Morgunblaðið - 22.06.2000, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000 49
ÞORLEIFUR
K TA RTA N
KRISTMUNDSSON
+ Séra Þorleifur
Kjartan Krist-
mundsson fæddist í
Reykjavík 12. júní
1925. Hann lést á
Sjúkrahúsi Suður-
lands á Selfossi 4.
júní síðastliðinn og
fór útfdr hans fram
frá Dómkirkjunni 14.
júní.
Elsku afi minn, mér
finnst erfitt að trúa því
að þú sért farinn, sorg-
in er mikil að missa
mann eins og þig, en
gleðin yfir því að hafa átt allar þess-
ar góðu stundir með þér á eftir að
ylja mér alla ævi. Sérstaklega minn-
ist ég allra góðu tímanna hjá þér og
ömmu á Kolfreyjustað og úti í And-
ey, nær öll sumur mín uppvaxtarár.
Nafni minn eins og við kölluðum
hvor annan oftast, þín minnist ég
sem ástríks afa sem var alltaf til
taks, stóra virðulega prestsins sem
var hvers manns hugljúfi og jafn-
framt sem góðs vinar. Megi algóður
guð þig geyma og veita ömmu og
fjölskyldu okkar styrk á þessum erf-
iða tíma.
Takk fyrir allt, afi minn.
Þinn nafni,
Þorleifur Kjartan Jóhannsson.
Fundum okkar sr. Þorleifs bar
fyrst saman innan Lionshreyfingar-
innar. Á umdæmisþingi, sem haldið
var á Eiðum í Eiðaþinghá 2. júní
1973, var stofnað fjölumdæmi 109.
Þorleifur var kosinn umdæmisstjóri
í umdæmi 109 B. starfsárið 1973 til
1974. Árið eftir gegndi Þorleifur
starfi fjölumdæmisstjóra, en ég
valdist sem umdæmisstjóri í um-
dæmi 109 A. Umdæmisstjórinn í
umdæmi 109 B. var Jón Ben
Ásmundsson, skólastjóri á ísafirði,
en hann andaðist í hörmulegu um-
ferðarslysi 21. nóvember 1974. Sr.
Þorleifur tók þá að sér störf um-
dæmisstjóra annað árið í röð og
bætti þeim við störf fjölumdæmis-
stjóra. Voru þetta drengileg við-
brögð hjá sr. Þorleifi og hann leysti
mikinn vanda hjá Lionshreyfing-
unni með fórnfúsum hætti. Samstarf
okkar Þorleifs á þessum tíma og æ
síðan innan Lionshreyfingarinnar
hefur verið traust og gott.
Sr. Þorleifur Kjartan Krist-
mundsson gerðist Lionsmaður við
stofnun Lionsklúbbs Fáskrúðsfjarð-
ar 21. júní 1966 og valdist þegar til
forustu í klúbbi sínum.
Til er skemmtileg saga um til-
drögin að stofnun Lionsklúbbs Fá-
skrúðsfjarðar, sem höfð er eftir Þor-
valdi Þorsteinssyni, sem lengi var
forstjóri Sölufélags garðyrkju-
manna og frábær Lionsmaður, er
m.a. vann að útbreiðslumálum. Gef-
um Þorvaldi orðið:
„Eftir að ég hafði gengist fyrir
stofnun tveggja klúbba á Austfjörð-
um; Reyðarfirði og Eskifirði, datt
mér í hug að kanna jarðveginn á Fá-
skrúðsfirði. Þar þekkti ég engan, en
mér var bent á að tala við prest
þeirra Fáskrúðsfírðinga, séra Þor-
leif K. Kristmundsson á Kolfreyju-
stað, sem ég hvorki þekkti eða hafði
séð. Ég hringdi í hann, ræddi málið
og sagði honum svo að ég kæmi frá
Reyðarfirði með Esjunni næstu nótt
og spurði hann hvort við gætum þá
hist. Hann tók vel í það og þegar
Esja lagði að bryggju á Fáskrúðs-
firði var ég tilbúinn úti á dekki.
