Morgunblaðið - 22.06.2000, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 22.06.2000, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000 35 LISTIR Tilnefningar til Turner- verðlaunanna kynntar London. Daily Telegraph. Eitt verka Michael Raedecker, hollensks listamanns sem er meðal þeirra sem tilnefndir voru til hinna virtu Turner-verðlauna í ár. raooo —i-^****iigi ■i,anLi«TA^tUTfe UixaMAM í&urískua Uxuí'.sím. Fimtudagur 22. júní. Leiklistarhátfð Bandalags fslenskra leikfélaga á Akureyri Kl. 10: Leiksmiðjur; Ósýnilegt leik- hús, stjórnandi Guðjón Sigvalda- son. Vinna með börnum, stjórnandi Anna Jeppesen. Trúðatækni, stjórnandi Aðalsteinn Bergdal. Leikhússport, stjórnendur Guðjón Óskarsson og Gísli Björn Heimis- son. Kl. 13.15: Gagnrýni á sýningar miðvikudagsins. Gagnrýnendur há- tíðarinnar eru Sigrún Valbergs- dóttir og Sigurður Hróarsson. Kl. 15 og kl. 20: Leikfélagið Baldur, Bíldudal sýnir Sviðsskrekk. Kl. 15 og kl. 18: Kellariteatteri frá Finl- andi sýna Sérðu regnið? Hátíðarklúbbur opinn um kvöld- ið í veitingahúsinu Við Pollinn. Upplýsingar í Kompaníinu. Miðaverð á einstakar sýningar 900 kr., passi á allar sýningar 5.000 kr. -------H-t-------- Sýningu lýkur Garður, Ártúni 3, Selfossi SIÐASTI sýningardagur á verk- um Kaj Nyborg er nú á sunnudag. Sýningin verður opin milli kl. 16 og 18 að staðartíma eða á öðrum tíma eftir samkomulagi. Sýningin fer fram á þrem stöðum: Garður - Ártún 3, 800 Selfoss, ís- land, Udhus - Kirkebakken 1, 4320 Lejre, Danmörk, og í Kuche - Call- instrasse 8, D-30167, Hannover, Þýskalandi. Hægt er að kynna sér listamann- inn og sýningu hans á http:// www.simnet.is/guk TILNEFNING listamanna vegna hinna bresku Turner-verðlauna hefur að venju vakið töluverða at- hygli og umtal í Bretlandi. Dag- blaðið Daily Telegraph vekur m.a. máls á því í umfjöllun sinni að þrír af fjórum listamannanna séu er- lendir, þótt reglur um tilnefningu segi listamennina eiga að vera breska. Þeir listamenn sem tilnefndir eru að þessu sinni eru Bretinn Glenn Brown, Hollendingurinn Michael Raedecker, japanska lista- konan Tomoko Takahashi og Þjóð- verjinn Wolfgang Tillmans. Þau tvö síðarnefndu þykja mun um- deildari listamenn en þeir fyrr- nefndu og segir Telegraph þau Takahashi og Tillmans keppinauta um hvaða listamaður nái í ár að ganga mest fram af áhorfendum. Búast megi við að verk þeirra valdi hvað mestri hneykslun og undrun á sýningu þein-a sem til- nefndir voru til Turner-verðlaun- anna í ár. Tomoko Takahashi sérhæfir sig í gerð gríðarstórra innsetninga sem unnar eru úr rusli. Takahashi er ekki fyrsti lista- maðurinn til að vinna verk sín úr rusli, en að sögn Telegraph breytti hún takmörkunum efniviðarins með sýningu sinni í Charles Sa- atchi galleríinu í fyrra. Rusli sínu kom Takahashi fyrir í eins konar eyjum eða haugum og var í hverj- um þeirra starfhæft rafmagnstæki í gangi. Tillmans starfaði áður sem tískuljósmyndari og er viðfangs- efni verka hans nú gjarnan erótísk list með samkynhneigðum undir- tónum. Auk þessa hefur hann sýnt Ijósmyndir af Concorde-þotu á flugi, mann að kasta af sér vatni á grænan skrifstofustól og tré og ávexti sem fest hafa verið við vegg með límbandi. Málarar til- nefndir aftur Turner-verðlaunin nema 30.000 pundum eða rúmum þremur millj- ónum króna. Undanfarinn áratug hafa verðlaunin ýmist runnið til listamanna sem vinna við skúlptúr, myndbandalist eða innsetningar. I ár eru hins vegar tveir listamenn sem sérhæfa sig í málverkinu með- al hinna tilnefndu. Raedecker, sem hlaut John Moores-verðlaunin á síðasta ári, vinnur að stórum landslagsverkum þar sem efniviðurinn er málning, efnisþræðir og útsaumur. Brown vinnur hins vegar í stíl listamanna á borð við Dali og Van Gogh. Hann leikur sér síðan að smáatriðum verkanna og skerpir þar ákveðna liti. Að mati Daily Teiegraph eru verk hvorugra þessara listamanna sérlega umdeild og telur blaðið til- nefningu til Turner-verðlaunanna að þessu sinni veita breskum lista- mönnum litla athygli. Richard Dorment, myndlistargagnrýnandi blaðsins, segir það til að mynda koma verulega á óvart að Mark Wallinger hafi ekki verið meðal þeirra sem tilnefndir voru. En Wallinger átti heiðurinn að skúlp- túrnum „Ecce Homo“ sem komið var fyrir, við miklar vinsældir, á auða stallinum á Trafalgar Square um tíma í lok síðasta árs. Sir Nicholas Serota, forstöðu- maður Tate, neitar því hins vegar alfarið að settum reglum hafi ekki verið fylgt við tilnefningu lista- mannanna að þessu sinni. Segir hann erlenda listamenn einnig geta keppt um verðlaunin, svo framarlega sem þeir búi í Bret- landi og hafi þar með áhrif á þar- lenda listþróun. KRINGLUKAST FIM., FÖS. OG LAU. TILBOÐ: MELLOW BOLUR 990 THORN SKYRTA 1 .990 CONNELL SKYRTA 1 .990 PETE BUXUR 2.990 DERRICK SKÓR 3.990 ....O.FL. TILBOÐ ALLAR PEYSUR 40% AFSLÁTTUR ...O.FL. TILBOÐ TILBOÐ: SKATER BOLUR 490 TECHNICA BUXUR 1 .290 STAR SKYRTA 1 .990 GOLD BUXUR 2.990 BUUS JAKKI 3.990 ....O.FL. TILBOÐ TILBOÐ: BODY SAMFELLA 290 BALZINNA BOLUR 490 LISETTE BOLUR 690 WELDON BOX 990 VICKS BUXUR 1.690 ...O.FL. TILBOÐ o Tilboðin gilda einnig á Laugavegi LY YEROIWODA EXIT
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.