Morgunblaðið - 06.07.2000, Page 4

Morgunblaðið - 06.07.2000, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR •*/ Ræktar þú garðinn þinn? Sameinaðu kosti Heímilislínu og Heimilisbarika Landbúnaðarsýningin Bú 2000 - Landbúnaður er lífsnauðsyn / Ahersla lögð á tölvunotk- un bænda Skúturnar á leið til Frakklands Forstjóri Fjármálaeftirlits Skiptingí áhættusvæði heimil Hins vegar hefði stofnunin ekki tekið afstöðu til hækkana Sjóvár- Almennra. LANDBÚNAÐARSÝNINGIN Bú 2000 - Landbúnaður er lífsnauð- syn hefst í dag í Laugardalshöll. Þetta er vöru- og þjónustusýning og munu bændasamtökin leggja áherslu á að sýna tölvunotkun bænda og kynna ný forrit sem eru eða eru væntanleg á markað- inn að sögn Sigurgeirs Þorgeirs- son framkvæmdastjóra Bænda- samtakanna. „Forritin eru ýmist hönnuð hér eða keypt að utan og aðlöguð okkar aðstæðum,“ sagði hann. „Við munum sýna nýtt forrit, fs- kú, sem er nýkomið til bænda og við leigjum frá Noregi en höfum breytt í samráði við höfundinn og er það fullkomnara en það sem er í Noregi. Við erum með sam- tengdan banka í kynbótaræktun nautgripa og reyndar í öllum bú- greinum, þar sem reiknaðar eru út kynbótaeinkunnir fyrir naut- gripina en þetta nýja forrit gerir það að allir gagnaflutningar til okkar fara um Netið eða frá Morgunblaðið/Ámi Sæberg Undirbúningur fyrir landbúnaðarsýninguna var á lokastigi í Laugardalshöll í gær. bóndanum til okkar og siðan fara niðurstöðurnar aftur til bóndans. Þetta er senniiega nýjung í heim- inum.“ Sigurgeir sagði að verið væri að þróa sambærilegt íslenskt for- rit fyrir sauðfjárrækt sem upp- haflega var skrifað af bónda í Vatnsdal. „Þá munum við meðan á lands- móti hestamanna stendur undir- rita samning við Heimssamband íslenskra hestaeigenda erlendis um að taka inn í okkar gagna- banka aila útreikninga og þar með kynbótaútreikning fyrir Is- landshesta hvar sem þeir eru í heiminu og erum við að vinna miklar endurbætur á hrossafor- ritinu þannig að það verði einnig sent um Netið," sagði Sigurgeir. Morgunblaðið/porkell Islenska skútan Besta hélt i gær áleiðis til Frakklands ásamt níu öðruin skútum, en hún tekur þátt í siglingakeppni á milli landanna. Hvalir fylgdu Bestu út Faxaflóann ALÞJÓÐLEGA siglingakeppnin, Skippers d’Islande, sem íslenska skútan Besta tekur þátt í, hélt áfram í gærmorgun er skúturnar tíu héldu til baka til hafnarbæjarins Paimpol á Bretaníuskaga í Frakk- landi. Ræst var með fallbyssu Land- helgisgæslunnar og eiga skúturnar um 1.330 mílna leið fyrir höndum og er reiknað með 7-13 daga sigl- ingartíma. Þegar Morgunblaðið hafði sam- band við Baldvin Björgvinsson, skipstjóra Bestu, í gærkvöld, var skútan að nálgast Reykjanesvitann. Hann sagði að siglingin út Faxaflóa hefði verið leiðinleg, þar sem lítill sem enginn byr hefði verið og að það sem helst hefði skemmt mönn- um hefðu verið hvalirnir sem fylgdu skútunni meðfram Reykja- nesinu. I gærkvöld var ein skúta á undan Bestu, en Baldvin sagðist gera ráð fyrir því að ná henni í dag eða á morgun. Þess má geta að þrátt fyrir að koma fyrst í mark í keppninni frá Paimpol til Reykjavikur er Bestaj niunda sæti í keppninni, en keppt er eftir forgjöf, sem er óhagstæð Bestu þar sem hún er stærri og hraðskreiðari en hinar keppnis- skúturnar. PÁLL Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að stofnunin telji að tryggingafélögin hafi lagalegar heimildir til að leggja mismunandi há iðgjöld á bíleigendur eftir búsetu. „Þetta er ekki eitthvað sem er nýtekið upp; landinu hefur verið skipt í áhættusvæði í áratugi," sagði Páll Gunnar og sagði að yfir- lýsingar Sjóvár-Almennra nú beindust fyrst og fremst að breyt- ingu á uppbyggingu áhættusvæðis- skiptingarinnar. „Áhættusvæða- skipting hefur verið