Ég sé að það er aðeins einn maður
á bryggjunni, líklega hafnarvörður,
ESów«ialwa#3fe*
v/ FossvogskirkjugarS
Símii 554 0500
og hann tekur á móti
landfestum og bindur
skipið. Annan mann sá
ég ekld. Svo setja skip-
verjar landganginn
niður og enn er þessi
maður til aðstoðar.
Ung stúlka fer niður
landganginn og maður-
inn kemur á móti
henni, þrífur hana í
fang sér, þrýstir henni
að sér um leið og hann
heilsar henni og svo
gengur hann um borð í
skipið. Enn sá ég eng-
an annan mann og þar
sem Esja átti að hafa skamma við-
dvöl spyr ég þennan stóra en spor-
létta mann hvort hann hafi séð eitt-
hvað til séra Þorleifs og hann svarar
um hæl: „Ég er hann.“
Við hlógum báðir, en þarna á
dekkinu, og síðan í nokkrar mínútur
í viðbót í klefa mínum, voru drögin
lögð að stofnun Lionsklúbbs Fá-
skrúðsfjarðar. Þessi fyrstu kynni
voru ánægjuleg og mér ógleyman-
leg.“
Saga þessi lýsir vel báðum þess-
um ágætu Lionsfélögum. Störf og
árangur Lionshreyfingarinnar fer
fyrst og fremst eftir því hve einstak-
ir félagar vilja á sig leggja í þágu
góðra málefna. Sr. Þorleifur gekk
vasklega fram í störfum sínum fyrir
Lionshreyfinguna og það var mjög
ánægjulegt að starfa með honum á
þeim vettvangi.
Sr. Þorleifur lauk guðfræðiprófi
31. janúar 1955 og honum var veitt-
ur Kolfreyjustaður 28. maí sama ár
og hlaut hann vígslu 5. júni. Sumarið
fór í hönd þegar Þorleifur og frú
Þórhildur Gísladóttir settust að á
prestsetrinu fagra, Kolfreyjustað.
Þar festu þau strax rætur og undu
hag sínum vel. Allan sinn prestskap
þjónaði sr. Þorleifur söfnuðum
Kolfreyjustaðarkirkju og Búða-
kirkju og seinustu árin var hann
einnig prófastur. Oft sinnti hann
umfangsmikilli þjónustu í ná-
grannaprestaköllum og um ein jól
og áramót sinnti hann öllu svæðinu
frá Fáskrúðsfirði og til Mjóafjarðar.
Sóknarpresturinn tók einnig þátt í
almennum félagsmálum sóknar-
barna sinna, var m.a. fulltrúi í sýslu-
nefnd Suður-Múlasýslu. Kirkju-
þingsmaður var hann og um tíma í
stjórn Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Löngum var hann í stjórn Prestafé-
lags Austurlands frá 1956 sem for-
maður eða gjaldkeri.
Sr. Þorleifur Kjartan Krist-
mundsson var myndarlegur maður
á velli og tjáði skoðanir sínar með
eindregnum hætti. Hann var fjölfr-
óður og víðlesinn. Kunni mikið af
kveðskap og gamansögum og sagði
vel frá. Á góðum stundum var unun
að vera með þeim hjónum, Þórhildi
og sr. Þorleifi, en nú hefur hann
kvatt okkur um sinn og horfið yfir
móðuna miklu.
Við Þóra Björk söknum vinar í
stað og sendum frú Þórhildi, börn-
um þeirra og fósturbörnum okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Júsef H. Þorgeirsson.
SIGURÐUR ÞENGILL
HJALTESTED
+ Sigurður Þengill
Hjaltested fædd-
ist í Tidsa í Okla-
homa í Bandaríkjun-
um 5. maí 1990.
Hann lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 9. júní
síðastliðinn og fúr
útför hans fram frá
Fossvogskirkju 20.
júní.
Ég minnist Sigurðar
sem smá peyja sem
fannst rosa gaman á
róló. Fyrstu fregnir af
veikindum hans voru erfíðar og sár-
ar. Þá var hann aðeins 2ja ára gam-
all. Fimm árin á eftir voru nokkuð
góð. Þá tók meinið sig upp aftur. En
alltaf lifir vonin.
