Morgunblaðið - 06.07.2000, Side 24

Morgunblaðið - 06.07.2000, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ - ; V ; . URVERINU Ályktun fundar Alþjóða hvalveiðiráðsins Vinnu við stjórnun hvalveiða hraðað Höldum fótunum mjúkum í sumar Kaupauki frá Scholl efkeypter 1 fótakrem og 1 fótaþjöl þá fylgir snyrtitaska með í kaupauka vDmbl.is! LL.TAf= e!TTH\SAÐ /VÝT7 MIKILVÆGT skrefvar stígið í átt til hvalveiða á fundi Alþjóða hvalveiði- ráðsins í gær en fundurinn er haldinn í Adelaide í Ástralíu. Ályktun um að hraða áætlun um stjóm hvalveiða í atvinnuskyni var samþykkt en álykt- unin var flutt af þjóðum sem hingað til hafa verið á móti hvalveiðum. Sam- þykkt ályktunarinnar þýðir það að fundur verðm- haldinn fyrir hinn ár- lega fund hvalveiðiráðsins sem áætl- aður er í London á næsta ári og verð- ur þá reynt að enda hina tíu ára löngu deilu um innihald endurskoðaðrar áætlunar um nýtingu hvalastofn- anna. Fulltrúar þjóðanna sem stóðu að ályktuninni, með Svíþjóð í farar- broddi, sögðu að ætlun sín væri að auka trúverðugleika Alþjóða hval- veiðiráðsins en trúverðugleiki ráðsins hefur beðið hnekki undanfarin ár vegna aðgerðaleysis. Japan hefur boðist til að halda fundinn, sem áætl- að er að verði haldinn í febrúar, og segir Joji Morishita, yfirmaður úthafsveiðideildar Japans, að þetta sé vissulega skref í rétta átt en það eigi eftir að koma í Ijós hve stórt þetta skref eigi eftir að verða. Umhverfisvemdarsinnar hafa lýst m Umhverfisskipulag, háskólanám (B.Sc.) ■Hefur þú áhuga á háskólanámi f umhverfisskipulagi? •Kynntu þér nýja námsbraut við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri þar sem fjallað er um náttúru landsins og félagslegar aðstæður íbúa þess, Miðað er viö að nemendur verði færir um að þróa og móta búsetulandslag m,a. út frá fagurfræðilegum og umhverfistengdum sjónarmiðum. •Námsbrautin er viðurkennd sem fyrri hluta nám í landslagsarkitektúr við Norska landbúnaðarháskólann í Ási. •Heimsæktu sýningarbás Landbúnaðarháskólans á BÚ2000 og fáðu upplýsingar um námið og önnur atriði sem tengjast því að stunda nám á Hvanneyri. Þar getur þú einnig sótt um skólavist. Landbúnaðarháskóllnn á Hvanneyri 311 Borgarnes sími: 437 0000 fax: 437 0048 www.hvanneyri.is / lbh@hvanneyri.is yfir áhyggjum vegna þessarar álykt- unar og telja margir að nú verði ekki aftur snúið. Þeir benda á að margir þættir séu óleystir áður en veiðar geta hafist eins og siðfræði veiðanna og lagabókstafur til að framfylgja þeim reglum sem Alþjóða hvalveiði- ráðið setur. Á fundinum í gær var áætlunum Japana um að hefja vísindaveiðar á fleiri hvalastofnum, þar á meðal búr- hval, hafnað. Þetta er í fyrsta skiptí síðan hvalveiðibannið var sett á 1986 sem einhver þjóð hyggst veiða búr- hval og var það harðlega gagnrýnt af verndarsinnum. Japanir voru jafn- framt gagnrýndir fyrir hrefnuveiðar sínar í vísindaskyni og hvattir til að hætta þeim sem fyrst en undanfarin ár hafa Japanir veitt um 540 hrefnur árlega. Afgreiðslu helstu mála lokið Kristín Haraldsdóttir hjá Sjávar- útvegsráðuneytinu hefur setíð fund- inn ásamt Þórði Ásgeirssyni fiskistofustjóra. Kristín segir að búið sé að ræða öll helstu mál en fundinum lýkur á morgun. „Helstu málin sem hafa verið tekin fyrir eru tillaga Ástr- ala og Nýsjálendinga um griðasvæði fyrir hvali í Suður-Kyrrahafi sem var felld með 11 atkvæðum gegn 18. Síð- an fór dagurinn í gær að mestu í að endurskoða stjórnunarreglur sem eru forsenda þess að hægt verði að aflétta hvalveiðibanninu. Fyrir fundinn hafði maður orðið var við bjartsýni í þessum efnum og eru menn sammála um að eitthvað hafi nú þokast en þó eru erfiðustu málin enn eftir. Það var samþykkt ályktun um tveggja ára ramma til að ljúka endurskoðun reglnanna sem er líklega bjartsýnasta áætlunin. í gær voru einnig miklar umræður um vísindaveiðar Japana en þær eru alltaf harðlega gagnrýndar á þessum fundum. Það voru samþykktar álykt- anir um að skora á þá að hætta þeim. Eru þær ályktanir í í svipuðum dúr og verið hefur og í raun endurtekn- ing. Eins mæltust áætlanir Japana um að bæta hvalastofnum inn í vís- indaveiðar sínar einkar illa fyrir hjá þeim ríkjum sem styðja vemdun hvala og var samþykkt ályktun um það.