úr eigin vasa. Mikil umskipti í Óman Hvergi er varið meira fé til heil- brigðismála en í Bandaríkjunum, rúmlega 281.000 ísl. kr. á mann, en kerfið þar í landi er þó aðeins það 37. í röðinni af 191 landi. Dr. Christ- opher Murray, einn af yfirmönnum WHO, segir, að í könnuninni hafi ekki fyrst og fremst verið kannað hve miklu fé væri varið til heilbrigð- ismála, heldur ekki síður hvað feng- ist fyrir það. Skilvirkni í bandaríska heilbrigðiskerfinu sé t.d. ekki nógu J ónsmessutilboð ELsta og yngsta gróðrarstööin á Reykjavikursvæðinu bjóöa viðskiptavinum sinum Jónsmessutilboð um heLgina 4 sumarblóm í pottum aðeigin vali 1*190 kr. (Fjöldi tegunda íyrir ker, hengipotta eða í garð) 4 fjölærar plöntur að eigin vali 1*190 kr. (Yfir 400 tegundir úr að velja) 32 grænmetisplöntur aðeigin vali 1*190 kr. GRÓÐRARSTÖÐIN Furugerði 23 (við Bústaðaveg) Sími 553 4122 60 ár á sama stað Oplö: mánud. tll föstud. 9 -20 laugardaga 9-19 sunnudaga 10 -19 GRÓÐRARSTÖÐIN ST«RÐ Dalvegi 30 • Kópavogur Sími 564 4383 Gróðrarstöð í vexti Heilbrigðiskerfið best þar sem það er fjármagnað með sköttum mikil og jöfnuður þegnanna ónógur og því lendi kerfið í 37. sæti þrátt fyrir fjárútlátin. Ef talin eru tíu efstu rfldn á listan- um þá eru Frakkland, Ítalía, San Marínó og Andorra í þeim fjórum fyrstu en síðan koma Malta, Singa- púr, Spánn, Óman Austurríki og Japan. Mesta athygli vekur Óman en fyrir tveimur áratugum létust 23% bama þar í landi áður en þau náðu fimm ára aldri. Síðan hefur orðið bylting í heilsugæslumálunum þótt fjárframlög á mann séu ekki nema rúmlega 23.000 ísl. kr. Sem dæmi um iðnvædd ríki, sem eru tfltölulega aftarlega á merinni í þessum efnum, má nefna Ástralíu, sem er í 32. sæti, og Nýja-Sjáland í því 4i. Þá er athýglisvert, að Kína, sém einu sinni þótti til fyrirmyndar í heilsugæslunni, er nú í 144. sæti af 191. I skýrslunni segir einnig, að komið háfi í ljós, að kerfi, sem fjármögnuð eru með almennum sköttum, séu betri en þau, sem byggjast á því, að þegnamir greiði sjálfir þjónustuna að einhverju leyti úr eigin vasa. Þar sem það á við eru dæmi um, að fólk fari með allt að helming teknanna í heilsugæslukostnað. Einn höfunda skýrslunnar, dr. Christopher Murray, heilsugæslu- hagfræðingur við Harvardháskóla og starfsmaður WHO, var undrandi á niðurstöðunum. Hafði hann vænst þess að Skandinavíuríkin eða Kan- ada yrðu efst á listanum því þau ríki eru oftast talin til fyrirmyndar í þessum efnum. En raunin varð sú að Noregur, er varð efst Skandinavíu- ríkjanna, var í 11. sæti og Kanada í 30. sæti. Efasemdir um aðferðir Sumir heilsugæsluhagfræðingar hafa látið í ljósi efasemdir um þær aðferðir sem notaðar voru við röðun- ina. Lítil ríki þar sem sjúklingar eru fáir, San Marínó, Andorra og Malta, raða sér efst á listann. Aðrir sérf- ræðingar töldu listann segja meira um heilsufar fólks í löndunum en gæði heilbrigðiskerfisins. „Þeir njóta greinilega ólívuolíu- áhrifanna,“ sagði Nick Bosanquet, prófessor í heilsugæslustefnu við London-háskóla, og skírskotaði þar tfl neysluvenja íbúa Miðjarðarhaf- slandanna. „Engar kannanir á ít- alska heilbrigðiskerfinu hafa sett það í annað sæti í heiminum. Röðun sem setur Finnland í 31. sæti og Ita- líu í annað hlýtur að vekja spuming- ar.“ Staða Bandaríkjanna kom fáum á óvart. Þótt þar í landi séu menn dug- legir að veita dýra neyðarþjónustu standa þeir sig illa við þá ódýru for- varnarþjónustu sem heldur Evrópu- búum heflbrigðum, að sögn Uwe Reinhardts, prófessors í heilbirgðis- hagfræði við Princeton-háskóla í Bandaríkjunum. Brestirí ríkis- stjórn Irlands ALVARLEGIR brestir em nú komnir í stjómarsamstarf Fianna Fáil og Framsækna demókrata- flokksins (PD) á frlandi og þykir líf stjómarinnar hanga á bláþræði. Til harðra orðaskipta kom á þingfundi í Múrarau STEIIMIIMGARLIM margir litir FLOTMÚR 6 tegundir ÚTIPÚSSIMIIMG margir litir - 3 tegundir IIMIMIPÚSSIMIIMG - RAPPLÖGUIM úti og inni LÉTTIÐ vinnuna og MARGFALDIÐ afköstin með notk ELGO múrdælunnar Leitið tilboða! Traust íslensk múrefni síðan 1979 il steinprýöi Stangarhyl 7 — Pósthólf 10058 — 130 Reykjavík Sími 567 2777 — Fax 567 2718 gær og var fundinum tvívegis frestað þegar stjórnarandstæðingar gengu á lagið og nýttu sér glufur í samstöðu stjómarflokkanna. Heimtuðu þeir frekari skýringar á ummælum sem forsætisráðherrann Bertie Ahern, leiðtogi Fianna Fáil, lét falla á þriðjudag varðandi skipan í stjóm Fjárfestingabanka Evrópu en þau munu hafa valdið mikilli reiði Mary Hamey, leiðtoga PD. Ahem lét þau ummæli falla í út- varpsviðtali á þriðjudag að Hugh O’Flaherty, fyrrverandi hæstarétt- ardómari, sem nýverið var skipaður í stjóm Fjárfestingabanka Evrópu að undirlagi PD, mætti gjaman skýra betur þátt sinn í nýlegu fjármála- hneyksli. Taldi Harney að með þessu væri Ahern að reyna að þvo hendur sínar af skipan O’Flahertys sem þótti afar umdeild. Sagði hún í gær að annaðhvort stæði stjórnin saman að skipan í embættið eða leita hefði átt annarra leiða. Ólíklegt að stjórnin endist út kjörtímabilið Ahem lýsti því yfir við upphaf þingfundar í gær að hann stæði 100% á bakvið skipan O’Flahertys og létu fulltrúar PD í kjölfarið í það skína að málinu væri þar með lokið. Samkvæmt fréttum netútgáfu írska ríkisútvarpsins RTÉ var hins vegar augljóst að vík er milli vina og kemur þessi uppákoma enda í kjölfar margra annarra atvika þar sem kast- ast hefur í kekki með stjórnarflokk- unum tveimur. Hafa fjármála- hneyksli sem tengjast ýmsum núverandi og fyrrverandi forystu- mönnum Fianna Fáil einkum valdið stjómarsamstarfinu erfiðleikum. Stjómin hefur afar nauman þing- meirihluta og þykir nú næsta hæpið að hún endist út kjörtímabilið en seinast var kosið á írlandi um mitt ár 1997.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.