Skemmst er að minnast síðastlið-
ins vetrar þegar förinni var heitið í
Disneyland á Flórída. Hans heitasta
ósk var að komast þangað. Sigurður
og hin systkinin, Rósa, Guðsteinn,
Nína og Ivar, voru mjög spennt og
ótrúlegt að draumurinn væri að ræt-
ast. A köldum desemberdegi var
lagt af stað með stuttbuxur og stutt-
ermaboli. Sigurður að sjálfsögðu
með hjólastólinn með í för. Ferðin
tókst vonum framar og komu þau
heim tíu dögum seinna. Þá datt af
mér andlitið, því Sigurður kom
hlaupandi niður stigann en Nína
með gips á handlegg. Flórída hafði
farið mjúkum höndum um hann.
Við hittumst líka á skíðum eftir
áramótin. Þar var Sigurður Þengill
kominn með skíðin á fæturna og
vildi ólmur sýna mér hvað hann væri
orðinn klár, sem hann var orðinn.
Hann var mikill útivistarmaður. í
vor fór hann hann á Andrésar And-
ar-leikana ásamt mömmu sinni og
systkinum. Þar var keppt um sæti
og medalíur. Hann renndi sér báðar
ferðimar báða dagana og var það
stolt mamma sem hringdi í mig til að
segja mér frá árangri bamanna
sinna, því Nína komst á verðlauna-
pall og fékk medalíu.
En ef einhver átti skilið að fá
medalíu var það Sigurður, því hann
hafði langmest fyrir þessum ferðum.
Ég kveð Sigurð með virðingu. Ég
á fullt af skemmtilegum minningum
sem ekki er hægt að tíunda hér.
Elsku Sissa mín og þið öll hin,
megi algóður Guð styrkja ykkur. Er
með ykkur í svefni og vöku.
„Guð gefi mér æðruleysi til að
sætta mig við það sem ég fæ ekki
breytt, kjark til að breyta því sem
ég get breytt, og vit til að greina þar
á milli. (Reinhold Niebuhr).“
Guðrún.
Það er erfitt að skilja og fátt um
svör þegar spurt er hvers vegna
börn deyja eftir langt og erfitt stríð
við illvíga sjúkdóma. Mig langar að
kveðja hann SSigurð Þengil með örfá-
um orðum. Ég var svo heppin að fá
að kynnast honum sem litlum dreng.
Ég sá hann fyrst í fanginu á henni
mömmu sinni aðeins nokkurra mán-
aða gamlan. Voru þau mæðginin þá
nýflutt heim frá Bandaríkjunum. Ég
man hvað mér fannst hann undur-
fagurt barn með stríðnislegt blik í
Þegar andlát
ber að höndum
Vesturhllð 2
Fossvogi
Sfmi 551 1266
www.utfor.is
Onnumst alla þætti útfararinnar.
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
með þjónustu allan
■ ~ ‘V sólarhringinn.
.I*lŒr”ÉÉÍ jf|f) f
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.
augum. Hann var ríkj-
andi og fjörugur og það
er alltaf gaman að fá að
kynnast börnum sem
eru forvitin og athugul
um umhverfi sitt.
Sigurður Þengill var
svo heppinn að fá að
fæðast inn í stóran og
traustan frændgarð
sem gerði allt til að
stytta honum stundir
og leyfa honum að fá
sínar hjartans óskir
uppfylltar.
Það er stórt skarð
komið í hópinn en
minningin um hann mun alltaf lifa.
Elsku Sissa, Geir, Siggi, Rósa,
Birgitta; Guðsteinn, Þór, Nína
Björk, Ivar Rósinkrans, Guðsteinn
og Jónína. Ég bið af öllu mínu hjarta
góðan Guð að styrkja ykkur í þess-
ari þungu sorg. En það er víst til-
gangur með öllu sem á okkur menn-
ina er lagt og við vitum að núna líður
honum vel í faðmi almættisins.