“ Kristín segir að ályktun um að hraða gerð stjómunarreglna hafi ekki komið sérstaklega á óvai’t þar sem hún hafi komið í beinu framhaldi af þeirri umræðu sem var í gangi. „Ríkin sem stóðu að ályktuninni em ríki sem hafa lýst yfir áhyggjum af framtíð stofnunarinnar. Það kom kannski svolítið á óvart að Svíar stóðu að ályktuninni þar sem maður hafði tilfinningu fyrir því í byrjun fundar- ins að þeir væm heldur að herða af- stöðu sína gegn hvalveiðum. Þeir lýstu yfir að verndarsvæði um öll höf væra þeirra markmið og eins hafa þeir verið mjög eindregnfr í afstöðu sinni í gegnum tíðina en svo koma þeir með þessa ályktun engu að síður. Hvatinn að þessu var sjálfsagt sá að það barst bréf inn á fundinn frá CITES, Samningur um alþjóðlega verslun með tegundir villtra dýra og plantna í útrýmingarhættu, sem mér skilst að sé í svipuðum dúr og sam; þykktir á síðasta fundi CITES. í bréfinu var það brýnt að vinnan inn- an Hvalveiðiráðsins gengi ekki nægi- lega hratt og það ýtti við mönnum og kom af stað umræðum." Japanir og Norðmenn svartsýnastir Kristín segir að þegar rætt sé við aðildarríkin hafi menn almennt góða tilfinningu fyrir framtíðinni og flest ríkin telja að banninu verði aflétt inn- an fárra ára. „Þó benda margir á að erfiðustu málin séu eftir og mér sýn- ist að það séu Japanir og Norðmenn sem em svartsýnastir á þetta enda liggur þeim mest á. Ánnars er ómögulegt að segja hvað önnur ríki em að hugsa og það fer mikið eftir því við hvern maður talar en það er al- menn tilfinning manna að þetta verði að gerast fyrir næsta CITES-fund sem verður árið 2002. Erfiðu málin sem eftir era lúta fyrst og fremst að eftirliti og stjóm- unarreglunum. Síðan em hvalafrið- unarsinnar að reyna að koma inn eftirliti með viðskiptum með hvalaaf- urðir en Norðmenn og Japanir era því mótfallnir og segja að það eigi ekki að fallaundir þennan samning og um þetta er algjör grandvallar- ágreiningur. Jafnframt era mörg önnur einfaldari mál eftir en þetta tekur allt saman tíma.“ Síðasti fundardagurinn er í dag og segir Kristín að umræðu um flest öO stóra málin sé lokið. Á fundinum í dag verður skýrsla vísindanefndar stofn- unarinnar kynnt ásamt því sem ýmis smærri mál verða tekin fyrir. FUJI FinePix 4700 ZOOM Starfsmenntanám í búfræði •Langar þig til að vinna við landbúnaö? •Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri býður fjölbreytta starfsmenntun (landbúnaði með áherslu á nautgriparækt og sauðfjárrækt, auk margra valgrelna s.s. hrossarækt, landbætur í úthaga, skógrækt, búsmíði ofl. •Auk staðbundins náms er boðið upp á starfsmenntanám I fjarkennslu sem miðast við þarfir starfandi bænda. Slikt nám er skipulagt einstaklings- bundið fyrir hvem nemanda. •Heimsæktu sýningarbás landbúnaðarháskólans á BÚ2000 og fáðu upplýsingar um námið og önnur atriði sem tengjast því að stunda nám á Hvanneyri. Þar getur þú einnig sótt um skólavist. Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri 311 Borgarnes sími: 437 0000/fax: 437 0048 www.hvanneyri.is / !bh@hvanneyri.is BYLTING f stafrænni Ijósmyndun 4.3 miljón pixel. f/2.8 x3 Super EBC zoomlinsa sem jafngildir 38-114mm á 35mm vél. Macroeiginleikar. 5 prógrömm. 3 ijósmælingar TTL. Lokari 1/2000 til 3 sek. Jpeg format. Innbyggt flass. USB tengi. Adobe PhotoDeluxe 3.0. l'KMKUI W£ digital sn Skipholti 31, sími 568-0450 Kaupvangsstræti 1, sími 461 2850 __________________ www.fujifilm.is___________________________

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.