Morgunblaðið - 06.07.2000, Síða 49

Morgunblaðið - 06.07.2000, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2000 49 Frum- stæð lausn ÞEGAR ég var strákur á eyrinni á Akureyri var stundum talað um þjóðilokk sem kallaður var einu nafni Þorparar. Hann hafði fast að- setur norðan Glerár. Einhvern veg- inn fékk ég á tilfinninguna að þar giltu önnur lögmál og aðrar viðmið- anir en sunnan árinnar og það myndi aðeins flaskja tilveruna að reyna að skilja í hverju mismunur- inn væri fólginn; þeir væru bara þarna og liði vonandi vel. Síðan Sund Sá valkostur að kynna Glerárlaug og vekja at- hygli á þeirri ágætu að- stöðu og þjónustu sem þar er að finna, segir Ragnar Sverrisson, virðist ekki hafa þótt heillavænlegt skref. varð Þorpið hluti Akureyrarbæjar og við margir fluttum þangað en ýmislegt bendir þó tO að þar ríki áfram aðrar reglur og annar siður. Skelltílás Fyrir nokkrum árum var byggð sundlaug í Þorpinu sem heitir nú því virðulega nafni Glerárhverfi. Henni var ætlað að sinna þörfum okkar Þorpara svo við gætum með hægu móti stundað sund og aðra fagra mennt til jafns við þá sunnan ár. Strax í upphafi komust bæjaryf- irvöld að þeim greindarlegu niður- stöðu að rétt væri að opna sund- laugina á sama tíma á morgnana og Sundlaug Akureyi’ar. Líklega færu Þorparar á fætur á svipuðum tíma og aðrir Akureyringar. Nýlega sáu þau að þarna hefðu verið gerð mis- tök og úr þyrfti að bæta. Gefin var út tilskipun frá yfirvöldum um að halda Þorpslauginni lokaðri til klukkan 10 og auk þess um helgar yfir sumarið. Þeir sem hefðu hingað til vanið komur sínar þangað strax og opnað var kl. 6.45 á morgnana yrðu annað tveggja að leggja af þann ósið eða leggjast í ferðalag og mæta í hinni einu sönnu sundlaug Akureyringa allra í hinum enda bæjarins. Þar gildir að vísu ekki árskortið sem við nokkrir höfum keypt enda ólíku saman að jafna vatninu sunnan ár og norðan þrátt íyrir að það sé ætlað til sama brúks. Vinna að aukinni aðsókn Yfirvöld hafa sagt að of fáir kæmu í laugina og því aðeins eitt ráð til: læsa öllu og loka og gefast upp með það sama. Hinn valkostur- inn, að kynna laugina og vekja at- hygli fleiri á þeirri ágætu aðstöðu og þjónustu sem þar er að finna, virðist ekki hafa þótt heillavænlegt skref. Hvernig væri samt sem áður að gera tímabundið markaðsátak til þess að láta reyna á hvort aðsókn myndi aukast? Það mætti t.a.m. bjóða bæjarbúum frítt í laugina í júlí og ágúst, bjóða þjálfurum yngri flokka íþróttafélaganna að fara með ungviðið í sund og heita potta og vekja með ýmsum öðrum hætti at- hygli á því sem í boði er. Væri ekki ágætt fyrir það góða fólk sem skip- ar íþrótta- og tómstundaráð að setj- ast með okkur Pottverjum í heita pottinn eftir góðan sundsprett og fara yfir ýmsar hugmyndir sem þar hafa fæðst og miða að því að auka aðsóknina. Við höfum nefnilega meiri trú á að kynningar- og mark- aðsstarf skili betri árangri en að loka og nýta ekki þessi ágætu mannvirki betur. Það er alltént einnar Pottmessu virði að ræða málið, a.m.k. á meðan við sem erum utanfyrir erum enn á kjörskrá. En að leysa málið með svo frumstæðum hætti að gefast upp og loka er ekki einu sinni bæjaryf- irvöldum sæmandi. Dýrast í sund á Akureyri Nú er mikið talað um að vinna að því að fá fleiri til að flytjast hingað til Akureyrar. Það er gott verk og þarft. En úr því við er- um að tala um laugarn- ar okkar er kannski ekki úr vegi að bæjaryfírvöld íhugi hvaða áhrif miklu hærri gjaldtaka vegna sundlaugaferða hér á Akur- eyri en víðast hvar á Reykjavíkursvæðinu hefur á ímynd bæjar- ins. Staðreyndin er t.d. sú að ein ferð í sundlaug hér er 109% dýrari en í Mosfells- bæ, 28% dýrari en í Hafnarfirði og 15% dýrari en í Reykjavík. Arskortin eru auk heldur 33% dýrari en í Reykjavík, 43% dýr- ari en í Hafnarfirði og 60% dýrari en í Kópa- vogi. Ekki getur þessi verðlagning hvatt til flutninga norður - að ekki sé talað um ef annað er sama markinu brennt. Menn verða að hafa í huga að Akur- eyri er í samkeppni um fólkið og það hlýtur að veikja okkur í þeirri keppni ef boðið er upp á svo mikinn verðmismun á þjónustu sem í dag er talið sjálfsagt og nauðynlegt. Þegar við bætist að menn geta átt yfir höfði sér að þjónusta verði aflögð vegna þess að gleymst hafði að vekja athygli á henni, þá er eins víst að fólk fái óstöðvandi hláturs- kast þegar minnst er á að flytja norður í þennan fallega bæ með sín sérkennilegu lögmál og viðmiðanir. Höfundur er kaupmaður á Akureyri og formaður Pottorma í Glerárlaug. Vestur-íslendingar leita ættingja sinna hér heima. Sjá: www.kristur.net Ragnar Sverrisson ÆGIR EYIARSl-ÓÐ 7 • Sími 51 I 2200 N Ó A T Ú N Ferskir kjúkiinga lærlegqm noldmikHr og safaríkir 499: 7 ( ývwsvÁav \ \ V.WNvAV' J ' v\ J Vildarpunktar Flugleiða Þú faerð ferðapunkta þegar þú greiðir með greiðslukorti Visa og Flugleiða f verslunum Nóatúns. N O AIT U N NÓATÚN117 • R0FABÆ 39 • HÓLAGARÐI * HAMRAB0RG 14 KÓP. • HVERAF0LD • FURUGRUND 3, KÓP. • ÞVERH0LTI 6, M0S. • JL-HÚSI VESTUR í BÆ • KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI • KEFLAVÍK. www.noatun.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.