Þú, Guð míns lífs, ég loka augum mínum
í líknarmildum fóðurörmum þínum
og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta,
ég halla mér að þínu fóðurhjarta.
Æ, tak nú, Drottimu fóður og móður mína
í mildríka náðarverndan þína,
og ættlið mitt og ættjörð virstu geyma
og engu þínu minnsta bami gleyma.
Ó, sólarfaðir, signdu nú hvert auga,
en sér í lagi þau, sem tárin lauga,
og sýndu miskunn öllu því sem andar,
en einkum því, sem böl og voði grandar.
Þín líknarásján lýsi dimmum heimi,
þitt ljósið blessað gefi í nótt mig dreymi.
I Jesú nafni vil ég væran sofa
og vakna snemma þína dýrð að lofa.
(Matthías Joch.)
Kær kveðja,
Kristrún Sæbjörnsdúttir,
Frank Norman og Safír Steinn.
Föstudaginn 9 júní barst okkur sú
harmafregn að sonur vinkonu okk-
ar, hann Sigurður Þengill, væri lát-
inn.
Lítill drengur ljós og fagur
Mkur mömmu í allan stað
kröftugur, hraður, þorinn og glaður
hleypur götuna heim í hlað.
(Lilja Steinberg.)
Á sinni stuttu ævi hafði hann af-
rekað margt og með sínum einstæða
lífskrafti og stuðningi frá fjölskyldu
sinni fékk hann tækifæri til að upp-
lifa meira en margir jafnaldrar
hans. Fjölskyldan naut útivistar og
samverunnar og sem dæmi má
nefna að fáeinum dögum fyrir and-
látið gisti Sigurður ásamt fjölskyldu
sinni í tjaldi inni í Þórsmörk en
þangað fór fjölskyldan mjög oft. í
vetur fór Sigurður ásamt systkinum
og móður norður á Andrésar And-
arleikana þar sem hann, þrátt fyrir
mikil veikindi, náði settu marki, semx'
var að komast niður brekkuna.
Hann stundaði ásamt Nínu systur
sinni skíðaæfingar hjá KR undan-
fama vetur. Missir Nínu er mikill.
Elsku Sissa, Geir, Rósa Birgitta,
Guðsteinn, Nína og ívar: söknuður-
inn er mikill og við biðjum guð og
alla engla að vaka yfir ykkur og gefa
ykkur styrk.
Helga Júns, Lilja Steinberg,
Kristín Friðriks, Guðrún
Skúladúttir, Snjúlaug, Matt-
hildur, Kristín Stefáns.
Elsku bekkjarbróðir, nú ertu
kominn yfir móðuna miklu, og hefur
hlotið hvíldina. Vil ég þakka þér fyr^
ir samfylgdina síðastliðin haust.
Ég sendi samúðarkveðjur til fjöl-
skyldu þinnar. Megi Guð styrkja
hana í hinni miklu sorg. En minn-
ingin um góðan dreng mun lifa.
Ó, þá náð að eiga Jesú
einkavin í hverri þraut.
Ó, þá heill að halla mega
höfði sínu í Drottins skaut
Ó, það slys því hnossi að hafna,
hvflíkt fár á þinni braut,
Ef þú blindur vilt ei varpa
vonogsorgíDrottinsskaut .T>
(M. Joch).
Aldís Ósk Egilsdúttir.
ðjffe Legsteinar
I Lundi
við Nýbýlaveg, Kópavogl
Sími 564 4566
111111111111
h
h
h
h
h
h
h
h
h
h
h
h
h
Erfisdrykkjur
P E R L A N
Sími 562 0200
mmm 1111 itx!
fjgjjp
v H — Guðmundur
Jónsson
F. 14.11.1807
i D. 21.3.1865
'
Graníf
HELLUHRAUN 14
220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI: 565 2707 FAX: 565 2629
HEIMASÍÐA: www.granit.is
UTFARARSTOFAISLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
Sverrir
Eittarsson
útfararstjóri,
sími 896 8242
Sverrir
Olsen
útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen
útfararstjóri,
sími 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is