rökstudd með því að hættan á tjóni geti verið mismunandi eftir aðstæðum, þann- ig að það að skipta landinu eftir áhættusvæðum er ekki óeðlilegt að okkar mati. Þetta er auðvitað byggt á þeirri forsendu að menn aki mest á því svæði þar sem þeir eiga heima. En þetta eru ekki full- komin vísindi," sagði hann. Hins vegar sagði Páll Gunnar það skoðunaratriði hvernig menn útfærðu slíka svæðisskiptingu en kvaðst ekki reiðubúinn að tjá sig um það að svo stöddu. Hann sagði að fjármálaeftirlitið fylgdist með málinu enda væri það eitt af hlutverkum þess lögum samkvæmt að fylgjast með hækk- unum af þessu tagi. Með því að nýta sér þjónustu Heimilislínu og Heimilisbankans á Netinu, má ná fram hagstæðari vaxtakjörum og umtalsverðum sparnaði í þjónustugjöldum - og það kostar ekkert að gerast áskrifandi. Þar með tryggir þú þér hærri innlánsvexti, lægri útlánsvexti, sparar kostnað af færslum, millifærslum og reikningsyfirlitum, auk þess að spara tíma. HEIMILISLlNAN ®BÚNAÐARBANKINN Tmtmrbanki www.bLls Kortabók Máls og menningar Morgunblaðið/Þorkell ORN Sigurðsson forstöðu- maður kortadeildar Máls og menningar með nýju Kortabókina, sem hlaut 1. verðlaun í alþjóðlegri sam- keppni um bestu kortagerð ársins 2000. Besta korta gerð árs- ins 2000 KORTABÓK Máls og menn- ingar, sem gefin var út í júní sl. og ætluð er þeim sem ferð- ast um vegi landsins, hlaut fyrstu verðlaun á alþjóðlegri ráðstefnu um kortagerð og landupplýsingar, sem haldin var í Kaliforníu. „Við fórum með bókina á stærstu ráðstefnu kortagerð- armanna sem um getur um kortagerð og landupplýsinga- kerfl,“ sagði Örn Sigurðsson forstöðumaður kortadeildar. Þátttakendur voru um 10 þúsund „Þátttakendur voru um 10 þúsund frá fjölmörgum þjóð- löndum og kepptu þúsund kort til verðlauna í sam- keppni um bestu kortagerð ársins 2000. Við erum að sjálfsögðu í sjöunda himni með verðlaunin." Kortabókin, sem unnin er af Hans H. Hansen korta- gerðarmanni, fékk 1. verð- laun í hópi kortaflokka og kortabóka og sagði Örn að gaman væri að geta þess að fjórðungskortin frá Mál og menningu, sem eru þau sömu og í bókinni fengu 1. verðlaun í sama flokki á síðasta ári. „Það er algert einsdæmi að fyrirtæki fái þessi verðlaun tvö ár í röð því við erum til dæmis að keppa við National Geographic og US Geological Survey,“ sagði hann. „Þetta bætir verulega samkeppnis- stöðu okkar til dæmis gagn- vart Landmælingum íslands og er ánægjulegt að vita til þess að einkarekin kortagerð skuli vera orðin þetta góð. Bókin er sniðin fyrir þá sem eru að ferðast um landið á bíl og sem slik er hún mjög góð. Þarna eru einnig kort yfir helstu þéttbýlisstaði landsins ásamt ítarlegri nafnaskrá.“ Islenski hesturinn í opinberar móttökur VALDIR hafa verið úrvals hest- ar og knapar úr hópi færustu reiðmanna til að taka þátt í opin- berum móttökum að því er fram kom í eiindi GuðnaÁgústssonar landbúnaðarráðherra á ríkis- stjómarfundi í gærmorgun. „Nú bíðum við bara spenntir eftir fyrsta gestinum sem fær að njóta þess að sjá íslenska hest- inn og hestamenn i þessu nýja hlutverki," sagði Guðni. Guðni sagði að búið væri að skipa sýningarstjóm með full- trúum frá landbúnaðarráðu- neyti, Landssambandi hesta- manna og Félagi tamningamanna og að stjórnin hefði ráðið Eystein Leifsson, hestamann í Mosfellsbæ, í starf sýningarstjóra. Sýningarstjór- inn myndi annast val á hestum og knöpum ásamt þjálfun sýn- ingarliðs. Landslið hestamanna, sem skipað yrði 8 til 10 reið- mönnum, myndi taka þátt í op- inberum móttökum og öðmm opinberum athöfnum eftir því sem ráðuneyti og stofnanir rík- isins óskuðu. Guðni sagði að einkaaðilum yrði einnig gert kleift að kaupa slíka sýningu ef þeir hefðu áhuga á.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.